Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.1998, Síða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.1998, Síða 9
LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ 1998 lk 9 Edda Björg Eyjólfsdóttir og Halldór Gylfason hafa slegið í gegn í söngleiknum Grease: Eins og flestir hafa eflaust oröiö varir við var söngleikurinn Grease frumsýndur í Borgarleikhúsinu fyrir nokkrum vikum. Þar skapaöist gott tœkifœri fyrir unga leikara aö láta Ijós sitt skína og þaö hafa þeir svo sannarlega nýtt sér því að segja má aö uppfœrslan hafi getiö af sér nýjar stjörnur. Þaö eru fleiri í Grease en Sandy og Danny. Sýningin er nefnilega full af skemmtilegum persónum sem fá fólk til að veltast um af ánægju. Tvær þeirra eru Roger og Jan. Við munum kannski lítið eftir þeim úr kvikmyndinni en á sviðinu fá þau svo sannarlega að njóta sín. Roger er ekki kalda, þögla týpan sem heillar hverja stúlku upp úr skónum með því að sveifla vinstri hendinni. Hann er frekar óöruggur húmoristi með gæjatendensa. Jan er ekki svala gelian sem notar kyn- þokkann til að leggja heilu stráka- hópana. Henni væri líklega best lýst sem ofvirkri og kátri hnátu með ótrúlega matarlyst. Leiklistarmanían Það eru Halldór Gylfason og Edda Björg Eyjólfsdóttir sem fara með hlutverk Rogers og Jan. Þau hafa bæði fengið mjög góða gagnrýni tyr- ir túlkun sína á þeim enda er unun að horfa á þau á sviðinu. Þau eru bæði tiltölulega ný í fag- inu. Halldór útskrifaðist úr Leiklist- arskólanum í fyrra en Edda í vor. Á þessu ári hefúr Halldór verið í óvenju fjölbreyttum hlutverkum. Hann lék í Hart í bak á Akureyri, Roger er frekar óöruggur húmoristi meö gæjatendensa. Jan væri líklega best lýst sem ofvirkri og kátri hnátu meö ótrúlega matarlyst. DV-mynd Teitur Siðasta bænum í dalnum í Hafnarflrði og í Popp- komi í Þjóðleikhúsinu. Hann er líka í hljómsveit- inni Geirfuglunum sem er nýbúin að gefa út sína fyrstu plötu. Grease er íyrsta verkið sem Edda leikur í eftir að hún út- skrifaðist. I haust verða þau bæði í Borgarleikhús- inu. Edda leikur Vöndu í Pétri Pan og síðan leikur hún með Halldóri í leik- gerð skáldsögunnar Mávahlátur. Samloka með kæfu Leikarar gefa persón- unum sinum líf. Þá hljóta Halldór og Edda að vera fyndin. „Ég get stundum verið fyndinn," segir Halldór. „Maður hefur verið í svip- aðri aðstöðu og hann, i einhveiju gengi. Reynt að vera fyndinn og þóknast öðrum. Maður hefur lent í svipuðu án þess að vera nokkuð líkur honum.“ „Ég á það til að vera helvíti snið- ug,“ segir Edda. „Ég kann vel að meta það að hjá Jan er aldrei neitt vandamál. Og ef það er þá er það bara leyst. Hún er ótrúlega „ligeglad". Hún verður aldrei reið, sár eða leið. Hún er glöð allan tim- ann. Æi, já. Mér finnst ósköp gott að borða góðan mat. Yfirleitt er þetta samloka með kæfu sem ég fæ og mér finnst búðingur góður. Ég borða talsvert mikið í þessari sýn- ingu.“ Nakinn á sviöinu Eftir eitt atriðið stendur Halldór einn eftir á sviðinu, nakinn. Hann snýr að vísu baki í salinn. En þurfti Halldór að sýna á sér bakhlutann þegar hann var í inntökuprófunum? „Nei. Ég vissi ekki af þessu „múni“. Við lásum fyrst fyrri hlut- ann í gegn. Síðan sáum við ekki seinni hlutann fyrr en við vomm búin að vinna i einhverjar viku. Þá fékk ég seinni hlutann sendan heim og þar sé ég þetta atriði þar sem Roger er klæddur úr. Þar stendur innan sviga: (Strákamir ráðast á Roger og klæða hann úr fötunum. Hann stendur eftir hjálpar- vana og gargar af van- máttugri reiði.) Þetta stendur í handritinu en er ekki eitthvað sem ég kom með sjálf- ur á æfingu: „Heyrðu leikstjóri, hvernig væri það ef ég myndi múna hérna?““ Ekki ástfangin í alvörunni Fréttir hafa borist af því að aðalpar sýn- ingarinnar sé ástfang- ið i alvörunni. Hvað er með Eddu og Hall- dór? „Það er ekki hægt. Dóri er giftur og á barn!“ segir Edda. Þau hafa samt náð mjög vel saman í verkinu, enda hafa þau unnið saman áður í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum þar sem þau tróðu upp. Leikur þeirra hefur líka skilað þeim góðri gagnrýni. Þeim finnst söngleikurinn heill- andi. „Fólk er svo glatt að það brestur í söng. Það er hreint og fallegt, ein- lægt. Það er eitthvað fallegt við það. Ef þetta væri nú bara þannig." -sm Þegar fólk brestur í söng Audi 100 Quatro '89 Áður L400.000- Nú 800.000 stgr. BMW M3 '87, öflugar sterio græjur. Áður 1-350.000~~ Nú 950.000 stgr. Crysler Cebling LXi '96 nf/öllum aukahlutum Áður Renault Twingo 1300 '95 Áður 890.08- Nú 580.000 stgr. Jagúar XJ6 '83, toppeintak Áður •LOOO.OOtr Nú 500.000 stgr. BMW 524 turbo dísil '90 Áður LðOO.OOtT Nú 900.000 stgr. Isuzu midi turbo dísil '95 Áður 1-350.00ð~1n/vsk. Nú 980.000 m/Vsk. stgr. Ford Mustang 5,01 '83. Áður-400.000~ Nú 350.000 stgr. MMC 3000 GT '94 Áður 3,060.000 Nú 2.300.000 stgr. Dodge Stealt twin turbo 4x4 '94 Áður 3*609:660- Nú 2.800.000 stgr. Subaru Legacy 2,01 '92, ek. 140 þús. km. Áður-LaCO.OOO Nú 900.000 stgr. Bílasalan Höfði, Bíldshöfða 12 Range Rover '85, sem nýr. Áður 850066- Nú 580.000 stgr. Toyota Landcruiser Túrbó Intercooler '88 Sá flottasti. Áður 2J36MOO Nú 1.850.000 stgr. Ford Econoline Club Wagon 15m, '92 Áður -L666Æ00 Nú 1.300.000 stgr. Chrysler Voyuager Grand Caravan 7m,4x4 '93 Áður 4,000.000 Nú 1.600.000 stgr. Range Rover (mikið breyttur) ‘72 Áðui-300.000~ Nú 200.000 stgr. Mazda RX7 '93 Áður 2-160.000- Nú 1.950.000 stgr. Opið laugardag 10-17 • Mikil sala, vantar allar tegundir á skrá

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.