Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1997, Qupperneq 28
36
FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 1997
Ólafur
Disney
„Og hann skirrist ekki viö að
gerast disneyskari en Disney og
birta drög að kvikmyndahandriti
um snáðann Snorra Þorfinnsson
sem mun vera fyrsta bam úr
gömlu Evrópu sem fæddist vest-
ur þar.“
Jóhannes, í Degi-Tímanum, um
hr. Ólaf Ragnar Grímsson og
Bandaríkjaför hans.
Kyn-
skipting
„Trúaðir leita burt. Þeir skipta
um kyn á guði, en Kristur má
halda sínu, stofna mæðrakirkju,
þykjast hverfa til upprunans og
verða kaþólskir, þ.e. sjóða í
munnvaðal heimatilbúinn lút-
ersk- kaþólskan hrærigraut ofan
i ráðvillta á breytingaskeiðinu."
Guðbergur Bergsson, í DV, um
upplausn þjóðkirkjunnar.
Ummæli
Heilagur
bíll
„Er þessi kristnitökuhátíð
ekki farin að stíga mönnum til
höfuðs? Eða stendur til að taka
nýjan sið: bílinn í guðatölu?"
Stefán Jón Hafstein, í Degi-
Timanum, um fyrirhugaðar
vegaframkvæmdir vegna
kristnitökuhátíðar á Þingvöll-
um.
Mergö óperugesta.
Stærsta
óperu-
húsið
Metropolitan-óperuhúsið í
Lincoln Center í New York rúm-
ar 3800 manns í sæti í sal sem er
137 metrar að lengd. Sviðið er 71
metri að breidd og 44,5 metrar að
dýpt. Óperuhúsið var fullgert í
september 1966 og kostaði bygg-
ing þess 45.700.000 dali.
Blessuð veröldin
Eplaflysjun
Hin sautján ára gamla Kathy
Wafler frá Wolcott í New York
fylki afhýddi 567 gramma þungt
epli á 11,5 klukkstund árið 1978.
Hýðið af eplinu myndaði þá sam-
hangandi strimil sem var 52,51
metri að lengd sem er lengsti
hýðisstrimill sem vitað er um.
Elsti
landher
Elsti her í heimi er 80 manna
varðlið í Vatikaninu. Það var
formlega stofnað 21. janúar árið
1506. Upphaf þess má þó rekja
aftur til þréttándu aldar.
Ólafur Johnson, skólastjóri Hraðlestrarskólans:
Stúdentspróf á tveimur árum
„Hraðlestrarskólinn er búinn að
vera starfandi í næstum tuttugu ár.
Við höfum haldið námskeið bæði
fyrir fólk i atvinnulífinu og skóla-
fólk með mjög góðum árangri. Þar
hefur fólk náð að fjórfalda lestrar-
hraða sinn,“ segir Ólafur Johnson
skólastjóri Hraðlestrarskólans. Ólaf-
ur vill stofna einkaframhaldsskóla
fyrir afburðanemendur þar sem
hægt yrði að ljúka stúdentsprófi á
tveimur árum. „Ég er að hugsa um
skóla fyrir fámennan hóp sem í eru
afburða duglegir námsmenn. Með
þessu er ég ekkrendilega að segja að
framhaldsskólastigið sé of létt en
það eru margir sem gætu lokið
framhaldsskólanum á styttri tíma.
Ég hef líka reynslu sem framhalds-
skólakennari og horfi oft upp á
hæfileikaríkt fólk sem ekki fær
verkefni við hæfi. Það er verið að
halda þessu fólki niðri.“
Þegar Ólafur er spurður hvort
hann hafi sjálfur verið afburða
námsmaður segir hann: „Nei, ég var
ekki einn af þessum afburða góðu
námsmönnum. Ég átti mér nokkrar
uppáhaldsnámsgreinar og mér
fannst ýmislegt skemmtilegt en ég
vil ekki taka neitt eitt út úr.“
Ólafur hefur mörg jám í eldinum
því auk þess að vera kennari í Fjöl-
brautaskólanum í Breiðholti og
stofnandi og
skólastjóri Hrað-
lestrarskólans
hefur tími hans
að undanförnu
mikið snúist um
undirbúning
skólans fyrir af-
burðanemend-
urna. „Ég er bú-
inn að vinna í því
í töluverðan tíma
að fá viðurkenn-
ingu á þessum
nýja skóla. Þetta
er dálítið snúið
mál því það þarf
að fá viðurkenn-
ingu mennta-
málaráðuneytis-
ins áður en farið
er af stað til þess
að fá nemendur.
Það vill hins veg-
ar enginn fara í
skóla þar sem
ekki liggur fyrir
að námið verði
viðurkennt.
Ráðuneytið vill hins vegar að skól-
inn sé farinn að starfa áður en við-
urkenningin er veitt."
Um áhugamál sín segir Ólafur:
„Ég hef feikilega gaman af að ferð-
ast um landið og
fer í tjaldútilegur
innanlands með
fjölskyldunni.
Aðspurður segist
Ólafur vera ágæt-
lega hraðlæs
sjálfur en segir
þó marga nem-
endur sína í
Hraðlestrarskól-
anum miklu
hraðlæsari.
„Nemendur mín-
ir hafa margir
hverjir náð
miklu meiri
lestrarhraða en
ég. Þetta er fyrst
og fremst þjálfun
og fólk getur
haldið áfram að
auka hraðann
eftir að nám-
skeiðinu lýkur.
Ólafur er kvænt-
ur Borghildi Pét-
ursdóttur, starfs-
manni Hraðlestr-
arskólans. Þau eiga þrjú börn sam-
an sem eru á aldrinum níu til fjórt-
án ára. Ólafur á einnig eitt barn frá
fyrra hjónabandi.
glm
Olafur Johnson.
Maður dagsins
Myndgátan
Matsverð. Myndgátan hér að ofan lýsir hvorugkynsoröi.
slendingar keppa viö Spánverja
í kvöld.
Evrópu-
keppni
landsliða
í kvöld eru fjórir leikir í Evr-
ópukeppni landsliða karla, átján
ára og yngri. íslendingar mæta
Spánverjum á Laugardalsvelli kl.
20, Portúgalar keppa við Ung-
verja á Kópavogsvelli kl. 18,
Svisslendingar keppa við ísraela
á Akranesvelli kl. 18 og Frakkar
keppa við íra á Kaplakrikavelli
kl. 18.
Iþróttir
Þriðja deild
í þriðju deild karla eru tveir
leikir í kvöld. Þar eigast við
Reynir, Hnífsdal, og Ernir, ísa-
firði, á ísafjaröarvelli kl. 20 og
Neisti, Djúpavogi, og Höttur á
Djúpavogsvelli kl. 20.
Bridge
Hefur þú einhvem tímann lent í
því að beita þvingun á andstæðing-
inn og sjálfur að verða þvingaður af
fríslagnum sem þú bjóst til með
þvinguninni?. Daninn Villy Dam
skrifaði nýlega grein um þessa
óvenjulegu stöðu sem hér fer á eftir.
Getur suður staðið 6 tígla eftir lauf-
ásinn út frá vestri og síðan skipt
yfir í lágt hjarta (sagnhafi setur ás-
inn í blindum)?
4 43
44 D108764
♦ G10
4 Á104
4 1085
<4 ÁK92
4 53
4 G762
4 K976
»» 5
♦ 876
4 KD983
4 ÁDG2
44 G3
4 ÁKD942
4 5
Ef sagnhafi spilar upp á þvingun
og rennir niður öllum trompunum
kemur þessi staða upp:
4 108
44 K
4 -
4 G7
4 4
«4 D10
4 -
4 104
4 ÁDG2
44 G
4 -
4 -
Þegar þú spilar hjartakóngnum
verður austur að henda frá spaðan-
um og sagnhafi á afganginn af slög-
unum með því að svína tvisvar í
litnum. En bíðum við, austur þarf
ekkert að henda spaða. Hann hend-
ir einfaldlega laufkóngnum! Sagn-
hafl getur tekið slag á laufgosann en
það spil virkar sem þvingunarspil á
hendi sagnhafa í suður. Ef hann
hendir spaðatvistinum er aðeins
hægt að svína einu sinni i þeim lit
og ef hann hendir spaðagosa stopp-
ar austur litinn með því að leggja
kónginn á tíuna. Það er að visu háð
því að vestur haldi fast í bæði lauf
sín. Hins vegar gat sagnhafi gert
betur í úrspilinu eins og lesendur
geta sannreynt.
ísak Örn Sigurðsson