Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1998, Síða 32
Fjöldi
vinninsa
Vinninsar
VinninsAupphœð
Helldarvinnlng&upphœð
181.910.328
A I&landi
4.668.102
> O
□
cnO
so
O
2 in
<
i/i o
h-
LfJ
2 O
FRÉTTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
FRJÁLST, ÓHÁÐ DAGBLAÐ
FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 1998
Þær Henríetta og Karen voru hressar í snjónum í gær þegar Ijósmyndari DV
■'•■'rakst á þær á Skothúsvegi. Þær léku sér á snjóþotu og voru búnar að fara
víða á henni.
DV-mynd GVA
¥
Bingókvöld í Verslunarskóla íslands:
Nektardans
olli uppnámi
- börn á „skemmtuninni44 sem gekk út yfir allt velsæmi
„Þetta gekk út yfir öll velsæmis-
mörk. Kvöldiö var auglýst sem
venjulegt bingókvöld og því voru
margir nemendur með yngri
systkini sín með sér eins og oft á
svona kvöldum. Það var fristæl-
keppni í hléinu en síðan komu tvær
nektardansmeyjar fram á sviðið.
Önnur þeirra hafði í frammi mjög
dónalega tilburði á sviðinu og gekk
eins langt og hægt er að ganga.
Þetta var allrosalegt og gekk allt of
langt,“ segir nemandi í Verslunar-
skóla íslands sem var á bingókvöldi
í skólanum í fyrrakvöld.
Engir kennarar voru á staðnum,
aðeins nemendur skólans og
nokkur yngri systkini þeirra.
nemendafélag og íþróttaráð skólans
stóð fyrir hátíðinni og báru ábyrgð
á kvöldinu. íþróttavika er nú í
Verslunarskólanum og var
bingókvöldið auglýst með hefð-
bimdnu sniði. Atriðið með nektar-
dansmeyjunum var óvænt uppá-
koma kvöldsins. Atriði dansmeyj-
anna, sem eru báðar erlendar, olli
nokkru uppnámi.
„Mörgum krökkunum fannst
þetta atriði nektardansmeyjanna
fyndið i fyrstu en þetta gekk úr
hófi. Margir voru frekar hneykslað-
ir, sérstaklega af þvi að börn voru
þarna líka,“ sagði annar nemandi
skólans í samtali við DV í gær.
Þorvarður Elíasson, skólastjóri
Verslunarskólans hafði ekki heyrt
af þessu þegar DV ræddi við hann í
gærdag. „Ég mun að sjálfsögðu
kanna það rækilega og ræða við þá
sem báru ábyrgð á skemmtuninni.
Ef nemendur hafa ekki áttað sig á
því að það er varhugavert að fá
svona dansmeyjar á skemmtun í
skólanum þá mun ég vekja athygli
þeirra á því. Það er aldrei að vita
upp á hverju svona stúlkur taka.
Varla hafa þeir sem fengu þær átt-
að sig á því að þær myndu sýna
dónaleg tilþrif," sagði Þorvarður.
-RR
Ógnaði konu
með búrhnífi
Hettuklæddur maður réðst inn í
sölutum við Gnoðarvog á sjöunda
tímanum í gærkvöld.
Maðurinn ógnaði konu, sem er
annar eigandi sölutumsins, með
búrhnifi og sagði henni að um vopn-
að rán væri að ræða. Hann skipaði
henni að leggjast á gólfíð. Konan
náði hins vegar að ýta á neyðar-
hnapp og setti öryggiskerflð í gang.
Maðurinn lagði þá á flótta og skildi
hníflnn eftir. Hann náði ekki að
taka peninga úr afgreiðslukassa.
Maðurinn er ófundinn. -RR
Frá vettvangi í gær. Árásarmanns-
ins er enn leitað. DV-mynd S
Stóri vinningurinn:
Gjörbreytir
aðstæðum
„Hingað hringdi maður, nánast
um leið og drætti var lokið. Hann
var í mikilli geðshræringu og
sagðist hafa verið með sex tölur
réttar. Hann bætti því við að þetta
myndi gerbreyta aðstæðum fjöl-
skyldu sinnar, sem væri að ná sér
á réttan kjöl vegna slyss," sagði
Bolli R. Valgarðsson, markaðs-
stjóri Vikingalottós, við DV í
morgun. Akureyringur fékk rúm-
ar 44 milljónir i Víkingalottói í
gær. Hann keypti vinningsmiðann
í Nætursölunni á Akureyri. -JSS
Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins var formlega opnaður í morgun. Páll Kr.
Pálsson, framkvæmdastjóri, og Arnar Sigurmundsson, formaður stjórnar,
tóku glaðir á móti gestum og buðu upp á morgunverð. DV-mynd S
BETRA ER BARN
EN LJÓSASTAUR!
Veðrið á morgun:
Víða
bjartviðri
Á morgun verður sunnangola
eða kaldi, skýjað og hiti 1 til 4
stig vestan til en fremur hæg
vestlæg átt, bjartviðri og frost 1
til 5 stig annars staðar.
Veörið í dag er á bls. 37
UilijJ J^JjU
á SftjOJjj Uú]
Bílheimar ehf.
■e- rj ra g|
opei. [hj*r4»J ■■■I
Sœvarhöfba 2a Sími:S2S 9000