Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1997, Blaðsíða 46
'50
LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 1997
Aramótaferð Ferðafálags Islands í Þórsmörk:
• Áramót með
ævintýrablæ
Áramótaferðir Ferðafélags tslands
hafa verið famar samfellt frá árinu 1971.
Þessar ferðir eru þekktar fyrir góðan
anda og þær hafa ætíð notið mikilla vin-
sælda.
í þessum áramótaferðum hefur jafn-
an ýmislegt skemmtilegt borið við og
kannski ekki allt farið eftir nákvæmri
dagskrá og því hafa ferðimar oft haft á
sér ákveðinn ævintýrablæ og verið
ógleymanlegar þeim sem tekið hafa
þátt.
Minnisstæðustu ferðimar em líklega
þær þegar mikið hefur þurft að hafa fyr-
ir því aö komast í Þórsmörk og síðan til
baka aftur en oft hafa snjóa- og ísalög
tafið fór. Að þessu sinni er útlit fyrir
óvenju góða færð í Þórsmörkina ef ekki
verða miklar breytingar á veðurfari
fram að áramótum.
Ferðafélagsferðin er þrír dagar. Hún
hefst að morgni gamlársdags kl. 8 en
vegna þessa þarf fólk aðeins að taka
einn frídag í vinnu. Verðlagi er stillt í
hóf. Ekið verður rakleiðis inn í Langa-
rial í Þórsmörk þar sem gist verður í
góðum og velupphituðum skála, Skag-
tjörðsskála, í tvær nætur.
Þegar hefur verið undirbúin fiöl-
breytt dagskrá með gönguferðum við
ailra hæfi, kvöldvökum, og gamla árið
verður hvatt með áramótabrennu og
flugeldasýningu.
Ferðamenn sjá sér sjáifir fyrir fæði,
en eldunaraðstaða er mjög góð en tvö
eldhús eru í skálanum. Þá er einnig
rúmgóð borðstofa í skálanum.
Gestum til gleði verða með í fór tveir
diljóðfæraleikarar sem munu leika und-
ir söng á kvöldvökum bæði kvöldin.
Snorradalur í Þórsmörk.
Ferðafélagið hefur látið undirbúa sér-
stök söngblöð svo allir geti tekið undir í
fiöldasöng.
Haldið verður til byggða á öðrum
degi nýárs og ættu þá allir að mæta
nýju ári endurnærðir eftir góða
skemmtun og útiveru í óbyggðum. Enn
eru nokkur sæti laus í þessa ferð en síð-
ustu miðar verða seldir fyrir jól á skrif-
stofu Ferðafélagsins i Mörkinni 6.
Að lokum er vert að geta þess að síð-
ustu ferðir Ferðafélagsins í ár fyrir utan
áramótaferðina er sólstöðuganga á Esj-
una þann 21. desember kl. 10.30 og blys-
fór sem farin verður frá höfuðstöðvum
Ferðafélagsins, Mörkinni 6, þann 28.
desember kl. 17.
Skíðagöngumaður á Fimmvörðuhálsi á leið á Goðaland.
Árleg áramótaferð Útivistar í Þórsmörk:
Arið kvatt í Básum
Hrikaleg náttúrufegurð í Þórsmörk að vetri til.
Rafkaup
ÁRMÚLA 24* S: 568 15 18
Skáli Útivistar í Básum skartar vetrarskrúða.
Áramótaferð Útivistar í Bása á
Goðalandi er einn af stærri ferða-
viðburðum ársins hjá Útivist. Ekk-
ert jafnast á við áramót á þessum
frábæra stað sem er einn sá fegursti
á landinu, hvort heldur er að vetri
eða sumri.
Á þessum árstima skarta jöklar
og fiöll á Goðalandi sínum fegursta
vetrarskrúða. Snjóteppi liggur yfir
öllu eins og silkimjúk ábreiða og
allt er hvítt og fallegt yfir að líta. Ár
og lækir ryðjast upp úr farvegum
sínum vegna ísstíflna og umhverfið
því stórfenglegt að sjá. Mitt í þess-
ari einstöku náttúrufegurð eru Bás-
ar þar sem skálar Útivistar standa,
umvafðir snæbreiðum sem teygja
sig upp á Réttarfellið, upp á Úti-
gönguhöfða og alla leið upp á
jöklana.
Flugeldar í Strákagili
í Básum safnast saman um hver
áramót hópur fólks sem á það sam-
eiginlegt að hafa áhuga á útiveru og
að vilja skemmta sér í fámenni. Úti-
vist gerir allt til þess að dvölin í
Básum sé sem huggulegust og
skemmtilegust, upphitaðir skálarn-
ir eru í hátíðarbúningi og þegar
dimmir er umhverfið lýst upp með
kertaljósum.
Á hverju kvöldi eru haldnar
kvöldvökur þar sem fólk tekur þátt
í söng, glensi og gamni. Fjörugt fólk
spilar á hljóðfæri, stjórnar fiölda-
söng og allir leggja eitthvað til mál-
anna svo kvöldin verði sem eftir-
minnilegust. Á gamlárskvöld verð-
ur kveikt í stórum bálkesti og mun
fólk safnast saman til að kveðja
gamla árið og fagna því nýja við
skin brennunnar og flugelda og
blysa. Á nýárskvöld verður farin
blysför inn í mynni Strákagils og fá
allir afhent blys fyrir gönguna. í
Strákagili fer svo fram mikil flug-
eldasýning og verða gil og klettar
lýst upp með blysum svo að stór-
kostlegt verður um að litast.
Gönguferðir viö allra hæfi
Ekki er einungis séð til þess að
fólk skemmti sér á kvöldin. Á dag-
inn, meðan birta leyfir, er farið í
gönguferðir, bæði léttar og svo aðr-
ar sem eru erfiðari. Má þar nefna
gönguferð inn Krossáraura og inn í
tívannárgil í léttari flokknum en
göngu upp á Réttarfellið og ef til vill
upp á Útigönguhöfða í erfiðari
flokknum. Þetta fer þó eftir færi og
veðri hvern dag og er fararstjóri
ávallt með i för.
Einnig eru farnar gönguskíða-
ferðir fyrir þá sem það vilja og er
þá gengið um Krossáraura og víðar
þar sem færð leyfir. Fyrir þá sem
ekki treysta sér í gönguferðir er far-
ið í útileiki, til dæmis ratleiki. Eftir
gönguferðirnar, þegar rökkva tek-
ur, passar að kynda undir kötlun-
um og gera allt klárt fyrir kvöld-
verð.
Ekkert er því til fyrirstöðu að
kveikja undir grillinu og stendur
allur búnaður skálanna gestum til
ráðstöfunar við matseld sína.
Yfir Fimmvöröuhálsinn
Af ofantöldu sjá að það ætti að
vera eitthvað fyrir alla og engum
ætti að leiðast hjá Útivist í Básum
um áramótin. Ferðin hefst með
rútuferð úr Reykjavík þann 30. des-
ember og er ekið sem leið liggur
austur á Hvolsvöll þar sem stoppað
er í skamma stund. Þaðan er síðan
haldið áfram að Markarfljóti, farið
inn Langanesið og í öllu farin hin
hefðbundna leið yfir hjá lóninu við
Gígjökul og áfram inn á Goðaland.
Þeir sem ekki kjósa að fara hina
hefðbundnu leið geta farið með Úti-
vistarferð degi fyrr og farið að
Skógum. Þaðan verður lagt upp á
Fimmvörðuháls og gengið á skíð-
um.
Þessi ferð er ætluð þeim sem eru
vanir á gönguskiðum og í góðri æf-
ingu og einnig tilbúnir að takast á
við óvænta veðraskelli sem geta
komið þarna. Gist er í hinum glæsi-
lega skála Útivistar á Fimmvörðu-
hálsi um nóttina og síðan haldið
áfram niður í Bása daginn eftir. Bú-
ist er við að hópurinn komi þangað
um svipað leyti og rútan og verður
þá búið að hita skálann upp fyrir
gesti. Komið verður til baka til
Reykjavíkur 2. janúar. Allar nánari
upplýsingar veitir skrifstofa Úti-
vistar að Hallveigarstíg 1.
Kristján Helgason
Áning 1998 komin út:
300 gististaðir í
máli og myndum
Bæklingurinn
Áning 1998 er
kominn út. I Án-
ingu er að finna
yfirlit yfir 300
gististaði víðsveg-
ar á íslandi. Öll
helsta þjónusta
gististaðanna er tí-
unduð í bæklingn-
um og einnig eru litmyndir af hverj-
um gististað, auk þess sem fagrar
landslagsmyndir prýða bókina.
Áning er gefin út á íslensku, ensku
og þýsku í 32 þúsund eintökum. Þá
hefur Áning sett á stofn íslenska gis-
tivefinn á Netinu en þar er að finna
gagnlegar upplýsingar um alla þá fiöl-
breyttu möguleika sem bjóðast á
gistihúsum landsins. Slóðin er http:
/ /www.mmedia.is/aning.