Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1997, Qupperneq 42
LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 1997
JMlk
Skagfirsk skemmtiljóð eftir á fimmta tug höfunda:
Húmorinn allsráðandi
- segir Bjarni Stefán Konráðsson sem safnaði Ijóðunum saman á bók
i
i
Bókaútgáfan Hólar á Akureyri
hefur gefið út bókina Skagfirsk
skemmtiljóó sem Bjarni Stefán Kon-
ráðsson frá Frostastöðun hefur safn-
i að saman. Hólamenn, þeir Guðjón
Ingi Eiríksson og Jórx Hjaltason,
hóuðu í Bjarna fyrr á þessu ári og
báðu hann að safna saman vísum og
ljóðum eftir höfunda búsetta í Skaga-
firði og Skagfirðinga óháð búsetu.
Bjarni sendi út bréf til 70 hagyrðinga
og ekki stóð á svörum. Svo mikið af
skemmtiljóðum Skagfirðinga bárust
| að þegar hefur verið ákveðið að gefa
I út aðra bók. í þessa komst „einung-
is“ efni frá hátt í fimmtíu hagyrðing-
r um. Flestar vísurnar hafa ekki áður
■ komið fyrir augu almennings.
| „Ég sagði við útgefendurna,
i kannski meira í gamni, að við
1 skyldum gefa út þrjár bækur. Eina
! með mynd af Glóðafeyki framan á,
aðra með Mælifellshnjúki og þá
1 þriðju með Tindastóli," sagði Bjarni
í samtali við helgarblaðið og vísaði
þar til nafntoguðustu fjalla Skaga-
fjarðar. Bókin sem nú er komin út
er einmitt með Glóðafeyki framan á
þannig að við getum vænst a.m.k.
tveggja rita í viðbót!
Hann segir húmorinn vera alls-
ráðandi í bókinni, þó innan velsæm-
ismarka. Eitthvað sé þó af „neðan-
beltishúmor" eins og gengur. Fjöl-
, breytni einkenni einnig bókina sem
sýni hve mikil gróska sé í skagfir-
skri vísnagerð. Bjami vonast til að
geta náð til fleiri kvenna í næstu
'j- bók en þær séu ekki síðri hagyrð-
ingar en karlamir. Einnig verður
meira efni frá Skagfirðingum sem
komnir era yfir móðuna miklu.
Bjarni Stefán Konráðsson gluggar í Skagfirsk skemmtiljóð.
DV-mynd Hiimar Pór
Nokkur valin skemmtiljóð
| Við skulum gripa niöur í nokkrar visur úr
Sbókinni Skagfirsk skemmtiljóö og byrja
kannski á þeim tveimur sem misfórust í
prentuninni. önnur er eftir Pálma Jónsson á
Sauðárkróki sem orti þessa um frægan bar-
daga Mike Tyson og Evander Holyfield
I (bls.61):
III má hér átökin líta,
illt er þaö liöna aö sýta.
Hér má dólgshátt samt nota,
hér má drepa og rota;
hér má allt nema alls ekki bita.
Hin vísan er á bls. 77 og er eftir Stefán Guö-
mundsson, „ríkisstjóra“ á Króknum. Á fyrstu
dögum bjórsölunnar mætti Stefán sr. Hjálm-
ari Jónssyni á tröppum pósthússins á Krókn-
um; hann að fara en Stefán að koma. Skaut
Hjálmar vísu á Stefán þar að lútandi og Stef-
án endurgalt skeytið svona:
| Presturinn líka á pósthúsió fór,
meö pakkana rogaóist þaöan.
En hvort sem aö í þeim var bœn eöa bjór,
brennivínstár eóa Ióunnarskór,
þá œtti þaö ekki aö skaö’ann.
Bjami Stefán, sem safnaði efni í bókina,
segir fööur sinn, Konráð Gíslason, lítið hafa
flíkaö kveöskap sínum. Hér kemur ein um
ungt, barnlaust par í „húsinu hinum megin
götunnar":
Unga fólkiö sefur sœtt
1 i sínufleti.
Barniö ekki enn erfœtt,
f ■ ensú leti.
Af Ijóðelsku fólki
Bjarni kemur af ljóðelsku fólki og
er vel hagmæltur. Enda eru vísur í
bókinni eftir þrjá bræður hans, föð-
ur og loks hann sjálfan. Hann segist
alla tíð haft mikinn áhuga á vísna-
gerð. Reyndar ekki smitast algjör-
lega af bakteríunni fyrr en um tví-
tugt. Nú sé þetta eitt helsta áhuga-
málið.
Þekktastur er Bjarni líklega fyrir
störf sín í þágu knattspyrnuþjálfara.
Hann er lærður íþróttafræðingur
frá Köln i Þýskalandi og hefur verið
formaður knattspyrnuþjálfarafé-
Jón Ingvar Jónsson, hugbúnaöarmaöur hjá
EJS, setti þessar saman þegar tíðindi bárust
af stööluðum smokki Evrópusambandsins:
Á karlmönnum limurinn mœlist í metrum,
á merkustu evrópsku vísindasetrum,
um núll komma sautján tveir ellefu átta
og um þaö er hreinlega fráleitt aö þrátta,
því rannsókn á hertum og háreistum jörlum
á hundraö og tólf þúsund fullvaxta körlum
er lögö hér til grundvallar. Andmœlum ekki
þótt álitiö bíöi samt dálítinn hnekki.
Hver einasti skaufi var skoöaöur sprœkur
og skráður af vísindamönnum á bœkur
og meöallengd samviskusamlega reiknuö
og súlu- og línurit vandlega teiknuö.
En ekki varö mœlanlegt frávik þar fundiö
þvifengu þeir máliö í staölana bundiö.
Aö lokum þeir rígmontnir stigu á stokka
og stööluóu hágœöa evrópusmokka.
Já lengdin er stöóluö en áferó og annaö,
sem ilmur og litur erfrjálslega hannaö.
Ef ekki í smokkinn þú kónginum kemur
er karlmennska þín samt þvi er staólinum nemur.
Og hy$jir þú verjuna upp fyrir eistu
þá er nú samt lengdin í metrum, þaó veistu,
um núll komma sautján tveir ellefu átta
og um þaö er hreinlega fráleitt aö þrátta.
Jón Eiríksson Drangeyjaijarl er einn höf-
unda 1 bókinni og þessa vísu samdi hann eft-
ir aö hafa hlustað á ónefndan ræðumann:
Ákaft sinnt’ann orðastriti,
allt hans bull úr hófi keyröi.
Ekki sagö’ann orö af viti
eftir því sem best ég heyröi.
lagsins í fjögur ár. Unnið ötullega
að útgáfumálum fyrir félagið og
kennt á þjálfaranámskeiðum KSÍ.
Þetta hefur verið meira í sjálfboða-
vinnu. Af „alvöru" brauðstriti má
nefna að Bjarni var í fimm ár fram-
kvæmdastjóri félags eggjaframleið-
enda og í dag starfar hann hjá trygg-
ingarfélaginu Allianz.
Loks má ekki gleyma því að
Bjami er söngelskur, líkt og flestir
Skagfirðingar, og hefur um skeið
sungið með Skagfirsku söngsveit-
inni. Var reyndar kjörinn formaður
sveitarinnar á dögunum.
-bjb
Stefán Þórðarson í skoðun hjá Crystal Palace:
Góð reynsla
- sagði kappinn, svartsýnn á útkomuna
Þegar blaðamaður og ljósmyndari DV
sóttu Hermann Hreiðarsson heim á æf-
ingasvæði Crystal Palace á dögunum var
þar fyrir íslendingurinn Stefán Þórðarson,
atvinnumaður með Öster í Svíþjóð. Stefán
hefur verið eitt ár hjá Öster. Hann gerði
tveggja ára samning við félagið og segist
ákveðinn í að fara frá félaginu að þeim
tíma liðnum. Fyrir nokkru óskaði Palace
eftir að fá að líta á kappann og því var
hann mættur til þess að sýna kúnstir sin-
ar á vellinum. Hann var þó heldur svart-
sýnn varðandi útkomuna.
„Ég er svo langt á eftir þeim í formi.
Keppnistímabilið er löngu búið i Svíþjóð
og ég er bara að byggja mig upp, lyfta og
hlaupa þannig að ég er of þungur. Ég
býst ekki við að neitt gerist úr þessu en
lít á þetta sem góða reynslu. Ég er ákveð-
inn í að fara frá Öster eftir næsta tíma-
bil og það er ágætt að fá að kynnast því
hvernig þessir hlutir ganga fyrir sig
áður en að því kemur fyrir alvöru," seg-
ir Stefán.
Aðspurður hvernig það hefði komið til
að hann fór upphaflega til Svíþjóðar segir
hann að Teitur Þórðarson, fóðurbróðir
Stefáns og fyrrverandi þjálfari hjá Öster,
hafi komið sér að þarna úti. Stefán segist
ekkert hafa verið að spila fyrir Akra-
nesliðið áöur en hann fór út og því verið
ákveðinn í að fara frá félaginu, hvort sem
hann færi utan eða til einhvers félags á ís-
landi.
„Þetta er alveg frábært tækifæri. Hér
Stefán Þórðarson slappar af á hótelher-
bergi sinu eftir æfingu með Crystal Palace
í síðustu viku. DV-mynd Pjetur
getur maður einbeitt sér alveg að boltan-
um og finnur strax framfarir þegar maður
þarf ekki að vera að vinna tíu, tólf tíma
áður en farið er á æfingar. Það skilar sér
strax og finnst reyndar á æfingunum. Þar
er allt annar hraði og meira tekið á en á
æfingum heima, sem von er. Þetta er ofsa-
lega jákvætt og ekki bara vegna fótboltans.
Maður lærir líka á lífið. Hér þýðir ekkert
elsku mamma. Hún er heima á íslandi og
kemur manni ekki til bjargar. Maður verð-
ur bara að gera svo vel að bjarga sér sjálf-
ur,“ segir Stefán sem býr með unnustunni
í Sviþjóð.
Áfram úti
Stefán segist vera vel sáttur við gengi
sitt þar þrátt fyrir meiðsli á s,íðasta tíma-
bili. Hann hafi verið að skora nokkuð af
mörkum og yfirleitt spilað nokkuð vel þeg-
ar hann gat verið með. Hann segist ekkert
vera farinn að spá í það af neinni sérstakri
alvöru hvert hann fari þegar hann skilji
við Öster. Hann vilji þó gjarna halda
áfram að spila með erlendu liði.
„Ég held að það væri gott fyrir mig aö
spila áfram í bolta eins og spilaður er í Svi-
þjóð. Ég er ekki viss um að ég hafi eitthvað
í sterkari deild að gera, a.m.k. ekki eins og
er. Annars veltur þetta allt á því hvemig
ég spila næsta tímabil með Öster. Ef ég
stend mig þá geta ýmsar dyr opnast, ef
ekki þá verður þetta erfiðara," segir knatt-
spymumaðurinn í samtali við DV.
Stefán lék með varaliði Crystal Palace á
þriðjudaginn en er nú kominn heim í jóla-
frí. Hvort eitthvað gerist á næstu dögum, i
framhaldi af dvöl hans hjá enska liðinu,
verður bara að koma í ljós.
-sv