Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1998, Qupperneq 7
FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 1998
7
Án staðsetningar
Þess er beöið með nokkurri efl-
irvæntingu hvað Kristján Þór
Júlíusson, fyrrverandi bæjar-
stjóri ísafjarðarbæjar, taki sér
fyrir hendur þegar
biðlaun hans upp á
rúmar þrjár millj-
ónir króna duga
ekki lengur til
framfærslu. Talið
var að hann ætl-
aði sér bæjar-
stjórastólinn á
Akureyri I vor
en vafasamt er
að það geti orðið að veruleika.
Annars ætti Kristján vart að vera
í vandræðum með að staðsetja sig
í tilverunni þar sem hollvinur
hans, Þorsteinn Jóhannesson,
bæjarfulltrúi á ísafirði, gaf hon-
um GPS-staðsetningartæki í
skilnaðargjöf...
Vér og oss og þér
Skiptar skoöanir eru um nýja
þýðingu á Gamla testamentinu og
nýja útgáfu Biblíunnar. Átakalín-
urnar liggja um gömlu tvítöluna,
vér og oss og þér.
Þessum hefð-
bundnu orðmynd-
um hefur verið
sleppt í fimm
kynningarheftum
sem Bibliufélagið
hefur gefið út um
nýju þýðinguna
og bæði eldri
prestar og ýmsir ís-
lenskufræðingar taka því stórilla.
Nú á að reyna að sætta sjónarmið
með málþingi sem Bibliufélagið
og Kjalamesprófastdæmi standa
fyrir síðar í mánuðinum og þar
verða fengnir menn úr ólíkum
áttum til aö segja álit sitt. Frá
guðfræðinni kemur Lára Odds-
dóttir, læknirinn Hrafnkell
Helgason lætur einnig ljós sitt
skína og fulltrúi guðrækinna
þingmanna verður Guðmundur
Árni Stefánsson...
Gullkorn í getraunum
í tiltölulega nýrri ársskýrslu
íslenskra getrauna er víða farið
um og sums staðar hreint á kost-
um. Einn kaflinn ber heitið
„Framtíð í nútíð og
þátíð“. Þar er fjall-
að um tækninotk-
un getrauna-
manna og þá
einkum sölu vöru
þeirra á Intemet-
inu. í fyrstu hafi
úrtölumenn haft
á orði að Inter-
netið væri óör-
uggt. „Við sögðum á móti að það
væri ömggara að nota kreditkort
í viðskiptum við okkur á Netinu
heldur en að nota sama kredit-
kort í Hagkaupi. Hvað þá ef mið-
að er við Kaffi Reykjavík," segja
getraunamenn, kokhraustir, í árs-
skýrslunni.
Nú er ekki gott að vita hvað
Hagkaupsfurstinn Óskar Magn-
ússon segir viö þessari neyðar-
legu samlikingu „hvað þá“ Kaðl
Reykjavíkurmenn.
Dýrasti KR-ingurinn
Það gengur á ýmsu í deilu sjó-
manna og útgerðarmanna og nú
stefnir 1 verkfóll og verkbönn í
byrjun næsta mánaðar. Þrátt fyr-
ir átökin fer gegn-
umsneitt ágætlega
á með deiluaðilum
þó ekki sé um
beina vináttu að
ræða. Innan raöa
sjómannaforyst-
unnar gengur
Kristján Ragn-
arsson, formaður
LÍÚ, undir gælunafhinu KR-ing-
urinn með vísan til upphafstafa
hans. Húmoristi úr sjómannastétt
sagði við Sandkom að ljóst væri
af átökum undanfarinna ára að
þama færi dýrasti KR-ingur ís-
landssögunnar...
Umsjón Reynir Traustason
Fréttir
Guðrún Þóra Hjaltadóttir næringarráðgjafi:
Þriöji hver of feitur
Að mati Guðrúnar Þóru Hjaltadótt-
ur næringarráðgjafa er víða pottur
brotinn í mataræði íslendinga nú sið-
ustu árin. Hún segir að þriðji hver ís-
lendingur sé of feitur í dag og ekkert
útlit sé fyrir að sú tala lækki í bráð.
Ástæðumar em aðallega tvær að
hennar mati; fólk borðar óholla fæðu
og á vitlausum tímum.
„Það er alltof algengt að böm komi
í skólann á morgnana án þess að hafa
borðað en mælingar hafa sýnt að allt
að 40% þeirra fái ekki morgunmat
heima hjá sér. Af þessu má svo ráða
að foreldrar þeirra borði ekki heldur
morgunmat. Afleiðingin er þreytt og
úrillt fólk sem getur ekki lagt sig ffam
við neitt af viti fyrri part dagsins.
Munurinn á krökkunum sem borða
morgunmat og hinum sem ekki gera
það er mjög greinilegur," segir Guð-
rún sem einnig er kennari.
Ofan á þetta bætist að margir
hinna fúllorðnu fá lélegan eða engan
hádegisverð vegna ýmissa annarra
anna í hádeginu. Þetta leiðir til þess,
segir Guðrún, að þegar fólk kemur
loks heim úr vinnunni eða skólanum
hefst samfellt át ýmiss viðbits fram til
kvöldmatar.
„Likaminn er alls ekki gerður fyrir
þessar neysluvenjur. Hann er hann-
Guðrún telur ís-
lendinga boröa
allt of mikið af
skyndifæðu og
segir að neysla
skyndibita verði
að minnka ætli
fólk að lifa heil-
brigðu lífi.
DV-mynd Pjetur
aður með það í huga að maðurinn
borði reglulega á fjögurra tíma fresti.
Svona mikill misbrestur á þvi er mjög
óhollur. Öfúgt við það sem margir
halda þá gengur líkaminn fyrst á
vöðvabirgðir en ekki fitubirgðir ef
hann fær ekki næringu reglulega. Það
gerir hann fyrri part dags þegar fólk
borðar illa í vinnunni eða skólanum.
Seinni part dags, í átveislunni fram
að kvöldmat, gerir fólk ekki annað en
að bæta við fitumagn líkamans," seg-
ir Guðrún.
Óhollustan sem fólk lætur ofan i sig
er Guðrúnu ekki heldur að skapi.
„Það er alveg ótrúlegt hvað fólk getur
borðað mikið af rusli í dag. Þetta sést
á allri gosneyslunni og hraðfæðinu
sem er vinsælast í dag. Sumir eru al-
gerlega hættir að elda sjálfir og kaupa
allt tilbúið en langstærsti hluti þess
matar er hræðilega óhollur." Hún
gengur svo langt að segja að fólk
hugsi betur um bílinn sinn en eigin
líkama. „Ég þekki engan sem myndi
nokkum tímann kaupa annars flokks
eldsneyti á bUinn sinn. Hins vegar
setur ótrúlega stór hluti fólks mat
ofan í sig sem ekki er hægt annað en
telja annars og jafiivel þriðja flokks
eldsneyti." -KJA
HEILSUMOLAR
/
/
/
Allar lifandi verur sem eru í
góðu formi borða það sem þær
þurfa á meðan þær feitari
borða það sem þær langar til.
Þú mátt ekki gleyma því
að það eru vöðvar þínir
sem brenna megninu af
þeim hitaeiningum sem
þú lætur ofan í þig.
Spyrðu ekki hversu
þung/þungur þú átt að
vera. Hættu að leita að ein-
hverri draumatölu. Stefndu að
því að verða heilbrigðari, að
því að koma þér í gott form.
Úr bókinni Betri línur
Brits-verðlaunin:
Björk tilnefnd
DV, Akranesi:
Hin árlegu Brits-verðlaun - þau
þekktustu á Bretlandi - verða afhent í
næsta mánuði, febrúar.
Björk Guðmundsdóttir er meðal
þeirra fimm kvenna sem tilnefndar
hafa verið í flokki bestu alþjóðlegu tón-
listarkvennanna. Ásamt Björk eru þær
Erykah Badu, Merith Brooks, Celine
Dion og Janet Jackson tilnefhdar.
Breskir fjölmiðlar veðja á Janet
Jackson.
Eins og nafiiið gefúr til kynna eru
það að mestu leyti breskir tónlistar-
menn sem eru tilnefndir í flokkana
sem besti breski söngvarinn, söngkon-
an, hljómsveitin, platan, nýliðinn,
myndbandið og dansinn.
Þá eru einnig tilnefningar fyrir besta
alþjóðlega Mstamanninn í hópi kvenna
og karla og hijómsveitina. -DVÓ
Otsein
Tökö Heimilistæki
Ein öflugasta heimilisþvottavélin
sem völ er á í dag.
kr. 51.900
Vinduhraði
stillantegur stiglaust
allt að 1200 sn.
Stiglaus hitastilling.
15 þvottakerfi.
Forþvottur.
Tekur 5 kg af þvotti.
2 þvottahraðar.
Vatnsinntaksöryggi
Sparnaðarrofi
Barnalæsing á loki
Regnúðakerfi.
Hleðslujafnari.
2 legur og 2 öxlar =
lengri ending.
1200 sn.
Aðeins
40 cm
breið,
tilvalin þar
sem pláss
- trySSi"
Við Fellsmúla
Sími 588 7332
OPIÐ:
Mánud. -föstud. kl. 9-18, laugard. kl. 10-14
-mrmrnmiönmm
---USTAKOKKAR------Tfli
• dAsamleour MATURI
OG
H^e/HtS
oelhomiit!
í hádeginu virka daga;
HLAÐBORÐ
SÆLKERAHS
Frjálst vah
Súpa, salatbar
og heitur matur,
margar tegundir.
kr.790.-
Tilboðsréttir:
7 STÓR- LUÐUSTEIK með saffransósu AÐEINSKR. 1.390.- Grillaðar- KJÚKLINGA- BRINGUR
Glóðaðar LAMBALUNDIR með eldsteiktum kjörsveppum AÐEINSKR. 1.390.' með graenmetisspjóti og rauðlauks- marmelaði. AÐEJNSKR.1.395.-
SJÁVARRÉTTA- PASTA með hvítlauksbrauði. AÐEINSKR.1.280.-
T-BONE STEIK með kryddsmjöri og gljáðu grænmeti. AÐEINSKR. 1.690-
Tilboö öll kvöld
os um helgar.
Bamamatseðill
fyrir smáfólkiö!
jffetf öllunv/íciuaun'jjómgtetu/ réttunv
^fíjUfir sií/hi, óraudóary sulotbur- oy isbur.
POnURINN^ ‘í^ernU iihhiu1
OG otf tíóiSu!
PflNI
BRfiUTflRHOLTI 22
SÍMI551-1690