Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1997, Blaðsíða 9
ÞRIÐJUDAGUR 4. NÓVEMBER 1997
9
Utlönd
Lögfræðingar bresku barnfóstrunnar:
Vilja fá Louise sýkn-
aða eða ný réttarhöld
Lögfræðingar bresku barnfóstr-
unnar Louise Woodward fóru í gær
formlega fram á það við dómarann i
málinu að hann vísaði frá sakfell-
ingu stúlkunnar fyrir að hafa myrt
átta mánaða gamlan dreng. Lög-
fræðingamir vilja að dómarinn geri
annað tveggja, lýsi stúlkuna sak-
lausa eða fyrirskipi ný réttarhöld.
í gögnum, sem lögfræðingamir
lögðu fram í rétti í Massachusetts í
Bandaríkjunum, halda þeir fram
sakleysi Louise. Þeir segja að ef
dómarinn vilji ekki hreinsa hana
eða fyrirskipa ný réttarhöld ætti
hann í það minnsta að milda dóm-
inn í manndráp af gáleysi. Louise
var í síðustu viku fúndin sek um að
hafa myrt Matthew Eappen, átta
mánaða gamlan dreng sem hún var
að gæta. Hún getur sótt um reynslu-
lausn eftir fimmtán ár. Hámarks-
refsins fyrir manndráp af gáleysi er
20 ára fangelsisvist en ekki er kveð-
ið á um neina lágmarksrefsingu.
Þótt lög í Massachusetts kveði á
um að refsing fyrir morð skuli vera
lífstíðarfangelsi hafa dómarar engu
að síður vald til að breyta úrskm-ði
kviðdómenda.
Að sögn starfsmanns dómsins
mun Hiller Zobel dómari skoða 59
blaðsíðna beiðni verjendanna áður
en hún verður tekin fyrir klukkan
þrjú síðdegis að íslenskum tíma.
Zobel, sem hefúr breytt úrskurði
kviðdómenda að minnsta kosti
þrisvar sinnrnn á ferli sínum, hefur
vald til að hafna úrskurði og lýsa
Louise saklausa. Hann getur einnig
mildað ákæruna, sem gæti stytt
fangavistina, fyrirskipað ný réttar-
Allra augu beinast nú aö Hiller Zo-
bel, dómara í máli barnfóstrunnar
Louise Woodward. Sfmamynd Reuter
höld eða látið niðurstöðuna standa.
Sakfelling Louise Woodward í síð-
ustu viku hefur vakið mikla reiði
um heim allan. Nærri eitt hundrað
stuðningsmenn hennar gengu
fylktu liði fyrir utan dómhúsið í
gær til að mótmæla sektardóminum
og hvöttu Zobel dómara til að
hnekkja honum.
Mótmælendur veifuðu borðum
þar sem meðal annars var gefið í
skyn að foreldrar litla drengsins
hefðu vanrækt hann.
Margir hafa orðið til að harma að
kviðdómurinn í málinu skuli ekki
hafa fengið tækifæri til að lýsa
bamfóstruna seka um manndráp af
gáleysi. Einn þeirra er saksóknar-
inn Thomas Reilly. Hann sagði þó í
útvarpsviðtali að virða ætti niður-
stöðu kviðdómsins. Reuter
Jiang Zemin, forseti Kína.
Sfmamynd Reuter
Forseti Kína
söng úr
Pekingóperu
Forseti Kína, Jiang Zemin,
lauk í gær heimsókn sinni til
Bandaríkjanna og flaug heim frá
Los Angeles til Peking. En áður
en forsetinn hélt heim á leið
lýsti hann því yfir á fundi með
landsmönnum sínum á
sunnudaginn að Kína yrði
öflugt lýðræðisríki á næstu öld.
Fyrr um daginn höfðu
þúsundir mótmælenda safnast
saman fyrir utan hótel I Los
Angeles þar sem Jiang hitti
bandaríska viðskiptaaðila og
stjómmálamenn.
Fyrir heimferðina söng
Kínaforseti stykki úr
Pekingópem í kvöldverðarboði
sem um þúsund gestir sátu.
Trúlausir fá
inngöngu
DV, Ósló:
Kristilegi þjóöarflokkurinn í
Noregi er á hraðferð inn í nútím-
ann. Nú er í alvöru rætt um að
hætta aö láta nýja flokksfélaga
fara með trúarjátninguna áður
en þeir fá inngöngu í tískuflokk-
inn í Noregi. Þá er og rætt um að
hætta að amast við hommum og
lesbíum. Trúarjátningin hefúr til
þessa verið pólitísk stefnuskrá
flokksins.
Nálaraugaö, sem flokksmenn
verða að skríða í gegnum, stækk-
ar því óðfluga um leiö og fylgið
stefnir í himinhæðir. Flokkur-
inn fær nú nær 20 prósenta fylgi
í skoðanakönnunum og 20 pró-
sent í viðbót segjast vel geta kos-
ið flokkinn. Áður fengu kristileg-
ir alltaf 8 til 10 prósent en nú eft-
ir að þeir tóku að sér að leiða
ríkisstjóm Noregs hefur guðs-
blessun - og kjósendum - bók-
staflega rignt yfir flokkinn. -GK
Franskir vörubifreiöastjórar elda hádegismat á þjóövegi noröan viö Lyon þar sem þeir hafa sett upp vegatálma.
Hundruð þúsunda vörubifreiöastjóra eru f verkfalli og hafa þeir sett upp um 150 vegatálma vfös vegar um Frakkland.
Fjöldi evrópskra rfkisstjórna hefur krafist þess aö frönsk yfirvöld haldi vissum vegum opnum fyrir umferö.
Sfmamynd Reuter
Verkfall
vörubifreiöa-
stjóra lamar
Frakkland
Stórir hlutar Frakklands löm-
uðust i gær eftir að hundruð þús-
unda vörubifreiðastjóra höfðu
komið upp um 150 vegatálmum á
þjóðvegmn, brúm og landamær-
inn. Bæði atvinnurekendur og
stéttarfélög kváðust viðbúin
langvarandi deilu.
Vegatálmarnir röskuðu umferð
við París, Lyon, Bordeaux,
Marseille og Lille. Umferð ferj-
anna frá Bretlandi var beint til
Zeebrúgge þar sem vörabiffeiða-
stjórar hindraðu umferð til og frá
Calais. Með verkfallsaðgerðunum
era vörabifreiðastjóramir að mót-
mæla sviknum loforðum um
aukagreiðslur, launahækkanir og
bætta vinnuaðstöðu sem gefin
vora í samningaviðræðum í fyrra.
Fjöldi ríkisstjórna í Evrópu
hefur krafist þess að ffönsk yfir-
völd haldi vissum þjóðvegum
opnum fyrir rnnferð. Tilkynnti
franska stjómin síðdegis í gær að
finna mætti aðrar leiðir á Netinu
auk þess sem veitt væri aðstoð
um sérstaka símalínu. Fram-
kvæmdastjóm Evrópusambands-
ins sagði Frakkland bera ábyrgð
á að verkfallið raski ekki við-
skiptum á innri markaði sam-
bandisns. Reuterr
Jeep Grand Cherokee Limited,
árg. '95, svartur, ek. 25 þús. km.
Einn m/öllu. Verö 3.850 þús.
Jeep Cherokee turbo, dfsil árg.
'96. 5 d., 5 g., rafdr. rúöur.
Oekinn sýningarbfll.
Verö 2.590 þús.
Dodge Ram Van, árg. '96, hvft-
ur, vel 5,2,318. óekinn sýning-
arbíll. Verö 2.290 þus.
Dodge Caravan, árg. '95,7
manna, hvftur, vél 3.300, ssk.,
vökva og veltistýri, rafdr. rúö-
ur og læsingar. Verö 2.590 þús.
Chrysler Stratus, árg. '96, vél
2,4, grænn, ek. 39 þús. km, ssk.,
Verö 1.790 þús.
Dodge Grand Caravan, árg.
'96, vél 6 cyl., 3,3,5 d., ssk.,
rafdr. rúöur og læsingar.
Verö 2,790. þús.
Chrysler Breece, árg. '97, vél
2,4, grár, ek. 27 þus. km.
Verö 1.990 pús.
Peugeot Boxer, árg. '96, minl-
bus, vél 2,5 turbo, dfsil, grár.
Verö 2.190 þús.
NÝBÝLAVEGUR 2 • SÍMI 554 2600 • OPIÐ VIRKA DAGA 9-18 OG LAUGARDAGA 12-1
6