Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1998, Side 19
FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 1998
27
Fréttir
Ritdeila bæjarfulltrúa og verkalýösformanns á Húsavík:
Mikil óánægja vegna
skrifa um sjómenn
DV, Akureyri:
„Það er ekki ofsagt að meðal sjó-
manna og maka þeirra er mikil óá-
nægja með þessi ummæli Sigur-
jóns,“ segir Aðalsteinn Baldursson,
formaður Verkalýðsfélags Húsavík-
ur, um skrif Sigurjóns Benedikts-
sonar, bæjarfulltrúa Sjálfstæðis-
flokksins, í Pésann, sjónvarpsdag-
skrá sem gefm er út á Húsavík.
Aðalsteinn og Sigurjón hafa átt í
ritdeilum að undanfömu. Aðail-
steinn hefur skrifað í fréttabréf
stéttarfélaganna í S- Þingeyjarsýslu
en Sigurjón í Pésann. Ýmis mál sem
snerta atvinnumál hafa borið á
góma I þeim ritdeilum. Eitt þeirra
er hvort sjómönnum á skipum sem
seld voru til Raufarhafnar frá Húsa-
vík verði gert að flytja lögheimili
sín til Raufarhafnar eins og útgerð-
in mun vilja.
„Ef sjómenn og fjölskyldur þeirra
vilja og ætla að flytja annað er það
þeirra mál. Húsvísk bæjaryfirvöld
munu ekki krefjast eins eða neins í
þessu máli. Samkvæmt athugun
sem gerð var aö ósk sjómanna á
skipum Jökuls hf. þá nægja útsvars-
greiðslur þessara sjómanna og
maka þeirra til bæjarsjóðs ekki til
að greiða grunnskóla- og/eða leik-
skólakostnað barna þeirra á Húsa-
vík, hvað þá annan sameiginlegan
kostnað. En þeir era að sjálfsögðu
æskilegir þegnar okkar samfélags,
þetta sýnir hvað sameining sveitar-
félaga á sama atvinnusvæði er
brýn,“ segir Sigurjón Benediktsson
í grein sinni í Pésanum.
„Skrif þessa ágæta manns og þær
fullyrðingar sem hann setur fram
eru hætt að koma mér á óvart. Þessi
ummæli Sigurjóns hafa hins vegar
valdið mikilli gremju meðal sjó-
manna og maka þeirra, ekki síst
vegna þess að þetta er sett fram af
bæjarfulltrúa sem skrifar undir þau
sem slíkur. Þessir sjómenn sem
þarna eiga í hlut eru með tekju-
hærri mönnum bæjarins og ég hlýt
að spyrja í framhaldi af þessu hverj-
ir það eru sem halda uppi þessu
bæjarfélagi," segir Aðalsteinn Bald-
ursson.
„Það er ekkert skrýtið við að út-
svarsgreiðslur þessara sjómanna
nægi ekki til að greiöa leikskóla-
eða grunnskólakostnað barna
þeirra, þetta eru bammargir ungir
menn í blóma lífsins. Þeir borga
auðvitað sín fasteignagjöld eins og
aðrir. Þetta er til komið vegna þess
að þeir á Raufarhöfn ætla að krefj-
ast þess að þessir sjómenn flytji
þangað eða samið verði um útsvar
þeirra. Það er í lagi að menn flytji
og útsvarið fari á Raufarhöfn en þá
borga þeir fyrir bömin sem sækja
skóla annars staðar eins og lög og
reglur gera ráð fyrir,“ segir Sigur-
jón Benediktsson.
-gk *.
Byggðasafnið að Görðum og kútterinn.
DV-myndir Daníel
Byggöasafniö aö Göröum:
Gert nýtískulegra
DV, Akranesi:
„Ef fjárhagsáætlun safnsins verð-
ur samþykkt, sem við reiknum með,
verður mikið um endurbætur á
Byggðasafninu að Görðum í ár. Við
ætlum að ljúka endurbyggingu á
Sýrupartshúsinu sem er elsta timb-
urhús á Akranesi, byggt 1875. Lögð
verður hitaveita í safnahúsin fyrir
utan aðalsafnahúsið. Meira mál er
að leggja hitaveitu í það og krefst
mikils undirbúnings," segir Jón
Heiðar Allansson, forstöðumaður
þess.
„Þá er verið að vinna að því að
endurskipuleggja sýningar safnsins
og gera nýja skýringartexta. í byrj-
un verða þeir á íslensku og ensku
en síðar á þýsku og jafnvel dönsku.
Einnig er í burðarliðnum að gera
sýningarbækling um safnið á þýsku
sem verður vonandi tilbúinn fyrir
vorið. Ég hef verið að hlera á ferða-
skrifstofunum hvaða áhrif Hval-
fjarðargöngin muni hafa því um
60-70% okkar gesta munu koma frá
þeim. Þær telja að þetta muni ekki
breyta miklu til að byrja með en
Sýrupartshúsiö er elsta uppistandandi timburhús á Akranesi - byggt áriö 1875.
þegar til langs tíma sé litið þá gæti
orðið meiri aukning.
Þetta fer allt eftir því hvemig
starfsemi fer fram hér og hvað við
höfum upp á að bjóða. Við erum
núna að vinna að því að gera safnið
nýtískulegra. Mikið hefur breyst
hér ffá því að safnið opnaði 1974 og
við erum núna smátt og smátt að
breyta ýmsu, með nýjum skápum og
nýjum uppsetningum. Þar verður
ein um íþróttir," sagði Jón Heiðar
við DV. -DVÓ
Flutninga-
bíll fauk
út af
Flutningabíll frá ísafjarðar-
leið fauk í hávaðaroki út af veg-
inum skammt frá Mosfellsbæ í
fyrradag. Bílstjóri bifreiðarinn-
ar slapp ómeiddur en töluverðar
skemmdir urðu á bifreiöinni og
farminum.
-RR
Vandi fýrir Guö
að stjórna
DV, Eskifirði:
Handavinna byrjaði aftur hjá
okkur eldri borgurum í Hulduhlíð
13. janúar og er mikil ánægja með
það meðal okkar enda þótt það sé
viku seinna en handavinnukennsl-
an í grunnskólanum. Það ríkir ætíð
gleði í handavinnutímunum hjá
Katrínu Guðmundsdóttur, sem þyk-
ir fær í sínu fagi, ásamt Lindu, að-
stoðarkennara sínum.
Eldri borgarar þráðu mjög að fá
snjó fyrir jólin en enginn kom hann
þá. Hér á Eskifírði var bærinn mik-
ið skreyttur, stór jólatré atvinnu-
rekenda uppljómuð.
Nú er kominn snjór, en þá bregð-
ur svo við að það er vanþakkað að
snjórinn er kominn. Ég bara segi,
það er vandi fyrir Guð almáttugan
að stjóma svo öllum líki. Regína
Vinningshafar í Spice
Girls-leiknum
1.-5. verðlaun: Spice Girls-geisladiskur og
tveir miðar á myndina SPICEWORLD
Þorgeir Jónsson nr. 12511
Birgitta Ó. Kristínardóttir nr. 261288
Margrét S. Árnadóttir nr. 12458
Rannveig Haraldsdóttir nr. 3421
Oddný S. Gunnarsdóttir nr. 9265
6.-30. verðlaun: tveir miðar á
bíómyndina SPICEWORLD
Hrafnhildur Guðmundsdóttir nr. 10619
Ásdís Geirsdóttir nr. 2569
Hildur Sturludóttir nr. 9390
Eiríkur Ö. Þorsteinsson nr. 10157
Hrafnhildur E. Hermóðsdóttir nr. 11568
Heiður Erla nr. 3594
Saga A. Sigurðardóttir nr. 4883
Karen Sævarsdóttir nr. 10790
Ingileif Friðriksdóttir nr. 180593
Ásrún B. Hauksdóttir nr. 10646
Ingey A. Sigurðardóttir nr. 9317
Guðrún S. Sigurjónsdóttir nr. 6371
Ágústa Sverrisdóttir nr. 8667
Tinna Freysdóttir nr. 10668
Sigrún Magnúsdóttir nr. 11721
Hjörtur Sigurðsson nr. 6344
Sunna R. Garðarsdóttir nr. 11669
Lilja K. Gunnarsdóttir nr. 1676
Katrín Ósk nr. 8626
Unnur M. Ingibergsdóttir nr. 9579
Fanney Ó. Pálsdottir nr. 6626
Móeiður S. Skúladóttir nr. 10884
Elísa An Hallsdóttir nr. 12020
Inga J. Ólafsdóttir nr. 11305
Kristín E. Jónsdóttir nr. 5463
Krakkakiúbbur DV og Skífan óska vinn-
ingshöfum til hamingju með vinninginn.
Þökkum öllum kærlega fyrir sem
tóku þátt í leiknum.
Vinningarnir verða sendir vinningshöfum
í pósti næstu daga.