Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1998, Blaðsíða 11
MÁNUDAGUR 9. MARS 1998
11
Fréttir
Skip hafa tekið niðri við Homafjarðarós:
Sandaldan
nú horfin
- segir Sturlaugur Þorsteinsson bæjarstjóri
Sandalda fyrir utan Homafjarðar-
ós, þar sem nótaskipin Húnaröstin og
Jóna Eðvalds hafa bæði tekið niðri
undanfarið, virðist nú vera horfin, að
sögn Stm-laugs Þorsteinssonar bæjar-
stjóra. Farið var með lóðsbát á sunnu-
daginn til að mæla botninn fyrir utan
ósinn og sandeyrin sem myndast
hafði þar sést nú ekki lengur á mæli-
tækjum.
Sturlaugur segir að sandur sem
flyst með straumum að suðurströnd-
inni myndi af og til sandrif sem geti
hamlað siglingaleiðum við ákveðin
skilyrði. Mikifl sandur sé á hreyfíngu
undan ströndinni og því geti sandeyr-
ar sem þessar puðrast upp hvar sem
er en þær færist til eftir því hvernig
stendur á straumum og vindátt. Hann
segir að með tilkomu nýja lóðsbátsins
sé nú hægt að mæla botninn oftar og
kortleggja þessar öldur og að fundir
séu öðru hverju með skipstjórum sem
leggja að á Höfn um hvemig best megi
hafa aðsiglinguna.
„Þetta er engin breyting frá því sem
var,“ segir Stm-laugur. „Þessi skip
rista einfaldlega dýpra en áður og því
geta þau tekið niðri ef ekki er farið
rétt að.“ -Sól.
Borgarbyggð:
Oddviti Sjálfstæð-
isflokksins hættir
DV, Borgarnesi:
Fyrirhugað er að listi Sjálfstæðis-
flokksins í Borgarbyggð verði tilbú-
inn á næstu dögum. Skipuð var fimm
manna kjömefnd þar sem nefndar-
menn em frá ýmsum stöðum í Borg-
arbyggð og mun nefndin skila af sér
um miðjan mars.
Sjáffstæðismenn í Borgarbyggð
hafa nú þrjá menn í bæjarstjórn og
mynda meirihluta með framsóknar-
mönnum sem eiga fjóra fulltrúa. Sig-
rún Símonardóttir skipaði efsta sætið
hjá sjálfstæðismönnum.
„Ég var sú eina af þremur fulltrú-
um flokksins sem lýsti þvi yfir á fund-
inum að ég myndi ekki gefa kost á
mér áfram. Ég er búin að vera í bæj-
arstjóm í átta ár og finnst tími til
kominn að nýtt fólk fái að taka við. Ég
er reyndar búin að starfa að bæjar-
málum lengur, þá sem varamaður,
svo þetta er orðið ágætt," sagði Sigrún
við DV.
-DVÓ
Bergur Jónsson, Ketilsstööum, og sýningarstúikurnar Ásta Matthfasdóttir
og Sandra Valdimarsdóttir í fötum frá Hexa.
DV-mynd Slgrún
Egilsstaðir:
Ný fataverksmiðja
„Ég lít á þetta sem mikilvægt
skref í atvinnuuppbyggingu hér á
Egilsstöðum," sagði Helgi Halldórs-
son bæjarstjóri á fundi þar sem
kynntur var rekstur nýrrar fata-
verksmiðju i bænum.
Það eru HEXA í Kópavogi, Egils-
staðabær og Atvinnuþróunarfélag
Austurlands sem standa að stofnun
hlutafélags um rekstur þessarar
verksmiðju, en auk þess kemur fjár-
magn frá Byggðastofnun, Búnaðar-
sambandi Austurlands og væntan-
lega fleiri aðilum. Nafn verksmiðj-
unnar verður HEXA, fataverk-
smiðja Egilsstöðum. Yfirtekur hún
rekstur saumastofunnar Dyngju á
Egilsstöðum og verður rekin í sama
húsnæði. Dyngja hefur átt erfitt
uppdráttar síðustu ár en hún hefur
framleitt fyrir HEXA síðustu tvö ár,
m.a. galla fyrir hestamenn. Þeir
verða framleiddir áfram hjá nýju
verksmiðjunni og einnig
íþróttafatnaður, einkennisbúningar
og ullarvörur eftir þvi sem markað-
ur leyfir. HEXA hefur aflað sér stað-
góðrar markaðsþekkingar. Gert ráð
fyrir að 15 manns starfi hjá HEXA
til að byija með en síðan verður
fjölgað í 40, sem er sá fjöldi sem hús-
næðiö leyfir.
Bemhard Bogason, forstjóri
HEXA, sagði að hingaö til hefði fyr-
irtækið að mestu keypt sauma af
verktökum en vildi nú efla ímynd
sína með því að framleiða á eigin
vegum. Þeir hjá Hexa álitu að á Eg-
ilsstöðum væru aðstæður hagstæð-
ar, húsnæði og nokkuð af tækjum
til staðar, svo og hæft starfsfólk. Þó
þyrfti að bæta aðstöðuna og kaupa
ýmis tæki til viðbótar. Arðsemisat-
hugim bendir til þess að verksmiðj-
an hafi ágætan rekstrargrundvöll.
Þetta verður ein stærsta fataverk-
smiðja utan höfðuðborgarsvæðisins
og m.a. mun HEXA flytja hingað
framleiðslu sem hún hefur hingað
til verið með á Hellu. -SB
Uið bjóðum
þér að fara með
uiJskipti þin
annað
Þaö reynist oft vel í viðskiptum
að skoöa hlutina frá nýju sjónar-
horni. Þess vegna viljum við benda
þér á Funda- og
framkvæmdadaga
íslandsflugs víðs
vegar um landið.
Þessi þjónusta okkar býður
fyrirtækjum og einstaklingum
flug fram og til baka, bílaleigubil,
fundaraöstööu, málsveröi og
gistingu á einu hagstæðu verðí*
— í einum pakka.
Hugsaðu lengra þegar þú skipuleggur
næsta fund. Það eru góð viðskipti.
Upplýsingar og bókanir
í síma 570 8090.
ÍSLANDSFWG
gertr fteintm fmrt að
Funda- og framkvæmdadagar Islandsfiugs eru I hverrl vlku til 30. apríl nk. og gilda frá þriöjudegi til flmmtudags. Athugiö, allt verð eru per. mann og miðast við að fjórlr séu i hóp, að lágmarki.
Reykjavík - Akureyri
Rug fram og til baka, bílaleigubíll
I einn dag, fundaraðstaða I einn dag
á Fosshótel KEA og hádegismatur.
Samtals: 10.330,-
tAukalega: kr. 4.900,- gteting I eina nón.
morgunverður og þriráttaður kvökJyerður.)
Reykjavik - Isafjörður
Rug fram og til baka, bílaleigublll í
einn sótartirlng, fundaraðstaða I elnn
dag ásamt gistingu á Hótel Isafirði
með morgun-, hádegis- og kvöldverði.
Samtals: 15230,-
Reykjavik - Egilsstaðir
Rug fram og tH baka, bílaleigubíll í
einn sólarhring, fundaraðstaða I einn
dag ásamt gistingu á Hótel Héraði
með morgun-, hádegis- og kvöldverði.
Samtals: 15.530,-
Reykjavik - Vestmannaeyjar
Rug fram og tll baka, bflalejgubfll I einn sólarhring,
fundaraöstaða (einn dag ásamt gistingu á Hótel
Bræðraborg með morgun-, hádegis- og kvöldverði.
Samtals: 13.930,-
Akureyri - Reykjavík
Rug fram og til baka, bflaleigubíll
I einn dag, fundaraðstaða I elnn dag
á Fosshótel Und og hádegismatur.
Samtals: 10.330,-
(Aukalepa: kr. 4.900,- gistino í rina nótt
morounveröur og þriréttaður kvöldveröur.)
Isafjörður - Reykjavik
Rug fram og tll baka, bílaleigubíll I
einn sólarhrlng, fundaraðstaða í einn
dag ásamt gistingu á Fosshótel Und
með morgun-, hádegts- og kvöldverði.
Samtals: 15.230,-
Egilsstaðir - Reykjavik
Rug fram og tll baka, bflaleigubfll f
elnn sólarhring, fundaraðstaða I elnn
dag ásamt gistingu á Fosshótel Lind
með morgun-, hádegis- og kvöldverði.
Samtals: 15.530,-
Vestmannaeyjar - Reykjavík
Rug fram og til baka, bBaleigubíll I sólarhrlng,
fundaraðstaða I einn dag ásamt gistingu á Fosshótel
Und með morgun-, hádegis- og kvökJverðl.
Ss/nfate: 13.930,-
* Þetta Ulboé gUdir til 30. aprfl 1066.
Vlð bjóðum farþegum frá Vesturbyggð, Sauðárkrókl, Siglufirðl og GJÖgrl Funda- og framkvæmdadaga í Reykjavík.
Nánari upplýsingar (sima 570 8090.