Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1998, Qupperneq 6
I
lönd
LAUGARDAGUR 14. MARS 1998
Njósnamálið í Noregi eins og endurtekning á kaldastríðsnjósnum:
Ekkert gleymt
og ekkert lært
DV, Ósló:
Seinn Lamark, öðru nafni njósn-
arinn Gunnar, ætlar að skrifa sögu
sína sem fulltrúi í norska félags-
málaráðuneytinu. Grámóskuleg til-
vera fulltrúans var nefnUega krydd-
uð með leynifundum í almennings-
görðum og undir kirkjuveggjum;
þungbrýnum Rússum á ryðguðum
Lödum og peningum í brúnum um-
slögum, alveg eins og í alvöru
njósnasögum.
Sveinn Lamark, öðru nafni
njósnarinn Gunnar, var nefnUega
gagnnjósnari og hefur nú valdið
Rússum verstu skráveifunni á al-
þjóðavettvangi frá faUi Sovétríkj-
anna. Sveinn segir að Rússar hafi
stuttar fréttir
Njósnara leitað
Leitin að Rússunum, sem stund-
uöu njósnir í Noregi, fór meðal
annars fram á fundi Norðurlanda-
ráðs í Helsinki í nóvember síðast-
liðnum. Einn eða fleiri Rússar
voru mættir þar tU að hafa sam-
band við norskan tengiliö.
I
Undarleg staða
Fyrrum lögmanni Færeyja,
Maritu Petersen, þykir það undar-
legt og rangt að þingmenn Fær-
eyja geti haft áhrif á hver verður
forsætisráöherra í Danmörku.
lörast ekki
Rússneski þingmaðurinn Vla-
dimir Zírínovskíj viðurkenndi i
gær að hann
hefði ekkiáttað
skvetta vatni á
félaga sína í
þinginu. Hann
kvaðst hins veg-
ar ekki iðrast
þess og sagðist
hafa haft sínar
ástæður fyrir aðgerðum sínum.
Fórust í snjóflóði
Gömul hjón fórust i snjóflóði í
Skeljafirði í Lófóten f fyrrinótt.
Um 300 metra breitt flóð skaU á
húsi þeirra og sópaði því út í sjó.
Lík hjónanna fundust í gær.
Ráðherra rekinn
Prodi, forsætisráðherra Ítalíu,
rak í gær aöstoðarráðherra sem
grunaður er um mafiutengsl.
Reuter
I
Olían ódýr
Bensín- og olíuverð féU hratt í
vikunni sem er að liða og hefur ekki
verið lægra síðan 1973, eða skömmu
áður en olíuríki Mið-Austurlanda
settu oliusölubann á vesturveldin
fyrir stuðning þeirra við ísrael í
hernaði þess gegn Aröbum.
VerðfaUið á olíu og bensíni hefur
veriö nokkuð jafnt og stööugt frá ár-
inu 1997. Þá var meðalverö olíu á
heimsmarkaði 19,30 doUarar fyrir
hverja tunnu sem er um 170 lítrar.
Nokkur uppsveifla varð þó á síðasta
vetri en þá steig verðið upp í 25 doU-
ara en í gærmorgun var það komið
niður í 12,25 dollara.
Fahd, hinn 76 ára gamli konung-
ur Saudi-Arabíu, stærsta olíufram-
leiðsluríkis heims, hefur hingað til
ekki vUjað ljá máls á því að draga
úr olíuframleiöslu landsins tU að
knýja fram hærra olíuverð. Vitað er
að AbduUah krónprins hefur þver-
öfuga stefnu. Þaö er því nokkuð
komiö undir langlífi konungsins
hvort hiö lága olíuverð helst
stöðugt. Reuter/SÁ.
fyrst haft samband við sig fyrir fjór-
um árum og eftir tugi funda voru
þeir farnir að treysta honum full-
komlega. Njósnarinn Gunnar kom
með skjöl en var harður í kröfum
um greiöslur.
Rússamir vUdu fá að vita um aUt
sem gerðist á skrifstofu forsætisráð-
herra Noregs. Þeir vildu vita allt
um fyrirætlanir Norðmanna í
Barentshafi og á Svalbarða og aUt
um vamarsamstarf Norðmanna
innan Nato. Þeir höfðu samband við
fjóra tU fimm Norðmenn í von um
að fá mikilvægar upplýsingar.
Sveinn hafði aUan tímann náið
samband við norsku leyniþjónust-
una, POT, og afhenti Rússunum
fólsk skjöl um leið og hann reyndi
að komast yfir sem mestar upplýs-
ingar um njósnanet Rússa í Noregi.
Þetta er eins og í gömlu góðu
njósnasögunum frá kaldastríðsár-
unum og svo virðist sem KGB lifi
enn og noti enn sömu njósnahand-
bókina óendurskoðaða. Ekkert er
gleymt og ekkert lært.
Meira að segja njósnararnir eru
þeir sömu. Höfuðpaurinn, Jevgeníj
Serebrjakov, var fyrst afhjúpaður
sem KGB-maður af Oleg Gordievskíj
árið 1982. Sérgrein hans var og er
Norðurlönd. Hinir fjórir í hópnum,
sem nú hefur verið rekinn frá Nor-
egi, eru minna reyndir.
Njósnamálið er auðvitað alvar-
legt áfall fyrir Rússland en það er
líka mjög óþægilegt fyrir ríkisstjórn
séra Kjell Magne Bondevik í Noregi.
Bondevik ætlaði á þriðjudaginn til
Moskvu, beinlínis til að leysa þar
þrætuna um skiptingu landgrunns-
ins í Barentshafi og væntanlega til
að treysta vináttuna við Rússa
vegna Smugudeilunnar við íslend-
inga. Þetta er nú vonlaust.
Margir hér í Noregi spyrja sig þess
vegna þvers vegna njósnamálið kem-
ur upp einmitt nú. Norska stórblaðið
Verdens Gang hefur vitað um njósn-
imar í hálft ár og gat sprengt sprengj-
una hvenær sem var. Ef það hefði
gerst meðan Bondevik var í Moskvu
hefði málið orðið að alvarlegri milli-
ríkjadeUu. Þess vegna ákvað norska
ríkisstjórnin að verða fyrri tU og
sprengja sprengjuna sjálf. -GK
Albanir geröu sigurtákn og hrópuðu að þeir gæfust ekki upp er þeir mótmæltu í gær hryðjuverkum Serba í Kosovo.
Símamynd Reuter
Tugþúsundir mótmæla
Tugþúsundir Albana efndu tU
mótmæla í gær i Pristina, höfuð-
borg Kosovo, gegn hryðjuverkum
Serba. Báðu Albanir þjóðir heims
um aðstoð við að binda enda á
ofbeldi serbnesku lögreglunnar. Um
áttatiu manns hafa fallið fyrir hendi
serbneskra lögreglumanna síðan 28.
febrúar.
Yfirvöld í Serbíu hafa reynt að
lægja alþjóðlega gagnrýni gegn
ofbeldisaðgerðum lögreglunnar í
Kosovo með því að bjóða samn-
ingaviðræður. En eftir að bandarísk
yfirvöld lýstu því yfir að þau væru
sammála Albönum um að um
áróðursbragð væri að ræða ítrek-
uðu leiðtogar Albana í gær að þeir
hygðust ekki semja um neitt annað
en sjálfstæði Kosovo.
Forseti Júgóslavíu. Slobodan
Milosevic, sem í raun ákveður
stefnu Serba gegn Kosovo, sagði
reiðilega í gær aö hann sæi enga
ástæðu fyrir Albana að hafna
viðræðum. Að loknum fundi með
Leni Fischer frá Evrópuráðinu lýsti
Milosevic þvi enn á ný yfir að
deilan um Kosovo væri innan-
ríkismál.
Um fjórtán þúsund Albanir hafa
hrakist frá heimkynnum sínum í
Drenica af ótta við Serba.
Kauphallir og vöruverð erlendis
New York
London
Frankfurt
Tokyo
Hong Kong
Bensín 95 okt. !■ Bensín 98 okt.
Hráolía
2000 SSSSSSSS
1500 ö
10005
500
1 M
o* £ | rnt
$/t D
J
M
0
$/
tunnaQ J p
M
fTTOl
Til borðs með
njósnaranum
DV, Ósló:
Gamli KGB-refurinn Jevgeníj
Serebrjakov var þreyttur mað-
ur, grár og gugginn þegar
fréttaritari DV sat til borðs með
honum í Ósló á miðvikudaginn.
Sem sérfræðingi um Barents-
hafssvæðið var honum boðið til
að vera við kynningu á mikilli
kortabók um svæðið. Bókin
fjallar að mestu um endalaust
mengunarfenið sem Rússar eiga
óhreinsað á Kólaskaga. Serbrja-
kov sat niðurlútur undir lestr-
inum. Hann var búinn að kaupa
dýrum dómum allt sem í bók-
inni stóð af norskum hjálpar-
kokkum sínum og svo lá bókin
hér gefins fyrir alla sem vildu.
Daginn eftir var hann svo af-
hjúpaður. -GK
Dómsmálaráð-
herra grunaður
um afbrot
ísraelska dómsmálaráðuneyt-
ið hefur staðfest að fyrirskipuð
hafi verið rannsókn á meintum
afbrotum dómsmálaráðherra
ísraels, Tsahis Hanegbis. Er
ráðherrann grunaður um fjár-
svik og mútuþægni þegar hann
á árunum 1995 til 1996 var for-
sfjóri fyrirtækis sem sá um um-
ferðaröryggi. Hanegbis sat á
þingi fyrir Likudflokkinn á
þessum tíma.
Dagblaðið Maariv skrifar aö
lögreglunni hafi verið falið að
rannsaka hvort Hanegbi hafi
notað fiárframlög til fyrirtækis-
ins í eigin þágu.
Kynlíf með for-
stjóranum
leiddi til aukins
starfsframa
Meiri hluti bandariskra
kvenna, eða 64 prósent, segir
að ástarsamband við forstjór-
ann hafi leitt til aukins starfs-
frama. Þetta er niðurstaða
skoðanakönnunar sem samtök-
in Oasis Foundation gerðu. 12
þúsund konur tóku þátt í könn-
uninni. 10,8 prósent viður-
kenndu að hafa stundað kynlíf
með forstjóra sínum. 55 prósent
kváðust hafa velt þvi fyrir sér
að tæla forstjórann. Aðeins 19,2
prósent töldu að Monica Lewin-
sky hefði gert mistök ef satt
væri að hún hefði staðið í ást-
arsambandi við Bill Clinton
Bandaríkjaforseta.
Bandaríski lögmaöurinn
Rosalie Osias hefur lýst yfir
stuðningi við Monicu. „Hún
hugsaði alveg rétt og það á ekki
að refsa henni fyrir það.“ Hefur
Rosalie boðið Monicu fiárhags-
lega aðstoö. Sjálf komst Rosalie
áfram í lögmannsstarfinu með
þvi að birta auglýsingar með
myndum af sér í netsokkum,
minipilsum og flegnum flíkum í
tímaritum bransans. „Núna er
ég fulltrúi 40 banka,“ segir hún.
Einn snafs á
dag kemur
skrokknum í lag
Konur á aldrinum 50 til 60 ára
og karlar eldri en 40 ára geta
dregiö úr hættunni að fá hjarta-
og æöasjúkdóma drekki þau
nokkra sentílítra af alkóhóli á
dag, aö því er sænskir vísinda-
menn halda fram.
Áöur hafa vísindamenn sagt
rauðvín vera heilsubót en sífellt
fleiri rannsóknir sýna aö það er
alkóhóliö sjálft sem í vissum til-
fellum er heilsubætandi. Þeir
sem drekka alkóhól í hófi eiga
1 síöur á hættu að fá kransæöa-
j sjúkdóma en þeir sem eru bind-
I indismenn. Jafnvel hættan á
/ blóðtappa og æðakölkun
íj minnkar.
I
I