Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1998, Side 14
14
MIÐVIKUDAGUR 3. JÚNÍ 1998
Útgáfufélag: RJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjérnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON
Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON
Auglýsingastjóri: PÁLL ÞORSTEINSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaöaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI11,105 RVÍK,
SÍMI: 550 5000
FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999
GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777
Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/
Vísir, netútgáfa Frjálsrar flölmiðlunar: http://www.visir.is
Ritstjórn: dvritst@centrum.is - Auglýsingar: dvaugl@centrum.is. - Dreifing: dvdreif@centrum.is
AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, biaðam.: 462 6613, fax: 4611605
Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Filmu- og plötugerð: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF.
Áskriftarverð á mánuði 1800 kr. m. vsk. Lausasöluverö 160 kr. m. vsk., Helgarblað 220 kr. m. vsk.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins (stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Sverrir safnar liði
Sverrir Hermannsson hefur nú safnað að sér
harðsnúnum íjandaflokki kvótakerfisins og sagt því stríð
á hendur. Símtal Davíðs Oddssonar við hann, hálftíma
eftir að hann kom úr frægri Svíþjóðarreisu, gæti því
sporðreist íslenskri pólitík um stund.
Á sínum tíma hrökklaðist Albert Guðmundsson út úr
ríkisstjóm. Honum tókst að vinna samúð almennings og
mynda stjórnmálaflokk. Borgaraflokkurinn lét ekki
aðeins að sér kveða á Alþingi, heldur náði að brjóta sér
leið inn í Stjórnarráðið sjálft.
Þegar Albert stofnaði Borgaraflokkinn hafði hann
ekkert fast undir fótum nema samúð almennings. En
reynslan sýnir að hún snýst ótrúlega fljótt á sveif þeirra
sem fólk skynjar í andófi gegn valdaklíkum
samfélagsins.
Jafnvel þeir, sem hrekjast úr embætti vegna meintrar
spillingar, geta risið upp í ásýnd almennings sem
sérstakir krossfarar gegn spiUingu samfélagsins. Það er
örgrunnt á þessa furðulegu þverstæðu í tvílráðu eðli
kjósenda. Það sannar sagan.
Tvennt gæti snúið samúðinni með Sverri. Annars
vegar líkar íslendingum vel við strigakjafta sem tala út
úr fornsögunum og hanga á blábrúninni í ummælum um
andskota sína. Haglabyssuhótunin er þó dæmi um
hvemig orðhákarnir geta étið sjálfa sig á augnabliki.
Hins vegar gæti Sverri tekist að draga upp mynd af
sjálfum sér sem vígamanni í krossferð gegn samsæri
valdamikilla afla til að hylma yfir pólitíska spillingu. í
þeim efnum er honum fært allt í hendur.
Samansúrruð viðleitni til að þagga niður Lindarmálið
mun til dæmis verða honum lifandi dæmi um hvers
konar öfl hann berst við. Þannig er Sverri beinlínis fært
á silfurdiski hlutverk heilags Georgs sem einn síns liðs
leggur til atlögu við hinn klassíska dreka.
Sverrir er líka í betri færum til að stofna pólitíska
hreyfingu en Albert á sinum tíma. í fyrsta lagi nýtur
hann stuðnings sterkra manna, sumra þaulreyndra á
hinu pólitíska sviði. Þá hafði Albert enga. Fram að
kosningum kann honum að safnast fleiri slíkir í liðið.
í annan stað er andúðin á kvótakerfinu inngróin í
stóran hluta þjóðarinnar. Málflutningur hans er því
líklegur til að ná meiri pólitískri viðspyrnu en
Borgaraflokkurinn. Allir skilja ranglætið í eignamyndun
örfárra sægreifa í gegnum kvótann.
Kvótakerfið, þar sem útvaldir fá að nytja eign
almennings án endurgjalds, er orðið að táknmynd fyrir
stjómmál sem snúast ekki lengur um fólk. Það misbýður
réttlætiskennd íslendinga. Fyrir slyngan orðhák er
mögulegt að beisla ólguna í öfluga hreyfingu.
Markmið Sverris er augljóslega að kljúfa Sjálfstæðis-
flokkinn og mála Framsókn litum spillingarinnar.
Herkvaðning gegn ranglæti kvótakerfisins og barátta
gegn meintri yfirhylmingu í Lindarmálinu gætu orðið að
skæðum vopnum í höndum hans.
Tíminn, sem valinn er til að kynna stofnun hins nýja
flokks, er hins vegar fráleitur. Það mun reynast mjög
erfitt að halda í lausafylgi sem á bemskudögum kann að
sópast undir væng nýrrar hreyfingar. Flug að sumri
getur hæglega endað í brotlendingu með hausti.
Andstæðingar Sverrir halda hins vegar áfram að rífa
honum hrís í vendi sem hann keyrir á hrygglengju
þeirra. Það er hans helsta vopn. Þögn og afskiptaleysi
em hins vegar líklegust til að leggja hinn nýja flokk
snimmhendis.
Össur Skarphéðinsson
Hálendið eign
ríkisins
Kjallarinn
Sigurður Líndal
prófessor
nýtingu hálendis-
svæðanna. Þessi
fullveldisréttur er
í höndum þjóðar-
innar sem felur
hann löggjafan-
um. Með því að af-
henda ríkinu eign-
arréttinn selur
löggjafinn hand-
höfum fram-
kvæmdavalds, í
þessu tilfelli for-
sætisráðherra, í
hendur forræði
landsins og opnar
stjómlyndum
handhöfum þess
leið til að skerða
almannarétt.
„Ef Hæstiréttur hefði dæmt rík-
inu eignarrétt að hálendissvæd-
unum, og hinir gagnrýnu lög-
menn væru sjálfum sér sam-
kvæmir, hefði heyrzt hljóð úr
horni.u
Þótt hart sé deilt um
stjórnsýslu á hálendi ís-
lands virðist almenn
samstaða um það ákvæði
svokallaðs þjóðlendu-
frumvarps að íslenzka
ríkið verði lýstur eigandi
lands og hvers konar
landsréttinda og hlunn-
inda í þjóðlendum sem
ekki era háö eignarrétti.
í athugasemdum er það
tekið skýrt fram að eng-
in óumílýjanleg nauðsyn
sé að lögum til að allt
land sé háð eignarrétti
að einkarétti. Skýr
ákvæði um forræði á
landi utan eignarlanda
ættu að vera nægjanleg.
Engin sérstök rök eru
færð fyrir nauðsyn rikis-
eignar að hálendissvæð-
unum í athugasemdun-
um. Þessu virðast ráða
einhver lítt skilgreind
hagkvæmnissjónarmið.
Þjóönýtingarstefna
Hér skýtur skökku við
þegar stefnan er hvar-
vetna sú að draga úr um-
svifum ríkisins, einkavæða og
auka svigrúm þjóöfélagsþegnanna,
enda er hálendið að dómi margra
„sameign þjóöarinnar". Slík orð
eru reyndar nánast merkingarlaus
í eignarréttarlegum skilningi, en
að svo miklu leyti unnt er að ljá
þeim einhverja merkingu í þessu
samhengi fela þau i sér fullveldis-
rétt - nánar tiltekið rétt löggjafans
til að setja reglur um meöferð og
Nú munu einhverjir segja að
löggjaflnn veiti handhöfum fram-
kvæmdavalds aðhald og það tryggi
nægilega að gætt sé almannarétt-
ar. Hins er þó að gæta að þingræð-
isreglan sem felur í sér að meiri
hluti þingsins ber ábyrgð á þeirri
ríkisstjóm sem situr hverju sinni
og dregur það úr aðhaldi löggjafar-
þingsins auk þess sem staða Al-
þingis gagnvart ffEimkvæmdavald-
inu hefur löngum verið veik. Þetta
frumvarp, ef samþykkt verður, er
því til þess fallið að skerða al-
mannarétt.
Hvor stjórnar?
Hæstiréttur hefur ítrekað hafn-
að að dæma ríkinu eignarrétt að
hálendisvæðunum, en þá tekur
löggjafmn af skarið og lögfestir
eignarrétt ríkisins. Nú hafa fáein-
ir lögmenn, einkum Jón Steinar
Gunnlaugsson, lagt í vana sinn að
senda Hæstarétti tóninn í hvert
skipti sem þeir tapa málum og er
þá viðkvæðið meðal annars að
Hæstiréttur dæmi alltaf með rík-
inu, að minnsta kosti þar sem sak-
arefni skipti einhverju máli -
dómarar séu hallir undir valdið.
Ef Hæstiréttur hefði dæmt
ríkinu eignarrétt að hálend-
issvæðunum, og hinir gagn-
rýnu lögmenn væru sjálfum
sér samkvæmir, hefði
heyrzt hljóð úr homi. Þegar
hins vegar Hæstiréttur hafn-
ar kröfum ríkisins þegja
gagnrýnendumir þunnu
hljóði. - Og það sem meira
er: þeir missa málið þegar
löggjafinn er að draga há-
lendissvæðin undir ríkið og
skerða almannarétt þann sem
þjóðin á til „eignar" sinnar. Það
sem þeir lasta dómstólana fyrir, og
þá einkum Hæstarétt, láta þeir óá-
talið að löggjaflnn geri. Hugsunin
virðist vera sú að löggjafanum
leyflst að ganga á rétt þegnanna,
en Hæstarétti beri síðan skylda til
að ógilda gerðir löggjafans.
Sigurður Líndal
Skoðanir annarra
Ný reglugerð
„Þaö er einfaldlega ekki forsvaranlegt að gera
einn góöan veðurdag grundvallarbreytingu á um-
ferðareftirlitinu og beitingu viðurlaga án þess að
auglýsa það rækilega fyrirfram og kynna málið fyr-
ir ökumönnum. Markmiðið er ekki að nappa sem
flesta fyrir of hraðan akstur, markmiðið er að koma
í veg fyrir of hraðan akstur. Að skella þessu á fyrir-
varalaust er til þess eins fallið að vekja upp óþarfa
andstöðu og neikvæðni gagnvart þjóðþrifamáli."
Birgir Guðmundsson í Degi 30. maí.
Hagræðing í þinginu
„Þegar kröfur koma um hagræðingu í einhverjum
þáttum þjóðlífsins þá koma þær frá þinginu sem er
að spara peninga til að komast hjá skattahækkun-
um. En hvenær verður sú hagræðing í þinginu sem
virðist vera svo sjálfsögð? Hvenær verður tala þeirra
manna sem sitja á þingi færð niður í það sem skyn-
samlegt er og nauðsynlegt? Hvenær hætta þingmenn
að fara í hópum til útlanda til að flytja ræöur sem
aðeins einn maður flytur. Þeir hinir sitja svo bara
þaraa og láta sjá sig sem fulltrúa þjóðarinnar.“
Brynjólfur Brynjólfsson í Degi 30. maí.
Heima er best
„Þaö er ekkert mál að vera í fullri vinnu ef böm-
in eru í góðum höndum, svo framarlega sem frítím-
inn er fjölskyldunnar allrar. Ef þú ert eilíft á nám-
skeiðum, fyrirlestrum og í félagslífí í frítímanum þá
gengur það ekki. Maður verður að vera með börnun-
um næstum hverja mínútu sem er aflögu frá starf-
inu. Ungt fólk í dag vill taka sig til og skipuleggja
tímann með bömum sínum: húsdýragarður, ham-
borgarastaður, spóla úr myndbandaleigunni á heim-
leiðinni, gallabuxurnar keyptar á morgun, allt
skipulagt. Bömin láta ekki blekkjast og þetta endist
ekki lengi. Þau vilja gjaraan vera heima í ró og
næði, laga til, elda mat eða lesa bók.“
Herdís Egilsdóttir í Degi 30. maí.