Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1997, Síða 30
30
LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 1997 DV
sérstæð sakamál
gleymt að áfrýja. Loks leit
hann á konuna sem stóð
þarna öskureið fyrir framan
hann og sagði: „Já, en það
hefði hvort sem er ekki orðið
til neins að áfrýja. Málið var
tapað.“
„Já, en hvers vegna? Vegna
dugleysis þíns, eins og ég er
búin að segja þér.“
Von um samninga
Staðan var slæm. Fyrir því
gerði Joachim sér nú fulla
grein. Líklega var konunni al-
vara. En hún hafði þó ekki
veitt honum banvænt sár og
fyrir því gat aðeins verið sú
ástæða að hún vildi semja við
hann. Það væri því best að
komast að því hvað hún vildi
í raun og veru.
„Hvað viltu þá að ég geri?“
spurði hann.
„Að þú skrifar undir þá yf-
irlýsingu sem ég er búin að
ganga frá.“
Joachim Hanauer bað um
að sjá hana en færðist svo
undan og reyndi að geta sér til
um hve sterk samningsað-
staða hans væri.
„Ef þú gerir það ekki bíða
þín pyntingar og annað verra,“
sagði Amanda Eichinger og brá á
loft hnífnum.
Samningar nást
Sagan af því sem gerðist í hlöð-
unni við bæ Eichingers-hjóna
næstu klukkustundirnar verður
ekki rakin í einstökum atriðum en
ljóst er að Joachim hafði getið sér
rétt til þegar hann sagði við sjálfan
sig að bóndakonan vildi semja.
„Fæ ég þá að fara ef ég skrifa
undir?“ sagði Joachim loks og lét
sem hann væri reiðubúinn til að
setja nafn sitt undir yfirlýsinguna.
„Nei, þá kemur næsta skjal. Þar
segir að þú skuldir Eichingers-fjöl-
skyldunni fjórfalda þá upphæð sem
þú ert að fara fram á fyrir að hafa
klúðrað öllu sarnan."
Er hér var komið fann lögmaður-
inn að hann var farinn að mæðast
af blóðtapi, enda dvölin í hlöðunni
orðin löng. Hann leit á úrið og sá að
það voru næstum átta tímar síðan
hann kom á bæinn.
Með uppgjafarsvip leit hann á frú
Eichinger. Augnabliki síðar kvaðst
hann reiðubúinn til að skrifa undir
hvað sem væri. Og hann setti nafn
sitt undir bæði skjölin.
Amanda Eichinger var í þann
veginn að skella á. En allt í einu
ákvað hún að breyta um tón.
„Jæja,“ sagði hún, og nú gætti meiri
friðsemdar i röddinni. „Auðvitað
verðurðu að fá eitthvað fyrir þinn
snúð. Komdu hingað til okkar. Þá
færðu borgað.“
Joachim Hanauer var fimmtíu og
þriggja ára og bjó í Múnchen. Hann
varpaði öndinni léttar eftir að hafa
verið heitið greiðslunni og gekk út
af skrifstofunni. Fáeinum mínútum
síðar sat hann í BMW-bil sínum og
var á leiðinni til Reischach. Þangað
var tveggja tíma akstur.
Það var komið hádegi þegar hann
ók inn á hlaðið fyrir framan bæinn.
Þar var engan að sjá. Hann steig út,
svipaðist um og sá að dymar á hlöð-
unni stóðu opnar. Hann gekk í átt-
ina að þeim en það var eins og ein-
hvern óhug setti að honum. En
hann yppti þó bara öxlum og lét
sem ekkert væri.
Varla var hann kominn inn í
hlöðuna þegar hann heyrði að hurð-
inni var skellt á eftir honum. Síðan
small í lás að utanverðu.
Það
var sem
hann dofn-
aði og nokkur
augnablik var
hann ekki viss
um hvað gerst
hafði. Svo bar
hann hönd að
hálsinum og fann
eitthvað volgt
renna niður í háls-
málið á skyrtunni.
„Stakkstu mig?“
spurði hann, og það gætti
örvæntingar í röddinni.
„Já, það máttu vera viss um,“
svaraði hún. „Og ég er í þann veg-
inn að stinga þig aftur, svínið þitt.“
Enn á ný bar Joachim höndina að
hálsinum því það var sem hann
hefði ekki sannfærst um að hann
hefði í raun verið stunginn. Og í
þetta sinn leit hann á fingurna á eft-
ir. Jú, það var enginn vafi á því.
Þeir voru blóðugir.
Hafði fengið hjartaáfall
Joachim Hanauer var nú meira
brugðið en áður. Hann hafði fengið
hjartaáfall og læknir ráðlagt honum
að taka blóðþynnandi lyf. Myndi
blóðið í sárinu ekki storkna? Myndi
honum blæða út? Enn á ný þreifaöi
hann á hálsinum og nú samifærðist
hann um að konan hefði ekki stung-
ið í hálsslagæðina. Hann myndi því
geta haldið lífi. En það mátti greini-
„Hvers vegna í ósköpunum ger-
irðu mér þetta, frú
Eichinger?" spurði
lögmaðurinn nú.
„Vegna þess að
þú eyðilagðir mál-
ið fyrir okkur með
dugleysi þínu. Eft-
ir fyrrverandi eig-
inkonu mannsins
míns áttum við að
erfa tífalda þá upp-
hæð sem þú geng-
ur nú eftir hjá okk-
ur. En þeim pen-
ingum getum við
nú gleymt. Þú dug-
ar ekki til neins og
enginn mun sakna
þín.“
„Já, en dómur-
inn gekk gegn þér,
frú.“
„Já, og þú gast
ekki einu sinni
áfrýjað af þvi þú
gleymdir að gera
það áður en frest-
urinn til þess rann
út. Og þú skalt
ekki halda að þú
sleppir létt frá
þessu. Þú gerir
eins og ég segi.“
Joachim
Hanauer þagði um hrið. Það var
rétt sem konan sagði. Hann hafði
Einn á spítala
Þegar samningarn-
ir voru frá leit lög-
maðurinn á andstæð-
ing sinn og sagði:
„Má ég biðja þig að
hringja á sjúkrabíl?"
Því neitaði frú
Eichinger og sagði að
hann gæti bara ekið
sjálfur á spítala.
Joachim Hanauer
andmælti ekki enda
var honum ljóst að
það væri alls ekki
vist að hann næði
þangað í tæka tíð og
því mætti hann eng-
an tíma missa. Hann
staulaðist út í bílinn
og ók af stað. Nokkru
síðar komst hann á
sjúkrahús þar sem
lífi hans var bjargað
með blóðgjöfum.
Sagan sem lögmað-
urinn frá Múnchen
sagði læknum og
hjúkrunarliði vakti
óskipta athygli og um
leið og hann var bú-
inn að jafna sig nóg
var lögreglunni gert
viðvart. Og það leið ekki á löngu
þar til Aamanda Eichinger var
handtekin.
Eichingers-hjón fengu auðvitað
engar bætur þrátt fyrir skjölin sem
frúin hafði fengið lögmanninn til að
undirrita því ljóst var með hverjum
hætti hún hafði fengið hann til þess.
Málið kom fyrir rétt og þar var
Amanda Eichinger dæmd í íjögurra
ára og níu mánaða fangelsi fyrir
mannrán, grófa líkamsárás og fjár-
kúgun.
Maður hennar fékk aðeins skil-
orðsbundinn dóm þvi fram kom að
eftir að hafa sett lás fyrir hlöðu-
dyrnar hvarf hann af vettvangi og
vissi ekki hvað fram fór innan
þeirra eftir það. En það kom í hans
hlut að sjá fyrir bömunum, tveim
dætrum, tíu og ellefu ára gömlum,
meðan kona hans sæti inni.
„Ég fæ enn matraðir á nóttinni,"
sagði Joachim Hanauer þegar rétt-
arhöldunum var lokið. Þá er ég
kominn með eins konar ofsóknar-
kennd því ég get ekki gengið inn um
dyrnar heima og lokað á eftir mér
án þess að ganga úr skugga um að
tryggilega sé læst svo enginn komist
Fólk tekur ósigri á ýmsan hátt.
Sumir með jafnaðargeði, ef til vill af
því að þeir gera sér grein fyrir því
að andstæðingurinn hafði betri mál-
stað eða stóð á einhvern hátt betur
að vígi, en aðrir taka ósigri illa og
kenna þá gjaman öðrum um hvern-
ig fór. Og auðvitað getur sökin legið
hjá öðrum. Því verður ekki mót-
mælt. En þá ber að íhuga hvernig á
þeirri hlið málsins skuli tekið.
Amanda Eichinger var gift kona
og móðir og bjó á sveitabæ í Reis-
chach i Bæjaralandi i Þýskalandi.
Hún, og reyndar maður hennar líka,
höfðu gert sér vonir um að þeim
tæmdist arfur en málið reyndist
flókið og að lokum leituðu þau til
lögmanns. Hann tók það að sér en
það tapaðist. Og dag einn hringdi
lögmaðurinn i Amöndu og sagðist
vera í þann veginn að senda henni
reikning fyrir þjónustu sína.
„Og hve hár er hann?“ spurði
hún.
Lögmaðurinn nefndi upphæðina,
sem svarar til jafnvirði tæplegra
hálfrar milljónar króna.
„Hvað ertu að segja?“ sagði
hin fimmtíu eins árs gamla
bóndakona. „Ertu að krefia
mig um þessa upphæð eftir
að arfurinn tapaðist
vegna dugleysis þíns?
Þú getur varla verið
með réttu ráði. Þú
skalt sækja það fé
eitthvð annað
en til mín.“
Snerist hugur
Hnífur á lofti
Skelkaður leit hann í
kringum sig en áður
en hann fengi rönd
við reist réðst Am-
anda að honum
með hníf í
hendi
stakk
hann í
háls-
lega
reikna
með flestu
frá þessari
bálreiðu
bóndakonu
því nú brá hún
á loft handjárn-
um, skellti þeim um
annan úlnlið hans og
festi hann við stoð. Svo
leit hún á hann og sagði:
þú skrifar ekki þegar í
stað undir yfirlýsingu um að
þú hafir staðið þig illa fyrir
okkar hönd og að það sé
þin sök að við urðum af
arfinum þá endarðu í jörð-
inni. Við erum búin að taka
gröfina, svo það yrði fljótgert að
ima þér undir græna torfu. Og
reyndar áttu hvergi annars staðar
heima, glæpamaðurinn þinn.“
Skammir á
skammir ofan
S. Einarsson Sítíli 557 3296.
V ______________________________✓
Snjóbiettafatnaðui fiá OBERMEYERS í U.S.A.
hannaðir af:
Kevin og Brian Delaney, sem eru
margfaldir heims- og Bandaríkja-
meistarar í snjóbretta- íþróttum.
Úlpur, bama- og unglingastærðir
S, M, XL, XXL.. Verðfrá 6.800.
Buxur stærðir 10-18 frá 4.200.
Úlpur, fullorðinsstærðir
S, M, L. Verðfrá 8.700.
Buxur, stærðir S, M, L. Verð 8.500.
Einnig mikið úrval af bama- og full-
orðins skíðafatnaði og flís undirfatn-
aði á böm og fullorðna á frábæru verði.