Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1997, Side 37

Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1997, Side 37
j- Kristinn Árnason gítarleikari hefur ekki setið auðum höndum undanfarin ár. r DV-mynd GVA Kristinn Arnason gítarleikari: Þriðja platan á þremur árum Litir: brúnt og grænt m. LEÐURHORNSOFI SOFATILBOÐ Leður á slitflötum Kristinn Ámason gítarleikari hefur sent frá sér þriðju geislaplöt- una á jafnmörgum árum er inni- halda klassísk tónverk. Nú eru það þrjú verk eftir Johann Sebastian Back sem Kristinn hefur útsett og flutt á einni plötu; tvær svítur, sem upphaflega vom skrifaðar fyr- ir lútu, og eina svokallaða cha- cönnu, upphaflega samda fyrir fiðlu. Eins og á hinum plötunum tveimur er það hollenska útgáfu- fyrirtækið Arsis sem gefur plötuna út. Arsis er að hluta til í eigu ís- lendings, Reynis Þórs Finnboga- sonar, sem kom fyrst að máli við Kristin um að gefa út plötur með honum. Á fyrstu plötunni 1995 lék Kristinn gítarverk eftir Barrios og Tarrega. Ári síðar kom plata með verkum eftir Sor og Ponce. Kristinn, sem fékk íslensku tón- listarverðlaunin 1996 og Menning- arverðlaun DV fyrir fáum árum, lauk einleikaraprófi frá Tónskóla Sigursveins árið 1983. Eftir það lá leiðin til Englands, Bandaríkjanna og Spánar þar sem hann jók veru- lega við gítarmenntun sína. Krist- inn var meðal síðustu nemenda einhvers mesta gítarsnillings þess- arar aldar, Andresar Segovia, sem lést skömmu eftir að hann hafði kennt Kristni, þá orðinn 94 ára. „Þetta var stórmerkilegur og hress karl sem kenndi manni mik- ið. Ég sver það gjörsamlega af mér að hafa átt nokkum þátt í dauða hans. Ég man að kunningi minn, Einar Örn Sykurmoli, kallaði mig „Segovia-killer“ lengi eftir þetta,“ segir Kristinn í léttu spjalli við helgarblaðið. Að hans sögn stendur til að fleiri plötur með honum komi út á vegum Arsis, en þó ekki á næsta ári. Hann ætlar að gera hlé og demba sér á ný í gítarkennslu. Svo má ekki gleyma því að Kristinn er í hljómsveitinni Hringjum ásamt Kormáki Geir- harðssyni trommara og Herði Bragasyni organista. „Við spilum það sem við köllum „sýrupolkapönk". Þar fáum við fína útrás fyrir öðru en klassískri tónlist," segir Kristinn en Hringir hafa verið mjög eftirsóttir. -bjb mónlist MJÞ"\F LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 1997 Tækni er ekki bara vísindi - Tækni er list. AUt frá því að iyrsta Samurai sverðið var smiðað, hefur Japan veriö þekkt fyrir að þróa tæknilega nákvæmni. Hja EP50N er stöðugt unnið að þvi að viðhalda þe’ssum orcís.tfr með þvi að bjoða upp á hágæða tækni sém breytir lífi þínu og starfi. Metnaður til stöðygrai'nýsköpunar hefur skipað EPSON vöriimvqruggan $ess í fylkingarbijósti tækninnar. PhotoReal™ bleksprautugæði, með hinni óviðjafnanlegu EPSON Piezo kristaltækni, eru að gjörbylta allri litaprentun. Háþróuð tækni til vinnslu stafrænna Ijósmynda leysa sköpunargleðina úr læðingi og einstaklega skýrir og fyrirferðalitlir skjávarpar gæða allar hugmyndir þínar lífi. EPSON, þvi að tækni er list. http//www.epson.com

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.