Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1997, Page 26
34
FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 1997
Afmæli
Tryggvi Gunnarsson
Tryggvi Gunnarsson skipstjóri,
Miöbraut 7, Vopnafirði, er sjötugur
í dag.
Starfsferill
Tryggvi fæddist á Brettingsstöð-
um í Flateyjardal og ólst þar upp.
Hann stundaði nám í Laugaskóla og
lauk síðan fiskimannaprófi, n. stigi,
frá Stýrimannaskólanum í Reykja-
vík.
Tryggvi var skipstjóri á árunum
1950-93, á Vísi frá Húsavík, Stjöm-
unni RE 3, Akraborginni EA 50, og
Sigurði Bjamasyni EA 250.
Tryggvi hóf útgerðarrekstur með
Vopnfirðingum og stofnaði með
þeim útgerðarfyrirtækið Tanga hf
1966 sem keypti Bretting NS 50 1967.
Þá festu þeir kaup á skuttogaranum
Brettingi 1973 og var Tryggvi skip-
stjóri á Brettingi til 1993. Hann er
nú lóðs og vaktmaður á Vopnafirði.
Tryggvi var varaþing-
maður fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn í Austurlands-
kjördæmi 1979-87. Hann
var fulltrúi á Fiskiþingi í
mörg ár, starfaöi í
Kiwanisklúbbnum Öskju
á Vopnfirði í tuttugu ár
og sat í stjórn Tanga í
tuttugu og þrjú ár.
Hann hefur skrifað
nokkrar greinar í sjó-
mannablaðið Víking.
Fjölskylda
Tryggvi kvæntist 15.2. 1953 Heið-
björtu Bjömsdóttur, f. 16.9. 1930,
matráðskonu við Vopnafjarðar-
skóla. Hún er dóttir Björns Jó-
hannssonar, bónda að Syðra-Lauga-
landi í Eyjaíjarðarsveit, og Emmu
Elíasdóttur húsfreyju en þau era
bæði látin.
Börn Tryggva og Heiö-
bjartar em Þorgerður, f.
12.9. 1949, hárgreiðslu-
meistari í Kópavogi en
maður hennar er Gylfi
Ingimundarson, verk-
stjóri hjá Eimskip og eiga
þau tvær dætur og þrjú
bamaböm; Hulda, f. 17.4.
1953, hjúkrunarfræðing-
ur og Ijósmóðir í Reykja-
vík en maður hennar er
Jóhann Einar Jakobsson
rafvirki og eiga þau einn
son og tvær dætur; Gunn-
ar Bjöm, f. 10.10. 1955, skipstjóri á
Vopnafirði en kona hans er Birna
Einarsdóttir húsmóðir og eiga þau
fjórar dætur og eitt bamabarn;
Emma, f. 22.10.1959, hjúknmarfræð-
ingur og ljósmóðir á Vopnafirði en
maður hennar er Steindór Sveins-
son húsamíðameistari og eiga þau
tvær dætur; Adda, f. 19.3. 1961,
hjúkrunarfræðingur á Vopnafirði
en maður hennar er Aðalbjörn
Bjömsson skólastjóri og eiga þau
þrjá syni.
Systkini Tryggva: Sigurður Þórð-
ur, f. 9.7.1925, d. 17.10. 1990, vélstjóri
á Akureyri; Ingveldur, f. 30.8. 1931,
ljósmóðir á Akureyri; Óli Bretting-
ur, f. 24.4. 1929, sjómaður á Akur-
eyri;Adda Kristrún, f. 7.6. 1933,
sjúkrahússtarfsmaður á Akureyri.
Foreldrar Tryggva voru Gunnar
Tryggvason, f. 30.6. 1885, d. 23.10.
1973, bóndi að Brettingsstööum í
Flateyjardal, og Emelía Sigurðar-
dóttir, f. 8.10. 1893, d. 30.3. 1960, hús-
freyja.
Tryggvi dvelur á bernskuslóðun-
um á afmælisdaginn.
Eiríkur Þorgeirsson
Eiríkur Þorgeirsson, bóndi að
Túnsbergi i Hrunamannahreppi, er
sjötugur í dag.
Starfsferill
Eiríkur fæddist að Fjalli í
Skeiðahreppi og ólst þar upp og að
Túnsbergi. Hann gekk í
Bamaskólann á Flúðum í fjóra
vetur, stundaði nám við
Héraðsskólann á Laugarvatni
1945-47 og við Iðnskólann á Selfossi
1951-52 og lauk þar húsasmíðanámi.
Eiríkur æfði og keppti i
langhlaupum í mörg ár og með
góöum árangri með ungmennafélagi
Hrunamanna, sat í stjóm félagsins
um árabil, er félagi í
Kiwanisklúbbnum Gullfossi og
hefur gegnt trúnarðarstörfum fyrir
hann. Þá hefur hann sungið með
ýmsum kóram, m.a. meö kirkjukór
Hrunasóknar um fimmtíu ára skeið.
Fjölskylda
Kona Eiríks frá 3.11. 1962 var
Alda Johansen. Þau skildu.
Kjörbörn Eiríks eru Jóhann M.
Guðmundsson, f. 14.9. 1956,
sendibílstjóri, búsettur í
Mosfellsbæ, kvæntur Hlíf
Guðmundsdóttur og eiga þau tvö
böm; Sigurður H. Jónsson, f. 4.1.
1959, bifvélavirki á Flúðum,
kvæntur Jónínu Kristbjörgu
Björnsdóttur og eiga þrjú börn.
Börn Eiríks og Öldu
eru Sigríður Eiríksdóttir,
f. 29.6. 1962, stöðvarstjóri
Pósts og sima á Flúðum,
gift Þorkatli Þorkelssyni
og eiga þau tvö böm;
Gunnar Eiríksson, f. 20.3.
1964, bóndi á Túnsbergi,
kvæntur Möggu
Sigurbjörgu
Brynjólfsdóttur og eiga
þau þrjá syni.
Systkini Eiríks:
Jóhanna Margrét, f. 6.9.
1926, húsmóðir í
Reykjavík; Sigríður Ófeigs, f. 16.6.
1930, húsmóðir á Selfossi; Siggeir, f.
28.6. 1932, verkamaður á Túnsbergi;
Kjartan Jóhannes, f. 7.10.
1934, rennismiður í
Hafnarfirði.
Foreldrar Eiríks vom
Þorgeir Jóhannesson, f.
að Skriðufelli í
Gnúpverjahreppi 1894,
bóndi, og Sigriður
Eiríksdóttir, f. að
Hraunbæ í Álftaveri
1896, húsfreyja.
Eiríkur verður með opið
hús að Hótel Eddu, í
Félagsheimili
Hrimamanna í kvöld,
24.7. kl. 20.00-23.00.
Eiríkur Þorgeirsson.
Sigrún Guðnadóttir
Sigrún Guðnadóttir
húsmóðir, Miðási 2,
Raufarhöfn, varð fimm-
tug í gær.
Starfsferill
Sigrún fæddist á Rauf-
arhöfn og ólst þar upp.
Hún gekk í Bama- og
unglingaskólann á Rauf-
arhöfn, stundaði nám við
Héraðsskólann á Laugum
í Reykjadal og síðan við
Húsmæðraskólann á
Laugum.
Auk húsmóðurstarfa var Sigrún
talsímavörður hjá Pósti og síma í
nokkur ár. Þá stundaði hún versl-
unarstörf og hefur verið í
fiskvinnslu.
Fjölskylda
Sigrún giftist 21.9. 1969
Baldri Hólmsteinssyni, f.
24.8.1937, útgerðarmanni.
Hann er sonur Hólm-
steins Helgason, útgerð-
armanns á Raufarhöfn,
og k.h., Jóhönnu Bjöms-
dóttur húsmóður.
Sonur Sigrúnar og Hall-
dórs F. Olesen er Helgi
Friðrik Halldórsson, f.
13.6.1966, kvæntur Karen H. Viðars-
dóttur og er sonur þeirra Viðar Jan-
us, f. 27.1. 1997 en stjúpdóttir Helga
er Helga Sara Henrysdóttir, f. 14.7.
1987.
Börn Sigrúnar og Baldurs em
Bjöm Þór Baldursson, f. 12.1. 1969
en kona hans er Berglind Friðbergs-
dóttir og er sonur þeirra Baldur
Friðberg, f. 20.7. 1991; Gunnar Páll
Baidursson, f. 29.3. 1971; Sigurður
Rúnar Baldursson, f. 1.6. 1972 en
kona hans er Sandra Ösp Gylfadótt-
ir; Jakob Már Baldursson, f. 23.12.
1974; Ingunn Valdís Baldursdóttir, f.
10.5. 1984.
Systkini Sigrúnar eru Þórhildur
Guðnadóttir, f. 2.11.1940, verkakona
á Raufarhöfn; Jónas Friðrik Guðna-
son, f. 12.12. 1945, skrifstofumaður á
Raufarhöfn; Guðný Margrét Guðna-
dóttir, f. 6.5. 1949, læknaritari á
Kópaskeri; Árni Stefán Guðnason, f.
28.10. 1950, kennari á Hólum í
Hjaltadal; Jón Guönason, f. 25.5.
1952, verkamaður og sjómaður á
Kópaskeri; Örn Guðnason, f. 15.4.
1954, starfsmaður Hafrannsóknar-
stofnunar á Akureyri; Þórarinn
Guðnason, f. 18.1. 1957, d. 6.3. 1995,
verslunarstjóri í Reykjavík; Guðrún
Hólmfríður Guðnadóttir, f. 25.6.
1961, leikskólakennari i Reykjavík.
Foreldrar Sigrúnar: Guðni Þ.
Ámason, f. 2.11. 1917, d. 1.6. 1981,
skrifstofustjóri á Raufarhöfn, og
k.h., Helga Jónsdóttir, f. 6.11. 1915,
húsmóðir.
Sigrún Guðnadóttir.
Guðbjörg Einara Guðmundsdóttir
Guðbjörg Einara Guðmundsdótt-
ir, húsmóðir og starfsmaður Kópa-
vogskaupstaðar, Álfhólsvegi 107,
Kópavogi, er fimmtug í dag.
Starfsferill
Guðbjörg fæddist við Nönnugöt-
una í Reykjavík og ólst þar upp.
Hún gekk í Miðbæjarskólann og
stundaði síðar nám við Húsmæðra-
skólann á Laugalandi í Eyjafirði.
Guöbjörg starfaði hjá Samvinnu-
tryggingum 1965-69. Undanfarin
þrjú ár hefur hún verið starfsmaður
við leikskólann Kópahvol í Kópa-
vogi. Þá hefur hún jafn-
frámt starfað hjá Vélabók-
haldinu ehf. frá 1985 en
það er bókhaldsskrifstofa
í eigu þeirra hjóna.
Guðbjörg hefur starfað
með Freyju, félagi fram-
sóknarkvenna í Kópavogi,
og setið í stjóm þess.
Fjölskylda
Eiginmaður Guðbjarg-
ar er Ragnar Snorri Magn-
ússon, húsnæðisfulitrúi í
Kópavogi. Hann er sonur
Guðbjörg Einara
Guðmundsdóttir.
Magnúsar Loftssonar,
bílstjóra í Kópavogi, og
k.h., Jónínu S. Ásbjörns-
dóttur húsmóður.
Börn Guðbjargar og
Ragnars Snorra em Guð-
mundur Sveinbjöm, f.
19.4. 1969, háskólanemi á
Akureyri en sambýlis-
kona hans er Guðrún
Valdimarsdóttir og er
sonur þeirra Hafþór Ingi,
f. 19.8. 1993; Birgir Öm, f.
5.10. 1971, flugumsjónar-
maður hjá Flugleiðum en
sambýliskona hans er Anna Elín
Jasonardóttir; Magnús Snorri, f.
7.11. 1975, flugþjónn hjá Atlanta;
Guðlaug Elfa, f. 16.6. 1978, mennta-
skólanemi.
Systkini Guðbjargar eru Kjartan
Vilhjálmur Guðmundsson, raf-
virkjameistari i Reykjavík, og Svala
Guðmundsdóttir, flugfreyja hjá
Flugleiðum.
Foreldrar Guðbjargar voru
Guðmundur Sveinbjöm Runólfsson,
f. 23.12. 1905, bílstjóri í Reykjavík,
og Guðlaug Vilhjálmsdóttir, f. 27.5.
1907, húsmóðir.
Stefán V. Stefánsson
Stefán V. Stefánsson húsasmiður,
Skúlabraut 39, Blönduósi, er fertugur í
dag.
Fjölskylda
Kona Stefáns er Ámý Þóra Árnadóttir,
f. 25.7. 1963, matvælafræðingur. Hún er
dóttir Áma S. Jóhannssonar og Bryndisar
Ármannsdóttur i Reykjavík.
Dóttir Stefáns og Margrétar Páisdóttur
svæfingarhjúkmnarkonu er Eyrún Mar-
grét, f. 20.7. 1979 en dóttir Eyrúnar
Margrétar er Birta Líf Bjarkadóttir, f.
20.10. 1996.
Synir Stefáns og Ámýjar Þóru em Dan-
íel Valgeir Stefánsson, f. 4.4.1988; Brynjar
Ámi Stefánsson, f. 8.4.1990.
Systkini Stefáns urðu sex talsins og eru
fimm þeirra á lífi.
Foreldrar Stefáns eru Stefán Sigtryggur
Valdimarsson, bifreiðastjóri að Litlagerði
í Mosfellsbæ, og k.h., Huida Jakobsdóttir
iðnverkakona.
Stefán verður að heiman á afmælisdag-
inn.
Stefán Stefánsson.
DV
Hl hamingju
með afmælið
24. júlí
90 ára
Dagný Guðmundsdóttir,
Sunnuvegi 3, Skagaströnd.
85 ára
Guðrún Sveinsdóttir,
Hæðargarði 35, Reykjavík.
80 ára
Hólmfríður Steinþórsdóttir,
Hlíðarvegi 3, Siglufirði,
verður áttræð á morgun.
Hún tekur á móti gestum í
Alþýðuhúsi Siglufjarðar
á morgun kl. 18.00.
Vigfús Jósefsson,
Sætúni, Þórshafiiarhreppi.
Lára Dagbjartsdóttir,
Höfða, Þverárhlíðarhreppi.
Guðrún Sigurðardóttir,
Smiðjuvegi 19, Kópavogi.
75 ára
Guðrún Árnadóttir,
Meiðavöllum,
Kelduneshreppi.
Guðmundur F. Sölvason,
Hlíðarvegi 16, ísafirði.
Jóhanna Elin Ámadóttir,
Furugrund 30, Kópavogi.
70 ára
Þórir Sigurðsson,
fyrrv. myndmennta-
kennari og náms- pgf* i
tjóri, Vesturbrún 6,
Reykjavík. Fíöl-
skylda Þóris, ættingjar og
vinir ætla að gleöjast með
honum í Katagili, skólaseli
Kennarafélags Laugarnes-
skóla, laugard. 26.7. kl. 17-20.
Sigurður Finnsson,
Dverghömmm 2, Reykjavik.
60 ára
Rósa Jónsdóttir,
Sólbakka við Vatnsenda.
Margrét Hermannsdóttir,
Súluholti, Villingahhreppi.
50 ára
Magnea G. Ingólfsdóttir,
Vaðlaseli 7, Reykjavik.
Jóhann Ingibjömsson,
Hagaseli 17, Reykjavík.
Margrét Sigurbergsdóttir,
Hörgatúni 15, Garðabæ.
Ella B. Bjamarson,
Kvisthaga 7, Reykjavík.
Guðmundur Finnsson,
Einholti 4 D, Akureyri.
Gísli Ingólfsson,
Bröttugötu 21, Vestmeyjum.
40 ára_________________________
Sigrún H. Þorsteinsdóttir,
Flugumýrarhv., Akrahreppi.
Ingibjörg Einarsdóttir,
Fögrukinn 2, Hafharfirði.
Gylfi Magnússon,
Kaplaskjólsvegi 41, Reykjavík.
Björg Bergljót Pálmadóttir,
Hávallagötu 22, Reykjavík.
Þorbjörg Vilhjálmsdóttir,
Dalsbyggð 2, Garðabæ.
Þóranna G. Óskarsdóttir,
Austurgötu 28, Hofshreppi.
Jódis H. Runólfsdóttir,
Mávahlið 25, Reykjavík.
Markús Sveinn Markússon,
Baughúsum 46, Reykjavík.
Egill Danielsson,
Nesvegi 41, Reykjavik.
Sveinbjörn Jónsson,
Stóm-Mörk I, V-Eyjafjhreppi.
Magnús J. Jóhannesson,
Vogagerði 2, Vogum.
Sigurður F. Magnússon,
Bræðrabstíg 5, Reykjavík.
Hans Jónas Gxmnarsson,
Melgerði 31, Kópavogi.
Magnús K. Sigurðsson,
Bessahrauni 8, Vestmeyjum.
Erlendur Markússon,
Laufengi 5, Reykjavík.
Bjami Bessason,
Næfurási 3, Reykjavík.
María Hrand Sigurjónsdóttir,
Hlíðarvegi 38, Kópavogi.