Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1998, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1998, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 4. FEBRÚAR 1998 Útlönd Stuttar fréttir i>v Madeleine Albright hafði erindi sem erflði: Arabar ekki á móti hernaði gegn írak Madeleine Albright, utanríkisráö- herra Bandaríkjanna, sagði í gær að leiðtogar arabaríkja væru reiðubún- ir að fallast á hernaðaraðgerðir Bandaríkjanna gegn írak ef ekki tekst að leysa deiluna um vopnaeft- irlit SÞ við samningaborðið. „Það sem ég mun segja forsetan- um er að þótt þeir (leiðtogar arabaríkja) kjósi frekar samninga- leiðina hvatti ekki einn einasti þeirra mig til að segja forsetanum að beita ekki valdi,“ sagði Albright við fréttamenn um borð í flugvél sinni á leið vestur um haf. Ráðherr- ann fór í skyndiheimsókn til Mið- Austurlanda til að afla stuðnings við stefnu bandarískra stjórnvalda. Hún valdi orö sín af mikilli kost- gæfni, tvöfalda neitun, þar sem henni tókst ekki á fjórum dögum að fá leiðtogana til að lýsa beinlínis yf- ir stuðningi við hernaðaraðgerðir gegn írak. Kúveitar voru eina und- antekningin, enda réðst íraski her- inn inn í Kúveit árið 1990. Albright sagði að leiðtogarnir hefðu einnig verið sammála um að írakar yrðu að fara að kröfum Ör- yggisráðs SÞ og að stjórnvöld í Bagdad bæru ábyrgðina á þeim „al- varlegu afleiðingum" sem hemaðar- aðgerðir hefðu í för með sér. Búist er við að Albright hitti Clinton að máli fljótlega eftir að hún kemur til Washington og skýri honum frá niðurstöðum viðræðna sinna. Hún mun svo hitta leiðtoga Tareq Aziz vill finna friðsamlega lausn á íraksdeilunni hið fyrsta. þingsins síðar í dag. Bandarískir þingmenn lýstu því yfír í gær að þeir mundu láta alla hreppapólitík lönd og leið og styöja Clinton forseta. Jacques Chirac Frakklandsforseti og Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, ræddu íraksdeiluna lengi í gær. Að sögn talsmanns Chiracs era báöir leiðtogarnir fylgjandi frið- samlegri lausn deilunnar. Þeir hvöttu írösk stjórnvöld til að fara að ályktunum Öryggisráðsins. Framkvæmdastjóri SÞ, Kofl Ann- an, ræddi við Tareq Aziz, aðstoðar- forsætisráðherra íraks, í gær og urðu þeir sammála um að leggja enn meira kapp á að finna friðsam- lega lausn. Reuter Börnin músétin i frostinu DV, Ósló: Fyrst hélt móðirin aö dóttirin, 18 mánaða gömul, hefði klórað sig sjálf en þegar hún sá fjölda bitsára á andliti hennar fór hún að skoða betur. í ljós kom að mús haföi byrjað að naga bamið þar sem það lá í vagni sínum og svaf úti. Músin var enn í vagninum þegar móðirin kom að og hefði getað sært baraið til ólífis. Atburður þessi varð á Hamri í Noregi fyrr í vikunni. Við lækn- isskoðun fundust 15 bitsár eftir músina á andliti stúlkunnar sem þrátt fyrir það er við góða heilsu. Miklir kuldar hafa verið i inn- sveitum i Noregi síðustu daga, víða 20 til 30 stiga frost og 42 stig þar sem kaldast er á Finnmörku. GK Fyrsta alnæmissmitiö rakið Vísindamenn í New York greindu frá því í gær að þeir heföu rakið fyrsta alnæmissmitið til manns sem bjó í Belgísku- Kongó 1959. Þar með eru vísinda- mennirair búnir að sýna fram á að alnæmisveiran hefur skotið upp kollinum um 10 til 20 árum fyrr en áður var taliö. Hinn smitaði var bantúnegri sem bjó í Leopoldville. Blóð úr mann- inum, sem var geymt í blóð- banka, myndaði alnæmisveiru er líktist forvera nokkurra undir- gerða þeirrar alnæmisveiru sem nú finnst. Ekki er vitað um örlög hins smitaða bantúnegra né hvort hann varð veikur. Kínverjar stöðva ferð loftbelgsins Tilraun þriggja Evrópumanna, sem lögöu í hnattferð í loftbelg frá Sviss fyrir viku, virðist hafa veriö eyöilögð af Kínverjum. Yf- irvöld í Peking neituöu þremenn- ingunum um að fljúga yfir Kína. Þar með þurfa þeir að taka á sig stóran krók og komast þvi ekki umhverfis jörðina án þess að lenda á leiðinni. Þremenningarn- ir halda þó enn í vonina um að kínversk yfirvöld skipti um skoð- un. Kínverjar segja að loftbelgurinn geti truflað venjulega flugmnferð sem er mikil nú þegar nýju ári er fagnað í Kína. Fárviðri gekk yfir Kaliforníu í gær. Ár flæddu yfir bakka sína og mörg hundruð manns þurftu að yfirgefa heimili sín. Talið er að veðurfyrirbærið El Nino eigi sök á þessu. Meðal þeirra sem fóru að heiman var Maggie Edmunds í Guer- neville. Hér sést hvar hún hleður eigum sínum á skúffubílinn sinn. Símamynd Reuter Flugvél flaug á buröarvíra: 20 létust þegar kláfferja hrapaði Italir eru slegnir óhug vegna ör- laga tuttugu skíðamanna sem létu lífið er kláfferja hrapaði i gær 200 metra til jarðar við fjallið Cermis nálægt skíðastaðnum Cavalese á Norður-Ítalíu sem er norður af borg- inni Trento. Kláfferjan hrapaði eftir að bandarísk herflugvél í æfinga- flugi flaug á burðarvíra ferjunnar. Að sögn forsætisráðherra Ítalíu, Romanos Prodis, flaug vélin augljós- lega of lágt. Nokkrir stjórnmála- menn hafa þegar hvatt til að gripið verði til aðgerða. „Það hafa margir greint frá því að flugmenn herflug- véla skemmti sér við að fljúga und- ir burðarvírana. Þetta er ekki ásætt- anlegt,“ sagði Carlo Andreotti, for- seti Trento-héraðsins í gær. Flug- mann vélarinnar, sem flaug á burð- arvírana í gær, sakaði ekki þótt vél Björgunarmenn við flak kláfferjunn- ar. Símamynd Reuter. hans heföi skemmst lítillega og gat hann haldið flugi sínu áfram til flugvallar i Aviano. Flugvélin til- heyrir gæsluliði Atlantshafsbanda- lagsins í Bosníu. Flestir þeirra sem fórust voru Þjóðverjar. Meöal hinna látnu voru einnig Pólverjar, Ungverjar og ítal- ir. Pólverji, sem missti úr skíðadag í gær vegna meiðsla á fæti, missti konu og 14 ára son í slysinu. Önnur kláfferja hékk á bláþræði eftir að flugvélin skar burðarvírana. Björgunarmönnum tókst hins vegar að koma þeim sem um borð voru heilum á húfi til jarðar. Þetta er í annað sinn sem fjöldi skíðamanna lætur lífið í kláðerjuslysi við Cavalese. Árið 1976 biðu 42 bana er burðarvírar slitnuðu. Fallist á afsögn Þingið i Armeníu féllst í morg- un á afsögn Leons Ter-Petrosjans forseta með yfirgnæfandi meiri- hluta. Ástæða afsagnarinnar er harðnandi deila um Nagornó- Karabakh héraðið umdeilda. Hillary á skíðum Hillary Rodham Clinton, for- setafrú í Bandaríkjunum, lét all- ar áhyggjur af hneykslismál- um í Was- hington lönd og leið þegar hún brá sér á skíði í svissnesku Ölp- unum. Hún var að vanda vel klædd, í bláum skiðasamfestingi, með sólgleraugu og hatt. Peningamaður tekinn Yah Lin „Charlie" Trie, íjáröfl- unarmaður demókrataflokksins bandaríska, sneri til Bandaríkj- anna í gær og gaf sig fram við yf- irvöld. Hann hefúr verið ákærð- ur fyrir fjáröflunarsukk í kosn- ingabaráttu. Gegn glæpagengjum Breska lögreglan hefur sett á laggiraar sérstaka sveit til að beijast gegn skipulagðri glæpa- starfsemi gengja frá ríkjum Vest- ur-Afríku, aðallega Nígeriu. Paradísarmissir Þýskaland verður ekki lengi enn paradís reykingamanna ef frumvarp um reykingavamir verður að lögum. Takmarkanir á reykingum á almannafæri verða þá einhverjar hinar mestu i allri Evrópu. Castro með Clinton Fidel Castro Kúbuleiðtogi lýsti óvænt yfir stuðningi sínum við Bill Clinton Bandaríkjaforseta í gær og sagðist vona að hann mundi sigrast á „persónulegu erf- iðleikunum" sem gerðu honum lífið leitt um þessar mundir. Castro fór þó ekkert nánar út í kynlífshneykslið sem hefur skek- ið Washington að undanfömu. Ráðherra mótmælt Rúmlega fjögur þúsund kenn- arar og nemendur gengu um Lat- ínuhverfið í París til að mótmæla áformum menntamálaráðherrans og ríkisstjórnarinnar um umbæt- ur á menntakerfinu. Verkfall í Finnlandi 3.300 bílstjórar almennings- samgangna í Finnlandi hafa verið í verkfalli síðan á mánu- dag. 10 klukkustunda samninga- viðræður í gær báru ekki árang- Nýir gyðingabústaðir ísraelska innanríkisráðuneytið hefur samþykkt smíði 132 nýrra bústaða fyrir gyðinga í hverfi araba í austurhluta Jerúsalem. ísraelska útvarpið greindi frá þessu í morgun. Gripin við ástarleik Kennslukonan og Qögurra barna móðirin Mary Kay LeTho- urneau, sem dæmd var fyr- ir nauðgun fyrir að hafa staðið í ástar- sambandi við 13 ára nem- anda sinn, var gripin á ný með sama pilti. Kennslukonunni var sleppt úr fangelsi fyrir mánuöi. ígær- morgun kom lögreglan að Mary Kay og piltinum, sem er orðinn 15 ára, í bíl. Mary, sem eignaðist dóttur með piltinum, haföi lofað að hafa ekki samband við hann á ný. Viðræður um miðlínur Lögmaður Færeyja, Edmund Joensen, vill að hafnar verði viðræður við Englendinga um miðlínu til að hægt verði að leysa olíustríðið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.