Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1997, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1997, Blaðsíða 30
ÞRIÐJUDAGUR 4. NÓVEMBER 1997 ■ 34 Afmæli dv Pétur EinaGrsson Pétur Einarsson, lögfræðingur og fyrrv. flugmálastjóri, Ásvallagötu 52, Reykjavík, er fimmtugur í dag. Starfsferill Pétur fæddist í Reykjavík og ólst upp í Hlíðunum til níu ára aldurs en síðan til átján ára aldurs í Kópa- vogi. Auk þess var hann mikið hjá móðurafa sínum og ömmu sem bjuggu að Árbæjarbletti 10 í Reykja- vík. Hann bjó í Kópavogi til þrítugs en eftir það í Reykjavík. Pétur lauk verslunarprófi frá VÍ 1967, húsasmiðanámi við Iðnskól- ann í Reykjavík 1969 og öðlaðist síð- ar meistararéttindi, lauk landsprófi og stúdentsprófi frá MR 1970-72, öðl- aðist atvinnuflugmannsréttindi við flugskólann Flugtak 1980, lauk emb- ættisprófi í lögfræði við HÍ 1977, öðlaðist hdl.-réttindi og hefur auk þess minni skipstjómarréttindi. Á námsárum stundaði Pétur byggingavinnu, sveitastörf og vann við fiskvinnslu. Á fyrrihluta ævinnar stundaði Pétur kennslu, leiðbeinendastörf, blaðamennsku, gerð útvarpsþátta, ritstjórn, framkvæmdastjóm, hús- byggingar, fasteignasölu og lög- i mannsstörf. Hann réðst til Flug- málastjórnar 1978 og var síðar flug- málastjóri frá 1983 en sagði þvi lausu 1992. Hann hefur síðan stundað ýmis störf, m.a. alþjóðlega ráðgjöf, kaupsýslu, trésmíði, verkamannastörf, ritstörf og lögmennsku. Pétur hefur átt sæti í tugum nefnda, stofnana og stjórnum minni fyrir- tækja, stundum með for- mennsku. Minnisstæðar honum eru m.a. Þróunar- stofnun íslands, kjara- deilunefnd, Æskulýðs- samband íslands, Æsku- lýðsráð ríkisins, Lánasjóður ís- lenskra námsmanna, blaðstjóm Tímans, stjórn SUF miðstjóm Framsóknarflokksins, tómstunda- ráð Kópavogs, flugorðanefnd, flug- málanefnd, bæjarstjóm Kópavogs og fjölmargir hópar sem tengdust vinnu að flugmálum innanlands og utan. Fyrr á ámm var hann virkur fé- lagi í Slysavamafélagi íslands, Ung- mennafélagi íslands og SUF. í dag em það AA mannræktarsamtökin sem eiga hug hans allan. Fjölskylda Pétur kvæntist 20.11.1971 Amdísi Björnsdóttur, f. 26.8. 1945, B.Ed., kennara. Þau skildu. Börn Péturs eru Þórunn, kaupmaður, f. 28.10. 1968, sem á þrjú böm. Hennar móðir er Anna Johansdóttir, dóttir Johans Wolfram, bifreiða- stjóra frá Danmörku, og Ólafar Jónsdóttur, hús- móður Ólafssonar, Mör- tungu, Síðu. Signý Yrsa, f. 5.1. 1969, flugumferðarstjóri sem á tvö böm; Sigríður Hmnd f. 12.1. 1974, háskólanemi; Einar, f. 19.4. 1978, nemi í bifvélavirkjun; Amdís f. 2.1. 1978. Þeirra móðir er Amdís Bjömsdóttir, tæknifræðings Einarssonar, Bene- diktssonar, og k.h., Guðbjargar Er- lendsdóttur, Ekm, Stöðvarfirði, og Gunnvarar Braga Sigurðardóttur, dagskrárstjóra, Einarssonar og k.h., Guðnýjar Jónsdóttur, Holti, Eyjafjöll- um. Sigríður Theódóra, f. 8.8. 1985, og Jóhanna Vigdís, f. 29.1. 1996, þeirra móðir Ragnhildur Hjaltadóttir skrif- stofustjóri. Dóttir Hjalta Geirs Krist- jánssonar, húsgangnaarkitekts Sigur- geirssonar og Ragnhildar Hjaltadótt- ur, Reykjavík, og Sigríðar Theódóra Erlendsdóttur, sagnfræðings Ólafs- sonar og Jóhönnu Vigdísar Sæ- mundsdóttur Reykjavik. Pétur á tvö systkini, þau Sigríði Björgu skrifstofustjóra og Þórhalla húsasmíðameistara. Foreldrar Péturs em Sigríður Karlsdóttur, fyrrv. kaupmaður, dótt- ir Karls Haraldar Óskars Þórhalla- sonar, Þórhallasonar, Tungu, Hörðu- dal, og Guðrúnar Sigríðar Þorsteins- dóttur, Þorsteinssonar, Snotm, Land- eyjum, og Einar Pétursson húsa- smíðameistari, Sigurðssonar, Magn- ússonar, Hjartarstöðum, Eiðaþinghá, og Guðlaugar Sigmundsdóttur, Jóns- sonar, Vigfússonar, Fremra-Seli, Tungu. Ætt í fóðurætt er Pétur ættaður í karl- legg frá Hjartarstöðum, Eiðaþinghá, en í kvenlegg frá Gunnhildargerði, Hróarstungu, Gunnhildargerðisætt. í móðurætt er hann ættaður í karl- legg frá Syðri-Langey á Breiðaflrði, Ormsætt. í kvenlegg er hann ættað- ur frá Kambi í Flóa. Pétur mun fagna upphafi seinni hluta ævinnar á Hvannadalshnúk, Öræfajökli, á fæðingarstundu E.G.L.. Þangað era allir hans vel- unnarar velkomnir. Ef símasam- band verður í GSM verður númerið 897-9827. Pétur Einarsson. Karl Ágúst Úlfsson Karl Ágúst Úlfsson, leikari og rit- höfundur, Heiðarási 27, Reykjavík, er fertugur í dag. Starfsferill Karl Ágúst fæddist í Reykjavík og ólst þar upp fyrstu tíu árin og síðan í Mosfellsbæ. Hann lærði á píanó á unglingsárunum, lauk stúdentsprófi frá MH 1977, lauk námi frá Leiklistarskóla íslands 1981, stundaði nám í leikhúsfræð- um, handritsgerð og leikritun í Bandaríkjunum og lauk MFA- prófi þaðan 1994. Karl Ágúst hefur veriö höfund- ur, ritstjóri, leikstjóri og leikari á vegum Spaugstofunnar frá 1985 en meðal verka þeirra má nefna Sama og þegið, gamanþætti fyrir útvarp; Með öðrum morðum, svakamálaleikrit í ótal þáttum, fyrir útvarp; Spaugstofuna, skemmtiþætti fyrir sjónvarp; ‘89-’92 á Stöðinni, skemmtiþætti fyrir sjónvarp;Enn eina Stöðina, skemmtiþætti fyrir sjónvarp, og Stöðvarvík, skemmtiþætti fyrir sjónvarp. Þá hefur hann einnig skrifað og leikið með Spaugstof- unni í söngvafarsanum Örfá sæti laus, sýndur í Þjóðleikhúsinu 1991, og í áramótaskaupum ríkissjón- varpsins 1985, 1986 og 1995. Karl Ágúst hefur verið lausráð- inn leikari frá 1981 og leikið í fjölda leikrita á vegum Leikfélags Reykjavíkur, Þjóðleikhússins og Alþýðuleikhússins. Hann hefur auk þess leikið í fjölda kvik- mynda, s.s. Jóni Oddi og Jóni Bjarna, í Útlaganum, Tilbury, Nýju lífi, Dalalífi, Löggulífi og Bóbó. Frumsamin leikverk Karls Ágústs, sem sýnd hafa verið á sviði, eru: Allt er fertugum fært, hátíðardagskrá á Amarhóli í til- efni 40 ára afmælis lýðveldisins; The Guarding Angel, í Ohio Uni- versity Student Theater, 1992, og MAP Theater, 1993; Body Parts, í OUST 1993; The Iceman Is here, í Ohio Playwrights Festival, 1994; A Guy Named Al, í OUST, 1994; í hvítu myrkri, í Þjóðleikhúsinu, 1996, og Fagra veröld, hjá LR, 1997. Hann hefur auk þess samið leik- gerðir að verkum annarra, s.s. Boðið upp í morð, eftir John Dickson Carr; Stundum koma þeir aftur, eftir Stephen King, og Með- an nóttin líður, eftir Fríðu Á. Sig- urðardóttur. Karl Ágúst hefur leikstýrt fjölda verka í útvarpi og nokkmm sviðs- verkum fyrir atvinnuleikhús, s.s. Hremmingu, eftir Barry Keefe, hjá LR; Maraþondansinum eftir Horace McCoy hjá LR og West Side Story hjá Þjóðleikhúsinu. Karl hefur þýtt hátt á þriðja tug leikrita fyrir útvarp og leiksvið, fjölda smásagna og ljóða, nokkrar skáldsögur og kennslubók. Þá hefur hann samið fjölda söng- texta og ýmsar viðbætur við önnur verk. Karl Ágúst var m.a. ritari skólafélags MH, ritstjóri fréttabréfs nemendafélags MH, var einn af stofnendum og lék með Leikfélagi Mosfellssveitar og með leikfélagi MH. Þá lék hann með Skólahljómsveit Mosfellsbæj- ar í fjölmörg ár. Fjölskylda Eiginkona Karls Ágústs er Ásdís Olsen, f. 21.12. 1962, MA í fjölmiðla- fræðum og dagskrárgerðarkona. Þau hófu sambúð haustið 1987 en giftu sig sumarið 1991. Ásdís er dótt- ir Alfreðs Olsen, flugvélstjóra í Garðabæ, og k.h., Halldóru Sigurð- ardóttur húsmóður. Dóttir Karls Ágústs og Ásdísar er Brynhildur, f. 14.6. 1994. Stjúpdætur Karls Ágústs og dæt- ur Ásdísar frá fyrra hjónabandi eru Bergþóra Halldórsdóttir, f. 9.10. 1983; Valgerður Halldórs- dóttir, f. 16.6. 1986. Sonur Karls Ágústs frá fyrrv. sambúð er Eyvind- ur Karlsson, f. 6.12. 1981. Systur Karls Ágústs era Inga Úlfsdóttir, f. 4.12. 1962, sálfræðingur á Skólaskrifstofu Reykja- víkurborgar, búsett á Sel- fossi; Linda Úlfsdóttir, f. 22.5. 1964, landfræðingur, búsett i Garðabæ. Foreldrar Karls Ágústs em Úlfur Ragnarsson, f. 24.12. 1940, tækni- maður í Mosfellsbæ, og Unnur Karlsdóttir, f. 17.9. 1941, forstöðu- kona heimilishjálpar. Ætt Úlfur er sonur Ragnars Þorsteins- sonar kennara og k.h., Sigurlaugar Stefánsdóttur húsmóður. Móðurmóðir Karls Ágústs og uppeldismóðir hans að hluta til: Guðrún Eggertsdóttir. Móðurfaðir: Karl Ágústsson bílstjóri. Karl Ágúst tekur á móti vinum og vandamönnum á heimili sinu í dag frá kl. 20.00. Karl Ágúst Úlfsson. Fréttir______________________________________________ Líklegt að við bjóðum fram - segir talsmaður „óánægjuhóps“ með bæjarstjórnina á Akureyri DV, Akureyri: „Menn eru ekkert sérstaklega á því að láta nafngreina sig á þessu stigi málsins, en að þessu standa 15-20 manns sem hafa verið að spjalla saman. Þetta fólk hefur áhuga á bæjarmálunum og ég tel ekki nokkurn vanda að koma að mönnum í bæjarstjórn ef boðið yrði fram. Það er ömgglega hljóm- grunnur fyrir framboði sem þessu,“ segir Pétur Jósefsson, fast- eignasali á Akureyri, en hann er talsmaður hóps Akureyringa sem er óánægður með bæjarstjómina og hyggur að öllum líkindum á framboð næsta vor. Pétur segir að hópurinn sé mjög óánægður með getulitla bæjar- stjórn. „Á bæjarstjóminni er klúbbform þar sem aldrei brýtur á neinu, gerðirnar einkennast af klaufaskap, s.s. sölunni á Krossa- nesverksmiðjunni. Þá má nefna skipulagsmálin, t.d. söluna á slysa- varnahúsinu við Strandgötu, íbúðabyggð og spennistöð era byggð hvort ofan í öðm í Gilja- hverfi og það hefur a.m.k. staðið til að setja niður bensínstöð á mót- um Hlíðarbrautar og Borgarbraut- ar þrátt fyrir að íbúamir hafi lýst yfir andstöðu sinni þegar eftir áliti þeirra var leitað. Það er ekki tekið tillit til vilja bæjarbúa og slíkt er vanvirðing," segir Pétur. Hann gefúr ekki mikið fyrir störf bæjarstjómarinnar og nefnir atvinnumálin í því sambandi. „Okkur finnst bæjarstjóm Akur- eyrar lítilla sanda og lítilla sæva. Þarna fer helst engin umræða fram nema um einhver smámál, það brýtur aldrei á neinu, menn gæta sín yfirleitt á því að vera sammála. Svoleiðis samkoma leið- ir engar hugmyndir af sér, þetta er dauð hönd og minnihlutinn er dauður." Hvemig er ykkar áhugamanna- hópur samansettur? „Ég vil ekkert um það segja ann- að en að þetta er alls konar fólk. Við viljum sjá hvað flokksdeildir landsmálaflokkanna héma ætla að gera og sjámn til um næstu mán- aðamót hvað hefur gerst. Ef ekki verður um neina breytingu að ræða forum við af stað,“ segir Pét- ur. -gk Til hamingju með aímælið 4. nóvember 95 ára Kristján Sigurðsson, Eyrargötu 6, Siglufirði. 90 ára Guðrún Jónsdóttir, Melgerði 18, Kópavogi. 85 ara Guðrún Ásgeirsdóttir, Álfaskeiði 64, Haftiarfirði. 80 ára Sigríður Guðjónsdóttir, Mávahlíð 28, Reykjavík. 75 ára Yiren Wang, Háaleitisbraut 47, Reykjavík. Þorgeir Þórarinsson, Marargötu 1, Grindavík. Þuríður Eymundsdóttir, Kolgröf, Lýtingsstaðahreppi. 70 ára Ólafúr B. Steinsen, Hátúni 12, Reykjavík. 60 ára Bima Eiríksdóttir, Lindasíðu 4, Akureyri. Emma R.H. Jóhannesdóttir, Réttarholtsvegi 65, Reykjavik. Hjálmar Júliusson, Fellsmúla 12, Reykjavík. Margrét Valtýsdóttir, Holtagerði 16, Kópavogi. 50 ára Birgir Pálsson, Borgarbraut 3, Borgamesi. Birgir tekur á móti gestum í félagheimili hestamanna- félagsins Skugga í Borgamesi, laugard. 8.11. frá kl. 20.00. Aagot Fougner Snorradóttir, Sigtúni 11, Selfossi. Burkni Dómaldsson, Túngötu 15, Suðureyri. Margrét Þórðardóttir, Hrafnagilsstræti 33, Akureyri. Per Roald Landrö, Miðvangi 11, Hafnarfirði. Ragnar Hafliðason, Stóragerði 15, Reykjavik. 40 ára Anna Sigríður Erlingsdóttir, Bæjargili 39, Garðabæ. Bjöm Ármann Guðlaugsson, Norðurgarði 12, Hvolsvelli. Bryndís G. Friðgeirsdóttir, Hlíðarvegi 37, ísafirði. Edeltrud Maria Mantel, Blesugróf 11, Reykjavik. Elínborg Jóna Ólafsdóttir, Brekkubyggð 32, Garðabæ. Fjóla Guðrún Friðriksdóttir, Neströð 7, Seltjamamesi. Guðmundur Jónas Skúlason, Nesgötu 38, Neskaupstað. Guðrún Daníelsdóttir, Laugarásvegi 24, Reykjavík. Gunnar S. Einarsson, Brekku, Bessastaðahreppi. Gyða Sigríður Halldórsdóttir, Akurgerði 28, Reykjavík. Ingólfur B. Krisfjánsson, Björtuhlið 23, Mosfellsbæ. Jón Gunnarsson, Dvergabakka 14, Reykjavík. Kjartan Ágústsson, Furagmnd 73, Kópavogi. Krisfján Aðalsteinsson, Bólstaðarhlíð 54, Reykjavík. María Sif Kristjánsdóttir, Álftahólum 4, Reykjavík. Sveinn Aðalbjömsson, Lækjargötu 11, Sigluffrði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.