Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1998, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1998, Blaðsíða 15
LAUGARDAGUR 22. ÁGÚST 1998 15 Við Húnvetningar „Komdu sæl, elsku frænka," sagði ég og faðmaði fallega konu. Konan tók atlotunum vel og lét sér hvergi bregða. Ég kallaði konuna hiklaust elsku frænku þótt ég hefði aldrei séð hana fyrr og hún ekki mig. Við vorum nefnilega á ættar- móti. Það eru vinsælustu samkom- ur síðari ára. Enginn er maður með mönnum nema fara á ættar- mót, eitt ef ekki fleiri. Þannig heyrði ég af fólki sem ætlaði á ætt- armót þrjár helgar í röð nú síð- sumars. Hagyrðingar og hestamenn Ég verð að játa þær syndir á mig að vera lítt ættfróður. Þó ber ég kennsl á mína nánustu og man eft- ir vænu fólki í stórveislum afa og ömmu í þá góðu gamla daga. Margt er það fólk gengið á fund feðra sinna og afkomendur þess fólks dreifast um allar koppagrundir eins og gengur. Enn verr er ég að mér í fræðun- um sé litið lengra aftur, jafnvel aft- ur til síðustu aldar. Stöku forfóður hef ég heyrt nefndan sem og aðra hliötengda. Ég met það svo að allt hafi það verið sómamenn, karlar jafnt sem konur. Sumir svolítið frægari en aðrir, hluti gleðimenn, kvennamenn, hestamenn og hag- yrðingar. Allt eftir bærilegum ís- lenskum staðli. Húsfreyjur öflugar og prestar sérlega margir, jafnvel talað um prestaættir. Eitthvað hef- ur það gen þó vikið fyrir öðrum áleitnari í þeim sem nú eru ofar moldu. Sérarnir hafa því týnt töl- unni. Þá er að vísu aðeins átt við ættina sem hittist á dögunum. Hver og einn er hins vegar af mörgum ættum. Því þori ég ekki að fullyrða um presta og skáld í hópi annarra forfeðra minna og ættingja. Tímabær uppgötvun Það kom mér á óvart þegar ég fékk boð um ættarmótið að ákveð- ið var að hittast í Húnaþingi þar sem saga forfeðranna væri rakin þangað. Vankunnáttan var slík að ég hafði ekki hugmynd um að ég væri Húnvetningur að langfeðga- tali. Ég vissi hins vegar af forfeðr- um á Mýrum, vestur á fjörðum og á Suðurlandi. Það á þó vísast við um mig eins og aðra í þessu dverg- vaxna samfélagi okkar að allir eru undan öllum eða því sem næst. Þess vegna er eins gaman að rekja í okkur genasöguna og raun ber vitni. Kári Stefánsson er bara sá eini sem hafði vit á að gera sér peninga úr nefndum genum. Þótt ég sé ekki ættfróður er ég forvitinn. Það hef ég sjálfagt frá þessum forfóður mínum, Húnvetn- ingnum. Ég ákvað þvi að skella mér á þing þetta með konu og yngsta barni. Eldri börnin sögðu ekki margt en skilja mátti af við- brögðum þeirra að ættarmót af- komenda einhvers frá árinu sautján hundruð og súrkál væri ekki „inn“ eins og kallað er. Þau sátu því sem fastast á óðali okkar í Kópavoginum. Páll sár um sína Við hjónin ákváðum að hita okkur upp fyrir ættarmótið með því að aka norður Kjöl. Þar sem ég var orðinn löggiltur Húnvetningur þótti mér tilhlýðilegt að byrja þar í Húnavatnssýslunni sem helsti ætt- arlaukur okkar sveitunganna ræð- ur ríkjum, sjálfur Páll bóndi og ráðherra á Höllustöðum. Þá er ég ók þar hjá garði hægði ég á bílnum og tók ofan. Við stöndum saman, Húnvetningarnir. Það er athyglisvert að aka norð- ur þennan fjallveg. Hann er ómögulegur sunnan jökla, niður- grafinn og stanslaust þvottabretti. Úm leið og komið er norður fyrir Hveraveili breytist allt. Þar er veg- urinn uppbyggður, vel heflaður og flnn. Það helgast sem fleira af krafti okkar Húnvetninga, meira þó af afli og styrk Páls á Höllustöð- um en mínum. Hann sá nefnilega til þess, þá er ráðist var í virkjun Blöndu, að búa til fína vegi langt inn á öræfi. Laugardagspistill Jónas Haraldsson Fellihýsi og blátt tjald Það var gert ráð fyrir tjaldbú- skap á ættarmótinu. Þegar við hjón renndum i hlað á mótsstað, á bökkum einnar af bestu veiðiám okkar Húnvetninga, sá ég að ætt- ingjar minir mættu vel búnir til móts. Öflugir jeppar stóðu við tjaldvagna, fellihýsi og annan þann búnað er best þykir fallinn til úti- og ættarmóta. „Við erum bara með litla bláa tjaldið í skott- inu,“ sagöi ég við konuna. Við verðum að athlægi innan um þessa jöfra." „Þetta er þitt fólk,“ sagði konan og þitt mál að finna út úr þessu. Þú hefur aldrei viljað kaupa neinn viðlegubúnað." Ég fann að konan min bjó ekki yfir stolti okkar Húnvetninga. Mér varð það hins vegar ljóst þama í hlaðinu að litla bláa tjaldið yrði ekki hreyft. Það yrði áffam í skott- inu. Mér bar, sem ættarlauk, að leysa málið á þann hátt að ég héldi sæmd minni innan um ættmennin öll, jafnvel þótt ég þekkti hvorki haus né sporð á þeim. Ég gekk því til skráningar minnar og fjölskyld- unnar. Grænt merki og stjarna Þá er ég gerði grein fyrir nafni mínu og númeri rétti mótsstjóri mér merkispjald til nælingar í brjóst. Það var með grænum kanti, sérkenni míns anga ættarinnar. Dóttir okkar hjóna var og merkt grænu sem og eiginkonan. Hún fékk gyllta stjömu að auki með nafni sínu. Stjarnan vottaði það að hún hefði þann kjark og þor að giftast inn í þessa merku ætt. Fjar- skyldari ættingjar mínir voru í öll- um regnbogans litum. Þetta kerfi auðveldaði okkur sem skammt vorum komin í ættfræðinni að draga frændsemina alla í dilka. Misskilið stórmenni „Ertu búinn að losa fellihýsið aftan úr jeppanum og koma þér fyrir?“ spurði mótsstjórinn að lok- inni skráningu. „Ja,“ stamaði ég, „hann er nú svo kaldur i kvöld og það rignir það grimmt að ég veit ekki nema ég bíði með það til morguns. Ég var að velta því fyrir mér hvort ekki væri hagstæðara að gista bara inni í nótt.“ Þama vísaði ég til þess að hótel var á ætt- armótsstaðnum. Um leið reyndi ég að gefa nærstöddum þá tilfinningu að þama færi maður sem gjaman léti dekra við sig á dýrustu hótel- um. Það var jafngott að dóttir okk- ar hjóna kom ekki með mér til skráningarinnar. í barnslegu sak- leysi sínu kynni hún að hafa nefnt bláa tjaldið í skottinu. Af viðbrögðum mótsstjóra var ekki að merkja að ég hefði komið inn þessum „fimm stjömu filingi". „Við erum með svefnpokapláss fyrir þá sem vilja. Það eru bara fáir sem nýta sér það. Ég sé ekki betur en þið getið fengið skólastofu til afnota. Þú gerir það bara upp í mótttöku hótelsins." Húnvetnskur andi Húnaþing heilsaði þessum af- komendum sínum með sól og góðu veðri næsta morgun. Kvöldregnið var langt aö baki. Fellihýsi ætt- ingja minna gljáðu í sólinni þá er ég kíkti út úr skólastofunni. Mér fannst ég hafa verið í skammar- króknum. Ég sá að frændumir voru komnir út, mettir af morgun- fleski úr fellihýsunum. “Sæll frændi, og velkominn.“ Þessi kveðja barst hvarvetna að þá er við komum út í blíðuna. Böm voru farin að leika sér, hinir eldri stóðu á hlaðinu og spjölluðu um veðrið og tilveruna, frændskapinn og framættina. Elsta kynslóðin var best að sér, þekkti flesta og vissi hver var kominn út af hverjum. Ég tók gleði mína og kyssti konur í húnvetnskum anda og tók I hend- ur bænda. Skipti þá engu hvort ég þekkti ættmennin eða ekki. Kominn heim „Ég sé svip af honum afa þínum í þér, sagði fullorðinn maður við mig, „Hann var stórmenni," bætti hann við. Ég dró ekki úr því og bætti því við að ættliðurinn hefði þróast vel fram. „Já, þið vissuð alltaf vel af ykkur, ég sé að það hefur erfst," sagði sá gamli og glotti. Ég fann að ég var kominn heim. Ég var innan um mína líka. Við Húnvetningar lúffum ekki fyrir neinum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.