Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1998, Síða 2
2
MÁNUDAGUR 9. MARS 1998
Fréttir
Ágreiningur innan bankaráðs Landsbankans um sameiningu banka:
Óttast einokun
- segir Helgi S. Guömundsson um samruna íslandsbanka og Landsbankans
„Ég óttast einokun. Það er mín
fyrsta hugsun í tengslum við mögu-
legan samruna íslandsbanka og
Landsbanka. Ég met þaö svo að
þetta gæti orðið mjög hættulegt. Ég
fæ heldur ekki séð í fljótu bragði að
þessi kostur skili ríkinu best og
held að menn ættu að skoöa aðra
hluti áður. Ég tek þó fram aö ég vil
ekki útiloka neinn kost fyrir fram
og þó þessi kostur hafi vissulega
komið upp í umræðu um þróun
bankans hefur hann aldrei verið
formlega á dagskrá bankaráðsins."
Þetta sagði Helgi S. Guðmundsson,
nýr formaður bankaráðs Landsbank-
ans, um hugmyndir um samnma
Landsbankans við íslandsbanka.
Þær voru settar fram í ræðu Kjart-
ans Gunnarssonar, fráfarandi for-
manns bankaráðsins, í ræðu á sið-
asta aðalfundi gamla Landsbankans.
íslandsbanki pólitískt litaður
„Ég er ekki sammála Kjartani
Gunnarssyni um að þetta sé fyrsti
kosturinn ef menn ætla að huga að
frekari samruna banka og þaðan af
síður ýmsum viðhorfum Kristjáns
Ragnarssonar sem hann reifaði í
Morgtmblaðinu. Mér kom alls ekki á
óvart þótt Kjartan ræddi þennan
möguleika, enda hafði hann allan rétt
til þess. Ég neita þvi hins vegar ekki
að mér brá mikið þegar Morgunblað-
ið kynnti málið með þeim hætti sem
það gerði í Reykjavíkurbréfi um helg-
ina og síðan í viðtali við Kristján
Ragnarsson. Ég spyr: Eru öflugir
menn þá virkilega famir að stefna að
því að sameina elsta og virtasta
banka landsins íslandsbanka, sem er
óneitanlega með ákveðinn pólitískan
lit, þó hann sé almenningshlutafélag
og starfi að sjálfsögðu eftir faglegum
hagsmunum eigenda sinna?“
Búnaðarbankinn fýsilegri
Helgi endurtók að hann útilokaði
ekkert fyrir fram en áður en sam-
runi íslandsbanka við Landsbank-
ann væri skoöaöur þyrfti að athuga
aðrar leiðir. „Landsbankinn er stór
og öflugur og nýbúinn að kaupa
Helgi S. Guðmundsson, formaður
bankaráðs Landsbankans.
DV-mynd Hilmar Þór
helmingshlut í Vátryggingafélagi ís-
lands. Við höfum næg verkefni að
vinna úr þeirri fjárfestingu. Því hef
ég sagt persónulega að það sé ekki
tímabært að fara í samruna af þess-
ari stærðargráðu. Fyrst þú gengur á
mig þá er það mín skoðun að ætli
menn á annað borð að fara í svona
stóra sameiningu, sem ég tel að feli
í sér vissa einokunarhættu fyrir
markaðinn, þá hefði fyrst átt aö
skoða Landsbankann og Búnaðar-
bankann. Reyndar tel ég að Lands-
bankann einan og sér mætti þróa í
mjög öflugan banka.“
Helgi sagði knýjandi að lækka
vexti. Þaö yrði einungis gert með
hagræðingu. Auðvitað mætti ekki
halda uppi of háu vaxtastigi með of
miklum mannafla í bankakerfinu.
Hins vegar yrðu menn að stíga gæti-
lega til jaröar og vanmeta ekki
mannlega þáttinn. Ljóst væri að
sameining af þeim toga sem hér
væri til umræðu leiddi til þess að
hundruð manna myndu missa vinn-
una í bankakerfinu. -ÖS
Húsavíkurlistinn:
Friðfinnur
nýr inn
Um helgina var haldin skoðana-
könnun á vegum uppstillingar-
nefndar Húsavíkurlistans. Um 150
manns tóku þátt í skoðanakönnun-
inni sem verður notuð til viðmiðun-
ar við uppröðun framboðslistans.
Niðurstaðan varö sú að í fjórum
efstu sætunum lentu þrír sitjandi
bæjarfulltrúar og einn nýliöi í sveit-
arstjómarmálum. Friðfinnur Her-
mannsson, formaður Alþýðuflokks-
félagsins, hefur ekki áður setið í
bæjarstjóm en lendir samkvæmt
könnuninni í einu af efstu sætunum
ásamt þeim Jóni Ásberg Salómons-
syni, Alþýðuflokki, og alþýðubanda-
lagsmönnunum Kristjáni Ásgeirs-
syni og Tryggva Jóhannessyni sem
allir em núverandi bæjarfulltrúar.
Uppstillingamefnd mun ákveða
endanlega röð frambjóðenda á list-
anum en nýtir niðurstöður könnun-
arinnar við það. Að öllum líkindum
munu þessir fjórir þó skipa efstu
fjögur sætin. Sætin þar fyrir neðan
verða síðan ákveðin með tilliti til
reglna um skiptingu sæta milli
flokkanna sem settar vora við stofn-
un Húsavíkurlistans. -KJA
Búnaðarþing sett
Búnaðarþing hófst í gær en fyrir
því liggja um 30 mál. Helstu málefn-
in sem rædd verða em frumvarp til
búnaðarlaga, gæðamat landbúnað-
arvara og mennta- og fræðslumál
bændastéttarinnar.
Við setningu þingsins vom veitt
Landbúnaðarverðlaunin 1998. Þeir
sem hrepptu þau vom ábúendur
jarðanna Gunnarsstaða i Þistilfirði
og Vigur á ísafjarðardjúpi. Verð-
launin em veitt fyrir árangursrík
störf í þágu landbúnaðarins, auk
þess sem býlin sem þau fengu ná að
tengja saman gróna menningu og
nútímabúháttu. -KJA
Rafmagnsleysi
Rafmagnslaust varð í gærkvöld í
Mosfellsbænum og voru sum hverfi
rafmagnslaus í nær tvær klukku-
stundir á meðan á viðgerðum stóð.
Starfsmenn Rafmagnsveitu Reykja-
víkur sögöu í gærkvöld að bilun í
háspennulínu hefði orsakað raf-
magnsleysið. Ekki var alveg Ijóst
hvað það var nákvæmlega sem or-
sakaði bilunina en talið líklegt að
krapahríðin seinni part gærdagsins
hefði átt þar hlut aö máli. -KJA
Eins og sjá má voru bílarnir mjög illa leiknir eftir áreksturinn á laugardagsmorguninn.
DV-mynd S
Banaslys á Vesturlandsvegi:
Ökumaðurinn þungt haldinn
Ökumaöurinn sem slasaðist lífs-
hættulega í árekstri þriggja bíla á
Vesturlandsvegi um kl. 8.30 á laug-
ardagsmorgun liggur enn þungt
haldinn á gjörgæsludeild Sjúkra-
húss Reykjavíkur. Tuttugu og
tveggja ára sambýliskona hans lést í
árekstrinum. Tveir piltar slösuðust
að auki en þeir em ekki í hættu.
Þeir voru í bíl á leið norður Vestur-
landsveg, óku yfir á rangan vegar-
helming, rákust á bíl á suðurleið og
skullu síðan harkalega á næsta bíl
þar á eftir, bíl sambýlisfólksins. Bíl-
stjóri bílsins á norðurleið er grun-
aður um ölvun við akstur. Hann og
félagi hans em báðir fæddir 1980.
Að sögn sérfræðings á gjörgæslu-
deild Sjúkrahúss Reykjavíkur var
hinn slasaði í aðgerð allan laugar-
daginn. Hann er með mikla inn-
vortisáverka, í brjóstholi og kvið,
en enga höfuðáverka. Ljóst þótti í
gær aö hann yrða að vera á gjör-
gæsludeild enn um sinn.
Stúlkan sem lést hét Guðrún
Björg Andrésdóttir. Með sambýlis-
manni sínum átti hún tæplega ell-
efu mánaða gamalt bam.
-sv
Heimilislæknar ósáttir viö úrskurð kjaranefndar:
Vilja eðlilega hækkun á laun
„Við vitum að hópur heimilislækna
er óánægður með úrskurðinn þar sem
hann telur sig standa í stað eða jafn-
vel lækka í launum. Ég reikna með að
viðræðunefndin og heilsugæslumar
vítt og breitt um landið muni kort-
leggja óánægjuna á næstunni," segir
Katrín Fjeldsted, formaður Félags ís-
lenskra heimilislækna.
Eftir um 100 manna félagsfúnd
heimilislækna á fostudagskvöld er
ljóst aö stór hópur er óánægður með
úrskurð kjaranefndar frá 3. mars
síðastliðnum. Katrín segir að ekki
sé um neinar skipulagðar aögerðir
að ræða af hálfu félagsins. Hins veg-
ar sé ljóst að menn hafi verið að
fara utan, í aðrar greinar, og neitað
að vinna við afleysingar úti á landi.
Fjöldinn sé ekki mikill en þó alvar-
leg vísbending um stöðuna.
„Menn vilja ekki sætta sig við
annað en að fá eðlilega hækkun á
laun sín. Sumir eru kannski með há
laun fyrir en þeir vinna langan
vinnudag, miklar vaktir og em
mjög bundnir. Það er margt gott í
úrskurði kjaranefndar en vanda-
málið er að launatölumar em ekki
nógu háar,“ segir Katrín og bætir
við að heilsugæslur hafi átt í erfið-
leikum með að manna stöður úti á
landi. Það verði vart auðveldara ef
launin lækka enn.
„Heilsugæslumar verða að vera
samkeppnisfærar um unga lækna,
ekki bara á grandvelli þess að heim-
ilislækningar séu, eins og ég álít,
ánægjulegasta og skemmtilegasta
sérgrein læknisfræðinnar, heldur
líka af því að hún bjóði upp á góð
starfskjör.“ -sv
Stuttar fréttir dv
Gegn kvennakúgun
í tilefni af baráttudegi kvenna
í gær sendu Bandalag kvenna
og Formannaráð Kvenfélaga-
sambands Islands frá sér yfir-
lýsingu þar sem studd em heils
hugar mótmæli mannréttinda-
samtaka gegn kúgun kvenna í
Afganistan.
Kaninn fílar Laxness
Samkvæmt Mbl. er skáldsaga
Halldórs Kilj-
ans Laxness,
Sjálfstætt fólk,
að koma út i
Bandaríkjun-
um um þessar
mundir í sinni
áttundu prent-
un. Dótturfor-
lag Random
House, Vintage, gefur bókina út
vestra með þessum fádæma mót-
tökum.
Skoraö á borgina
Aðalfundur Starfsmannafélags
Reykjavíkurborgar samþykkti
m.a. um helgina að skora á borg-
aryfirvöld að standa við fyrir-
heit í kjarasamningi um saman-
burð launa starfsmanna borgar-
innar við laun starfsmanna ann-
arra sveitarfélaga og ríkisins.
Gláma/Kím best
Gláma/Kím arkitektastofa,
handhafi Menningarverðlauna
DV 1998 í
byggingarlist,
bar sigur úr
býtum í sam-
keppni um
nýtt og glæsi-
legt íþróttahús
Snæfellsbæjar
í Ólafsvik. Dómnefhd kynnti nið-
urstöður sínar í gær þegar tillög-
ur þeirra þriggja arkitektastofa
sem komust í forval vom sýnd-
ar. Auk Glámu/Kím voru það
Arkþing og Batteríið en alls
sendu 32 stofur inn tillögur í
upphafi.
Þýskum fjölgar
Þjóðverjar munu án efa auka
komur sínar til landsins á árinu.
Samkvæmt RÚV fjölgaði heim-
sóknum Þjóðverja í febrúar um
80 prósent miðaö við sama mán-
uö í fyrra. Þetta hefur m.a. korn-
ið fram á ferðakaupstefnu í
Berlín.
Meira fyrir minna
Loðnufrystingu fyrir Japans-
markað er nær lokið. Samkvæmt
frétt Sjónvarpsins hefúr meira
magn verið fryst en á vertíðinni
í fyrra en fyrir minni pening
sökum smæðar loðnunnar.
Halldór til Bosníu
Halldór Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra fer
utan síöar í
vikunni til
fundar við
ráðamenn í
Bosníu. Sam-
kvæmt RÚV
mun hann
m.a. hitta for-
sætisráðherra
serbneska lýðveldisins, fyrstur
íslenskra ráðamanna, og íslend-
inga í hjálparstarfi þar í landi.
Landssími semur
Landssíminn hefur gert samn-
ing við íslenska hugbúnaðarfyr-
irtækið Stefju og breska fjar-
skiptafyrirtækið Racal Survey
um kaup á tæknibúnaði til upp-
byggingar á sjálfvirku tilkynn-
ingarskyldukei-fi. Samkvæmt
Mbl. hefur Landssíminn jafn-
framt keypt 20% hlut í Stefju.
Kæti í kuldakasti
Skógræktarmenn kætast yfir
kuldakastinu þessa dagana.
Samkvæmt Stöð 2 er frostið að
gera út af við sitkalúsina, einn
mesta skaðvald skóga til þessa á
Fróni.
Aldagömul deila leyst
Aldagömul landamerkjadeila í
Hólmavíkurhreppi, alveg frá því á
14. öld, leystist með nýlegum dómi
í Héraðsdómi Vestfjarða. Deilt var
um landamerki jarðanna Hróf-
bergs og Stakkaness. -bjb