Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1998, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1998, Blaðsíða 26
26 MIÐVIKUDAGUR 4. FEBRÚAR 1998 Fólk í fréttum____________ Helgi Hjörvar Helgi Hjörvar, fram- kvæmdastjóri Blindrafé- lagsins, Hólavallagötu 9, Reykjavík, er sigurvegari prófkjörs Reykjavíkurlist- ans um síðustu helgi en hann hlaut flest atkvæði og mun skipa fyrsta sæti listans í vor. Starfsferill Helgi fæddist i Reykja- vík 9.6. 1967 og ólst þar upp, að frátöldum þremur bernsku- árum sem hann dvaldi með foreldr- um sínum á Vestfjörðum og í Kaup- mannahöfh. Hann gekk i ísaks- skóla, Æfmgadeild KHÍ, lauk stúd- entsprófi frá MH og stundaði heim- spekinám við HÍ í tvö ár. Á æskuárunum var Helgi í Baflet- skóla Þjóðleikhússins og tók þátt í ýmsum leiksýningum. Hann söng hlutverk Emils í Kattholti á vin- sælli hljómplötu, útg. 1977. Helgi var blaðburðardrengur og þingsveinn, vann m.a. í fiski á Hell- issandi, Þingeyri og í Klakksvík á unglingsárunum, var síðan lausráð- inn blaðamaður á Þjóðviljanum og sinnti jafhframt dagskrárgerð fyrir sjónvarp. Stuttu síðar stofnaði hann bóksölufyrirtæki og stóð þá m.a. að dreifmgu íslendingasagna og Sturlungu. Helgi varð fram- kvæmdastjóri Blindrafé- lagsins 1994 og hefur gegnt því starfi síðan. Helgi var kjörinn for- maður Blindrafélagsins 1997, er fulltrúi íslands í Samstarfsnefnd norrænu blindrasamtakanna, var formaður Verðandi, landssamtaka ungs Al- þýðubandalagsfólks, rit- stýrði Opinni bók Grósku og skipaði 4. sæti G-lista í Reykjaneskjör- dæmi í Alþingiskosningunum 1995, átti drjúgan þátt í stofnun Reykja- víkurlistans og átti sæti á honum í síöustu borgarstjómarkosningum, er varaborgarfulltrúi og í stjóm Veitustofnana, og situr í stjómum ýmissa félagasamtaka, stofnana og fyrirtækja. Fjölskylda Kona Helga er Þórhildur Elínar- dóttir, f. 14. 4. 1967, myndlistarmað- ur. Foreldrar hennar: Elín Skeggja- dóttir ritari, og Þorvaldur Axelsson skipherra sem lést 1997. Dóttir Helga og Þórhildar er Hild- ur Hjörvar, f. 15.10.1991. Systkini Helga era Hákon, f. 1976, iðnnemi í Osló; Rósa María, f. 1980, menntaskólanemi. Foreldrar Helga era hjónin Úlf- ur Hjörvar, f. 22.4. 1935, rithöfund- ur, og Helga Hjörvar, framkvæmda- stjóri Norrænu leik- og dansnefhd- arinnar í Kaupmannahöfn. Ætt Úlfur er sonur Helga Hjörvar, rit- höfundar og útvarpsfrömuðar, hálf- bróður samfeðra, Gunnars Úrsusar aflraunamanns, Lárusar glímu- kóngs, Péturs Hoffmann og Haralds, föður Auðar rithöfundar. Helgi var sonur Salómons, b. í Drápuhlið í Helgafellssveit, Sigurðssonar, b. i Miklholti, Homa-Salómonssonar, b. í Hólakoti, Bjamasonar, langafa Kristjönu, móður Ingibjargar Þor- bergs. Móðir Helga Hjörvar var Guðrún Sigurðardóttir, b. á Grís- hóli í Helgafellssveit, Þórðarsonar. Móðir Úlfs var Rósa, systir Krist- jóns, afa Helga Péturssonar R-lista- frambjóðanda. Rósa var dóttir Daða, b. á Litla-Vatnshomi í Dölum, Daða- sonar, b. á Bólstað í Dölum, Magn- ússonar. Móðir Daða yngri var Sig- ríður Erlendsdóttir, b. á Fremra- Skógskoti, Þórðarsonar. Móðir Rósu var Guðbjörg Sigríður, systir Jens, vaktara í Stöðlakoti, afa Brynjólfs Jóhannessonar leikara. Guðbjörg var dóttir Jóhannesar steinsmiðs í Kasthúsum í Reykjavík, Magnús- sonar, og Ingibjargar Jensdóttur, frá Eyrarbakka, Ólafssonar. Móðir Ingibjargar i Kasthúsum var Gróa Gunnarsdóttir, hreppstjóra í Ein- arshöfn á Eyrarbakka, Jónssonar, bróður Jóns yngra Gamalíelssonar, en af afkomendum hans má nefna Gísla, foður Ingibjargar Sólrúnar, borgarstjóra. Stjúpfaðir Helgu var Stefán Dl- ugason Hjcdtalín, úr Grandarfirði. Helga er dóttir Helga, kaupfélags- stjóra á Eyrarbakka, bróður Sigríð- ar, foður Guðjóns Friðrikssonar, sagnfræðings og höfundar Sögu Reykjavíkur. Helgi var sonur Vig- fúsar, b. á Gamla-Hrauni á Eyrar- bakka, Helgasonar. Móðir Vigfúsar var Guðrún Ámadóttir, systir Ólafs, afa Ingvars Vilhjálmssonar útgerð- armanns. Systir Guðrúnar var Guð- björg, langamma Rúnars Guðjóns- sonar, sýslumanns Reykjavíkur. Móðir Helga kaupfélagsstjóra var Sesselja Helgadóttir, formanns í Nýjabæ, Jónssonar og Guðríðar Guðmundsdóttur af Kaldaðar- nesætt, systur Jóns, fööur Guðna prófessors. Móðir Guðríðar var Þóra Símonardóttir af Bergsætt, systir Elínar, ömmu Ragnars í Smára. Móðir Helgu var Marsibil Bem- harösdóttir frá Kirkjubóli í Val- þjófsdal. Móðir hennar var Jám- gerður Eyjólfsdóttir, systir „Bræðr- anna Eyjólfsson”, í Flateyri. Helgi Hjörvar. Afmæli Reynald Þ. Jónsson Reynald Þ. Jónsson framkvæmda- stjóri, Lækjarási 6, Garðabæ, varð sextugur í gær. Starfsferill Reynald fæddist á Dalvík og ólst þar upp og i Svarfaðardalnum. Hann lærði húsasmíði hjá fóður sín- um og lauk sveinsprófi í þeirri grein 1960, lauk BS-prófi í bygginga- tæknifræði frá Odense Teknikum í Danmörku 1965 og öðlaðist meist- araréttindi í húsasmíði 1968. Reynald vann við húsasmíðar á Dalvflc hjá fóður sínum 1954-61, starfaöi á verkfræðistofu C.A. Zeut- hen í Odense við eftirlit á ýmsum verkfræðilegum framkvæmdum á Fjóni 1965-66, var bæjartæknifræð- ingur og byggingarfulltrúi á Húsa- vík 1966-71 og sinnti jafhframt stundakennslu við Iðnskólann þar, vann hjá Landsvirkjun við undir- búning og eftirlitsstörf við Sigöldu- virkjun og Hrauneyjarfossvirkjun 1971-79, var byggingarstjóri hjá Vatnsvirki hf. vegna flóðgátta Hrauneyjarfossvirkjunar 1979, starf- rækti eigin teiknistofu og tækniráð- gjöf 1980-81, stofnaði einkafyrirtæk- ið SAMNOR 1982 sem sérhæfir sig í innflutningi á byggingarefiium, ss. Alno eldhúsinnréttinginn og hús- einingmn frá Noregi og ýmsu fleira en hefur svo jafnframt sinnt ráð- gjafastörfum af ýsmu tagi, td. fyrir flugfélagið Atlanta og ýmsum verk- takastörfum. Fjölskylda Reynald kvæntist 5.4. 1959 Sess- elju Guðmundsdóttur, f. 8.8.1940, d. 9.1. 1987, húsmóður. Hún var dóttir Guðmundar Hróbjartssonar, skó- smiðs í Landlyst í Vestmannaeyj- um, og Þórhildar Guðnadóttur hús- móður. Sambýliskona Reynalds frá 1987 er Katrín Ámadóttir, f. 30.5. 1942, fiðluleikari og kennari. Hún er dótt- ir Árna Bjömssonar, tónskálds í Reykjavík, og Helgu Þorsteinsdóttur húsmóður. Böm Reynalds og Sesselju era Sigríður Ósk, f. 3.6. 1959, leikskólakennari en mað- ur hennar er Hinrik Hjör- leifsson verslunarstjóri og era böm þeirra Reyn- ald, f. 16.6. 1985, og Silja, f. 17.11. 1989; Sigurður, f. 16.3. 1966, verslunarstjóri en sambýliskona hans er Hafdís Björgvinsdóttir skrifstofumaður og era böm þeirra Birgitta, f. 12.9. 1992 og Kristófer, f. 25.2. 1997; Guðmundur Þór, f. 14.11. 1968, eðlis- fræðingur og kennari við Fjölbraut- arskólann í Garðabæ. Sonvu- Katrínar og stjúpsonur Reynalds er Ámi Jón Eggertsson, f. 11.5. 1970, hagfræðingur, kvæntur Huldu Ólafsdóttur hagfræðingi og er sonur þeirra Ólafur Þorri, f. 1.5.1996. Ætt Systkini Reynalds era Ósk Jóns- dóttir, f. 3.2.1936, verslunarmaður á Dalvík, gift Þóri Pálssyni; Sigurður Jónssson, f. 15.9. 1941, slökkviliðsstjóri á Dal- vík, kvæntur Öldu G. Kristjánsdóttur; María Jónsdóttir, f. 27.8. 1943, framkvæmdastjóri Olis á Dalvík, gift Guðmundi Jónssyni; Sigríðm- Jóns- dóttir, f. 9.8. 1947, hjúkr- unarfræðingur á Akur- eyri, gift Skarphéðni Magnússyni; Filippía Jónsdóttir, f. 4.11. 1950, gift Stefáni Jónssyni, bændur að Hofi í Svarfað- ardal; Kristín Jóna Jónsdóttir, f. 22.9.1952, hönnuður á Akureyri, gift Lárasi Gunnlaugssyni. Foreldrar Reynalds vora Jón Sig- urðsson, f. 16.12. 1897, d. 16.11. 1980, byggingameistari á Dalvík, og k.h., Hólmfríður Magnúsdóttir, f. 26.5. 1910, d. 10.9. 1995, húsmóðir. Reynald og Katrín taka á móti vinum og vandamönnum í Stjömu- heimilinu í Garðabæ, föstudaginn 6.2. milli kl. 17.00 og 19.00. Reynald Þ. Jónsson. Sigurður Bragi Guðmundsson Sigurður Bragi Guð- mundsson, fram- kvæmdastjóri Sigur- plasts og dósagerðarinn- ar, Hlégerði 33, Kópa- vogi, varð fertugur í gær. Starfsferill Sigurður fæddist á ísafirði en ólst upp í Reykjavík og á Neskaup- stað. Hann lauk prófi sem fisktæknir frá Fisk- vinnsluskólanum og er iðnaðar- og kerfisfræðingur frá Ohio University í Bandaríkjunum með hagfræði sem aukagrein. Samhliða námi við Fiskvinnslu- skólann var Sigurður frystihús- stjóri í fiskvinnslufyrirtækjum á ár- unum 1976-83. Hann hóf störf hjá Plastprenti hf. að námi loknu, var framleiðslustjóri þar 1984-88 og hefur verið framkvæmdastjóri Sig- urplasts hf. frá 1988. Sigurður sinnti stjómar- störfúm hjá SVR 1993-94, situr í stjóm Þorgeirs og Ellerts hf. frá 1995 og í stjóm Alpan frá 1996. Hann er meölimur í Round Table frá 1994. Fjölskylda Sigurður kvæntist 1980 Hönnu Ragnheiði Björns- dóttur. Þau skildu 1985. Kona Sigurðar er Sólveig Hjalta- dóttir, f. 18.3. 1962, viðskiptafræð- ingur hjá Skeljungi og stundakenn- ari við Viðskipta- og tölvuskólann. Þau hófu sambúð 1993. Foreldrar hennar: Hjalti Á. Ágústsson, d. 1993, bifreiðastjóri í Reykjavík, og k.h., Guöfinna Jensdóttir húsmóðir. Sonur Sigurðar og Sólveigar er Birkir Karl, f. 19.1. 1996. Stjúpdóttir Sigurðar er íris, f. 7.10. 1985. Systkini Sigurðar era Gunnar Karl, f. 1959, hagfræðingur og for- stöðumaður innkaupa- og áhættu- stýringar Skeljungs, búsettur i Kópavogi; Ásgeir Heimir, f. 1962, viðskiptafræðingur og deildarstjóri hjá Rikisskattstjóra; Hanna Guð- laug, f. 1969, sagnfræðingur, búsett í Frakklandi; Bryndís, f. 1972, há- skólanemi, búsett í Reykjavík. Foreldrar Sigurðar era Guðmund- ur Agnar Ásgeirsson, er starfrækir Viðskiptaþjónustu Guðmundar Ás- geirssonar á Neskaupstað, og Jó- hanna Dahlmann bankaritari. Ætt Meðal systkina Guðmundar má nefha Svein hagfræðing og Braga myndlistarmann. Guðmundur er sonur Ásgeirs, skrifstofústjóra í Reykjavík Ásgeirssonar, óðalsb. á Fróðá, Þórðarsonar, alþm. á Rauð- kollustöðum, Þórðarsonar. Móðir Þórðar alþm. var Kristín Þorleifs- dóttir, systir Þorleifs í Bjamarhöfn. Móðir Ásgeirs skrifstofústjóra var Ólína Bergljót Guðmundsdóttir. Móðir Guðmundar var Karólína Sveinbjörg Sveinsdóttir, smiðs í Reykjavík, Ólafssonar, og Sigríðar Rögnvaldsdóttur. Jóhanna Dahlmann er dóttir Sig- uröar Dahhnann, póst- og símstöðv- arstjóra á ísafirði, og k.h., Guðlaug- ar Dalmann Jónsdóttur, söðlasmiðs á Tannstaðabakka, bróður Guðrún- ar, móður Skúla Guðmundssonar ráðherra. Sigurður Bragi og Sólveig taka á móti ættingjum og vinum í Hlégarði í Mosfellsbæ, fostud. 6.2. kl. 20.30. Sigurður Bragi Guömundsson. Til hamingju með afmælið 4. febrúar 80 ára Óskar Gíslason, fyrrv. bóndi að Húnakoti I, Djúpárhreppi, nú til heimilis að Grænumörk 5, Selfossi. Sigríður Valdimarsdóttir, Böðvarsgarði, Hálshreppi. 75 ára Rögnvaldur Ólafsson, Kleppsvegi 144, Reykjavík. Jónina Friðbjörg Tómasdóttir, Dalbraut 25, Reykjavík. Július Helgi Helgason, Sogavegi 172, ReyKjavik. Ólöf Metúsalemsdóttir, Sundabúð 2, Vopnafirði. 70 ára Hallfríður S. Ásmundsdóttir, Teigaseli 5, Reykjavík. 60 ára Jón Alfreðsson, Langagerði 12, ReyKjavík. Ema María Jóhannsdóttir, Löngubrekku 28, Kópavogi. Jóhanna Einarsdóttir, Kjarrhólma 2, Kópavogi. Bragi Vilhjálmsson, Háaskála, Hofshreppi. Emma Stefánsdóttir, Skíðabraut, Dalvík. 50 ára Bryndís Gunnarsdóttir, Skipasundi 26, Reykjavík. Einar B. Kristjánsson, Eskihlíð 16a, Reykjavík. Unnur Guðjónsdóttir, Sogavegi 105, Reykjavík. Ævar Friðriksson, Unufelli 17, Reykjavík. Guðrún Þorbjömsdóttir, Mosarima 12, Reykjavík. Ólafla Hlugadóttir, Suðurgötu 50, Hafnarfirði. Danuta Godlewska, Strandgötu 14, Sandgerði. Sigrún Sigurðardóttir, Vogabraut 12, Akranesi. 40 ára Finna Bima Steinsson, Snekkjuvogi 3, Reykjavík. Sigurlaug Hilmarsdóttir, Réttarseli 16, Reykjavík. Gunnar Þorsteinsson, Vallarási 3, Reykjavík. Guðfinna Aðalheiður Karlsdóttir, Marbakka, Seltjamamesi. Valgerður Erlingsdóttir, Efstakoti 8, Bessastaðahreppi. Friðfinnur Skaftason, Gænási 3a, Njarðvík. Ingibjörg J. Benediktsdóttir, Laugarvegi 13, Siglufirði. Sigurlína örlygsdóttir, Syðra-Felli, Eyjafjarðarsveit. Þorkell Bjömsson, Lyngholti 13, Akureyri.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.