Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1998, Blaðsíða 6
6
MIÐVIKUDAGUR 4. FEBRÚAR 1998
Neytendur______________________________________________
íslensk erfðagreining kallar menntamenn heim:
Framanum
ekki fórnað
- segja starfsmennirnir
Guömundur Guömundsson, Inga Reynisdóttir, Stefán E. Stefánsson og Hákon Guðbjartsson segjast ekki sjá eftir
því aö hafa horfið frá störfum erlendis til aö taka þátt í uppbyggingu íslenskrar erfðagreiningar. DV-mynd:E.ÓI
Helsti vaxtarbroddur íslensks at-
vinnulífs virðist nú vera á sviði lif-
tækniiðnaðar líkt og 15 milljarða
króna samningur islenskrar erfða-
greiningar og svissneska lyíjarisans
Hoffmann-La Roche ber vott um -
þrátt fyrir alla stóriðjudrauma. Kári
Stefánsson, forstjóri ÍE, hefur lýst
því yfir að fjölga eigi starfsmönnum
úr 120 í rúmlega 200, þrefalda starfs-
aðstöðuna og fjórfalda tækjakostinn
og allt þetta er á við störf sem skap-
ast við byggingu um það bil tveggja
álvera.
Mikið hefur verið lagt upp úr
þeim mannauði sem fyrirtækið
byggir á. Þeir sem veljast til starfa
við fyrirtækið eru flestir hámennt-
aðir vísindamenn með mikla alþjóð-
lega reynslu. Og það sem meira er -
þeir eru flestir íslenskir. f fréttatil-
kynningu frá ÍE segir að með til-
komu fyrirtækisins hafl fjöldi ís-
lenskra vísindamanna fengið tæki-
færi til að stunda hátæknirannsókn-
ir í læknisfræði sem ella hefði að-
eins verið hægt að stunda erlendis.
Það virðist ekki vera oröum aukið
þegar rætt er við nokkra starfs-
menn íslenskrar erfðagreiningar.
Prófa ísland
Þau Inga Reynisdóttir, Guðmund-
ur Guðmundsson og Stefán E. Stef-
ánsson, sem öll hafa doktorsgráðu í
sameindalíffræði og starfa sem sér-
fræðingar í erfðafræðirannsóknum,
og Hákon Guðbjartsson, rafmagns-
fræði- og tölvunarverkfræðingur,
sem er yfirmaður upplýsingadeildar
fyrirtækisins, störfuðu öll í Banda-
ríkjunum og í Kanada og voru fjarri
því að vera á leiðinni heim þegar
þau slógust í lið með Kára Stefáns-
syni í fyrra.
„Ég var búin að vera úti í rúm 14
ár,“ segir Inga. „Ég kláraði doktors-
próf við Colombiaháskólann i New
York og vann svo við rannsóknir
við krabbameinsspítala sem heitir
Sloane-Kettering í þrjú ár.“
Inga segist hafa slegið til þegar
Kári hafði samband við hana en
hún hefði aldrei snúið aftur til ís-
lands nema að þar biði hennar sam-
bærilegt starf og úti. Stefán var í há-
skólanum í Toronto í Kanada í 8 ár
og hafði rétt lokið doktorsprófi sínu
þegar Kári setti sig í samband við
hann og bauð honum vinnu. Guð-
mundur Guðmundsson var sömu-
leiðis að ljúka námi í Suður-Kalifor-
níuháskóla eftir átta ára nám þar og
í Bostonháskóla og það stóð alls
ekki til að koma til íslands í bráð.
Hákon hafði lokið verkfræðiprófi
frá MIT I Boston og hafði starfað við
Brigham and Young-sjúkrahúsið
þar í borg.
„Ég kom heim aftur af því að ég
þekkti Kára þarna úti og hann sann-
færði mig um að það væri meira
spennandi að taka þátt í þessu held-
ur en að halda áfram þar serii ég
var,“ segir Hákon og samsinnir því
að það hafi ekki reynst erfítt.
Þarf ekki aö betla
Fjórmenningarnir eru sammála
um að ÍE hafi staðið undir öllum
þeim væntingum sem þau gerðu og
telja fyrirtækið fyllilega sambæri-
legt við það sem gerist best erlend-
is. Þeim fmnst gott að vinna á Lyng-
hálsinum og þykir gaman að rann-
sóknunum.
„Þetta er allt annað en gerist hér
heima á ríkisstofnunum. Það er
aldrei spurning um tæki, efni eða
annað slíkt,“ segir Stefán.
„Maður er laus við harkið sem
tíðkast á rannsóknarstofum hér,“
samsinnir Guðmundur. „Maður
þarf ekki að betla út saltlausnirnar
sem maður þarf aö nota.“
Þau eru sammála um að hægt
verði að ráða íslendinga í flestar
þær stöður sem skapast á þessu ári
þar sem þeir finnist út um allan
heim í hvers konar námi. Þau
benda einnig á að ekki sé eingöngu
verið að sækjast eftir sérfræðingum
á sviði erfðafræði heldur einnig
ófaglærðu fólki. En engu að síður
reynist nauðsynlegt að fá útlend-
inga til starfa og það sé fjöldi manns
sem sýnt hafi fyrirtækinu áhuga.
Enginn flótti
Þau segjast heldur engar áhyggj-
ur hafa af því að fólk flýi unnvörp-
um frá öðrum rannsóknarstörfum
þó svo að launin kunni að reynast
betri hjá ÍE. Vísindamönnum þyki
venjulega svo vænt um rannsókn-
irnar sínar að þeir hugsi sig tvisvar
um áður en þeir hlaupi frá þeim í
annað. Hins vegar mættu launakjör
fyrirtækisins gjarnan hafa áhrif á
launastefnuna í landinu.
Samningurinn við Roche-lyfjafyr-
irtækið hefur gjörbreytt öllum að-
stæðum fyrir ÍE.
„Við erum komin yfrr erfiðasta
hjallann. Nú þurfum við að sanna
að við getum staöið undir öllum
væntingunum," segja Guðmudnur
og Stefán.
„Þetta er ekki lengur áhættufyrir-
tæki,“ segir Hákon.
„Við þurfum helst að finna innan
frnim ára stökkbreytt gen sem valda
sjúkdómum," segir Inga og hlær.
Framinn ekki fyrir bí
Sú staðreynd að íslendingar eru
einangruð og einsleit þjóð segir
Inga vera ástæðuna fyrir þvi að
Roche gerði milljarðasamninginn
við fyrirtækið. Það sé grunnurinn
að þessu öllu saman. Hins vegar er
einangrunin einnig helsti ókostur-
inn við rannsóknarstörf hérlendis.
„Þetta væri ekki hægt án Inter-
netsins," segir Hákon sem sér um
öll tölvumálin.
„Menn verða að geta tengt sig við
genabanka," segir Inga. „Við verð-
um aö hafa aðgang að öllu því
nýjasta sem er að gerast i grein-
inni.“
Þó svo að þau hafi öll hætt í störf-
um erlendis til að vinna hjá ÍE telja
þau sig á engan hátt hafa fórnað
starfsframanum. Þau geti auðveld-
lega farið út aftur.
„Maður er alveg jafn samkeppnis-
hæfur og áður,“ segir Inga.
„Þessi reynsla gæti verið rós í
hnappagatið heldur en hitt,“ segir
Stefán.
Kaffitími og sumarfrí!
En er íslensk erfðagreining í ein-
hverju frábrugðin bandarískum fyr-
irtækjum af sama toga? Já, þau eru
öll sammála um það að þó svo að
fyrirtækið sé ákaflega alþjóðlegt
hafi það séríslenskar áherslur.
„Hér fær maður sex vikna sum-
arfrí, en ekki tíu daga eins og
tíðkast í Bandaríkjunum," benda
Hákon og Guðmundur á.
„Og svo eru það kaffitímarnir,"
segir Inga. „Þeir eru alveg séris-
lenskt fyrirbæri. Maður er bara rétt
byrjaður að vinna þegar kallað er á
mann að koma í kaffi.“ -Sól.
2420,87
Skeljungur
Tæknival
Ásmundur alls staðar
Það gekk ekki alls kostar upp
að skipa Ásmund Stefánsson
sérlegan sáttasemj-
ara i sjómannadeil-
unni. Þrátt fyrir
áralanga reynslu
af kjaradeilum
tókst honum ekki
að draga deiluað-
ila að landi.
Reynsla Ás-
mundar er ótví-
ræð því hann gegndi
um árabil æðsta embætti verka-
lýðshreyfingarinnar sem forseti
Alþýðusambands íslands. Það
embætti fleytti honum inn í
framkvæmdastjórastarf hjá ís-
landsbanka og færði honum fin-
an jeppa. í seinustu kjaradeUu
bankamanna og viðsemjenda
dúkkaði gamli forsetinn síðan
upp en nú hinum megin borðs í
faðmi atvinnurekenda. Nú er
hann búinn aö reyna aUt og kom-
inn hringinn með þvl að takast á
við sáttasemjarahlutverkið ...
Trójuhestur féll?
Akurnesingurinn Guðjón Ólaf-
ur Jónsson, aðstoðarmaður um-
hverfisráðherra, var
í framboði í próf-
kjöri R-listans. Hin
gamla heimabyggð
hans batt miklar
vonir við þennan
son sinn að hann
myndi reynast
henni betri en
enginn i borgar-
stjórn Reykjavíkur.
Starfsfólk Landmælinga, sem
ekki hefur vUjað flytja úr borg-
inni upp á Akranes, andar nú
stórum léttar eftir að ljóst er að
Guöjón Ólafur verður ekki í
næstu borgarstjórn Reykjavíkur.
Það leit á manninn sem tróju-
hest, hann hefði átt, að umhverf-
isráðherra ólöstuðum, stærstan
þátt í þvi að fara með vinnustað
þeirra úr borginni og raska mjög
högum á þriöja tug Reykvíkinga,
svo ekki sé minnst á margfeldis-
áhrif af starfsemi Landmælinga
á hag hundraða annarra Reyk-
vlkinga. Slikur maður væri ekki
líklegur tU að láta hér viö sitja
heldur halda áfram að moka at-
vinnunni út úr borginni...
laooir aagar a tauonyju
Metsölubók Daviðs Oddsson-
ar, Nokkrir góðir dagar án Guð-
nýjar, sló í gegn
svo um munaði.
Til er sá maður
sem átt hefur góða
daga bæði með og
án Guðnýjar en
sá er Jón Pét-
ursson „ísbjarn-
arbani" frá Bol-
ungarvík. Hann
hefur nefnUega starf-
að sem skipstjóri hátt í ald-
aríjórðung á skipi sínu, Guðnýju
ÍS. Væntanlega á hann íslands-
met í samfeUdri skipstjórn á
sama skipi. Samkvæmt útreikn-
ingum blaðsins Vestra á ísafirði
hefur Jón verið á skipi sínu i
8500 daga. Þrátt fyrir góða daga
á Guðnýju hafa einhverjir dagar
faUið tU í landi sem geta þá
væntanlega flokkast undir
nokkra góða daga án Guðnýjar...
Ríólistinn
Eftir glæstan sigur Helga Pét-
urssonar í prófkjöri R-Ustans
hafa menn reynt
að rýna i ástæður
þess að nýir menn
komu svo sterkir
inn sem raun ber
vitni. í tUviki
Helga P. þykir
ljóst að gömlu
félagar hans í
Ríó, þeir Ólafur'' |
Þórðarson og Ágúst Atlason,
hafi átt stóran hlut í sigri hins
miðaldra poppara og þjóðlaga-
söngvara. Þannig sást tU Ólafs
þar sem hann dreifði fluguritum
i Kolaportinu þar sem ágæti
Helga Pé. var rækUega undir-
strikað. Reyndar sögðu iUar
tungur að fólk hefði verið hvatt
Ul að kjósa þó það væri með
svarblátt íhaldsgen. Nú segja
menn að R-listinn standi a.m.k.
aö hluta fyrir Ríó-listann ...
Umsjón: Reynir Traustason