Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1998, Blaðsíða 16
16
MIÐVIKUDAGUR 4. FEBRÚAR 1998
MIÐVIKUDAGUR 4. FEBRUAR 1998
17
íþróttir
ffj, EHGUHD
Robbie Fowler,
lelkmaður Liver-
pool, er mjög
hissa á því að
Glenn Hoddle
landsliðsþjálfari
skyldi ekki velja
sig i landsliðs-
hópinn gegn
Chile eftir slétta
viku.
Allir eru sammála um að Fowler er
snjall knattspyrnumaður og mikiil
markahrókur. Gallinn er hins vegar
sá aö honum hafa verið afar mislagð-
ir fætur fyrir framan mark andstæð-
inganna.
Reyndar verður það að teljast furöu-
legt aö Fowler skuli vera hissa á vali
þjáifarans. Og það sem meira er; Roy
Evans, stjóri Liverpool, er líka hissa
á því að Fowler var settur út úr lið-
inu.
Glenn Hoddle hefur látið hafa eftir
sér að eina svar Fowlers viö vali sínu
sé að taka upp þráðinn á ný og skora
mörk.
Neil Shipperley, sóknarleikmaður
Crystal Palace, verður frá æfingum
og keppni næstu tvo mánuðina. Hann
þarf að gangast undir uppskurð
vegna meiðsla í nára.
Þetta er mikió áfall fyrir fallbaráttu-
lið Palace en Shipperley hefur verið
einn helsti markaskorari liðsins i
vetur.
Forráðamenn
Arsenal hafa
áhuga á að skrifa
undir langan
samning við
Frakkann Pat-
rick Vieira, jafn-
vel til 5-7 ára.
Arsene Wenger,
stjóri Arsenal,
hefur sagt að vilji sé til þess innan fé-
lagsins að byggja framtiðarlið félags-
ins i kringum Vieira sem aðeins er 21
árs.
Wenger hefur sagt að forráöamenn
Arsenal vilji sjá Frakkann hjá félag-
inu næstu tiu árin. Þeir vilji fá hann
til að vera hjá félaginu i um áratug
líkt og Lee Dixson, Tony Adams,
Steve Bould, Nigel Winterburn og Ian
Wright.
Svisslendingurinn Christian Gross,
stjóri Tottenham, er kokhraustur
þrátt fyrir magurt gengi Spurs það
sem af er vetri. Reyndar hefur þaö
farið í taugarnar á mörgum hversu
montinn sá svissneski er.
Ef einhver stjóri í enska boltanum
hefur ekki efni á því að vera góður
með sig er það Christian Gross. Hann
sagði í gær aöspurður um fallbarátt-
una framundan: „Fallbarátta? Hvað
er það? Viö höfum aldrei minnst á
fallbaráttu á White Hart Lane.“
Stuðningsmenn Chelsea höfðu
ástæðu til aö fagna í gær er þeir Gi-
anfranco Zola og Roberto Di Matteo
skrifuðu undir samninga við félagið
til ársins 2002.
ítalirnir snjöllu hafa leikið mjög vel
fyrir Chelsea og hafa báðir náð aö að-
laga sig ensku samfélagi. „Báðir
elska þeir London og báðir elska þeir
Chelsea," sagði forráðamaöur Chel-
sea í gær.
Vera kann á döfinni fundur með
framkvæmdastjórum í ensku knatt-
spymunni og dómurum í ensku úr-
valsdeildinni og mun ekki af veita.
Dómarar og framkvæmdastjórar
hafa lent í hverju rifrildinu af öðru á
undanfórnum vikum.
Reyndar eiga þessir aöilar fátt eftir
nema slást. Slíkt er andrúmsloftið
enda hafa dómarar gert hver stóru
mistökin á fætur öörum á liðnum
vikum. Fulltrúi framkvæmdastjór-
anna hefur fariö fram á fund en dóm-
arar hafa ekki svarað.
Hópferð verður farin á leiki í ensku
knattspymunni um páskana á vegum
Samvinnuferða-Landsýnar. Efstur á
blaði er leikur Manchester United og
Liverpool en einnig er möguleiki að
sjá Everton-Leeds eða Bolton-Black-
bum. Gist verður i fjórar nætur í
Liverpool.
Ennfremur geta Samvinnuferðir-
Landsýn útvegað miða á grannaslag
Liverpool og Everton sem fram fer á
Anfield Road 23. febrúar. Þeir sem
hafa áhuga á þessum ferðum geta
haft samband við íþróttadeild SL,
sími 569-1010.
-SK/VS
Leikir í NBA-deildinni í nótt:
Clippers lagði
Utah Jazz
Nlu leikir voru háöir í
NBA-deildinni í nótt og urðu úrslit
í þeim sem hér segir:
Toronto-Phoenix .........105-110
Christe 24, WUliamson 24, Camby 16 -
Mcdyess 24, Chapman 23, Kidd 22.
Charlotte-Boston............93-89
Geiger 24, Wesley 15, Maxwell 15 - Wal-
ker 23, Brown 20, Barros 14.
Houston-Vancouver..........110-97
Barkley 25, Willis 20, Drexler 20 - Rahim
30, Thorpe 14, Lynch 13.
Orlando-Atlanta.............91-90
Outlaw 23, Seikaly 12, Price 12 - Smith
18, Blaylock 15, Laettner 14.
Milwaukee-New York .........82-78
Brandon 20, Allen 17, Robinson 15 - Hou-
ston 21, Johnson 20, Willis 14.
Portland-New Jersey.........98-97
Sabonis 24, Wallace 23, Anderson 18 -
Kittles 24, Van Horn 21, Cassell 16.
Golden State-San Antonio .. 96-105
Marshall 23, Delk 21, Smith 16 - Duncan
34, Robinson 29, Person 14.
LA Clippers-Utah Jazz .... 111-102
Robinson 25, Rogers 22, Wright 17 -
Malone 23, Hornacek 22, Stockton 22.
Sacramento-Indiana.......93-115
Richmond 24, Dehere 16, Williamson 14 -
Smits 18, MuIIin 15, Miller 14.
Outlaw tryggði Orlando sig-
urinn
Það var Bo Outlaw sem tryggði
Orlando sigurinn gegn Atlanta þeg-
ar hann skoraði sigurkörfu leiksins
einni sekúndu fyrir leikslok. Þetta
var aðeins annar sigur Orlando í
síðustu 10 leikjum.
Leikmenn Utah Jazz hafa eflaust
verið með hugann við leikinn gegn
Chicago, sem fram fer í nótt, þegar
þeir töpuðu fyrir Los Angeles Clipp-
ers i nótt. Leikmenn Clippers fóru á
kostum og skoruðu 12 þriggja stiga
körfur og enginn lék betur en James
Robinson sem setti niður 25 stig.
-GH
Sigurður Jónsson við skoskt dagblað:
Stöðvaður af KSÍ
Sigurður Jónsson, landsliðsmaður í knattspymu, sagöi í samtali við
skoska blaðiö Dundee Courier i gær að KSÍ hefði neitað sér um að leika
með Dundee United gegn Motherwell í úrvalsdeildinni næsta laugardag.
Guöjón Þórðarson landsliðsþjálfari hefði hins vegar ekki lagt stein í sína
götu. Sigurður fór til Kýpur í gær til að leika með landsliðinu á
alþjóðlega mótinu sem hefst þar á morgun.
„Ég hefði svo sannarlega viljað spila þennan mikilvæga leik við
Motherwelll. Ég er að komast í mitt gamla form hér í Skotlandi eftir
meiðsli og veikindi til að byrja með. En það er knattspymusambandiö
sem ræður. Þeir töldu að ekki væri hægt að gefa það fordæmi að leyfa
einum leikmanni aö fara i miðju móti og vildu ekki trufla undirbúning
liðsins fyrir Evrópukeppni landsliða,“ sagði Siguröur við blaðið.
„Siggi hefúr spilað vel í tveimur síðustu leikjum og hefði eflaust haldið
sínu striki gegn Motherwell. Það em vonbrigði að missa hann,“ sagði
Tommy McLean, framkvæmdastjóri Dundee United.
Eins og fram kom í DV í gær hafa margir leikmanna íslenska liðsins
óskaö eftir þvi aö komast 1 leiki með sínu félagsliöi um helgina og svo er
að sjá sem þau mál séu ekki komin endanlega á hreint. -VS
Vetrarólympíuleikarnir veröa settir I Nagano f Japan á laugardaginn kemur. Aldrei í sögu vetrarólympíuleikanna hafa fleiri
þjóðir tilkynnt þátttöku og ríkir mikil spenna og tilhlökkun hjá mótshöldurum fyrir leikana, Mikiö hefur snjóað í Nagano á
síöustu dögum og finnst mörgum alveg nóg komið en margir hafa lent í erfiðleikum vegna gífurlegrar ofankomu. Keppendur
streyma þessa dagana til Nagano og reyna fyrir sér í glæsilegum mannvirkjum sem reist hafa verið. Þessi svissneski
bobsleöamaöur sést hér á fullri ferö í brautinni á æfingu í gær. Mynd-Reuter
Magnús Már Ólafsson, betur þekktur sem einn snjallasti sundmaður landsins, sýnir hér listir sínar, lengst til
hægri, Master Park horfir á, fyrir miöju, og lengst til vinstri er Sigrún Anna Övindesland. DV-mynd S
Park þjálfar Ármenninga
Góður gestur heimsótti Tae kwon doo-deild Ár-
menninga á dögunum. Það var Master Park, mjög
þekktur og virtur þjálfari í greininni, og dvaldist hann
hjá Ármenningum í nokkra daga.
Park þessi er fæddur í Kóreu en er með bandarísk-
an ríkisborgararétt. Hann er aðalþjálfari Central Tae
kwon doo-skólans i Baltimore í Bandaríkjunum. Park
er að auki alþjóðlegur dómari og hefur æft og keppt í
Tae kwon doo síðustu þrjátíu árin. Hér var því um
hvalreka á fjörur Ármenninga að ræða og lærðu þeir
mikið af komu hans hingað.
Og Park hefur ekki sagt skilið við Ármenninga.
Næsta íslandsmót yerður haldið í apríl í Laugardals-
höllinni og fyrir mótið mun Park koma aftur til félags-
ins og aðstoða þá og leiðbeina þeim.
Deildin hjá Ármanni er sú yngsta á landinu en aðal-
þjálfari félagsins er Sigrún Anna Övindesland hjúkr-
unarfræðingur.
íþróttin er í miklum vexti hjá Ármenningum og á
síðasta íslandsmóti tryggðu þeir sér titilinn í liða-
keppninni.
Guðjón Þórðarson, landsliðsþjálfari í knattspymu:
„Finnum lendingu"
- íslendingar mæta Slóvenum á morgun
íslenska landsliðið í knattspyrnu
kom til Kýpur í gærkvöldi en þar hefst
á morgun æflngamót og mæta íslend-
ingar liði Slóvena í fyrsta leik. Nokkr-
ir landsliðsmanna áttu í erfiðleikum
með að koma sér til Kýpur en seinkan-
ir voru á flugi á Norðurlöndum og í
Þýskalandi vegna snjókomu. Fyrir vik-
ið skiluðu flmm leikmenn sér ekki á
hótel fyrr en seint í nótt.
„Við ætlum að æfa tvisvar í dag og
þá ætti ég að sjá ásigkomulagið á
mannskapnum sem hlýtur að vera í
mismunandi leikæfíngu. Það er degin-
um ljósara að leikurinn við Slóvena
verður erflður en mér skilst að þeir
stilli upp sínu sterkasta liði. Þeir áttu
reyndar að vera búnir að leggja fram
leikmannalista en hann lá ekki fyrir í
gærkvöldi. Við eigum möguleika á því
að stilla upp sterku vamarliði og lík-
lega verður farin sú leið varðandi leik-
inn gegn Slóvenum Við erum minnug-
ir þess að síðasta leik gegn þeim töpuð-
um við, 7-1, “ sagði Guðjón Þórðarson
f samtali við DV.
Guðjón var inntur eftir því hve
margir leikmenn myndu fara á
föstudag til að leika með liðum sínum
á laugcU'daginn kemur.
„Ég ætla að kanna hug manna eftir
æflngu í dag en það eru vissir erflð-
leikar hjá ýmsum. Við munum þó fyrst
og fremst hafa heildarhag aðila að leið-
arljósi. Ég er viss um að við flnnum
lendingu í málinu sem allir sætta sig
við. Það verða engin læti og menn
leysa málin í friði og ró,“ sagði Guðjón.
-JKS
Stórmót í snóker
Um næstu helgi fer fram hér á landi
stórmót í snóker, Iceland Open.
Mótið er eitt af mörgum sem fram fara
um allan heim hjá alþjóða atvinnu-
mannasambandinu. Tveir til fjórir efstu
menn hvers móts keppa síðan i úrslita-
keppni um sæti í atvinnumannamótum
sem haldin eru í Sheffleld árlega. 20-30
keppendur munu taka þátt í þessari úr-
slitakeppni sem fram fer í Antwerpen
dagana 1.-3. maí nk.
í Evrópu verða haldin fjögur mót og
það er því mikill heiður fyrir íslenska
snókermenn að fá eitt þeirra. Þetta er
mikil viðurkenning fyrir iþróttina hér-
lendis og i raun afrakstur þess frábæra
árangurs sem íslenskir snókerleikarar
hafa náð á undanfómum ámm. íslend-
ingar fá með þessu tvo af þeim tíu full-
trúum sem Evrópa á í Antwerpen.
Iceland Open fer fram á Klöppinni um
næstu helgi og á meðal keppenda verða
allir sterkustu snókerleikarar landsins
enda óvenjumikið í húfi, dágóðir aurar í
verðlaun og þátttaka á sterku móti er-
lendis.
-SK
íslendingar á geysisterkt handboltamót:
- sex efstu þjóðirnar frá Kumamoto mæta
íslenska landsliðið í handknattleik hefur þekkst boð
Egypta um þátttöku í geysisterku móti sem haldið
verður í Kaíró 5.-10. júlí í sumar. Boð barst um þátt-
töku fyrir nokkm en í dag mun HSÍ staðfesta þátttöku
sína í mótinu.
Þjóðverjar mæta í staö Ungverja
Sex efstu þjóðirnar frá heimsmeistaramótinu í
Kumomoto í Japan í fyrravor taka þátt í þessu sterka
móti en að vísu hafa Ungverjar afboðaö þátttöku af
óviöráðanlegum orsökum og munu Þjóðverjar taka
sæti þeirra. Sex efstu þjóðirnar frá Japan voru Rúss-
ar, Svíar, Frakkar, Ungverjar, íslendingar og Egyptar.
Gestgjafamir líta á þetta mót sem góðan undirbún-
ing fyrir heimsmeistaramótið sem haldið verður í maí
1999. íslendingum var boðið á sams konar mót sem
haldið var í Kumomoto fyrir HM.
íslenska landsliðið kemur saman í æfíngabúðir 8.
júní í sumar og verður meira og minna saman fyrir
mótiö í Egyptalandi en haldið verður þangað 3. júlí.
Dregið í forkeppni HM í vor
Mótið verður einnig góö æflng fyrir forkeppnina aö
HM 1999, sem hefst í haust, og verður dregið í riðla
strax eftir Evrópukeppnina á Ítalíu í sumar. Riðla-
keppnin hefst í lok september og lýkur henni í lok
nóvember.
Eftir hana verður ijóst hvaða þjóðir hafa tryggt sér
sæti í úrslitakeppninni í Egyptlandi.
-JKS
Þorbjörn Jensson skoðaði sig um í Noregi:
Mun meira fjármagn
Þorbjörn Jensson, landsliösþjálfari
karla í handknattleik, dvaldi fyrir stuttu
um tveggja vikna skeið í Noregi þar sem
hann fylgdist með Drammen á æflngum
og keppni og fór síðan til Larvik en
kvennalið bæjarins er núverandi norskur
meistari og stefnir allt í það að stúlkum-
ar verji titil sinn í ár.
Þorbjöm sagði að það hefði vakið at-
hygli sína hve Kristján Halldórsson, þjálf-
ari Larvik, væri aö gera góða hluti með
liðið. Þorbjöm sagði það enga launung að
ferðin hefði veitt sér meiri innsýn inn i
það hvað væri að gerast 1 þjálfaramálum
og það hefði verið tilgangur ferðarinnar.
„Árangur norska kvennalandsliðsins á
síðustu árum hefur vakið mikinn áhuga
hjá ungum stúlkum að fara að iðka hand-
knattleik. Ég get nefnt dæmi frá
Drammen en þar ákveða mun fleiri stúlk-
ur en drengir að æfa handbolta og má
rekja þetta eingöngu til árangurs kvenna-
landsliðsins. Hjá norsku 1. deildar liðun-
um er um að ræða hreina atvinnu-
Þorbjörn Jensson landsliösþjálfari.
mennsku og þær æfa stúlkurnar
miklu meira en t.d. stöllur þeirra
hér á landi. Liðin hcifa ennfremur
úr mun meira fjármagni að spila
en hér. Það er líka komin geysi-
lega mikil þekking sem skilar sér
einnig beint í betri árangri.
Norsku stúlkumar em sterkar lík-
amlega en samhliða venjulegri
handboltaiðkun stunda þær með
markvissum hætti lyftingar og al-
mennt þrek,“ sagði Þorbjörn Jens-
son.
„Þegar ég dvaldi hjá karlaliði
Drammen tók ég eftir þvi hve leik-
mönnum er gert auðveldara að
stunda sína íþrótt. Þar eru meiri
peningar í umferð en hér á landi
sem gerir dæmið léttara. Ennfrem-
ur koma fleiri aðilar að liðunum
en maður á venjast hér á landi,“
sagði Þorbjörn.
-JKS
Víti til varnaðar
Iþróttahreyfingin er blönk og illa stödd fjárhags-
lega. Þetta eru ekki ný sannindi og mikið hefur verið
rætt og ritað um fjármál hreyfmgarinnar.
Þegar litið er um aurana er þeim mun mikilvægara
að fara vel með það sem tii er. Svo virðist sem víða
innan íþróttahreyfmgarinnar sé illa farið með pen-
inga og háum fjárhæðum varið i ótrúlega vitlausa
hluti.
Eins og flestum er kunnugt komu tveir
bandarískir blökkumenn til liðs við
Breiðablik í Nissan-deOdinni í hand-
knattleik í vetur. Hver sem tilgangur
félagsins var með því að fá þessa leik-
menn til liðs við félagið átti forráða-
mönnum handknattleiksdeildar
Breiðabliks að vera ljóst hve hæpin
fjárfesting var hér á ferðinni.
Heimildir mínar herma að kostnað-
urinn við komu þessara tveggja leik-
manna hafi numið um fimm milljónum
króna. Handknattleiksdeild Breiðabliks er
ekki sterk fjárhagslega. Vitað var að veturinn
yrði liðinu erfiður og flestum hefði átt að vera ljóst að
fall yrði óumflýjanlegt í vor. Það hefði því verið það
eina rétta í stöðunni hjá Blikum að gefa ungum leik-
mönnum tækifæri á að spreyta sig í deild þeirra
bestu. Þetta hefðu Blikar átt að gera í staö þess að
eyða mörgum milljónum í bandaríska skussa sem
ekkert skildu eftir sig hjá félaginu og sænska félagið
Skövde gat ekki notað. Sýndu þeir sig í að vera tæp-
lega þokkalegir handknattleiksmenn á íslenskan
mælikvarða. Með öðrum orðum: Hrikaleg fjárfesting
og dæmi um það hvernig deild innan íþróttafélags á
ekki að haga sér í peningamálum. Vonandi
verður þessi ævintýramennska Blika öðr-
um víti til vamaðar.
KA-menn þurftu að punga út 6 milljón-
um króna vegna þátttöku í Evrópu-
keppni meistaraliða. Hér var líka
farið yfir strikið. Eftir að svæða-
skipting var aflögð í riðlakeppninni
var ekki lengur grundvöllur fyrir Ss-
lensk félagslið að taka þátt í Evrópu-
keppnunum. Gifurlegur ferðakostnað-
ur og miklar líkur á því að lenda á móti
liðum óravegu í burtu hefðu átt að vara
menn við. Á meðan íslensk félög eiga ekki
bót fyrir botninn á sér verða þeir menn sem þar
stjórna að sníða sér og félögum sínum stakk eftir
vexti. Að öðrum kosti verða aðalstjórnir félaganna að
taka völdin á meðan vitinu er komið fyrir
forráðamenn sem eyða stanslaust um efhi fram. -SK
íþróttir
P.J. Brown, leikmaður Miami Heat i
NBA-deildinni í körfuknattleik, hefur
verið dæmdur í eins leiks bann vegna
þátttöku í slagsmálum i leik Miami
og NY Knicks á dögunum.
Kim Magnús Nielsen verður fulltrúi
islands á stðru skvassmóti sem fram
fer i Osló á næstunni. Um er að ræöa
mót landsmeistara Evrópuþjóða.
Forsala aðgöngumiða á úrslitaleik
Fram og Vals i bikarkeppni HSÍ hefst
á morgun í íþróttahúsi Fram. Forsal-
an er opin frá kl. 16-20. Á sama tíma
þurfa dómarar aö sækja miða sína.
Arnar Grétarsson og félagar í AEK
Aþenu unnu góðan sigur á Olympi-
akos, 1-0, í
toppslag grísku
knattspymunnar
í fyrrakvöld. Arn-
ar lék allan leik-
inn að vanda.
AEK komst þar
meö á toppinn á
ný með 50 stig en
Olympiakos og
Panathinaikos eru
Baldur Bragason var ekki jafnlán-
samur. Lið hans, Panahaiki, tapaði
6-1 fyrir Panat-
hinakios og Baldur
meiddist og verður
frá í einar þrjár
vikur. Panahaiki
er þar með komið á
hættusvæði grísku
1. deildarinnar.
Jóhann Ingi Gunnarsson verður
ráðgjafi út þetta tímabil hjá þýska
handknattleiksliðinu Dormagen sem
er neöst í 1. deildinni. Jóhann Ingi er
mjög virtur í þýska handboltanum
eftir að hafa náð þar frábærum ár-
angri með Kiel og Essen.
Magnús Helgi Aóalsteinsson hefur
verið ráðinn þjálfari unglingalands-
liðs kvenna í blaki sem tekur þátt í
Norðurlandamótinu i sumar. Magnús
hefur þjálfað piltalandsliðið undan-
farin þrjú ár og var einnig aöstoðar-
þjálfari stúlknaliðsins i fyrra.
Þróttur úr Reykjavík styrkti enn
stöðu sina á toppi 1. deildar karla i
blaki í gærkvöld með 3-0 sigri á ÍS.
Hrinurnar enduðu 15-3,16-14 og 15-5.
Þróttur, R., er með 32 stig, Þróttur,
N., 19, ÍS 18, Stjarnan 12 og KA 12
stig.
Reading komst i gærkvöld i 5. um-
ferð ensku bikarkeppninnar í knatt-
spymu í fyrsta skipti í 63 ár. Reading
vann Cardiff í vitakeppni eftir 1-1
jafntefli og mætir Sheffield United,
sem vann Ipswich, 1-0. Wolves vann
Charlton, 3-0, og sækir Wimbledon
heim í 5. umferð.
Maurice Greene frá Bandaríkjunum
setti i gærkvöld nýtt heimsmet i 60 m
hlaupi karla innanhúss þegar hann
hljóp vegalengdina á 6,39 sekúndum á
móti i Madrid. Hann jafnaði metið á
sunnudaginn, hljóp þá á 6,41.
Mónakó er efst í frönsku 1. deildinni
í knattspymu á betri markatölu en
Metz eftir 0-0 jafntefli í Strasbourg i
gærkvöld. Bastia og Rennes gerðu
líka 0-0 jafntefli. Metz, Marseille og
Paris SG geta öll komist upp fyrir
Mónakó í kvöld.
Athletic Bilbao vann Mallorca, 2-1, í
fyrri leik liöanna i átta liða úrslitum
spænsku bikarkeppninnar í knatt-
spyrnu í gærkvöld.
Konráð Olavsson var markahæstur
hjá Niederwúrzbach i gærkvöld með
8 mörk þegar liðið vann auðveldan
sigur, 34-19, á Stralsund i 3. umferö
þýsku bikarkeppninnar í handbolta.
Lemgo vann Pfullingen, 30-24.
-SK/VS
með 49.
<fc| KEIH ~
1. deild kvenna í fyrrakvöld:
Flakkarar-Ernir ................8-0
Keiluálfar-Keilusystur..........4-4
Skutlurnar-ÍR, L................8-0
Afturgöngur-Tryggðatröll .......8-0
Alda Haróardóttir, Keiluálfum,
setti Islandsmet í ílokki stúlkna I 3
leikjum þegar hún spilaði 609 (185,
209, 215).
Efstu lið eftir 14 umferðir:
Afturgöngur....................106
Flakkarar .....................102
Tryggðatröll ...................66
-VS