Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.1998, Qupperneq 25
DV LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ 1998
fyblgarviðtalið ^
:n að berjast við sjóinn er í lagi.“ DV-myndir POK
Iveður en þó ekki svo að hægt væri að keyra
fulla ferð. Það er sjaldan hægt á svona litlum
bát úti á hafi. Ég kom seint að kvöldi til Fær-
eyja og lagði mig í nokkra tima en hélt svo
áfram. Veðrið var gott en verra veðri var spáð
þannig að ég gat ekki tafið lengur i Færeyjum.
Til Hafnar í Hornaflrði eru 270 sjómílur og
af því að ég tek alltaf helmingi meira bensín
um borð en ég þarf á leiðinni var báturinn
ægilega þungur og komst aðeins í 16 milur.
Ég var 27 tíma á leiðinni. Þegar ég átti 130
mílur eftir kom norðaustan stinningskaldi. Ég
var 15 tíma að fara 100 sjómílur, keyrði á sjö
mílna hraða.
Ég var með góðan flotgalla um borð en ég
notaði hann ekki. Ég var i venjulegum galla í
rigningunni og var rennandi blautur og kald-
ur í 15 tíma. Síðustu 30 mílurnar að landi gat
ég keyrt 18-20 mílur, þá var komið betra veð-
ur.
Á Höfn tók bróðir minn við bátnum og
sigldi honum til Grindavíkur og þaðan sigldi
sonur hans til Reykjavíkur. Þá voru komnar
1000 sjómílur."
Sambandslaus við umheiminn
Þegar Hafsteinn ferðast er hann yfirleitt
sambandslaus við umheiminn. Á ferðalaginu
frá Noregi var hann ekki með neina talstöð.
„Það er best að sem fæstir viti af. Það voru
mjög fáir sem vissu af hugleiðingum mínum
um að fara yfir.“
En Hafsteinn var aldrei áhyggjufullur á
ferðalagi sínu:
„Ég? Nei. Ég var ekkert áhyggjufullur en
það var verra með þá sem voru í landi. Þeir
vissu hvenær ég fór frá Hjaltlandi og vissu
nokkurn veginn hvenær ég var í Færeyjum.
Ég gat ekki látið vita af mér í Færeyjum. Það
var komið nærri því að þeir í Noregi sendu
flugvélar til að leita að mér. Ég hafði sagt það
áður en ég fór að það ætti ekki að leita að mér
nema ekkert heyrðist ffá mér í tíu daga. En
taugarnar þoldu það ekki.
En það er miklu öruggara að sigla einn á
sjálfbyggðum báti en að þvælast í umferðinni
i Reykjavík."
Ekkert vandamál...
Að sögn Hafsteins er ekki erfitt að vera
einn á báti, kaldur og sambandslaus.
„Síðasti áfangi ferðarinnar til íslands var
erfiður en þegar ég er á seglbátnum þá er það
ekki neitt. Þá fer maður niður og leggur sig og
kemur upp annað slagið, kíkir í kringum sig
og síðan niður aftur. Það er ekkert vandamál
... ekki fyrir okkur. Það er verra fyrir þá sem
vilja banna allt og allt því að það á að heita að
við eigum að vera á útkikki. Við eigum að
vera uppi og sjá allt í 24 tíma. En það er klárt
að þegar við erum einir þá gerum við það
ekki.
Það er erfiðast að verða kaldur. En ef mað-
ur er í góðum fötum undir þá hitnar vatnið og
kuldinn hefur ekkert að segja. Maður hristist
aðeins en það er ekki verra en svo að maður
getur lifað við það.“
Á hafi hugsar Hafsteinn um það sem hann
er að gera og líka til baka. Þegar ég spyr hann
hvort hann hugsi ekki um æðri máttarvöld og
hvort hann sé ekki trúaður segir hann glott-
andi:
„Ef þú meinar guðstrú þá get ég sagt þér
það að ég er vitlaus en svo vitlaus hef ég
aldrei verið.“
Öfundin sterkari en kynorkan
Ég ímynda mér að yfirþyrmandi tilfinning
um smæð hljóti að hellast yfir mann þar sem
maður situr á lítilli skel úti á miðju Atlants-
hafi. Hafsteinn er ekki sammála því.
„Maður hugsar ekki þannig. Það er ekkert
að berjast á móti sjónum, ég þekki hann. Sjór-
inn er ekki duttlungafullur. En að berjast á
móti einhverju í landi, verkalýðsfélagi eða yf-
irvöldum, það er svo lúmskt að það gerir mað-
ur ekki. En að berjast við sjóinn er í lagi.
Mannskepnan er svo lúmsk að það er aldrei
hægt að vita hvar maður hefur hana. Þess
vegna berst maður ekki á móti henni. Það var
þess vegna sem ég fór héðan á sínum tíma. Ég
átti Eldinguna og lögin sögðu að við ættum að
vera fimm um borð en þörfin sagði þrír. Þeg-
ar við fengum borgað sem við værum fimm
kom öfundsýkin upp og þá var skipstjórinn
kærður. Sá sem kærði var formaður sjó-
mannafélags. Þá sáum við að best væri að
hætta. Við gátum barist á sjónum við að að-
stoða báta en að berjast á móti lúmskri mann-
eskju gerir maður ekki. Við bara hættum."
En háir öfundin íslendingum fremur en
öðrum þjóðum?
„Nei, ég get sagt þér það að þar sem ég er í
Noregi er öfundin sterkari en kynorkan.
Meira getur það ekki orðið. Öfundsýkin er al-
veg að drepa þá.“
Skrifstofurotturnar
Hafsteinn fór hringinn í kringum hnöttinn
á skútu sinni án þess að koma nokkurs staðar
við. Hvemig datt honum þetta í hug?
„Ég smíðaði bát og hvað átti að gera við bát-
inn? Mér fannst sniðugt að fara hringinn í
kringum hnöttinn einn og án þess að stoppa.
Eg er þannig að ég er ekkert að velta vöngum
í mörg ár og láta mig dreyma burtu frá vera-
leikanum. Þegar ég hafði teiknað bátinn þá
setti ég allt á fullt og smíðaði hann. Síðan fór
ég af stað.
Ég sneri síðan við eftir að hafa siglt 1500
mílur. Gírinn haföi brunnið og eyðilagst. Ég
fór í land og keypti nýjan og þá var of seint að
halda áfram þannig að ég fór bara næsta ár.
Skútan mín er 18,5 metrar. Ég teiknaði
hana þótt ég hefði enga kunnáttu í því og
smíðaði hana. Ég kunni það ekki heldur en
gerði það samt. Það var ekki hægt að fá hana
skráða hérna því að þeir vildu fá teikningar.
Ég er ekkert fyrir slíkt, það þarf alltaf að
teikna allt. Ég er meira fyrir það að gera hlut-
ina og hafa þá sterkbyggða.
Nú hef ég sýnt fram á það að þessi bátur er
sterkur og góður. Ég hef siglt 48 þúsund sjó-
mílur á honum og ekkert sem ég hef gert hef-
ur gefið sig. Það sem hefur bilað er það sem
ég hef keypt; gírinn og stögin. Báturinn hefur
verið i alls kyns veðrum. Hann hefur verið í
svo vondu veðri að hann hefur slegið mastr-
inu í sjóinn og fengið brot á sig þannig að suð-
urnar í stoðunum á hliðunum hafa gefið sig.“
En heldur Hafsteinn að hann yrði sam-
þykktur núna, eftir að hafa farið heill hring-
inn í kringum jörðina?
„Ég veit ekki hvort skrifstofurotturnar hér
myndu samþykkja hann. Ég þarf heldur ekk-
ert samþykki frá þeim til að nota bátinn. Þeir
hafa ekkert vit á þessu. Þeir fara eftir ein-
hverju sem ekki þarf að vera í samræmi við
veruleikann."
Hræðslan við að láta drauma
rætast
Þegar ég var að reyna að hafa uppi á Haf-
steini hafði hann farið til fjalla með göml-
um félaga sínum af Eldingunni.
„Ég er ekki útivistarmaður en ég tek því
sem kemur. Núna var gott að fara upp á
fjöll og skoða. Það er skemmtilegra að fara
vegina sem eru utan við alfaraleið heldur
en að fylgja malbikinu. Það sést kannski á
lifnaðarháttum mínum.“
Hafsteinn er ekki dreyminn, hann fram-
kvæmir. Hann segir að menn séu aldrei of
gamlir til þess að láta drauma sína rætast.
Það haldi mönnum líka ungum að vera af-
slappaðir.
„Fólk er of hrætt við að láta drauma sína
rætast. Því meira sem er áætlað því minni
hætta er á að eitthvað verði gert. Menn
verða alltaf hræddari og hræddari og hugsa
um allt sem gæti gerst. Það hendir ekki
neitt ef maður hefur gert bátinn sjálfur. En
ef menn fara út í búð og kaupa bát og leggja
síðan í hann má reikna með því að eitt og
annað gerist. Það er ekki reiknað með því
að þeir bátar verði á sjó. Þeir eru bara til
skrauts í höfn og uppi á landi, þeir eru svo
veikbyggðir."
Sjórinn er besta grey
Eftir að hafa þvælst um heimshöfin svo
mánuðum skiptir hlýtur að myndast sér-
stakt samband við sjóinn. Er sjórinn vinur?
„Sjórinn er kannski ekki vinur en hann
er enginn óvinur. Hann er bara þarna og
æsir sig upp eftir vindum og straumum.
Maöur sér hvernig hann hagar sér.
Sjórinn er besta grey, skal ég segja þér.
Það er hægt að lesa úr sjónum en ekki úr
manneskjunni. Það er best að láta hana
sigla sinn sjó. Það er ekkert til að eyða tíma
í.“
Af orðum Hafsteins má merkja að hann
hafi ekki mikla ánægju af félagsskap
manna.
„Ekki ef ég sé að það er ekki rétti andinn
yfir samskiptunum. Þeir félagar sem ég á
eru sannir félagar. Ég þekki marga en það
eru ekki allir sem ég stoppa og tala við. Ég
er ekki hræsnari. Ég tala ekki við einn og
hæli honum og sný síðan baki í hann og
segi hvernig hann er.“
Aldrei í lífshættu
Er Hafsteinn ævintýramaður?
„Nei. Þú myndir kannski segja að ég væri
ævintýramaður en mér finnst það ekki. Ég
geri það sem mig langar til án þess að bolla-
leggja mikið. Ég hitti marga skútukarla hér
sem eiga sér stóra drauma um að sigla
kringum hnöttinn og hingað og þangað. Ég
myndi segja að það væru ævintýramenn
því að þeir fara aldrei af stað.
Það getur verið að ég sé í hættu en ég sé
hana aldrei sjálfur. Þeir sem eru ekki á
staðnum vita allt miklu betur. Þeir vita í
hvaða hættu maður er. Sá sem er á staðn-
um sér ekki þessa hættu, hann sér raun-
veruleikann. Hinir hafa ímyndunina.
Ég sé aldrei neina hættu. Ég sé enga
hættu í því að fara á þessum litla bát hér
yfir. Það eina sem getur gerst er að bátur-
inn verði bensínlaus og þá er bara að láta
reka. Sjálfur er ég aldrei í neinni lífshættu.
Þetta er frjálst líf. Þegar komið er á sjó-
inn eru engar áhyggjur. Þá er maður fiarri
yfirvöldum og presti. Allir sem eru lausir
við yfirvöld eru frjálsir." -sm