Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1997, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1997, Blaðsíða 15
ÞRIÐJUDAGUR 4. NÓVEMBER 1997 15 Elin Torfadóttir, einn af þátttakendum Njálunámskeiðsins. Verð miður mín ef ég missi af námskeiði Elín Torfadóttir framhalds- skólakennari hefur sótt mörg íslendingasagnanámskeið hjá Jóni Böðvarssyni. Maður hennar, Guðmundur J. Guðmundsson, sem lést í sumar, sótti einnig nokkur námskeið með eiginkonu sinni. Jón kveikti áhugann Elín segir að Jón Böðvarsson hafl kveikt áhuga hennar á íslend- ingasögum þegar hann kenndi henni íslensku við Menntaskólann í Hamrahlíð. „Ég hafði reyndar alltaf haft áhuga á íslendingasög- unum, en hann var ekki svona brennandi fyrr en ég fór að sækja tíma hjá Jóni,“ segir Elín. Elín greip því tækifærið fegins hendi þegar Jón hóf íslendinga- sagnanámskeið sin hjá Endur- menntunarstofnun Háskóla ís- lands. Hún hefur verið mjög dugleg að sækja námskeið. „Ég verð eigin- lega alveg miður min ef ég kemst ekki á námskeið. Ég komst til dæmis ekki síðast og var þá alveg dauðhrædd um að ég hefði misst af einhverju," segir hún. Hún segir að alltaf sé eitthvað nýtt að flnna í þessum námskeið- um. „Það er svo skemmtilegt fólk á námskeiðunum. Það kemur með margs konar spurningar og er oft - segir Elín Torfadóttir ekki alveg sammála Jóni og túlkun hans,“ segir hún. Hún segir að slík- ar umræður séu oft mjög fjörugar. Áhugi að aukast Elín telur að áhugi á Njálu og öðrum íslendingasögum sé mikið að aukast. Áhuginn sé heldur ekki eingöngu bundinn við eldra fólk heldur séu þeir yngri líka famir að sækja námskeiðin í auknum mæli. „Það hefur komið sérstaklega mik- ið af yngra fólki síðustu tvö árin. Áður fyrr hélt maður að þessi nám- skeið væru aðeins fyrir eldra fólk. Það er langt í frá,“ segir Elín. Elín segir líka að það sé ekki bara fjölbreytni í aldurshópum heldur einnig í stéttum. Og margir séu mjög vel lesnir í íslendingasög- unum. „Ég er ekki eins vel lesin og margir aðrir þarna," segir Elín. Guðmundur J. fór með Elín segir að maður hennar, Guðmundur J. Guðmundsson verkalýðsleiðtogi og fyrrverandi formaður Dagsbrúnar, hafi sótt 3-4 námskeið með henni. „Hann sá að mér fannst svo gaman á þessum námskeiðum að hann vildi líka fá að fylgjast með,“ segir hún. Hún bætir því við að hann hafi oft haft ákveðnar skoðanir á sögun- um og haft ýmsar athugasemdir fram að færa við það sem Jón hafi sagt í tímum. „Hann var mjög virk- ur í umræðunum, stundum full- virkur að mínu áliti," segir hún. Guðmundur tók einnig þátt í ferð á Njáluslóðir sem farin var i tengsl- um við námskeiðið. Elín segir að oft fái maður meira út úr því að ferðast um landið þeg- ar maður viti hvar atburðir úr ís- lendingasögunum hafi átt sér stað. „Maður sér til dæmis einhvem hól sem maður hélt fyrst að væri ómerkilegur en er nú orðinn bar- dagahóll,“ segir Elín. Skólafrík Elín vill bera þessi námskeið saman við leikhús. „í þessum nám- skeiðum tekur maður sjálfur þátt í því sem er að gerast á sviðinu. Maður er ekki óvirkur þiggjandi þegar maður vill taka þátt. Syo lærir maður svo mikið af þessu. Ég er eiginlega skólafrík. Ég hef alltaf gaman af að vera í skóla,“ segir hún. Hún segist ekki í vafa um að hún muni sækja námskeiðin á meðan hún hafi heilsu til og á meðan Jón haldi áfram fyrirlestrunum. „Þetta er með því skemmtilegra sem ég geri,“ segir Elín að lokum. -HI MMC L-300 sendibfll '90, 5 g„ hvítur, ek. 104 þús. km. Verð 590 þús. Hyundai Scoupé turbo '94, 5 g., 2 d., hvítur, ek. 78 þús. km. Verð 790 þús. Honda Civic 1400 '90, 5 g., 3 d., svartur, ek. 130 þús. km. Verð 530 þús. Lada Samara 1300 '95, 5 g., 5 d., brúnn, ek. 14 þús. km. Verð 390 þús. Renault Twingo 1200 '94, 5 g., 3 d., rauður, ek. 49 þús. km. Verð 630 þús. Hyundai Pony SE 1300 '94, 5 g., 3 d., hvítm, ek. 45 þús. km. Verð 580 þús. Lada station 1700 '96, 5 g„ 5 d„ rauður, ek. 24 þús. km. Verð 550 þús. Renault Trafic 4x4 '91, 5 g„ 5 d„ hvítur, ek. 80 þús. km. Verð 790 þús. Lada Sport 1700 '95, 5 g„ 3 d„ hvítur, ek. 20 þús. km. Verð 560 þús. Vetrardekk fylgja öllum notuðum bílum Renault 19 RT 1800 '94, 5 g„ 4 d„ graenn, ek. 30 þús. km. Verð 990 þús. Cadillac Eldorado 4900 '91. ssk„ 2 d„ graenn, ek. 89 þús. km. Verð 1.690 þús. Hyundai Sonata GLS 2000 '95, 5 g„ 4 d„ vínrauður, ek. 39 þús. km. Verð 1.190 þús. g Hyundai Elantra stw 1600 " '97, 5 g„ 5 d„ grænn, ek. 13 þús. km. Verð 1.340 þús. Hyundai Accent 1300 '95, 5 g„ 4 d„ ljósrauður, ek. 48 þús. km. Verð 790 þús. BMW 520i '88, ssk„ 4 d„ brons, ek. 90 þús. km. Verð 990 þús. BMW 316 1800 '88, ssk„ 4 d„ rauður, ek. 79 þús. km. Verð 550 þús. Toyota Rav 4 2000 '96, 5 g„ 5 d„ rauður, ek. 40 þús. km. Verð 1.950 þús. Greiðslukjör til allt að ilHS NOTAÐIR BÍLAR SUÐURLANDSBRAUT 12 SÍMI: 575 1200 BEINN S(MI 575 1230 VW Polo Fox 1000 '95, 5 g„ 3 d„ hvítur, ek. 34 þús. km. Verð 740 þús. Volvo 240 GL 2300 '88, ssk„ 4 d„ rauður, ek. 138 þús. km. Verð 490 þús. BMW 316i touring, 5 g„ 5 d„ grænn, ek. 94 þús. km. Verð 1.590 þús. Range Rover Vouge 3900 '90, ssk„ blár, ek. 122 þús. km. Verð 1.750 þús. Aðrir bílar á skrá 4 ára

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.