Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.1998, Page 7
LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ 1998
ffyéttir,
JB.ÉIIitS'
Aflaskipiö Jón Kjartansson við bryggju meöan beðið var eftir löndun.
DV-mynd Pórarinn
EskiQörður:
Löndunarbið
er á loðnu
DV, Eskifirði:
„Ástæðan fyrir biðinni er sú að
betra er að geyma hráefnið um borð
í skipinu meðan lokið er við í verk-
smiðjunni að bræða það sem fyrir
er,“ sagði Snorri Jónsson, verk-
smiðjustjóri loðnubræðslu Hrað-
frystihúss Eskifjarðar, við DV en
loðnuskipið Jón Kjartansson var
látið bíða á annan sólarhring eftir
löndun þar nýverið.
Jón Kjartansson, eins og önnur
skip hraðfrystihússins, er búinn sjó-
kælitönkum og er því hægt að halda
hráefninu fersku lengur en ef því er
landað strax því kælibúnaður er
ekki fyrir hendi í verksmiðjunni.
Til framleiðslu á hágæðamjöli þarf
hráefnið að vera sem ferskast og
skipin því látin bíða þvi ekki er
mikið um að vera á miðunum þessa
dagana.
Sólarhringssigling er á miðin
norður af landinu og skipin að fá lít-
il köst - þetta um 100 tonn í kasti.
Nú eru komin hátt í 25 þúsund tonn
til Eskifjarðar af loðnu á þessari
sumarvertíð. Þegar hráefnið er
ferskt fmnst ekki peningalyktin en
þegar það er orðið gamalt er ekki
laust við að lykt finnist á afmörk-
uðu svæði við verksmiðjuna.
-ÞH
Kongens Nytorv eyðilegt:
Trjákringlan
er horfin
Kongens Nytoi"v í Kaupmanna-
höfn er eyðilegt að sjá, eftir að hafa
misst eitt helsta djásn sitt, trjá-
hringinn á miðju torginu umhverf-
is konungsstyttuna sem þar er,
þann sem borgarbúar nefna Krin-
sen. Samkvæmt upplýsingum borg-
arskrifstofu Kaupmannahafnar
varð að fella hin ævagömlu tré og
raunar flestöll álmtré í borginni
vegna sjúkdóms sem kom upp í
þeim sl. ár.
Borgarráð Kaupmannahafnar
tók nýlega ákvörðun um að byggja
bílageymsluhús undir torginu.
Húsið verður á fjórum til fimm
hæðum og mun rúma þúsundir
bíla en skortur á bílastæðum í
miðborginni er mjög mikill. Áætl-
að er að framkvæmdum ljúki upp
úr aldamótum og þá verði sett
tveggja metra jarðvegslag yfir hús-
ið og trjám plantað á ný á miðju
torgsins. Ætlunin er að torgið
verði í heild sem líkast því sem
var áður en trén vora felld. -SÁ
Kongens Nytorv nakið. Til vinstri á myndinni sést í lúxushóteliö Hotel
d’Angleterre. DV-mynd SÁ.
Missti
farangurinn
I í Skógá
DV.Vík:
Björgunarsveitarmenn frá Vík
í Mýrdal voru kallaðir út að
kvöldi 22. júli að Skógum undir
Eyjafjöllum en þar hafði erlend
kona, sem var á leið inn á Fimm-
' vörðuháls, misst allan farangur
sinn ofan í gilið sem Skógá renn-
ur eftir. Þrátt fyrir mikla leit í
gilinu og eftir ánni langleiðina til
sjávar fannst ekkert af farangri
konunnar. í farangrinum voru
aUir munir hennar, svo sem
vegabréf, fatnaður og peningar.
Konan fékk gistingu að Skógum
um nóttina. -NH
Stórútsala
vegi 96
jíili
.d -
.r
0^
i Lí^
vefl'
r-myndbönd
snældur-tölvuleikir
S • K • I * F -A’ N
Laugavegi 96 sími 525 5065
Opið laugardag 25. júlí kl. 10-16
Opið sunnudag 26. júlí kl. 13-16