Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1997, Blaðsíða 36
LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 1997
*
I
I
:
í
i
i
I
!
<
i
i
\
I
★ *
unglingar
*★ --------
vesturbænum?
Geimverur
Krakkarnir í Frostaskjóli hlustuðu agndofa á Magnús Skarphéðinsson flytja fyrirlestur slnn um geimverur.
DV-mynd S
„Ég finn fyrir ótrúlega miklum
áhuga ungu kynslóðarinnar. Ég
held að það sé risavaxin geimveru-
kynslóð aö vaxa úr grasi sem landiö
mim erfa og menntakerfið gleypa,"
segir Magnús Skarphéöinsson sem
orðinn er eftirsóttm: fyrirlesari í fé-
lagsmiðstöðvum og víðar þar sem
ungt fólk safnast saman. Umræðu-
efhið er aöeins eitt: Geimverur. Síö-
ast var Magnús með svokallað
„geimverukvöld" í félagsmiðstöð-
inni Frostaskjóli en hefúr farið víða
um borg og bý með fyrirlestra sína.
„Það gleður smáborgaralegt geim-
veruhjarta mitt hvað unga fólkið,
hefur mikinn áhuga á þessu. Það
gefur algjörlega skít í ferkantaða
heimsmynd menntakerfisins, sem
gefúr ekkert út á þessi fræði. Þrátt
fyrir tröllslegan áróður kerfisins
gegn þessu hefur það ekkert virkað
á unga fólkiö. Þetta er skondin en
þægileg staöreynd,“ segir Magnús.
En hvað skyldu krakkamir eink-
um spyrja Magnús um?
„Þau spyrja aðallega hvemig
geimverur séu. Em þær vondar eða
góðar? Trúa þær á Guð? Hvað era
þær að gera hér á jörðinni og af
hverju er ekki sagt frá komum
þeirra? Til hvers er verið að leyna
þessu? Þau spyrja um tilgang al-
heimsins. Ég hef svo sem engin
svör, eins og flestir aðrir, en sé
þessa hluti í öðra ljósi af þekkingu
minni á geimverufræði og spírit-
isma. Fjöldi fólks í heiminum hefúr
hitt geimverar og átt skoðanaskipti
við þær. Þetta hefúr heillað krakk-
anna einna mest,“ segir Magnús
sem gefur krökkunum í vesturbæn-
um bestu einkunn fyrir áhuga sinn
og vitneskju á geimverum.
„Þama vora strákar sem vora
mjög vel lesnir í þessum fræðum.
Það kom mér mjög á óvart,“ segir
Magnús og bætir við að sumir
krakkar þama í Frostaskjólinu hafi
staðiö upp og lýst persónulegri
reynslu sinni af yfimáttúrulegum
hlutinn.
„Það skal alltaf gerast í þessum
fyrirlestram aö ég fæ eina eða fleiri
sögm- frá fólki. Ég man eftir því í
Menntaskólanum á Egilsstöðum í
fyrra að nokkrir gáfu sig fram sem
höfðu séð Lagarfljótsorminn. í eitt
skiptið höfðu þrjár manneskjur séö
kvikindið í tíu minútur!" -bjb
Furðuljós á mynd Sturlu Þórs:
Eitthvað óvenjulegt
Meðal þeirra sem stóðu upp á
geimverukvöldinu í Frostaskjóli
og sögðu persónulega reynslu sína
af yfirskilvitlegum fyrirbærum
var Sturla Þór Friðriksson, 15 ára.
Hann sagði frá ljósmynd sem
hann tók út um glugga á Flug-
leiðavél í háloftunum yfir Atlants-
hafi á leiðinni til íslands í fyrra.
Er filman var framkölluð sáust
sérkennileg, þrjú rauð ljós á einni
myndinni. Eng-
um hefur til
þessa tekist að
skýra þennan
Ijósagang. Því
velta menn fýrir
sér hvort hér sé
um fljúgandi
furðuhlut að
ræða eða jafnvel
geimskip.
„Flestir sem
sjá myndina
halda að ljósin
séu frá sólinni en
það fæst ekki
staðist. Ég held
að þama sé eitt-
hvað óvenjulegt á
ferðinni," sagði
Sturla Þór þegar
hann kom og
sýndi DV-mönnum myndina hér
neðar á síðunni.
Filman var framkölluð í ljós-
myndabúðinni Myndinni við Ing-
ólfsstræti. Einar Þórisson, sem
þar starfar, sagði í samtali við
helgarblaðið að myndin sýndi
klárlega eitthvað afar óvenjulegt.
Hann hefði með öllum sínum
framköllunartækjum og tólum
gengið úr skugga um að hér væri
ekki um neinn
ljósleka á film-
unni að ræða,
ekki endurspegl-
un á glugga vélar-
innar eða Ijós frá
henni. Þetta gæti
ekki heldur verið
endurvarp frá
sólu miöað við
stööu hennar og
skugganna á
skýjabólstrunum.
„Rauði liturinn
á Ijósunum bendir
líka til að þama
sé svakalegur
hiti. Hitastigið
áreiðanlega meira
en nokkur eldiu-
getur valdið,“
sagði Einar. -bjb
Sturla Þór Friðriksson.
DV-mynd Hilmar Þór
★
★
★;
ín hliðin
★ ★
Mikael Torfason ríthöfundun
Kynlíf urriða meira spennandi
„Bókin fjallar um 26 daga í lífi 16
ára stráks í Grafarvogi, 13 daga fyrir
jól og 13 daga eftir jól. Strákurinn er
ofvirkur, hugsanlega geðveikur,"
segir Mikael Torfason, 23 ára rithöf-
undur sem sendir frá sér sína fyrstu
skáldsögu fýrir jólin, Falskan fugl.
Hann segist hafa verið að skrifa eins
og brjálæðingur í mörg ár. „Ég hef
verið aö vinna kvikmyndahandrit og
á aðra skáldsögu tilbúna til útgáfú,"
segir þessi imgi rithöfúndur sem hér
sýnir á sér hina hliöina.
Fullt nafn: Mikael Torfason.
Fæðingardagur og ár: 8. ágúst
1974.
Maki: María Una Óladóttir.
Börn: Gabríel Darri og Kristín
Una.
Bifreið: Daihatsu Applause.
Starf: Skriftir og það sem til fellur.
Laun: Breytileg.
Hefúr þú unnið í happdrættl eða
lottói? Nei.
Hvað finnst þér skemmtilegast
að gera? Skrifa, lesa og stara út í
bláinn.
Hvaö finnst þér leiðinlegast að
gera? Loka augunum.
Uppáhaldsmatur: Rjúpan er best,
engin spuming.
Uppáhaldsdrykkur: Ýmsar teg-
undir af bjór, gosdrykkjum, léttvíni
og sterkum viniun.
Hvaða íþróttamaður stendur
fremstur í dag? Ekki hugmynd.
Uppáhaldstímarit: Fjölnir.
Hver er fallegasta kona sem þú
hefúr séð (fyrir utan maka)? Na-
omi Campell í sleik við Madonnu og
þær era naktar.
Ertu hlynntur eða andvígur rík-
isstjóminni? Mér er skítsama.
Hvaða persónu langar þig mest
til að hitta? Hef hitt hana en gæti
hugsað mér að grafa Þórberg upp.
Uppáhaldsleikari: Gunnar Guð-
mundsson stuttmyndabeib og H.
Fordinn virkar alltaf.
Uppáhaldsleikkona: Winona
Ryder.
Uppáhaldssöngvari: 2PAC Shak-
ur.
Uppáhaldsstjómmálamaður: Ég
held með Össuri Skarphéðinssyni.
Kynlíf urriða er meira heillandi en
kynjasögur Davíös.
Uppáhaldsteiknimyndapersóna:
Lestin á Cartoon Network.
Uppáhaldssjónvarpsefni: Ég get
lesið og horft á X-Files um leið. Þess
vegna segi ég X-Files.
Uppáhaldsmatsölustaðiu*/veit-
ingahús: Ég sakna fyrsta alvöra
hamborgarastaðarins á Islandi. Mig
langar að fá Tomma aftur.
Hvaða bók langar þig mest að
lesa? Ég hlakka til að lesa ævintýri
Nálvanna fyrir börnin mín.
Hver útvarpsrásanna finnst þér
best? X-ið og rás 1.
Uppáhaldsútvarpsmaður: Tví-
höfði.
Hverja sjónvarpsstöðina horfir
þú mest á? Horfi lítið á sjónvarp
svo það skiptist jafnt á milli ís-
lensku stöðvanna.
Uppáhaldssjónvarpsmaður: Ég
held með Bryndísi Schram „af því
að pabbi vildi það“.
Uppáhaldsskemmtistaður/krá:
Ég smyglaði mér inn á Hressó þrett-
án ára og hef ekki lagt það á mig
fyrir annan skemmtistað.
Uppáhaldsfélag í íþróttum: Er
Siggi Sveins íþróttafélag?
Stefnir þú að einhverju sérstöku
f framtíðinni? Skrifa, skrifa og
gefa út þar tO hver einasti jarðar-
búi er búinn að lesa bók eftir mig.
Hvað gerðir þú í sumarfríinu?
Skrifaði og drap litla sæta
kjúklinga.
-sv
Mlkael Torfason sendi fyrlr skömmu frá sér skáldsöguna Falskur
fugl. DV-mynd ÞÖK