Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1998, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1998, Blaðsíða 5
FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 1998 5 Fréttir Sjúkrahús Reykjavíkur: Enginn skipulagöur niðurskurður „Það era engar slíkar aðgerðir í gangi hjá okk- ur,“ sagði Jóhannes Pálmason, forstjóri Sjúkra- húss Reykjavíkur, þegar DV spurði hann hvort beinn niðurskurður á rekstri spítalans væri til umræðu hjá yfirstjóm spitalans eins og hjá ríkis- spítölunum. Jóhannes sagði að um áramótin hefði legið fyrir að hallinn í fyrra hefði verið um 150 milljónir eins og spáð hefði verið. Upp- safnaður eldri halli væri einnnig til staðar. Um 400 milljóna gat hefði verið í gerð nýhafins árs. Upp í væri aðeins tii hluti af 300 S ] Ú K R A H U S R E Y K ] A V í K U Slysadeild (+Eme Sjúkrahús Reykjavíkur. fjárlaga- um í potti sem ætti eftir að úthluta það gat úr. milljón- „Meðan ekki er búið að úthluta úr þeim potti hefur ekki verið gripið til sérstakra aðgerða og það er í sam- ræmi við bréfaskrif milli ráðuneytis og borgarráðs þar að lútandi," sagði Jó- hannes. „Borgarráð lítur svo á að þar til sá faghópur sem gert var ráð fyrir í fjárlögum verði settur á laggirnar til að fara ofan í fjármál allra sjúkrahúsa á landinu og úthluta úr pott- inum verði ekkert aðhafst. Við munum því ekki grípa til harkalegri aðgerða en verið hafa í gangi. Við gæt- um ýtrasta aðhalds en erum ekki með neinn skipulagðan niðurskurð í gangi.“ -JSS Karlmaður sem hefur áður verið dæmdur fyrir nauðgun: Ákæra fyrir kyn- mök við þroska- hefta konu Karlmaður á sextugsaldri hefur verið ákærður fyrir kynferðisbrot með því að hafa notfært sér and- lega annmarka þroskaheftrar konu er hann hafði mök við hana í íbúð í Reykjavík að kvöldi 30. september og aðfaranótt 1. október síðastlið- ins. Maðurinn hefur umtalsverðan afbrotaferil. Hann hefur meðal annars verið dæmdur í fangelsi fyrir nauðgun en einnig fyrir ýmis auðgunarbrot. Konan sem um er að ræða er á fertugsaldri. Samkvæmt ákæru gat hún ekki spornað við verkn- aði sakborningsins þar sem hún er þroskaheft. Refsing við broti sem maðurinn er ákærður fyrir varðar allt að 6 ára fangelsi - það er að hver sem notfæri sér geð- veiki eða aðra andlega annmarka einstaklings til að hafa við hann samræði þannig að hann geti ekki spornað við verknaðinum eða skilið þýðingu hans. Málið er í dómsmeöferð hjá Héraösdómi Reykjavíkur. -Ótt-JSS s u BALENO ÍZU • SWIFT - iKl * VITARA [ L. Aflmiklir, rúmgóbir, öruggir og einstaklega hagkvœmir í rekstri BALENO SWIFT VTTARA TEGUND: 1,3GL 3d l,3GL4d l,6GLX4d 1,6 GLX 4x4 4d l,6GLXWAGON WAGON 4x4 TEGUND: GLS 3d GLX 5d TEGUND: JLX SE 3d JLX SE 5d DIESEL 5d V6 5d VERÐ: 1.140.000 KR. 1.265.000 KR. 1.340.000 KR. 1.495.000 KR. 1.445.000 KR. 1.595.000 KR. VERÐ: 980.000 KR. 1.020.000 KR. VERÐ: 1.580.000 KR. 1.830.000 KR. 2.180.000 KR. 2.390.000 KR. Komdu og sestu innl Sjáðu rýmið og alúðina við smáatriði. Skoðaðu verð og gerðu samanburð. _____ 1 SUZUKI BILAR HF Skeifunni 17, 108 Reykjavík. Sími 568 51 00. # -r — — 1 : jH nœb „— — j > SUZUKI SÖLUUMBOÐ: Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, sími 431 28 00. Akureyri: BSA hf., Laufásgötu 9, slmi 462 63 00. Egilsstaðir: Bíla- og búvélasalan hf., Miðási 19, sími 471 20 11. Hafnarfjörður: Guðvarður Elíasson, Grænukinn 20, simi 5S5 15 50. Keflavík: BG bílakringlan, Grófinni 8, sími 421 12 00. Selfoss: Bilasala Suðurlands, Hrísmýri 5, st'mi 482 37 00.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.