Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1997, Page 9

Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1997, Page 9
ÞRIÐJUDAGUR 4. NÓVEMBER 1997 9 Utlönd Lögfræðingar bresku barnfóstrunnar: Vilja fá Louise sýkn- aða eða ný réttarhöld Lögfræðingar bresku barnfóstr- unnar Louise Woodward fóru í gær formlega fram á það við dómarann i málinu að hann vísaði frá sakfell- ingu stúlkunnar fyrir að hafa myrt átta mánaða gamlan dreng. Lög- fræðingamir vilja að dómarinn geri annað tveggja, lýsi stúlkuna sak- lausa eða fyrirskipi ný réttarhöld. í gögnum, sem lögfræðingamir lögðu fram í rétti í Massachusetts í Bandaríkjunum, halda þeir fram sakleysi Louise. Þeir segja að ef dómarinn vilji ekki hreinsa hana eða fyrirskipa ný réttarhöld ætti hann í það minnsta að milda dóm- inn í manndráp af gáleysi. Louise var í síðustu viku fúndin sek um að hafa myrt Matthew Eappen, átta mánaða gamlan dreng sem hún var að gæta. Hún getur sótt um reynslu- lausn eftir fimmtán ár. Hámarks- refsins fyrir manndráp af gáleysi er 20 ára fangelsisvist en ekki er kveð- ið á um neina lágmarksrefsingu. Þótt lög í Massachusetts kveði á um að refsing fyrir morð skuli vera lífstíðarfangelsi hafa dómarar engu að síður vald til að breyta úrskm-ði kviðdómenda. Að sögn starfsmanns dómsins mun Hiller Zobel dómari skoða 59 blaðsíðna beiðni verjendanna áður en hún verður tekin fyrir klukkan þrjú síðdegis að íslenskum tíma. Zobel, sem hefúr breytt úrskurði kviðdómenda að minnsta kosti þrisvar sinnrnn á ferli sínum, hefur vald til að hafna úrskurði og lýsa Louise saklausa. Hann getur einnig mildað ákæruna, sem gæti stytt fangavistina, fyrirskipað ný réttar- Allra augu beinast nú aö Hiller Zo- bel, dómara í máli barnfóstrunnar Louise Woodward. Sfmamynd Reuter höld eða látið niðurstöðuna standa. Sakfelling Louise Woodward í síð- ustu viku hefur vakið mikla reiði um heim allan. Nærri eitt hundrað stuðningsmenn hennar gengu fylktu liði fyrir utan dómhúsið í gær til að mótmæla sektardóminum og hvöttu Zobel dómara til að hnekkja honum. Mótmælendur veifuðu borðum þar sem meðal annars var gefið í skyn að foreldrar litla drengsins hefðu vanrækt hann. Margir hafa orðið til að harma að kviðdómurinn í málinu skuli ekki hafa fengið tækifæri til að lýsa bamfóstruna seka um manndráp af gáleysi. Einn þeirra er saksóknar- inn Thomas Reilly. Hann sagði þó í útvarpsviðtali að virða ætti niður- stöðu kviðdómsins. Reuter Jiang Zemin, forseti Kína. Sfmamynd Reuter Forseti Kína söng úr Pekingóperu Forseti Kína, Jiang Zemin, lauk í gær heimsókn sinni til Bandaríkjanna og flaug heim frá Los Angeles til Peking. En áður en forsetinn hélt heim á leið lýsti hann því yfir á fundi með landsmönnum sínum á sunnudaginn að Kína yrði öflugt lýðræðisríki á næstu öld. Fyrr um daginn höfðu þúsundir mótmælenda safnast saman fyrir utan hótel I Los Angeles þar sem Jiang hitti bandaríska viðskiptaaðila og stjómmálamenn. Fyrir heimferðina söng Kínaforseti stykki úr Pekingópem í kvöldverðarboði sem um þúsund gestir sátu. Trúlausir fá inngöngu DV, Ósló: Kristilegi þjóöarflokkurinn í Noregi er á hraðferð inn í nútím- ann. Nú er í alvöru rætt um að hætta aö láta nýja flokksfélaga fara með trúarjátninguna áður en þeir fá inngöngu í tískuflokk- inn í Noregi. Þá er og rætt um að hætta að amast við hommum og lesbíum. Trúarjátningin hefúr til þessa verið pólitísk stefnuskrá flokksins. Nálaraugaö, sem flokksmenn verða að skríða í gegnum, stækk- ar því óðfluga um leiö og fylgið stefnir í himinhæðir. Flokkur- inn fær nú nær 20 prósenta fylgi í skoðanakönnunum og 20 pró- sent í viðbót segjast vel geta kos- ið flokkinn. Áður fengu kristileg- ir alltaf 8 til 10 prósent en nú eft- ir að þeir tóku að sér að leiða ríkisstjóm Noregs hefur guðs- blessun - og kjósendum - bók- staflega rignt yfir flokkinn. -GK Franskir vörubifreiöastjórar elda hádegismat á þjóövegi noröan viö Lyon þar sem þeir hafa sett upp vegatálma. Hundruð þúsunda vörubifreiöastjóra eru f verkfalli og hafa þeir sett upp um 150 vegatálma vfös vegar um Frakkland. Fjöldi evrópskra rfkisstjórna hefur krafist þess aö frönsk yfirvöld haldi vissum vegum opnum fyrir umferö. Sfmamynd Reuter Verkfall vörubifreiöa- stjóra lamar Frakkland Stórir hlutar Frakklands löm- uðust i gær eftir að hundruð þús- unda vörubifreiðastjóra höfðu komið upp um 150 vegatálmum á þjóðvegmn, brúm og landamær- inn. Bæði atvinnurekendur og stéttarfélög kváðust viðbúin langvarandi deilu. Vegatálmarnir röskuðu umferð við París, Lyon, Bordeaux, Marseille og Lille. Umferð ferj- anna frá Bretlandi var beint til Zeebrúgge þar sem vörabiffeiða- stjórar hindraðu umferð til og frá Calais. Með verkfallsaðgerðunum era vörabifreiðastjóramir að mót- mæla sviknum loforðum um aukagreiðslur, launahækkanir og bætta vinnuaðstöðu sem gefin vora í samningaviðræðum í fyrra. Fjöldi ríkisstjórna í Evrópu hefur krafist þess að ffönsk yfir- völd haldi vissum þjóðvegum opnum fyrir rnnferð. Tilkynnti franska stjómin síðdegis í gær að finna mætti aðrar leiðir á Netinu auk þess sem veitt væri aðstoð um sérstaka símalínu. Fram- kvæmdastjóm Evrópusambands- ins sagði Frakkland bera ábyrgð á að verkfallið raski ekki við- skiptum á innri markaði sam- bandisns. Reuterr Jeep Grand Cherokee Limited, árg. '95, svartur, ek. 25 þús. km. Einn m/öllu. Verö 3.850 þús. Jeep Cherokee turbo, dfsil árg. '96. 5 d., 5 g., rafdr. rúöur. Oekinn sýningarbfll. Verö 2.590 þús. Dodge Ram Van, árg. '96, hvft- ur, vel 5,2,318. óekinn sýning- arbíll. Verö 2.290 þus. Dodge Caravan, árg. '95,7 manna, hvftur, vél 3.300, ssk., vökva og veltistýri, rafdr. rúö- ur og læsingar. Verö 2.590 þús. Chrysler Stratus, árg. '96, vél 2,4, grænn, ek. 39 þús. km, ssk., Verö 1.790 þús. Dodge Grand Caravan, árg. '96, vél 6 cyl., 3,3,5 d., ssk., rafdr. rúöur og læsingar. Verö 2,790. þús. Chrysler Breece, árg. '97, vél 2,4, grár, ek. 27 þus. km. Verö 1.990 pús. Peugeot Boxer, árg. '96, minl- bus, vél 2,5 turbo, dfsil, grár. Verö 2.190 þús. NÝBÝLAVEGUR 2 • SÍMI 554 2600 • OPIÐ VIRKA DAGA 9-18 OG LAUGARDAGA 12-1 6

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.