Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1998, Qupperneq 11
FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 1998
11
DV
Ólafsfjörður:
Mikil fólks-
fækkun
DV, Ólaisfiði:
Ólafsflrðingum fækkaði um-
talsvert á síðasta ári eða um 70
samkvæmt bráðabirgðatölum frá
Hagstofu íslands 1. desember sl.
Þá voru þeir 1.098 en voru
1.168 á sama tima árið áður.
Reyndar segir þessi tala ekki allt
því inni i henni eru ekki þeir
sem fluttu í bæinn í desember.
Þar á meðal eru tvær stórar fjöl-
skyldur.
Ein ástæðan fyrir þessari
fækkun er sú að svokallaðir
skúffumenn, það eru sjómenn
sem vinna hér en eiga í raun
heima annars staöar, hafa fært
lögheimili sín. Einnig námsfólk
sem vegna námsstyrks hefur
flutt lögheimili sitt.
Sveiflur á íbúatölunni eru al-
gengar en þetta er ein sú stærsta
í mörg ár.
-HJ
Fréttir
Samstarf A-flokkanna í Hafnarfirði:
Breytir engu um
hlutasamstarfið
- segir Jóhann G. Bergþórsson
„Þessar samþykktir A- flokkanna
breyta engu hvað varðar afstöðu
mína til núverandi meirihlutasam-
starfs í Hafnarfirði," segir Jóhann
G. Bergþórsson, bæjarfulltrúi klofn-
ingsbrots Sjálfstæðisflokksins í
Hafharfirði. Jóhann sagði að þessar
samþykktir hefðu legið lengi í loft-
inu en hefðu ekki áhrif á sig. Hann
sagðist hins vegar ekki enn hafa
fengið svör þau frá Ingvari Viktors-
syni sem hann hefði beðið um. Jó-
hann lét bóka á átakafundi um fjár-
Jóhann Bergþórsson.
mál bæjarins nýverið að hamn teldi
forsendur frekara samstarfs við Al-
þýðuflokkinn brostnar, nema odd-
viti Alþýðuflokksins gæti sannfært
hann um að bæjarfulltrúar Alþýðu-
flokksins myndu halda sig við gerð-
an samstarfssamning og ekki
hlaupa út undan sér. Jóhann sagði
að Ingvar hefði verið veikur nýver-
ið og það væri skýringin á því að
svar hefði ekki borist. Það hlyti þó
að koma fljótlega.
-phh
„Bjartara“ fram undan hjá Siglfirðingum:
Ráðist á mengunina
DV, Akureyri:
Siglfirðingar sjá nú fram á
„bjartari" daga en þeir hafa árum
saman kvartað undan mjög mikilli
loft- og lyktarmengun frá fiski-
mjölsverksmiðju SR-mjöls í bæn-
um. Umfangsmiklar framkvæmdir
til að sporna gegn þessari mengun
eru að hefjast og er stefnt að því að
þeim ljúki í haust.
„Við reiknum með að þessar
framkvæmdir muni kosta á bilinu
600-650 milljónir króna,“ segir
Þórður Jónsson, framkvæmda-
stjóri rekstrarsviðs SR-mjöls.
Þórður segir að byrjað sé að smiða
þau tæki sem setja þarf upp í verk-
smiðjunni og þá sé búið að skrifa
undir samninga um þurrkara og
önnur tæki sem keypt verða frá
Noregi.
„Við endurnýjum þurrkarana í
verksmiðjunni og setjum upp svip-
aðan búnað og er i verksmiðjum
okkar á Seyðisfirði og í Helguvík.
Við hyggjumst einnig endurnýja
gufukatlana og flytja þá inn á
verksmiðjusvæðið og minnka um
leið sótmengim sem hefur verið
frá kötlunum þar sem þeir hafa
verið.
Breytingin á þurrkurunum
gengur út á það að minnka loft- og
lyktarmengun frá verksmiðjunni.
Það verður reyndar aldrei þannig
Guörún Jack, fögreglukona úr Kópavogi, sést hér vígaleg á.lögreglumótorhjóli. Guörún er eina lögreglukonan á höf-
uðborgarsvæöinu sem ekur lögreglumótorhjóli. Guörún er dóttir séra Roberts Jacks heitins. DV-mynd S
að menn verði ekki varir við fiski-
mjölsverksmiðjur þar sem þær
eru, það er ekki hægt að koma upp
þannig verksmiðju að ekki fylgi
þeim einhver lykt eins og annarri
fiskvinnslu. Það sem við höfum
gert á Seyðisfirði og í Helguvík
hefur hins vegar verið talið viðun-
andi i mengunarvörnum og við
vonum að það takist eins vel til á
Siglufirði," segir Þórður.
-gk
Eskiijörður:
Fjórtán
pólskar
DV; Eskifirði:
Hjá Hraðfrystihúsi Eskiflarð-
ar hf. vinna 70 manns undir
stjórn yfirverkstjórans, Bene-
dikts Jóhannssonar. Þar af eru
18 Pólverjar, fjórtán konur og
fjórir karlar.
Pólverjamir búa i verbúð fyr-
irtækisins og matreiða sjálfir
ofan í sig. Eru þeir ánægðir á
Eskifirði. Þeim finnst þó hafa
verið fremur lítið að gera í vet-
ur. Pólverjar komu fyrst til
starfa á Eskifirði haustið 1996.
Hafa þeir verið hér yfir vetrar-
tímann en farið heim á vorin.
Um helmingurinn kom svo aft-
ur í haust ásamt nokkrum Pól-
verjum sem ekki hafa verið hér
áður. Þeir eru einkar ánægðir
með sín fiskvinnslulaun enda ku
kaupmáttur þeirra launa, sem
þeir vinna sér inn hér á landi,
vera mikill þegar heim til Pól-
lands er komið. -Reglna
Skóla- og menntamál:
Ny namskra i smiöum
Stefnt er að því að ný aðalnámskrá
fyrir gnmnskóla taki gildi næsta
haust. Vinna við gerð hennar hefur
staðið undanfarið eitt og hálft ár. Til
samanburðar má nefna að gerð nú-
gildandi námskrár, sem gekk í gildi
haustið 1989, tók um áratug. Starfið
hefur það sem meginmarkmið að
móta nýja heildstæða skólastefnu sem
tekur bæði til grunn- og framhalds-
skólastiga. Þessi nýja stefna er orðin
mótuð og verður, að sögn Jónmundar
Guðmarssonar, deildarstjóra í
menntamálaráðuneytinu, senn kynnt
almenningi.
Jónmundur Guðmarsson er verk-
efnisstjóri við gerð námskrárinnar.
Hann segir að íslenska menntakerfið
sem slíkt sé mjög gott en markmiðið
sé að gera það skilvirkara og betra.
„Nemendur og foreldrar þeirra eiga
kröfu á menntayfirvöld að nemendur
fái menntun við hæfi. Það er réttur
þeirra og við lítum svo á að til að sá
réttur nái fram að ganga verði skóla-
kerfið að bregðast við,“ segir Jón-
mundur i samtali við DV.
Hann segir þetta markmið hafa ver-
ið skýrt frá upphafi en niðurstöður
TIMSS-rannsóknarinnar um kunn-
áttu skólanema í raungreinum í sam-
anburði við erlenda skólanema hafi
styrkt trú manna á að rétt stefna hefði
verið valin og að nauðsynlegt væri að
fara í gegnum menntakerfið á bæði
grunn- og framhaldsskólastigi og
skipuleggja það þannig að það stand-
ist samjöfnuð við bestu menntakerfi
annarra þjóða.
Jónmundur segir að talið hafi verið
nauðsynlegt að vinna hratt, án þess
að kasta til höndum, ekki síst vegna
þess að námskrá eigi að endurspegla
þær áherslur sem samfélagið vill
leggja í menntamálum og hvað það
vill að nemendur tileinki sér til að ná
tökum á því umhverfi sem þeir lifa í.
Hann telur að viðhorf til menntun-
ar og menntamála hafi breyst veru-
lega síðustu árin, ekki síst í kjölfar
niðurstaðna TIMSS-rannsóknaverk-
efnisins. Fólk hafi almennt áttað sig á
hve gríðarlega miklu máli skiptir að
búa við menntakerfi í fremstu röð
sem gerir nemendur hæfa til að lifa og
starfa bæði innanlands og utan. -SÁ
Fyrir
falleg
heimili!
1 HÚSGAGNAHÖLUN
Bíldshöfði 20-112 Rvík - S:510 8000