Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1997, Blaðsíða 62

Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1997, Blaðsíða 62
'66 myndbönd LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 1997 Absolute Power: Þjófurinn og jjjóðarleiðtoginn Einfarinn Luther Whitney (Clint Eastwood) er meistaraþjófur sem kom- inn er á aldur. Hann skipuleggur sitt . síðasta innbrot og hyggst setjast i helg- an stein að þvi loknu. Hann laumast inn í hús eins af rikustu mönnum landsins en neyðist til að skriða i felur þegar eiginkona mannsins kemur óvænt heim í fylgd með sjálfum forseta Bandaríkjanna (Gene Hackman). Enn taka atburðimir óvænta stefnu þegar konan er myrt og lífverðir forsetans og starfsmannastjóri taka til við yfir- hylmingu. Rannsóknarlögreglumann- inum Seth Frank (Ed Harris) er falin rannsókn málsins og grunur fellur á Luther Whitney sem ákveður að snú- ast til vamar og ljóstra upp þætti for- setans í málinu. Absolute Power er nítjánda leik- stjómarverk Clints Eastwoods og byggt á metsöluskáldsögu eftir David * Baldacci. William Goldman samdi kvikmyndahandritið en hann hefur hlotið tvenn óskarsverðlaun fyrir handritin að Butch Cassidy and the Sundance Kid og All the Presidents Men og einnig skrifað handrit að myndum eins og Marathon Man, Heat, Chaplm, Maverick, Misery og Princess Bride. í aðalhlutverkum eru Clint Eastwood, Gene Hackman og Ed Harr- is en aðrir helstu leikarar era Judy Davis (Naked Lunch), Barton Fink, (A Passage to India), Laura Linney (Primal Fear, Congo), Scott Glenn '(Carla’s Song, Silverado, Silence of the Lambs), Dennis Haysbert (Heat, Wait- ing to Exhale) og E.G. Marshall (Con- senting Adults, Nixon). Einstæður ferill framleiðandi. Hann vakti fyrst athygli í sjónvarpsþáttunum Rawhide og fékk upp úr því hlutverk hjá Sergio Leone i spagettí-vestranum A Fistful of Doll- ars, For a Few Dollars More og The Good, The Bad, and The Ugly. Hann var nú orðinn stórstjama og hefur síð- an leikið i fiölda vinsælla mynda, þ. á Play Misty for Me árið 1971 og hann lék síðan í og leikstýrði myndunum High Plains Drifter, The Eiger Sanc- tion, The Outlaw Josey Wales, The Gauntlet, Bronco Billy, The Rookie og A Perfect World. Mesta airek hans hlýtur þó að teljast The Unforgiven, sem hann einnig ffamleiddi, en hún Clint Eastwood er goðsögn í Hollywood og á langan og farsælan fer- il að baki sem leikari, leikstjóri og Gene Hackman leikur forseta Bandaríkjanna sem hef- ur margt á samviskunni. m. Hang Em High, Coogan’s Bluff, Where Eagles Dare, Paint Yom- Wa- gon, Two Mules for Sister Sara, Kelly’s Heroes, The Beguiled, Dirty Harry, Joe Kidd, Magnum Force, Thunderbolt and Lightfoot, The Enforcer, Every Which Way But Loose, Escape from Alcatraz, Any Which Way You Can, Tightrope, City Heat, The Dead Pool og Pink Cadillac. Leikstjómarferill hans hófst með vann fem óskarsverðlaun, þ. á m. fyr- Jr bestu mynd og bestu leikstjóm, og fékk fjórar tilnefningar að auki, þ. á m. fékk Clint Eastwood tilnefningu fyrir bastan leik í aðalhlutverki. Aðrar myndir sem hann hefur leikið í, leik- stýrt og framleitt era Firefox, Honky- tonk Man, Sudden Impact, Pale Rider, eak Ridge, White Hunter Black og The Bridges of Madison . Einu myndir hans sem hann ekki leikið í era Breezy og Bird einnig sú nýjasta, Midnight in the Garden of Good and Evil. Annarreyndurkappi Gene Hackman er annar stórleikari sem er gamall í hettunni. Hann lék í sinni fyrstu mynd árið 1961 en stóra tækifær- ið kom þegar hann var tilnefindur til ósk- arsverðlauna fyrir hlutverk sitt í Bonnie and Clyde. Næst var . hann til- verðlaunin fyrir túlkun sína á Popeye Doyle í French Connection. Enn var hann tilnefndur fyrir' Mississippi Buming og hlaut síðan óskarsverð- launin fyrir bestan leik í aukahlut- verki fyrir leik sinn í Unforgiven. Hin síðari ár hefur hann leikið fjölda hlut- verka í myndum eins og The Firm, Wyatt Earp, Get Shorty, Crimson Tide, Extreme Measures, The Chamber og The Birdcage. Meðal annarra mynda hans era Young Frankenstein, The French Connection n, Superman, Und- er Fire, Superman n, Superman IV, No Way Out, Postcards from the Edge, Narrow Margin og Class Action. Sé Ed Harris borinn saman við Clint Eastwood og Gene Hackman er hann hálfgerður | kjúklingur. Hann hefúr þó verið að fást við leiklist í meira en tvo áratugi frá því að nefndur fyrir I Never Sang for My Father en árið 1971 varð Gene Hackman stór- 9 stjama þegar j hann hlaut óskars- hann hóf leiklistar nám árið 1973 Síðustu árin hef ur hann m.a. leik r'V ið í stórmyndun 1 um Just Cause, Apollo 13 og The Rock en meðal ann- arra mynda hans era The Right Stuff, Under Fire, The Abyss, State of Grace, Glengarry Glen Ross og Eye for an Eye. -PJ UPPÁHALDSMYNDBANDIÐ MITT Gunnar Hjálmarsson tónlistarmaður: Hitchcock o Mér finnst talsvert þessum glansheimi sem til í amerískum kvikmyndum áratugunum eftir stríð, þar sem allt átti að vera fullkomið og æðis- legt. Uppáhaldsmyndin mín frá þess- um tíma er Hitchcock-myndin North by Northwest, hröð og spennandi mynd sem hægt er að horfa á aftur og aftur. Cary Grant er þar sakaður um eitthvað sem hann gerði ekki, hann þarf að sanna sak- leysi sitt og berst leikurinn víða um Banda- ríkin. Annars er ég svona almennt mikill auk þess sem James Stewart er í miklu uppáhaldi. Hann lék í nokkrum myndum eftir Hitchcock auk annarra góðra, t.d. myndinni Harvey þar sem hann leikur á móti ósýnilegri kanínu. Upp á síðkastið hefur hugurinn hins vegar beinst dálítið að Jackie Chan og myndunum hans. Ég er nýbúinn að kynnast honum og hans Kung-Fu töfrum og líkar nokkuð vel. Um þessar mundir er ég að horfa á allt sem til er með honum, byrja kvöldið á núðlumat- seðli og horfi síðan á vel valda Jackie Chan-mynd. Rumble in the Bronx er í uppáhaldi af hans myndum en ég er þó ekki búinn að horfa á þær allar. Auðvitað er svo úr ótalmörgu öðru að velja. Leikstjórinn John Waters er t.d. snillingur, nær allar myndir hans eru frábærar. Sú af hans myndum sem er hægt að taka sérstaklega út úr er Iink Flamingos. Þar leikur Divine m.a. í alræmdu lokaatriði. Ég komst yfir 25 ára afmælisútgáfu af þeirri mynd með áður óbirtum upptökum og sú mynd stenst fylli- lega tímans tönn. Dear God Greg Kinnear fékk fyrsta stóra hlut- verkið sitt í Sabrinu á móti Harrison Ford og Juliu Ormond. Hann er samt enginn aukvisi í skemmtanabransanum því hann hefur í mörg ár verið þátta- stjórnandi í banda- ríska sjón- varpinu. Kinnear er nú mættur í annarri mynd sinni, Dear God. Dear God er gaman- mynd um Tom Tumer, hreinræktaðan svikahrapp, sem hefur liflbrauð sitt af því að féfletta saklausa vegfarendur. Kvöld eitt er hann við iðju sína að reyna aö svindla á tveimur lögreglumönnum 1 dulargervi. Hann er að sjálfsögðu hand- tekinn í kjölfarið og fær að velja á milli fangelsis eða aö vinna í sjálfboðavinnu i pósthúsi og flokka póst sem erfitt er að koma til viðtakenda. í ljós kemur að mörg bréfanna eru stíluð á Guð. Upp i Tom kemur gamli svindlarinn og hann ákveður því að svara þessum bréfum og féfletta fólkið .í leiðinni. Auk Greg Kinnear leika i Dear God Laurie Metcalfe, Maria Pitello, Tim Conway og HectorElizondo. Leikstjóri er Garry Marshall sem meðal ánnars leik- stýrði Pretty Woman. Sam-myndbönd gefa út Dear God og er hún leyfð öllum aldurshópum. Útgáfudagur er 29. desember. Lost Highway Lost Highway er nýjasta kvikmynd hins umdeilda leikstjóra, Davids Lynch, sem fer ekki troðnar slóðir frekar en fyrri daginn í kvikmyndagerð. Sjálfsagt eiga marg- ir góðar minningar þegar hugsað er til fyrri mynda hans eins og Wild at Heart og Blue Vel- vet, svo ekki sé minnst á sjónvarps- myndaflokkinn Twin Peaks. Segja má að David Lynch byggi mynd sína upp eins og draum en þó er áhorf- andinn aldrei viss. Við kynnumst hjón- unum Fred og Renee Madison, sérkenni- legu pari sem býr í sérkennilegri íbúð í afar sérstöku húsi. Til þeirra taka að ber- ast dularfull myndbönd sem sýna þau meöal annars sofandi i rúmum sínum eins og einhver hafi laumast inn til þeirra og myndað þau. Skömmu síðar rekst Fred á djöfullega útlitandi mann sem virðist standa fyrir þessum óhugn- anlegu sendingum. Upp frá þessu hefur Fred enga stjóm á atburðarásinni. í aðalhlutverkum eru Bill Pullman, Patricia Arquette pg Balthazar Getty. Myndform gefur út Lost Highway og er hún bönnuð börnum innan 16 ára. Útgáfudagur er 29. desember. The 6th Man The 6th Man er skondin gamanmynd sem er sérstaklega fýrir þá sem hafa bæði gaman af körfubolta og gríni. Körfubolta- maðurinn Antoine Tyler (Kadeem Hardi- son) er við það að láta drauma sína rætast um að koma liði sinu i úr- slitakeppn- ina þegar hann tekur upp á því að gefa upp öndina. Nið- urbrotinn af söknuði og sorg verður nú yngri bróðir hans, Kenny (Marlon Wayans), að leiöa liðið, Washington Huskies, til hins langþráða takmarks. Það eru hins vegar litlar likur á að það takist því Kenny missir að sjálfsögðu ailan vilja við dauða bróður sins. Það er ekki fyrr en draugur Antoines birtist skyndilega að hlutimir fara aftur að ganga vel. Enginn getur þó séð draugsa nema Kevin. Marga fer þó að gruna að ekki sé ailt með felldu þegar Kevin fer að stökkva hærra en allir aörir og er allt í einu orðinn að stjörnu- leikmanni. Allt gengur liðinu í haginn, enda má segja aö þeir séu sex inni á vell- inum í stað flmm. Kevin hefur þó sam- viskubit yflr öllu saman og ákveður að lið- ið verði að vinna á heiðarlegan hátt og Setja verði körfuboltadrauginn á bekkinn. Sam-myndbönd gefa The 6th Man út og er hún leyfð öllum aldursflokkum. Útgáfudagur er 22. desember.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.