Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1998, Side 13
13
h
[
r
i
i
i
i
>
i
[
i
i
i
i
»
i
>
i
■
\
>
<
I
>
r
>
>
>
i
>
>
>
FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 1998
Fréttir
Borgarráð:
Milljón í
Reykja-
víkurkort
Borgarráð hefur samþykkt að
leggja eina milljón króna í að
hefja undirbúning að útgáfu
Reykjavíkurkorts.
Borgarráð hefur auk þess að
tillögu atvinnu- og ferðamála-
nefndar borgarinnar samþykkt
að styðja útgáfur tveggja tíma-
rita sem ætluð eru erlendum
ferðamönnum um 250 þúsund
kr. hvort. Tímaritin heita
Whatls on in Reykjavík og
Around Reykjavík. Borgarráð
ætlar að gera 800 þúsund kr.
auglýsingasamning við útgef-
anda tímaritanna Iceland Revi-
ew, Atlantica og Ský og loks
styrkja útgerð safnarútu SVR
um 500 þúsund kr. -SÁ
Menning-
arnótt
fest í
sessi
Verkefnisstjóm menning-
arnætur í miðborginni hefur
lagt til við borgarráð að menn-
ingamótt verði áfram haldin í
tengslum við afmæli borgarinn-
ar. í ár verði hún haldin 15.
ágúst. Gert er ráð fyrir 2 milljón-
um króna vegna hennar í ár
undir fjármálalið menningar-
málanefndar.
í skýrslu frá verkefnisstjórn-
inni til borgarráðs segir að þrátt
fyrir úrhellisrigningu sl. sumar
hafi nóttin tekist vel og að svip-
uð skipan verði á undirbúningi
og framkvæmd hennar og verið
hefur. Borgarráð hefur hins veg-
ar samþykkt að yfirstjórnin
verði framvegis í umsjá menn-
ingarmálanefndar en ekki skrif-
stofu borgarstjóra eins og verið
hefur hingað til. -SÁ
Slökkviliö Keflavíkurflugvallar:
Þarftu
vinnufrið?
9ÍMAÞJÓNUSTAN
'&oUa sfmamajr
520 6123
http://www.mmedia.is/sima
kona
Haraldur Stefánsson, slökkvi-
liðsstjóri Keflavíkurflugvallar.
DV-mynd Ægir Már
Menningarborg Evrópu árið 2000:
Hefur kostað um
17,5 milljónir
Pó svo að hundurinn Tanni hafi ekki fengið að taka þátt í stórafmæli hús-
bónda síns, Davíös Oddssonar forsætisráðherra, í Perlunni á laugardaginn
var fór því fjarri að hann gleymdist alveg. Poul Nyrup Rasmussen, forsætis-
ráðherra Dana, fól sendiherra sínum hérlendis að gleöja besta vin Davíðs í
tilefni fimmtugsafmælisins og senda Tanna veglegt kjötbein. Tanni kunni vel
að metá góðgerðirnar og virðist reiðubúinn aö verja gjöf danska forsætis-
ráðherrans með kjafti og klóm. Og nú er bara að vona að ekki sé um póli-
tískt bitbein að ræða... DV-mynd Brynjar Gauti
kaf fi og
orku-
drykk
Stjórn Orators, félags laga-
nema, tók upp á allsérstæðri ný-
breytni á laugardag. Þá þreyttu á
annað hundrað laganemar próf í
almennri lögfræði, sem er eitt
mesta fallfag háskólans. Nemend-
um var þá boðið upp á hressingu
bæði fyrir og eftir prófið til að
létta andrúmsloftið.
Þórir Skarphéðinsson, formað-
ur Orators, segir að þetta sé í
fyrsta sinn sem slíkt er gert. „Þeg-
ar maður er á fyrstá ári í lögfræði
þarf að lesa mikið og álagið er
töluvert. Þá gefst lítill tími fyrir
félagslíf. Þar að auki er það tak-
markað sem hægt er að gera fyrir
svo marga nemendur. Stjórnin fór
því að velta því fyrir sér hvað
hægt væri að gera fyrir krakkana
þar sem þetta er einn stærsti
áfangi námsferilsins."
Þórir segir að ákveðið hafi ver-
ið að bjóða fólki upp á þetta til að
sýna hlýhug og stuðning í verki.
Fyrir prófið var boðið upp á orku-
drykk og kaffi og eftir prófið var
kaffi og með því. „Þetta féll í mjög
góðan jarðveg og við munum gera
allt sem við getum til að framhald
verði á þessu,“ segir Þórir. -HI
Engin
DV, Suöurnesjum:
„Ég hef auglýst eftir brunavörð-
um og það kom ekki ein einasta um-
sókn frá konum. Ég er hissa á því
vegna þess að það hefur orðið sú
breyting víða að konur taki nú þátt
í svo hefðbundnum karlastörfum
sem slökkvilið hefur verið. Það er
enginn vafi á því að þær geta sinnt
þessum störfum eins og karlar,"
sagði Haraldur Stefánsson, slökkvi-
liðsstjóri á Keflavikurflugvelli, við
DV.
Það er ekki langt síðan Haraldur
auglýsti eftir 12 brunavörðum en
158 manns starfa á vegum slökkvi-
liðs hans. 95 brunaverðir og 63 í
flugþjónustudeild. Aðeins ein kona
starfar þar, Lína H. Kjartansdóttir,
sótti um
staðið hafl verið að því að ráða nýj-
an stjórnanda verkefnisins. í svar-
inu segir að framkvæmdastjórinn
sem fyrst var ráðinn hafa verið ráð-
inn með 6 mánaða reynslutíma. Eft-
ir hann hafi verið ákveðið að endur-
nýja ekki samninginn við hann.
Þess i stað hafi stjórn verkefnisins
einróma ákveðið að leita til Þórunn-
ar Sigurðardóttur að taka stöðuna
að sér í stað þess að auglýsa hana að
nýju. Þórunn hafi verið ráðin með
fjögurra mánaða reynslutíma til 15.
mars. -SÁ
sem er hefur verið á annan ára-
tug í slökkviliðinu. Hún er í eld-
varnaeftirlitsstörfum, fræðslu-
málum og fyrirbyggjandi að-
gerðum. Haraldur segir að hún
falli vel inn í hópinn. Stendur
hún sig ágætlega í starfi.
„Ég hef séð kvenfólk i
slökkviliðum erlendis og móðg-
ast ef þær vilja ekki starfa hér.
Þær eru í lögreglu en ekki í öðr-
um slökkviliðum landsins. Hér
eru ekki bara hraustir menn
með sterkt bak til að draga
slöngu að eldi. Það er minnsti
hlutinn af starfl okkar. Hér
gengur allt út á fyrirbyggjandi
aðgerðir og eftirlit og við erum
öll í því,“ sagði Haraldur.
Á síðasta ári notaði stjórn
Reykjavíkur - menningarborgar
Evrópu árið 2000, samtals tæpar 17,5
milljónir. Þar af var launakostnað-
ur tæpar 5 milljónir króna auk þess
sem kannanir og verkefni kostuðu
rúmar 3,5 milljónir, stofnkostnaður
skrifstofu var 3,3 milljónir og ráð-
stefnukostnaður var 2,4 milljónir.
Afgangurinn var ýmis annar kostn-
aður, svo sem greiðslur til lista-
manna, ferðakostnaður og risna.
Þetta kemur fram í svari við fyr-
irspumum borgarráðsfulltrúa Sjálf-
stæðisflokksins. í fyrirspuminni
var einnig leitað svara við hvernig
Orator hlúir að prófnemum:
Boðið
upp á
Langar þig...
að lyfta þér upp í skemmtilegasta
og ódýrasta skólanum í bœnum
eitt kvöld í viku eða eitt laugar-
dagssíðdegi í viku?
Ef svo er þá átt þú kannski samleið með
okkur og yfir 700 ánægðum nemend-
um Sálarrannsóknarskólans síðastliðin
fjögur ár. Hringdu og fáðu allar upp-
lýsingar um langskemmtilegasta skól-
ann í bænum í dag. Við svörum í sím-
ann alla daga vikunnar kl. 14 til 19.
-Kynningarfundir verða í skólanum á
laugardaginn kl. 14 og á mánudags-
kvöldið kemur kl. 20.30.
Sálarrannsóknarskólinn
- Mest spennandi skólinn í bænum -
Vegmúla 2
s. 561 9015 & 588 6050
/
jjrval
- gott í hægindastólinn