Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1998, Qupperneq 29
r>17~ FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 1998
37
Jóhann Sigurðarson og Sigrún
Edda Björnsdóttir í hlutverkum
sínum.
Grandavegur 7
í kvöld verður sýning á Granda-
vegi 7 eftir Vigdísi Grímsdóttur á
stóra sviði Þjóðleikhússins. Leik-
gerð er eftir Kjartan Ragnarsson
og Sigríði Margréti Guðmunds-
dóttur. Skáldsagan hlaut íslensku
bókmenntaverðlaunin 1994.
Grandavegur 7 er saga fjöl-
Leikhús
skyldu, stéttar og húss, saga sem
nær yfir landamæri lifs og dauða.
Fríða, aðalpersóna verksins, er
skyggn. Daginn sem keyrt er yfir
hundinn hennar þyrpast ástvinir
og ættingjar á vettvang - lífs sem
liðnir. Hjá þeim leitar hún styrks
í erfiðleikum sínum og sorg. Lífið
heldur áfram og ástin knýr dyra í
fyrsta sinn.
í helstu hlutverkum eru Mar-
grét Vilhjálmsdóttir, Bergur Þór
Ingólfsson, Sigrún Edda Björns-
dóttir, Jóhann Sigurðarson og
Ólafía Hrönn Jónsdóttir. Leik-
stjóri er Kjartan Ragnarsson. Þess
má geta að út er komin geislaplata
með tónlistinni úr leikritinu sem
er eftir Pétur Grétarsson.
Grikklandsferðir
tveggja skálda
Grikklandsfélagið hefur fengið þá
Harald Ólafsson mannfræðing og
Guðna Elíasson
bókmennta-
fræðing til að
fjalla um Grikk-
landsferðir
tveggja stór-
skálda og tign-
armanna á
fræðslufundi í
Kornhlöðunni
kl. 20.30 í kvöld.
Skáldin eru Francois-Rané de
Chateaubriand og George Gordon
Byron.
Námskeið í
hitamælingum
í dag verður að Grand Hótel í
Reykjavík haldið námskeið í hita-
mælingum kl. 13-17.
Félag kennara á
eftirlaunum
Leshópur (bókmenntaklúbbur)
verður í dag kl. 14-16 og sönghópur
(kór) kl. 16-18 í Kennarahúsinu við
Laufásveg.
Samkomur
LAUF
LAUF, samtök áhugafólks um
flogaveiki, verður með almennan fé-
lagsfund í dag kl. 20.30 að Laugavegi
26, fjóröu hæð, gengið inn Grettis-
götumegin. Bryndís Benediktsdóttir
læknir mun fjalla um flogaveiki
sem foreldri.
... orðin hoppa og hía út
um borg og bí...
Valgerður Benediktsdóttir bók-
menntafræðingur mun ferðast um
ijóðheima Halldórs Laxness á fyrir-
lestri í Norræna húsinu í dag kl.
17.15. Mun Valgerður í spjalii sínu
fialla um kvæði sem Laxness hafði
dálæti á og þau sem hann orti sjálfur.
Sinfóníuhljómsveit íslands:
Píanókonsertar Liszts
í kvöld verða Sinfóníutón-
leikar í Háskólabíói. Á þessum
tónleikum er efnt til veislu fyr-
ir aðdáendur píanótónlistar og
verða leiknir báðir pianó-
konsertarnir sem Franz Liszt
samdi. Það er landi Liszts,
Jenö Jando, sem er einleikari í
konsertunum. Auk þess flytur
Sinfóníuhljómsveitin Dansa frá
Galanta eftir Zoltan Kodaly og
Margslungni mandarínann eft-
ir Bela Bartók.
Hljómsveitarstjóri er En
Shao sem er í annað sinn að
stjóma hijómsveitinni. Shao er
Tónleikar
eftirsóttur hljómsveitarstjóri
sem hefur stjórnað mörgum
þekktustu hljómsveitum Evr-
ópu. Hann starfar einnig í
Bandaríkjunum, Kanada og
Ástraliu.
Jenö Jando er önnum kafinn kon-
sertpíanisti sem hefur víða komið
fram. Einnig er hann þekktur fyrir
margar hljóðritanir sem gerðar hafa
Sinfóníuhljómsveitin ásamt Jenö Jando á æfingu fyrir tónleikana í kvöld.
verið með leik hans. Jando hefur
nýlega leikið verk eftir Beethoven,
Mozart og Schubert inn á geisla-
plötu fyrir Naxos-útgáfuna og
einnig píanókonserta eftir
Rachmaninov, Schumann, Grieg og
Brahms og hafa þessar hljóðritanir
hlotið lof gagnrýnenda.
Veðrið kl. 6 í morgun:
Veðrið í dag
Víða léttskýjað
Skammt suður af Jan Mayen er
981 mb lægð sem hreyfist norðaust-
ur. 1011 mb smálægð á Grænlands-
hafi grynnist og hreyfist vestur.
Yfir Grænlandi er vaxandi hæðar-
hryggur á hreyfingu austur.
Hæg vestlæg átt verður i dag og
víða léttskýjað. Frost 5 til 10 stig um
allt land í fyrstu en síðan fer að
hlýna, einkum vestan til. í nótt
verður suðvestangola eða kaldi
norðan til en hæg suðlæg eða
breytileg átt um landið sunnanvert.
Skýjað að mestu og hiti 1 til 4 stig
allra vestast en léttskýjað og frost 1
til 6 stig annars staðar.
Á höfuðborgarsvæðinu verður
hæg austlæg átt, skýjað með köflum
og frost 1 til 5 stig í dag, sunnan-
gola, skýjað og hiti 1 til 4 stig í
kvöld og nótt.
Sólarlag í Reykjavík: 16.42
Sólarupprás á morgun: 10.34
Síðdegisflóð í Reykjavík: 13.27
Árdegisflóð á morgun: 02.20
Akureyri hálfskýjaö -7
Akurnes heióskírt -5
Bergsstaöir heiöskírt -10
Bolungarvík skýjaö -6
Egilsstaöir hálfskýjaö -7
Keflavíkurflugv. skýjaö -3
Kirkjubkl. heiöskírt -6
Raufarhöfn snjóél -7
Reykjavík skýjaö -5
Stórhöföi skýjaö -3
Helsinki þokumóöa -.2
Kaupmannah. skýjað -1
Osló skýjaö -7
Stokkhólmur -.2
Þórshöfn skýjaó 5
Faro/Algarve heiðskírt 7
Amsterdam léttskýjaö -3
Barcelona heiöskírt 3
Chicago snjókoma -1
Dublin skýjaö 10
Frankfurt skýjaö -1
Glasgow skýjað 10
Halifax snjóél -4
Hamborg léttskýjaö -2
Jan Mayen alskýjaö -1
London skýjaö 4
Lúxemborg skýjaó -2
Malaga léttskýjaó 8
Mallorca léttskýjaó -1
Montreal heióskírt -13
París heiöskírt -3
New York alskýjaó 0
Orlando alskýjaö 17
Nuuk skafrenningur -3
Róm heiöskírt 7
Vín snjókoma síö. kls. 1
Washington skýjaó -2
Winnipeg alskýjaö -10
Snjóþekja og
hálka á vegum
Víða á vegum er snjóþekja og hálkublettir. Á
Vesturlandi er snjóþekja á Holtavörðuheiði. Á Vest-
fiörðum er snjókoma og skafrenningur, einkum á
heiðum. Á Norðurlandi er Lágheiði ófær og víða
Færð á vegum
hálkublettir. Á Austurlandi eru Hellisheiði eystri
og Mjóafiarðarheiði ófærar. Ófært er einnig um
Sandvikurheiði. Þá er veruleg hálka á Fagradal, en
góð færð með ströndinni suður um.
Jasmin Björg
Myndarlega stúlkan á
myndinni sem fengið hef-
ur nafnið Jasmin Björg
fæddist á fæðingardeild
Barn dagsins
Landspítalans 15. janúar
kl. 20.08. Hún var við fæð-
ingu 3940 grömm að
þyngd og mældist 52
sentímetra löng. Foreldr-
ar Jasmin eru Auður Þrá-
insdóttir og Marco Dell-
ernia.
Flúið undan skordýri af stærri gerð-
inni.
Stjörnustríðshermenn
Starship Troopers er nýjasta
kvikmynd Pauls Verhovens og er
hún sýnd í Sam-bíóunum. Myndin
gerist í framtíðinni. Jöröin á í stríði
viö risastór skordýr sem komið hafa
einhvers staðar utan úr geimnum
Eftir að hafa fylgst með stríðinu
nokkra stund er fariö aftur í tím-
ann, ekki þó mjög langt. Þar hittum
við fyrir Johnny Rico sem er að
hefia herþjónustu. Hann hefur
skráð sig í herinn nánast eingöngu
til að fylgja eftir stúlkunni sem
hann elskar, Carmen Ibanez, sem á
sér þann draum heitastan að verða
stýrimaður í geimskipi. Johnny ger-
ir sér grein fyrir að hann
hefur gerst hermaður ,<()
Kvikmyndir
röngum forsendum.
Hann er um það bil að segja sig úr
hernum þegar risaskordýrin gera
árás á jörðina og Buenos Aires,
heimaborg Johnnys, hverfur af yfir-
borði jarðar. Máttvana af sorg og
reiði yfir missi allra ættingja sinna
ákveður hann að verða um kyrrt í
hemum.
Nýjar myndir:
Háskólabíó: Stikkfrí
Háskólabíó: Taxi
Laugarásbíó: Mortal Kombat: The
Annihilation
Kringlubíó: George of the Jungle
Saga-bíó: Tltanic
Bíóhöllin: Starship Troopers
Bíóborgin: Devil's Advocate
Regnboginn: A Life Less Ordinary
Stjörnubíó: Wild America
Krossgátan
1 T t Í3
S =7 ir
)o mm* 1 ' 1
JT~ fr
1 7V 1
1$ lo
ll J
Lárétt: heift, 8 þjálfa, 9 slæma, 10
gabb, 11 stefna, 13 glaður, 15 snemma,
16 ýfði, 18 hamagangur, 20 lærði, 21
embættið.
Lóðrétt: 1 aukvisa, 2 hitunartæki, 3
tarfur, 4 venja, 5 hestana, 6 rödd, 7
óttast, 12 skokk, 14 góð, 15 nýlega, 17
fæða, 19 flökt.
Lausn á síðustu krossgátu:
Lárétt: 1 kyndug, 7 áli, 8 ræna, 10
tæta, 12 sýr, 13 ís, 14 æptir, 16 nið, 17
ærðs, 19 anaði, 20 na, 21 ögra, 22 mal.
Lóðrétt: 1 kátína, 2 yl, 3 nit, 4 drap,
5 gný, 6 marr, 9 æstri, 11 æsing, 14
æðar, 15 iðna, 17 æða, 18 sal.
Gengið
Almennt gengi Ll 22. 01. 1998 kl. 9.15
Eininq Kaup Sala Tollqenqi
Dollar 72,680 73,060 71,910
Pund 119,160 119,760 120,500
Kan. dollar 50,250 50,570 50,070
Dönsk kr. 10,5610 10,6170 10,6320
Norsk kr 9,7510 9,8050 9,8670
Sænsk kr. 9,1220 9,1720 9,2350
Fi. mark 13,2880 13,3660 13,3990
Fra. franki 12,0120 12,0800 12,1070
Belg. franki 1,9493 1,9610 1,9639
Sviss. franki 49,4600 49,7400 50,0900
Holl. gyllini 35,6900 35,9100 35,9600
Þýskt mark 40,2500 40,4500 40,5000
ít. lira 0,040840 0,04110 0,041260
Aust. sch. 5,7160 5,7520 5,7590
Port. escudo 0,3940 0,3964 0,3964
Spá. peseti 0,4745 0,4775 0,4786
Jap. yen 0,572000 0,57540 0,553300
Irskt pund 100,980 101,600 104,150
SDR 97,250000 97,83000 97,480000
ECU 79,3200 79,8000 80,1900
Símsvari vegna gengisskráningar 5623270