Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.1998, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.1998, Side 6
LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ 1998 ÐV lönd Fjársjóðsleitarmenn í Eýstrasalti fagna sigri: Kampavínsskipið upp af hafsbotni stuttar fréttir Evrópa opnar sig Bandarlskir embættismenn segjast hafa fengið tryggingu fyr- ir því hjá framkvæmdastjóm ESB að markaðir Evrópu verði opnaðir fyrir ýmsum stöðlum þriðju kynslóöar farsíma. Havel undir hnífinn Vaclav Havel, forseti Tékk- lands, liggur nú á hersjúkrahúsi í Prag þar sem hann gengst undir skurð- aðgerð á morgun. Læknar ætla aö fjarlægja poka sem sett- ur var í þarma forset- ans í bráöaaðgerö sem gerö var á honum í Austurriki í vor. Banvæn baktería Hin banvæna listeríubaktería hefur kostað fjölda mannslífa í Danmörku fyrstu sex mánuöi ársins. Sjúkdómstilfellin þaö sem af er árinu em fleiri en allt árið í fyrra. Samið í Moskvu Rússar og Bandaríkjamenn undimituðu samninga um kjam- orkumál í Moskvu i gær þar sem þeir heita því að beina athygli kjarnorkuvísindamanna að frið- samlegum verkefnum og að um- breyta plútoni úr kjamavopnum í eldsneyti fyrir kjarnorkuver. Olíufurstar óhressir Fulltrúar olíufélaganna í Evr- ópu fordæmdu í gær þá ákvörðun ESB að banna fórgun gamalla ol- íuborpalla í sjó. Fundir í næstu viku Embættismenn ísraela og Palestínumanna hittast aftur í næstu viku til að reyna að blása nýju lífi í friðarferlið. Áfram funhiti Hitabylgjan gerði íbúum norð- urhluta Texas áfram lífið leitt í gær. íbúum Fort Worth var til dæmis fyrirskipað að spara vatn eftir að vatnsleiðsla brast og vatnið flæddi inn í dæluhús. Hit- inn var nærri 40 gráðum. Bildt heitur Carl Bildt, fyrrum forsætisráð- herra Svíþjóðar, er talinn eiga góða mögu- leikaáaðtaka við nýju starfi utanríkisráö- herra Evrópu- sambandsins. Að sögn sænskra þing- manna eru bara tveir aðr- ir sem koma til greina í embætt- ið, Felipe Gonzalez, fyrrnm for- sætisráðherra Spánar, og Helmut Kohl Þýskalandskanslari, sem væntanlega missir starfið eftir kosningarnar í haust. Boeing í basli Talsmenn Boeing flugvélaverk- smiðjanna í Seattle segja að gripið verði til aðgerða sem muni bæta af- komu fyrirtækisins. Afkoman á fyrri helmingi ársins var 46% verri en áætlanir höfðu gert ráð fyrir. Hlutabréf í Boeing hafa hríðfallið i verði í kauphöllinni í Wall Street að undanfornu og tóku enn dýfu niður á við í vikunni eftir að til- kynnt var um að tekjur fyrirtækis- ins hefðu verið aðeins 258 milljónir dollara á síðustu þremur mánuðum, eða sem svarar til 26 senta á hlut. Á sama tíma í fyrra voru tekjurnar 476 milljónir doliara eða 48 sent á hvern hlut. Talsmenn Boeing segja að þær að- gerðir sem gripið verður til ásamt nýlegum kaupum á McDonnel Douglas eigi eftir að rétta af stöðuna á síðari hluta ársins. Reuter Sænskir og danskir fjársjóðsleit- armenn lyftu loks gömlum kútter með dýrmætan farm af kampavíni upp af botni Eystrasaltsins í gær. Talið er að farmurinn sé gulls ígildi. „Ég er eins og stoltur faðir,“ sagði Claes Bergvall, annar leiðangurs- stjóranna. „Þetta var löng meðganga en þetta var eins og sjá nýfætt bam. Hann var mjög tilkomumikill." Það var þýskur kafbátur sem sökkti kútternum eftirsótta árið 1916. Kútterinn, sem heitir Jönköp- ing og var sænskur, var með um fjögur þúsund flöskur af kampavíni, 67 ámur af koníaki og 17 tunnur af A þriðja tug þúsunda trúnaðar- manna á sænskum vinnustöðum störfuðu sem útsendarar sænsku leyniþjónustunnar IB á 6. og 7. ára- tugnum. Hlutverk þeirra var að veita IB upplýsingar um kommún- ista og stuðningsmenn þáverandi kommúnistaflokks Svíþjóðar. Leyniþjónustan kom upplýsingun- um síðan í mörgum tilvikum áfram til forystu flokks jafnaðarmanna, að því er danska blaðið Aktuelt skýrði frá í gær. víni innanborðs þegar honum var sökkt. Farmurinn var ætlaður her Rússlandskeisara í Finnlandi. Leitarmenn náðu bátnum upp af hafsbotni snemma í gærmorgun en þeir létu hann siðan síga aftur niður á tíu metra dýpi til að vemda hann fyrir vaxandi vindi í Eystrasaltinu. Þegar var hafist handa við aö koma farminum úr kúttemum og síðdegis í gær hafði um fjögur hundruð flösk- um af dýrindis kampavíni verið bjargað úr greipum Ægis. Unnið verður á vöktum allan sólarhring- inn við að bjarga dýrmætum farm- inum. Þetta kemur fram gömlum leyniskjölum sem nú er verið að gera opinber að beiðni sænska fræðimannsins Wilhelms Agrells. í skjölunum er meðal annars að finna viðtal við Birger Elmér, fyrr- um yfirmann IB, þar sem hann stað- festir þaö sem menn haföi grunað í áratugi, nefnilega að IB notaði mest- allan tíma sinn til að veiða komm- únista og aðra sem voru taldir ógna öryggi ríkisins, og að leyniþjónust- an væri nátengd jafnaðarmönnum. Sérfræðingar í vínsmökkun segja að kampavínið bragðist á við tíu ára gamalt freyðivín. Björgun- armenn telja að farmurinn muni færa þeim milljónir dollara. Þeir gera sér vonir um að fá sem svarar rúmum tvö hundruð þúsund ís- lerískum krónum fyrir hverja flösku. Bergvall segir að vínsafnarar hafi þegar gert samninga um að kaupa kampavínið. „Svo kann að fara að við verðum búnir að selja það allt áður en við komum bátnum til hafnar," sagði hann í samtali við Reuter. Leiðtogar jafnaðarmanna hafa hver á fætur öðrum vísað öllu slíku tali á bug. Elmér segir að tilgangurinn hafi verið að koma í veg fyrir að komm- únistar kæmust til áhrifa í verka- lýðsfélögunum. „Og okkur tókst það með ágæt- um,“ segir Elmér í einu leyniskjal- inu. Hann segir að Olof Palme hafi á sínum tíma verið kunnugt um vinnustaðanjósnarana úr röðum jafnaðarmanna. Stórleikarinn trúir á endur- holdgun Bandaríski kvikmyndaleik- arinn Anthony Quinn og fjöl- skylda hans hafa boðið ellefu j ára gamalli brasilískri stúlku | aö búa hjá sér í Bandaríkj- | unum. Það gerðist eftir Iað leikarinn sannfærðist um að stúlk- an væri ná- inn ættingi hans úr fyrra aður. Quinn og Qölskylda hittu ungu stúlkuna þegar hann var I við kvikmyndatökur í Brasilíu. 1 Stúlkan var ein fiölmargra for- vitinna áhorfenda þegar hún vakti athygli hins 83 ára gamla stórleikara, að sögn brasilísku ; sjónvarpsstöðvarinnar Globo. „Ég þekki þessa stúlku," hafði sjónvarpsstöðin eftir [ Quinn. Danskir veggjakrotarar í tugthúsiö 1 Veggjakrotarar í Kaup- Imannahöfn verða að fara að vara sig. Þeir sem verða staðn- ir að verki í framtíðinni geta allt eins átt von á að þurfa að dúsa í fangelsi fyrir uppátækið. Að minnsta kosti fékk átján ára gamall maður Qórtán daga dóm S fyrir skemmdarverk. I Dönsku járnbrautirnar og | Kaupmannahafnarlögreglan ætla að samhæfa krafta sína í baráttunni gegn veggjakrotinu jí sem verður sífellt umfangs- l meira. Sett hefur verið á lagg- imar sérsveit til að berjast gegn þessum ófógnuði og hefur hún í aðsetur á aöallögreglustöð j Kaupmannahafnar. „Veggjakrot er orðið alvar- j legt vandamál og við verðum að ; vinna saman til að finna gjöm- j ingsmennina," segir lögreglu- fulltrúinn Per Larsen í viðtali í við Berlingske Tidende. Þýskalöggan handtekur barnaklámhund j Saksóknarar í Þýskalandi í skýrðu frá því í gær að 39 ára gamall rafvirki hefði verið hand- tekinn og ákærður fyrir misnota 12 ára gamlan son sinn kynferð- J islega í átján mánuöi. Maðurinn var handtekinn í tengslum við rannsókn á alþjóð- j legum bamaklámhring. Haim hefur viðurkennt að hafa tekið mynd af syni sínum og sett á f vefsíðu fyrir barnaníðinga. Lebed hótar að sölsa undir sig kjarnavopnin j Alexander Lebed, ríkisstjóri í ■ Krasnojarsk í Síberíu og fyrr- um öryggisráðgjafi Borísar 1 Jeltsíns Rússlandsfbrseta, hótar * því aö yfir- ; taka kjam- j orkuvopnin | sem geymd em i hérað- inu ef stjóm- 1 völd greiöi Ihermönnun- um sem gæta vopnanna ekki launin sín. Þetta kemur , fram í opnu bréfi sem hann sendi til Sergeis Kiríjenkós fbr- sætisráöherra, að sögn frétta- 1 stofunnar Interfax. Lebed, sem er farinn að búa | sig undir forsetakosningarnar árið 2000, segir i bréfinu til í Kíríjenkós að hermennirnir séu : bæði svangir og reiðir, enda hafi þeir ekki fengið greidd j laun í fimm mánuði. Stuðningsmenn Sams Rainsys, fyrrum fjármálaráðherra Kambódíu, veifuðu fánum þegar þeir óku um götur Phnom Penh, höfuðborgar landsins, í gær. Þingkosningar verða haldnar í iandinu á morgun en kosningabaráttunni lauk formlega i gær. Baráttan þótti friðsamleg. Vonast er til að lýðræði verði endurreist eftir kosningarnar. Gamlar njósnir um komma í Svíþjóö: Leyniþjónustan lak í jafnaðarmenn

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.