Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1998, Qupperneq 5
MIÐVIKUDAGUR 25. MARS 1998
5
I>V
Eskifjöröur: Loðnuskipin veiddu kvótann
DVIEskifirði:
AUs bárust að landi hér á Eski- firði 49.600 tonn af loðnu frá áramót- um. 44.864 tonn fóru i bræðslu en um 4.800 tonn í frystingu. Loðnuskip Hraðfrystihúss Eski- fjarðar náðu að veiða aUan sinn loðnukvóta á vertíðinni, þrátt fyrir verkfaU. Afli Hólmaborgar eftir ára- mótin var 25 þúsund tonn en Guð- rúnar Þorkelsdóttur 12 þúsund tonn. Mikið var um að vera meðan á loðnufrystingu stóð og unnið á vökt- um aUan sólarhringinn. Reyndist loðnufrystingin gott búsflag fyrir margan manninn. Liðlega tvítugur systursonur tengdadóttur minnar kom úr atvinnuleysinu í Reykjavík, vann hér í 10 daga og hafði 150 þús- und krónur upp úr krafsinu. Já, AUi riki greiðir sínu fólki góð laun.Regina Húsavík: Aðalsteinn efst- ur hjá Framsókn
DV, Akureyri:
Aðalsteinn Skarphéðinsson bygg- ingameistari skipar efsta sætið á lista Framsóknarflokksins við bæjarstjóm- arkosningamar í vor. Framboðslisti flokksins var samþykktur samhljóða á fundi fuUtrúaráðs flokksins. Næstu sæti listans skipa: 2. Anna Sigrún Mikaelsdóttir húsmóðir, 3. Gunnlaugur Stefánsson fram- kvæmdastjóri, 4. Elsa Guðbjörg Borgarsdóttir húsmóðir, 5. Sveinn V. Aðalgeirsson sölustjóri, 6. Sólveig Sveinbjörnsdóttir fiskvinnslumaður, 7. Karl Hreiðarsson nemi, 8. Hulda Salómonsdóttir sjúkraliði, 9. Bene- dikt Kristjánsson húsasmíðameist- ari, 10. Ævar Ákason bókari. -gk Landbrot: Viðgerð hafin
DWik:
„Þeir komu í gærmorgun frá Vegagerðinni til að meta ástandið og fóm svo í aðgerðir strax. Þetta horf- ir til betri vegar i bfli,“ sagði Ámi Jón Elíasson, oddviti Skaftárhrepps, í viðtali við DV. Endurbætur á veginum niður í Landbrot neðan við Kirkjubæjar- klaustur hófust í gær eftir að DV birti frétt af veginum. „Þessi vegur flokkast til svokafl- aðra tengivega og fjárveitingar til þeirra hafa verið vægast sagt skelfi- lega lágar. Ekki í samræmi við ástand þessara vega og umferðar- þunga og í svona tíð eins og hefúr verið undanfarið verður ástandið á þeim óviðundandi. Vegurinn niður í Landbrot hefur verið á forgangslista af þessum tengivegum hér í upp- byggingu en fjárveitingar hafa veriö svo knappar að þetta hefúr gengið allt of hægt,“ sagði Árni Jón. Gylfi Júlíusson, rekstrarstjóri hjá Vegagerðinni í Vík, sagði að ekið heíði verið í verstu hvörfin en það væru bara bráðabirgðaviðgerðir. I dag á að strjúka yfir þetta með hefli. í næstu þíðu má reikna með að þetta fari i sama farið aftur. NH HvaLfjaröargöng: Tveir kærðir
DYAkranesi:
Tveir ökumenn hafa veröir kærð- ir fyrir að aka í gegnum Hvalijaröar- göng í leyfisleysi. Þeir em kærðir fyrir innbrot, - fyrir að hafa brotist inn á lokað vinnusvæði í Hvalfirði. Málin fara sína leið í dómskerfmu og ættu að vera þeim til vamaðar sem hyggja á að stelast í gegnum göngin. Mikfl ásókn var í að fara undir Hvalfiörð að nóttu sem degi. Verktakinn í göngunum hafði i nógu að snúast við að koma í veg fyrir að óviðkomandi vegfarendur hreinlega træðu sér í gegnum göngin. Settir vom tálmar beggja vegna ganganna en þeir dugðu skammt. Dæmi vom um að þeir frekustu hreinlega óku á slár, sem loka vegin- um, og fóm þannig í gegntun hindran- imar. Tveir ökumenn vora staðnir að- verki og kærðir til lögreglu. DVÓ
Fréttir
Kosningabaráttan aö heQast á Akureyri:
Akureyringar kjósa ekki
síður um menn en mál
DV, Akureyri:
Eins og staðan er í dag geta Ak-
ureyringar valið á milli þriggja lista
þegar þeir ganga til kjörklefanna
við bæjarstjórnarkosningar í lok
maímánaðar. Það kann þó að breyt-
ast og valkostunum að fjölga. Oddur
Helgi Halldórsson, bæjarfulltrúi
Framsóknarflokksins hefgur
ákveðið framboð ásamt hópi manna
og þá hefur Pétur Jósefsson fast-
eignasali enn ekki kveðið upp úr
með það hvort hann og „fleiri
óánægðir" í kringum hann blása til
framboðs en Pétur hefur þó ítrekað
gefið slíkt í skyn.
Áhugi Akureyringa, sjálfra kjós-
endanna, virðist þó takmarkaður og
skiptir sennilega litlu máli hvort
framboðslistamir sem þeir geta val-
ið á milli verða þrír, fjórir, eða
fimm talsins. Það er reyndar ekki
ný bóla á Akureyri að þar sé lítill
áhugi þegar pólitíkin er annars veg-
ar, það hefur lengi viljað loða við
bæinn og i skoðanakönnun á dögun-
um vildi aðeins um helmingur allra
sem talað var við gefa upp hvað þeir
hygðust kjósa í vor. Einhver kann
að segja að það sé allt í lagi að fólk
sé óákveðið, flokkarnir hafi ekki
enn kynnt stefnuskrár sínar og
nægur sé tíminn fyrir fólk að taka
ákvörðun. Mér segir hins vegar svo
hugur að það breyti ekki mjög
miklu þótt lagðar verði fram stefnu-
skrár sem væntanlega verða ekki
svo frábrugðnar hverri annarri.
Ekki mikill ágreiningur
Og það er e.t.v. mergurinn máls-
ins að svo virðist sem málefnaá-
greiningur sé ekki mikill milli
„gömlu flokkanna" og það er i sjálfu
sér ekki svo mikil breyting þótt
tveir þeirra, Alþýðuflokkur og Al-
þýðubandalag, fari nú fram saman
ásamt Kvennalista undir merkjum
Akureyrarlistans. Þetta hafa fulltrú-
ar framboðanna staðfest og eins það
að kjósendur, margir hverjir a.m.k.,
séu allt eins að velja á milli manna
en ekki málefna þegar þeir koma í
kjörklefann.
Það er borð-
leggjandi að stór
hluti ráðstöfunar-
tekna bæjarins á
næstu árum mun
fara til skóla-
mála, bæði til
áframhaldandi
uppbyggingar
grunnskólans og
til reksturs. Um
þetta verður ekki
deilt. Það verður
heldur ekki deilt
um hefðbundin
fjárframlög til
menningarmála,
áframhaldandi
vinnu við frá-
veitukerfi bæjar-
ins, framlög til
umhverfismála,
atvinnumála og
áfram mætti telja
hina hefðbundnu málaflokka sem
ávallt taka sitt. Svo furðulega sem
það kann annars að hljóma þá er
ekki ólíklegt að það mál sem aðal-
lega verður tekist á um í kosninga-
baráttunni verði uppbygging
íþróttamannvirkja í bænum.
Tekist á um knattspyrnuhús?
Það fer ekki leynt að mörgum
finnst sem íþróttirnar taki sífellt til
sín stærri bita kökunnar sem til
skiptanna er, og þá sérstaklega
bygging íþróttamannvirkjanna.
Talsmenn þess að draga saman segl-
in hvað þetta varðar gerast sífellt
háværari en hinir eiga einnig sína
talsmenn.
Bygging knattspyrnuhúss er það
DV-mynd EJ
Frá Akureyri.
mál sem sennilega mun bera hæst.
Svo virðist sem íþróttafélagið Þór
hafi gefist upp á að reyna að knýja í
gegn byggingu íþróttahúss á félags-
svæði sínu með löglegum völlum
fyrir handbolta og körfubolta með
aðstöðu fyrir áhorfendur, þótt áður
hafi mikið verið rætt um nauðsyn
þess. Það sem Þór
á að fá í staðinn
hefúr til þessa
a.m.k. átt að vera
yfirbyggt knatt-
spymuhús, en á
fundi bæjar-
stjómar á dögun-
Þarna fara þrír
„þungavigtar-
menn“ í sveitar-
stjórnarmálum og
kosningabaráttan
á Akureyri mun
án efa bera þess
mikinn svip að
Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóra-
efni Sjálfstæöisflokksins, ef flokkur-
inn fer í meirihluta.
Fréttaijós
.............
Gylfi Kristjánsson
Ásgeir Magnússon, oddviti Akureyr-
arlistans og einn bæjarstjóranna
þriggja sem bjóöa sig fram á Akur-
eyri.
þarna era
menn sem ætla
sér mikið.
Frammistaða
þeirra kann
einnig að ráða
úrslitum fyrir
flokkana því
það er altalað á Akureyri að þar
verði ekki síður kosið um menn en
málefni að þessu sinni.
Framsókn sigraði 1994
Framsóknarflokkurinn var ótví-
ræður sigurvegari kosninganna fyr-
ir fjórum áram og
nutu framsóknar-
menn þess mjög þá
að óeining og ósætti
var mikið í Sjálf-
stæðisflokknum að
undangengnu próf-
kjöri þar. Stuðn-
ingsmenn Jóns Kr.
Sólness sættu sig
ekki við það sem
fram fór og niður-
stöðuna og svo fór að Jón tók ekki
sæti á lista flokksins. Altalað var að
stuðningsmenn hans ætluðu flestir
að kjósa Framsóknarflokkinn og
Framsókn vann stórsigur og fékk
fimm bæjarfulltrúa af ellefu.
Framsóknarflokkurinn myndaði
svo meirihluta
í bæjarstjórn
með eina bæj-
arfulltrúa Al-
þýðuflokksins.
Segja má að
það samstarf
hafi gengið
stóráfallalaust
en þó hrikti í
stoðunum þeg-
ar ÚA-málið
svokallaða var
í brennidepli
snemma á kjör-
tímabilinu en
þar var tekist á
um sölumál Út-
gerðarfélags
Akureyringa.
Þetta var mikið
hávaðamál en
þó var ekki
þegar allt kom
til alls svo mik-
ill ágreiningur
um endanlegu niðurstöðuna, að SH
fengi áfram að annast sölumál ÚA
en ÍS sat eftir þótt það væri vilji
framsóknarmanna að færa ÍS þessi
viðskipti.
Nýtt fólk í stólana
Sjálfstæðismenn mæta með lítið
breyttan framboðslista frá kosning-
unum 1994 hvað varðar efstu sætin.
Björn Jósef Arnviðarson sem var í
2. sæti gerðist þó sýslumaður á yfir-
standandi kjörtímabili og hvarf úr
pólitík og Kristján Þór kemur í
fyrsta sæti listans. Hjá Framsókn
verða þrír bæjar-
fulltrúar af þeim
fimm sem nú sitja í
framboði áfram í
efstu sætunum.
Akureyrarlistinn
skartar hins vegar
„nýju fólki“. Bæj-
arfuUtrúar Alþýðu-
bandalagsins og
Alþýðuflokks
draga sig aUir til
baka og hleypa nýju fólki að, fólki
sem ekki hefur setið í bæjarstjórn
áður. Og svo liggur ekki fyrir hvort
Akureyringar fá fleiri framboðslista
tU að velja á miUi. -gk
Jakob Björnsson bæjarstjóri.
DV-mynd, gk.
um var feUd tU-
laga bæjarfuU-
trúa úr þremur
flokkum um að
ráðist yrði í
byggingu slíks
húss þegar á
þessu ári. Þetta, sem og önnur fram-
lög tU íþróttamála í bænum, verða
að öUum líkindum fyrirferðarmikið
í kosningabaráttunni á Akureyri.
Prír bæjarstjórar takast á
Annað sem mun vekja athygli er
sú staðreynd að þrír fyrrverandi og
núverandi bæjarstjórar verða í eld-
línunni sem oddvitar sinna fram-
boða. Þetta eru Jakob Björnsson,
Framsóknarflokki og núverandi
bæjarstjóri, Kristján Þór Júlíusson,
sem leiðir lista Sjálfstæðisflokksins
en hann er fyrrverandi bæjarstjóri
á ísafirði og á Dalvík, og Ásgeir
Magnússon, sem leiðir Akureyrar-
listann er fyrrverandi bæjarstjóri á
Neskaupstað.