Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.1998, Qupperneq 5

Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.1998, Qupperneq 5
I>‘V LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ 1998 fréttir Aljt samkvæmt áætlun hjá skattmum: Avísanir í póst eftir viku Álfatrú framsóknarkvenna: Tengdar umhverfi og náttúru - segir formaður framsóknarkvenna „Kannski er skýringin sú aö fram- sóknarkonur eru svo tengdar um- hverflnu og nátttúrunni og álfasögur er nokkuð sem hafa lifað með þjóð- inni um aldir. Ég tek þó fram að sjálf trúi ég ekki á álfa,“ sagði Jóhanna Engilbertsdóttir, formaður Landssam- bands framsóknarkvenna, í samtali við DV þegar bornar voru undir hana niðurstöður skoðanakönnunar blaðs- ins um álfatrú íslendinga. Fram kom i DV í gær að 81,2% kvenna sem sögð- ust myndu kjósa Framsóknar- flokkinn kváðust trúa á tilvist álfa. Aðspurð um hvort mikil álfa- trú framsóknarkvenna enduspegl- aði trú kvennanna á forystu flokks- ins sagðist Jóhanna ekki sjá neitt samhengi þar í milli. „Það er sjálf- sagt hægt að skemmta sér yfir þessu á margan hátt,“ sagði Jóhanna Engil- bertsdóttir. -SÁ Álagning skattgreiðenda verður send út í pósti frá ríkisskattstjóra 30. júlí og berst flestum daginn eftir. Þeir sem fá endurgreiðslu frá skatt- inum fá hana sama dag og álagning- arseðilinn, ýmist með ávísun í pósti eða sem innlögn á bankareikning. Að sögn Guðrúnar Helgu Brynleifs- dóttur aðstoðarríkisskattstjóra er allt samkvæmt áætlun varðandi álagningu og ekki búist við öðru en að hún haldist. Guðrún sagði að það væri nýtt að skattgreiðendur þyrftu að greiða sérstakan fjármagnstekju- skatt upp á tíu prósent. „Hann er greiddur af öllum fjármagnstekjum og leggst þá á vaxtatekjur, arð og söluhagnað." Guðrún sagði að nokk- uð væri um það að einstaklingar skiluðu ekki skattframtali innan þess tíma sem skylda er. Yfirleitt væri það svipaður fjöldi á hverju ári; um átta til tíu prósent. Þá er áætlað á þá einstaklinga og hafa þeir tækifæri til að kæra álagning- una og skila skattskýrslu. Álagning- arskrár munu svo liggja frammi í hverju umdæmi fyrir sig í hálfan mánuð frá birtingu þeirra. ______________________-hb Lögreglan í Grindavík: Kæran til saksóknara Kæra 16 ára drengs í Grindavík á hendur lögregluþjóni hefur borist embætti ríkissaksóknara. Drengurinn ásakar lögregluþjón- inn um að hafa tvíökklabrotið sig þegar hann felldi hann eftir að lög- regluþjónninn hafði lagt hald á áfengi sem drengurinn hafði í fór- um sínum. Kæran mun verða tek- in til meðferðar hjá ríkissaksókn- ara á næstu dögum þar sem tekin verður ákvörðun um hvort ákæra verði gefin út á hendur lögreglu- þjóninum. -hb Ein með öllu handa öllum Úh Z5% eilsuhúsið Skólavöröustíg, Kringlunni, Smáratorgi ■ og Skipagötu 6, Akureyri Menntabraut íslandsbanka er nútímaleg þjónusta sniðin að þörfum námsmanna í framhalds- og háskólanámi hér á landi og erlendis. Félögum á Menntabraut íslandsbanka býðst margs konar þjónusta: Námsstyrkir, athafnastyrkir, Heimabankinn á Internetinu.gjafir við inngöngu.yfirdráttarheimildir og lánafyrirgreiðsla. •þitt eigið útibúl Allir sem skrá sig á Menntabraut fyrir 15. október fá fría áskrift að Heimabankanum á Internetinu út skólaárið. Menntabraut íslandsbanka I Heimabankanum hefur þú greiðan aðgang að nauðsynlegum upplýsingum. Þú getur skoðað stöðu reikninga þinna og kreditkorta, millifært, greitt reikninga, skoðað stöðu þína hjá LÍN og haft yfirsýn yfir fjármál þín í sjálfvirku heimabókhaldi. ' Menntabrautarfélagar sem nota Fríkortið safna punktum inn á Fríkortsreikninga sína hvar sem þeir nota debet- eða kreditkort frá íslandsbanka. Fyrir punktana er haegt að kaupa pizzur, fara í bíó eða jafnvel í utanlandsferð. Munið að skrá ykkur hjá LÍN fyrir I. ágúst. Kynntu þér Heimabankann á heimasíðu íslandsbanka.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.