Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1998, Qupperneq 29
MÁNUDAGUR 9. MARS 1998
37
Tæknin getur farið
illa með fólk
Þaö má veita því fyrir sér hvort nýafstaðið raftækjaverðstríö sé ein hlið á elt-
ingaleik fólks við tæknina. DV-mynd Pjetur
Er tæknin alveg að buga þig? Get-
ur fólk hreinlega farið yfir um af
allri þeirri tölvutækni sem er að
ryðja sér til rúms? Að sögn kunn-
ugra er það auðveldara en margir
gera sér grein fyrir. Lítum á dæmi.
Oliver Seely, 58 ára prófessor í
efnafræði, fær að meðaltali 100
skilaboð uin tölvupóst á dag. Hann
horfir á franska sjónvarpið í gegn-
um Netið og hlustar einnig á út-
varpsstöð frænda síns í Ohio á sama
hátt. Hann er því umvafinn tækn-
inni hvert sem litið er.
Seely segist ekki geta hugsað sér
lífið án tækninnar. Hann virðist
hins vegar ekki komast undan
henni heldur. „Oft kveiki ég ekki á
tölvunni heima til að láta hana ekki
tæla mig því ég hef ekki lengi gert
neitt örvandi og skapandi,“ segir
hann.
Stella Yu er markaðsstjóri hjá
fyrirtæki í Silicon Valley. Hún er á
Netinu 8-12 tíma á dag vegna starfs-
ins og var jafnvel farin að eyða tölu-
verðu af sínum frítíma á Netinu.
Nýlega fjarlægði hún hins vegar all-
ar tölvur af sínu heimili. „Þetta var
orðið of mikið. Ég var jafnvel búin
að reyna að fá mömmu til að fá sér
tölvupóst í stað þess að leyfa henni
að hringja. Ég er að reyna að
minnka tölvunotkunina en það er
erfitt," segir hún.
Tæknin stjórnar lífinu
Vandamálið sem þessir tveir
einstaklingar glíma við er ótrúlega
algengt. Hraðvirkar tölvur, góðir
farsímar, símboðar og fleiri slík
tæki hafa gefið mörgum gríðarleg-
an fjölda nýrra tækifæra. En því
auðveldara sem það verður að fá
aðgang að tækninni þeim mun lík-
legri er tæknin til að stjóma lífinu.
Þá er hún að ráðast inn á þætti þar
sem hún er ekki alltaf velkomin.
Tæknipirringur
Þetta staðfestist í könnun sem
gerð var á síðasta ári. Þar kom
fram að 59% Bandaríkjamanna
eru hikandi, fælin eða jafnvel
pirruð vegna tækninnar. Sérfræð-
ingar telja jafnvel að of mikil
tækni geti valdið atvinnumissi,
hjónaskilnaði eða jafnvel sjálfs-
morði. Önnur vægari einkenni era
svefntruflanir, menn missa tíma-
skyn (sérstaklega á Netinu), fiöl-
skyldan og sambúðin flosnar upp
og maður hefur of mörg jám í eld-
inum í stað þess að einbeita sér að
eina verki og ljúka því.
Það versta við þetta allt saman
er að maður getur ekki bara staðið
upp og sagt þvert nei við öllum
tækniframfórum. Þá getur maður
alveg eins farið 100 ár aftur í tím-
ann. Menn verða hreinlega að læra
að ná tökum á tækninni eða álag-
inu sem fylgir henni. Og þar sem
fæstir telja sig hafa efni á að draga
úr streymi tækninýjunga verða
menn að ná tökum á álaginu.
Dr. Larry Rosen skrifaði ásamt
öðrum bók um hvernig ætti að ná
tökum á tækninni. Hann segir
skýringuna á þessum áhrifum
tækninnar einfalda. „Áður fyrr
vann fólk frá 9-5. Yfirmaðurinn
hringdi varla heim til starfsmanns-
ins nema að kviknað væri í á
vinnustaðnum. Nú gerir tæknin
þaö kleift að fólk getur alltaf náð í
mann svo þessi mörk eru ekki
lengur eins skýr,“ segir hann.
Hann bendir líka á að tæknin
trufli fólk oft frá því sem það þarf
að gera þannig að það kemur engu
í verk.
Að komast yfir stressið
En hvernig er hægt að komast
yfir þetta tæknistress? Það sem
Rosen ráðleggur er að fyrst eigi að
gera lista yfir þau tæknitól sem
maður notar á venjulegum degi. Síð-
an eigi að kanna hvort maður geti
verið án einhverra þessara tóla.
Þarf nokkuð farsíma í bílinn eða
mjög fullkomna útvarpsvekjara-
klukku?
Ef maki eða bam vanrækir fiöl-
skylduna meö þvi að sitja heOu
klukkutímana fyrir ffaman tölvuna
er skárra að setja því raunhæf tak-
mörk tO að minnka vistina þar. Ef
síminn er sífeUt að hringja á mat-
málstímum er gott að setja inn á
símsvarann skOaboð um hvenær
maður svarar í símann og hvenær
ekki. Menn eiga ekki að vera
hræddir við að segja fólki hvenær
sé best að ná sambandi við mann og
hvenær megi aOs ekki hringja. Það
er fólkið sem verður að setja mörk-
in. Tæknin gerir það ekki fyrir
mann. -HI/ABCnews
Mynd eftir pöntun
Myndbandaleigur munu líklega missa spón úr askinum
sínum ef menn geta pantaö myndir beint í sjónvarpstæk-
iö sitt. DV-mynd GVA
Nú er komin tækni í stafrænt
sjónvarp sem hefur verið hampað
nokkuð af skemmtiiðnaðinum.
Tækni þessi hefúr verið tO í nokkur
ár en hefur fram að þessu verið of
dýr tO aö veröa almenningseign. Nú
er það að breytast. Þessi nýja tækni
kaUast mynd eftir pöntun (Video-on-
demand).
Setjum sem svo að maður sé
heima hjá sér að kvöldi tU, hafi ekk-
ert að gera og sjónvarpsdagskráin
sé hundleiðinleg. Þá er hægt að
stiUa á sérstaka rás í tækinu og fá
lista yfir um 500 bíómyndir. Svo vel-
ur maður bara hvaða mynd maður
viU horfa á. Ef maður er ekkert hrif-
inn af að horfa á eitthvað svo langt
er kannski hægt að horfa á seinasta
þáttinn úr Frasier eða Vinum sem
maður missti af síðast.
Miklir fjárrnunir
Fyrst var boöið upp á slíka þjón-
ustu snemma á þessum áratug.
Time Wamer eyddi þá gríðarlegum
fiármunum í þróun á slíkri tækni
sem hafði það í för með sér að
venjulegur maður hafði engan veg-
inn efhi á þessu. Menn komust þó
að því að áhugi var á slíkri þjónustu
fengist hún á lægra verði. Nú eru
stafræn sjónvörp sem kosta ríflega
21.000 krónur í Bandaríkjunum fá-
anleg fyrir þá sem eru með kapal-
sjónvarp. Sérstakir skjalaþjónar
(FOeservers), sem geyma upplýsing-
ar um myndir og þætti, eru einnig
töluvert ódýrari.
Markaðurinn fyrir slíka þjónustu
er nokkuð augljós. í Bandaríkjun-
um fara um 560 mOljarðar króna í
að leigja myndbönd. Þessi hópur
væri feginn því að losna við aOt ves-
enið sem fylgir því að fara á leig-
una, taka mynd og skOa henni síðan
aftur. Nú þarf aðeins að smeOa
nokkrum sinnum á fiarstýringuna
tO að fá mynd
við sitt hæfi í
sjónvarpstækið.
Af þessum sök-
um er ólíklegt
að myndbanda-
leigur taki
þessu fagnandi.
UmfiöOun
um svona þjón-
ustu gegnum
sjónvarpið hef-
ur nokkuð faO-
ið í skuggann af
umfiöOun um
netþjónustu
gegnum sjón-
varpið. Það er
kannski ekki skrýtið í ljósi þess
hvað netnotendum fer fiölgandi með
degi hverjum. Menn eru samt ekki á
einu máli um hvort menn muni
nokkum tímann nota sjónvarpið á
sama hátt og þeir nota tölvur í dag.
Þetta er að margra mati betri kost-
ur.
Margir eru á því að þetta muni
fljóOega seljast vel. Sjónvarpið eins og
það sé í dag gangi ekki upp því með
tOkomu Netsins vilji fólk fá þær upp-
lýsingar sem það vill þegar það viU en
ekki á tímum sem hentar sjónvarps-
stöðvunum. -HI/MSNBC
STÓR • ÚTSÖLU • LOK I
Enn meiri afsláttur
Úlpur 3.900.- áður 12.900.-
Kápur 7.900.- áður 19.900.-
£fíáf»usalan
Nytt heimilisfang Suáurlandsbraut 12,
simi 588 1070
GÍTARINN
Laugavegi 45a, sími 552 2125
FEfímnoES
Tilboð á Fernandes
rafgíturum
Útsala
rafmagnsgítar og magnari
verð áður kr. 27.900,
nú kr. 19.900
Utsala
Hjólabretti
50% afsláttur
Sanpellegrino
Sportbúð • Títan
Seljavegur 2
Pósthólf 1180
121 Reykjavík
Sími 551 6080
Fax 5S2 6-488
Opið mán. - fös. S-18.
Breitt teyjuband í
mittið til að
buxumar fari vel.
b
Styrking við maga
svæðið.
Stigvaxandi teyjustuðn-
ingur við fótleggina