Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.1998, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.1998, Blaðsíða 23
LAUGARDAGUR 25. JULI 1998 23 Flugleiðir setja heimsmet Þann 23. mars 1998 setti Rolls-Royce RB211-535E4-hreyf- ill á einni af B757-200 flugvéla Flugleiöa merkilegt heimsmet. Þá var hann búinn aö vera óslitinn á væng í meira en 30.370 flugtíma. Hér er ekki um aö ræða heimsmet þessarar hreyflagerðar eða fyrir Rolls- Royce-hreyfla almennt heldur heimsmet fyrir allar gerðir flug- vélahreyfla allt frá dögum Wright-bræðra. Þann 23. júní var staðan kom- in í 31.673 flugtíma og reglu- bundnar skoðanir sýndu að hreyfillinn var í fmu lagi og jafnvel betri en sumir sams konar hreyflar með mun lægri flugtímastöðu. Hann heldur því áfram að bæta sitt eigið heims- met meö yfir 100 flugtímum á viku. Þjóðleg föt Það getur verið þreytandi að líta út eins og dæmigerður ferðamaður í útlöndum. Fariö þó varlega í að reyna að líkjast innfædd- um með þvi að ganga í „þeirra" fötum. Túrban á Indlandi er mjög gagnlegur til varnar sólbruna en hins vegar gef- urðu með því 1 skyn að þú gætir tilheyrt Sikh-trúnni. Silki Qipao er vinsæll klæðn- aður i Kína. Þú skalt þó ekki kaupa rauðan Qipao nema þú sért á leiðinni að gifta þig. Tréskór fást í öllum betri ferðamannabúðum i Hollandi. Þú fellur þó ekkert betur í hóp- inn með því að ganga í þeim þar sem eingöngu bændur og sjómenn ganga í tréskóm í dag. Aning 1998 atÍlitaáir é ftlöndl \ tofcukmd mmmmmmsm Áning 1998 er gefin út á íslensku, ensku og þýsku í 32.000 ein- tökum. Bók- inni er dreift ókeypis á upplýsinga- miðstöðvar og alla helstu viðkomustaði ferðafólks á landinu, auk þess sem henni er dreift víða erlendis. í bókinni auglýsa rúmlega 300 íslenskir gististaðir um allt land þjón- ustu sína. Útgefandi er Þórður Sveinbjömsson. Bjarga búdda Vísindamenn í Kína gera nú allt sem þeir gera til að bjarga stærstu búddastyttu í heimi. Tilvera þessarar sjötíu og eins metra háu styttu er ógnað bæði af völdum náttúrunnar og manna. F y r r i viðgerð- armenn n o t u ð u sérstakt efni til að gera við styttuna en það er nú að tærast upp af völdum rigningar. Syttan hefur 8,3 m langar tær og táneglurnar eru hvorki meira né minn en 1,6 m. Styttan var byggð á valdatíma Tang á milli 713 og 803. Handhæg myndavál Frá hlið lítur hún út eins og sígarettupakki. Hún vegur um 145 g og er svo lítil að hún kemst fyrir í rassvasanum. Þrátt fýrir smæðina getur þessi 24 mm vél tekið jafngóðar myndir og mun stærri og að því er virðist flóknari vélar. Hér sannast enn og aftur að stærðin er ekki allt. -me r Islenskir fjallaleiðsögumenn: Um fáfarnar slóðir Hann hleypur að meðaltali um 2 m á dag og á yfírborðinu sjáum við vatnsrennsli, urðarrana og víða era fallegir vatnshólar og fleiri stór- merk náttúrufyrirbrigði. Síðasta daginn göngum við yfir Skaftafellsjökul um líparítsgular Kjósareggjar og síðan niður í Bæjar- staðaskóg. Kjósareggjar era 1100 m yfir sjávarmáli og þaðan er stórkost- legt útsýni. Við sjáum langt inn á Vatnajökul, Þumal, Miðfell, Skarð- arlindar og fleiri gullfallegar nátt- úruperlur. Til suðurs sjáum við yfir Skeiðarársand og yfir allan Skeiðar- árjökul og inn að Grænalóni. Við endum svo ferðina með grillveislu í Skaftafelli. Við föram með 4-12 manna hópa og eru 40-50 manns skráðir í ferðina hjá okkur í sumar. Þetta er engin ferð fyrir byrjendur en fyrir fólk sem hefur einhverja reynslu i göngu eru þetta 4 dýrlegir dagar.“ -me Fagurt er lóniö. Grænalón er næststærsta jökullón á íslandi. íslenskir fjallaleiðsögumenn er fé- lag nokkurra leiðsögumanna með áralanga reynslu í göngu, fjalla- og skíðaferðum. „Við bjóðum nýstár- legar gönguferðir um fáfamari slóð- ir landsins," segir Einar Torfi Finnsson, framkvæmdastjóri fyrir- tækisins. „Sú ferð sem hefur notið hvað mestra vinsælda hjá okkur er 4 daga gönguferð frá Núpsstaðar- skógi til Skaftafells. Hópurinn safnast saman í Skafta- felli, þaðan sem ekið er inn í Núps- staðarskóg í vatnatrakk. í Núpsstað- arskógi er gengið meðfram hinum stórkostlegu Núpsárgljúfrum sem víða era yfir 100 m djúp. Fyrstu nóttina tjöldum við á svo kölluðum Sléttum. Næsta dag er gengið aö Græna- lóni sem er næststærsta jökullón á íslandi. Við tjöldum norðan við lón- ið á gömlum vatnahjaOa en þaðan er afar gott útsýni yfir Skeiðarárjökul og Græna- lón. Ef aOt gengur vel er þetta um 6-7 klst. ganga. Á þriðja degi göngum við yfir Skeiðarárjökul yfir í Norðurdal í Skafta- fellsfjöllum. Þar tjöldum við við lítið jökuUón sem er þakið ísjökum. Skeið- arárjökull er yfirleitt óspranginn og þarf því ekki miklar jöklagræjur tU að komast yfir hann. Hann er miseifiður yfír- ferðar og getur orðið tölu- vert þýfður ef lítiU er snjórinn. Þessi dagur er lengsti dagur ferðarinnar en jafnframt sá eftir- minnUegasti. Það má með . sanni segja að Skeiðarár- ' Núpsstaöarskógi: Maöurinn er jökuU sé lifandi jökull. ;i smár innan um undur náttúrunnar. DV-mynd GVA Mallorca: Vinsæl perla í Miðjarðarhafinu A Mallorca er alls staöar stutt á ströndina. Undanfarin ár hefur eyjan MaUorca í Miðjarðarhafi notið mikiUa vinsælda ís- lenskra ferðamanna. Á eyjunni búa um 600.000 manns, þar af 330.000 í höfuðborginni Palma. I sumar býður Úrval-Út- sýn gististaði á fjórum stöðum á eynni, Playa de Palma, Magaluf, IUetas og Sa Coma. Á öllum stöðunum er stutt á ströndina og í Magaluf og Aquacity, sem eru í næsta nágrenni við Playa de Palma, eru vatns- skemmtigarðar. Einnig er vatnsskemmtigarður í Hy- dropark í Alcudia sem er í 60 mínútna fjarlægð frá Sa Coma. Fyrir þá sem eru „úti á líf- inu” er Magaluf kjörinn áfangastaður en þar er sérlega fjörlegt skemmt- analíf. Playa de Palma státar einnig af fjölbreytni í veitinga- og skemmti- stöðum en á IUetas er öUu rólegra. Aðstaða fyrir börnin er góð og á Royal Christina, Royal Playa de Palma og Club Royal Beach er í boði leikja- og skemmti- dagskrá fyrir börn og unglinga aUa daga vikunnar. Meðalhitastigið i júlí er 29 gráður á daginn og meðalhitastig sjávar er 24 gráður. -me L Landsbanki íslands Aukin þjónusta Þú getur pantað gjaldeyri í síma 560 6000 og sótt hann í afgreiðslu okkar á 2.hæð í Leifsstöð. ■ Opið allan sólarhringinn ■

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.