Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.1998, Blaðsíða 36
LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ 1998
* *
★
44 ★
★
w _
trimm
r* ★
Eiríkur Bergmann og Karl Pátur Jónsson stefna að þátttöku í 10 km í Reykjavíkur maraþoni:
Framfarirnar með ólíkindum
- segir Bryndís Ernstdóttir, þjálfari þeirra
Trimmsíðan hefur
fylgst með æfingum
tveggja einstaklinga sem
stefna að þátttöku í
Reykjavíkur maraþoni
þann 23. ágúst næstkom-
andi. Eirikur Bergmann,
kynningarstjóri Reykja-
víkur maraþons og Karl
Pétur Jónsson, verkefnis-
stjóri Frjálsrar íjölmiðlun-
ar, höfðu hvorugir stund-
að íþróttir að ráði þegar
þeir hófu skokkæfíngar
undir handleiðslu Bryn-
dísar Ernstsdóttur hjá lík-
amsræktarstöðinni
Þokkabót. Bryndís er
þekkt afrekskona i hlaup-
um og systir Mörthu
Ernstsdóttur. Markmið
Eiríks og Karls Pétiu-s var
að koma sér í þokkalegt
form og taka þátt í 10 km
í Reykjavíkur maraþoni.
„Eirikur Bergmann hef-
ur verið mjög duglegur að
mæta á æfingar og fram-
farimar hjá honum eru
ótrúlegar. Þeir félagarnir
hlaupa í hópi sem æfir
þrisvar sinnum í viku og
Eiríkur mætir á flestar
æfingamar. Hann segist
ekki hafa neinn grunn úr
íþróttum áður og með
Miðsjón af því er árangur
hans með ólíkindum,"
sagði Bryndís.
Hlaupahópur Bryndísar
hjá Þokkabót æfir þrisvar
sinnum í viku, mánudaga,
mðvikudaga og laugar-
daga. „Á mánudöginn og
miðvikudögum era teknar
sérhæfðari æfmgar, brekkur, sprett-
ir og hlaup á mismunandi undir-
lagi. Á laugardögum era famar
lengri vegalengdir, allt að 12 km.
Ef Eiríkur slær ekki slöku við æf-
ingamar gæti hann hugsanlega
skráð sig í háifa maraþonið. Að öllu
jöfhu væri ekki ráðlegt að leggja í
hálft maraþon eftir aðeins þriggja
mánaða æfingar ef menn hafa ekki
Eiríkur Bergmann, kynningarstjóri Reykjavíkur
hvorugir stundaö íþróttir aö ráöi þegar þeir hófu
inni Þokkabót.
maraþons og Karl Pétur Jónsson, verkefnisstjóri Frjálsrar fjölmiölunar höföu
skokkæfingar undir handleiöslu Bryndísar Ernstsdóttur hjá líkamsræktarstöö-
Umsjón
isak ðm Sigurdsson
stundað neina hreyfingu áður.
Karl Pétur hefur átt erfiðar með
að mæta á æfingar hópsins því
Afrekaskrá hlaupara
hann er mjög upptekinn í vinnu.
Framfarir hans hafa því ekki verið
jafhmiklar og hjá Eiríki en samt
sem áður er ljóst að Karl Pétur er
vel byggður fýrir Maup og virðist
hafa þetta í sér. Með betri æfingaá-
stundun gæti hann því bætt sig
verulega," sagöi Bryndís.
Stefni að öðru sæti
Bryndís Emstsdóttir æfir sjálf af
kappi og ætlar sér að vera meðal
þátttakenda í hálfa maraþoninu í
Reykjavíkur maraþoni. „Martha
systir mín Meypur einnig 21 km og
ég á ekki mikinn möguleika á því að
slá henni við. Ég stefni hins vegar
að öðra sætinu. Martha hljóp hálft
maraþon á mjög góðum tíma á Ak-
ureyri mn síðustu helgi (1:12:39), en
ætli ég reyni ekki að vera undir 1:20
mín. Ég hafnaði í öðra sætinu í
fyrra en er í betra formi í ár.
Martha var þá ekki á meðal kepp-
enda. Það fer allt eftir því hversu
góðar Maupakonur koma erlendis
frá, hvort ég næ öðra sætinu í
hlaupinu," sagði Bryndís.
-ÍS
Tímaritið Hlauparinn hefur gefið
út afrekaskrá yfir 50 bestu tímana
frá upphafi í öllum aldursflokkum
(35-39 ára, 40-44 ára o.s.frv.) karla
og kvenna í maraþoni, hálfmara-
þoni og 10 km hlaupi. Einnig er að
finna í skránni 5 bestu tímana, ald-
ursflokkaskipt, í brautarMaupum á
vegalengdum frá 800 til 10.000 m.
Samtals era í skránni 1430 afrek
en vinnsla afrekaskráa krefst bæði
þolinmæði og nákvæmni. Skrána
tók saman Sigurður P. Sigmunds-
son. Hann hefur verið áhugamaður
um skrásetningu íþróttaafreka um
langt árabil og var m.a. formaður
Afrekaskrárnefndar Frjálsíþrótta-
sambandsins í nokkur ár.
„Ég hef verið aö vinna þessa skrá
í mörg ár og stefni að því að upp-
færa hana á hverju ári. Ég veit að
margir hlauparar hafa gaman af
samanburði við aðra og reyna að
fikra sig upp listann. Markmiðið
með skránni er, fyrir utan að halda
upplýsingum til haga, að ýta undir
áhuga hlaupara og hvetja þá til að
setja sér markmið og vinna að því
að ná þeim,“ sagði Sigurður.
Afrekaskráin er til sölu á
Hlaupasíðunni, torfi.h.leifs-
son@iu.is og einnig er hægt að
panta hana hjá höfundi.
ÍS
Komdu og fáöu hlaupaskó sem henta:
* þinni þyngd og hlaupalagi
* þinni vegalengd og því undirlagi sem þú hleypur á
Mesta úrval landsins af hlaupaskóm og sérhæfðum hlaupafatnaöi.
Skoðum hvernig þú stígur niöur.
Notum hlaupabretti og
upptökubúnaö.
Láttu fagmennina finna
réttu skóna fyrir þlg. Fætur eru Okkar fag
STOÐTÆKNI
29 dagar til Reykjavíkur maraþons
Reykjavíkur maraþon
Hlaupaáœtlun fram að 23. ágúst
Vika 8
WMmaföOr
Mánudagur
Möjudagur
Mlövikudagur
Hmmtudagur
Laugardagur
Sumudagur
Æflng:
Hraöalelkur:
■
Skemmtiskokk
hvíld
30-40 mín. skokk eöa ganga
hvild
20-35 mín. vaxandi
hvíld
30-50 mín. skokk eöa ganga
sund eöa hjólreiðar
10 km byijendur
20 mín. rólega og æfing
hvfld
35-50 mín. vaxandi
hvíld
40 mín. rólega eða hraöaieikur
sund eöa hjólreiðar
30-60 mín. rólega
27. júlí-2. ágúst
10 km lengra komnir
8-10 km rólega
20mín.rólegaogæfing
hvíld
8-12kmvaxandi
hvíld eða létt skokk
40 mín. hraðaleikur
10-16 km rólega
6 - 8 x 300 m meö 100 m rólegu skokki á milli spretta. Hraðinn sé meiri en
kepnishraöi 110 km hlaupi en alls ekki sprettur á fullri ferö.
Hlaupa rólega í 5-10 mín, síðan til skiptis álag og rólegt skokk í jafnlangan
tíma og álagið varir. Álagskaflarnir séu 2 mín., 4 mín., 8 mín., 4 mín., 2 mín.
Skokka rólega í lokin. Álagskaflarnir séu á 10 km keppnishraöa eða hraöar.
Byrjendur sleppi 8 mín. kafíanum.
Vaxandi: Byrja rólega fýrstu 5-10 mín, auka síðan hraðann og reyna að fara hraðar
en væntanlegur keppnishraöi, skokka rólega 5-10 mín í lokin.
Hálfmaraþon og maraþonhlauparar.
Þrjár lykilæflngar:
1. 60-70 mín hraðaleikur. 10 mín. upphitun, síöan álagshluti þar sem
skiptast á álagskaflar og skokk sem tekur sama tíma, álagskaflarnir séu
2 mín., 4 mín„ 8 mín„ 8 mín„ 4 mín„ 2 min. og 10 mín. skokk í lokin.
Hraði í álagsköflum sé 10 km keppnishraði eða hraðar.
12-18 km á vaxandi hraða. Byrja rólega en fara vel yfir keppnishraða.
16-33 km rólega (maraþonhlauparar yfir 24 km)
Aörar æfingar séu róleg langhlaup (30 — 60 mín). Róleg æfing daginn
eftir erfiða æfingu.
Sveigjanlelkl æflngaáætlana.
Stöðugleiki er lykilþáttur allra æfingaáætlana. En um leið verður ekki litiö framhjá því aö
nauðsynlegt er aö hafa ákveðinn sveígjanleika og taka tilllt til breytinga á aöstæðum.
Þegar æfmgáætlun segir 35 — 50 mín eða 10 —16 km er ætlast til þess aö þeir sem hafa t.d.
misst úr æfingar eða finna fyrir þreytu séu við neðri mörkin. í lengstu æfingu vikunnar er ágætt
að vera aðra vikuna við efri mörkin og við neðri mörkin þá næstu. Betra er að vera varkár og gera
heldur minna en meira, miöað við að æfingaáætlun sc annars fylgt. Þeir sem misst haf úr margar
vikur eða eru byrja aö æfa reglulega eftir áætlun 8. viku ættu að byrja vel neðan við neðri mörk
sem gefin eru fyrir lengd æfinga,- Gunnar Páll 1998
Fram undan
25. júlt: „Laugavegurinn"
Hlaupið hefst klukkan 8.00 við skál-
ann í Landmannalaugum og endar við
skálann i Þórsmörk. TU vara er 26. júli
ef veður verður óhagstætt hlaupadag-
; inn. Vegalengd: inn 55 km með tíma-
; töku. Flokkaskipting bæði kyn, 18-29
ára, 30-39 ára, 40 ára og eldri konur,
' 4049 ára, 50-59 ára, 60 ára og eldri
karlar. Allir þátttakendur sem ljúka
hlaupinu fá skjöld og háskólabol.
Verðlaun fyrir þrjá fyrstu einstaklinga
I i karla- qg kvennaflokki og fyrsta sæti
j í hverjum flokki. Verðlaun fyrir þrjár
j fyrstu sveitir í sveitakeppni. Útdrátt-
arverðlaun. Upplýsingar á skrifstofu
Reykjavíkur maraþons í síma 588 3399.
30. júlí: Ármannshlaup
Hlaupið hefst klukkan 20.00 við Ár-
mannsheimUið, Sigtúni. Vegalengdir:
2 km án tímatöku og flokkaskiptingar,
1 4 km og 10 km með tímatöku. Flokka-
| skipting bæði kyn: 18 ára og yngri,
119-39 ára, 4049 ára, 50 ára og eldri.
Verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu
sætin í heUdina og fyrsta sæti í hverj-
* um Uokki. Sveitakeppni, 3 í sveit. AU-
{ ir sem ljúka keppni fá verðlaunapen-
: ing. Upplýsingar gefur Katrin Sveins-
dóttir í síma 562 0595 og Ármanns-
t heimilið í sima 561 8140.
6. ágúst: Sri Chinmoy, 5 km
Hlaupið hefst klukkan 20.00 við
i Ráðhús Reykjavíkur. Vegalengd: 5 km
með timatöku. Flokkaskipting ákveðin
síðar. AUir sem ljúka keppni fá verð-
; launapening. Upplýsingar hjá Sri
Chonmoy-maraþonliðinu f síma 553
9282.
; 6. ágúst Víðavangshlaup UMSE
Upplýsingar um hlaupið á skrif-
stofu UMSE í símum 462 4011 og 462
4477.
9. ágúst: Fjöruhlaup Þórs
Hlaupið hefst klukkan 14.00 viö Ós-
eyrarbrú. Boðið er upp á að hlaupa
eöa ganga annaöhvort 4 km eða 10 km
í eftir fjörusandinum frá Óseyrarbrú að
íþróttamiðstöð Þorlákshafnar. Flokka-
skipting bæði kyn: 12 ára og yngrl (4
j km), 13-14 ára, 15-39 ára, 4049 ára, 50
í ára og eldri. AUir sem ljúka hlaupun-
um fá verðlaunapening og sigurvegar-
ar sérstaka viðurkenningu. Skráning
fer fram við íþróttamiöstöð Þorláks-
hafnar og lýkur klukkan 13.15. Upplýs-
ingar hjá Jóni Sigurmundssyni í síma
483 3820, fax 483 3334 og Inga Ólafssyni
í sírna 483 3729.
11. ágúst: Orkuboðhlaup
í ElUðaárdal.
Almenningsboðhlaup ÍR og Raf-
magnsveitu Reykjavikur hefst klukk-
r an 19.00 við Rafstöðina i EUiðaárdal.
; Fimm einstaklingar skipa hverja
j sveit. Keppt verður í þremur Qokkum;
j karlaflokki, kvennaflokki og blönduð-
( um flokki (2 karlar og 3 konur eða 3
; karlar og 2 komu- skipa hverja sveit).
I Vegalengdir eru um 3 km (3 hlauparar
f; hlaupa þá vegalengd) og um 6,5 km (2
: hlauparar hlaupa þá vegalengd). AUir
sem ljúka keppní fá verðlaunapening
!í og sigursveit í hverjum flokki fær sér-
stök verðlaun. Upplýsingar gefur
j; Kjartan Árnason i síma 587 2361, Haf-
j steinn Óskarsson í síma 557 2373 og
i Gunnar PáU Jóakimsson í síma 565
Þ 6228.
23. ágúst: Reykjavlkur maraþon
Hlaupið hefst klukkan 10.00 i Lækj-
¥ argötu. Vegalengdin 3 km og 7 km
skemmtiskokk án tímatöku. 10 km,
1 hálfmaraþon og maraþon með tíma-
■! töku hefst klukkan 10.00. Meistaramót
j: íslands í maraþoni. Flokkaskipting
bæði kyn. 14 ára og yngri, 15-17 ára (10
km), 16-39 ára (hálfmaraþon), 18-39
1 ára (10 km og maraþon), 4049 ára,
50-59 ára, 50 ára og eldri konur (hálf-
:j maraþon og maraþon), 60 ára og eldri.
í AUir sem ljúka keppni fá verölauna-
í penhig og T-bol. Verölaun fyrir þrjá
j; fyrstu i hverjum flokki. Útdi'áttarverð-
j laun. Sveitakeppni. Forskráningu lýk-
1 ur 20. ágúst, eftir þann tima hækkar
:j skráningargjald á öUum vegalengdum
j; um 300 krónur, nema í skemmti-
j; skokki, þar sem verður engin hækkun
j: á þátttökugjaldi. Upplýsingar á skrif-
j stofu Reykjavikur maraþons í Laugar-
P dal í síma 588 3399.