Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1998, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1998, Blaðsíða 18
18 ★ itfþygarðshornið LAUGARDAGUR 22. ÁGÚST 1998 yr ir Að fyrirgera sálu sinni Bandaríkjamenn velta því fyrir sér hvort forseti þeirra megi drýgja hór eöa hafi drýgt hór því hvað sé hór: munnmök? orömök? Clinton er maðurinn sem sagöist hafa reykt hass en ekki tekiö ofan í sig, hann vill alltaf höföa tO allra; hann er klassískt fómarlamb þess tvöfalda siðgæðis sem sýkir meira en annaö þetta mikla land: tekinn á orðinu í bólinu, þvi tvennt dá Bandaríkjamenn öðru fremur og þar með vildi Clinton láta hvort tveggja spyrjast um sig: siðprúða fjölskyldufeður og óeirðamenn um kvennafar - vandinn er að láta þetta fara saman. En ég ætla ekki að skrifa um það. Á meðan Bandarikjamenn velta því fyrir sér hvort forseti þeirra geti í senn veriö nokkurs konar Móses sem leiðir þjóð sína og kynóður pilsajagari þá geisar hér á landi umræða um hvort forset- inn megi halda ræður sem eitt- hvað stendur í. Og virðast allir búnir að gleyma því aö bæði Sveinn Bjömsson og Ásgeir Ás- geirsson beittu sér bæði í ræðu og verki fyrir hersetunni hér, nema það sé ekki lengur talið hafa verið pólitískt mál. Fremstur í flokki gagnrýnenda fer Jón Steinar Gunnlaugsson, lögmaöur hér í bæ sem af einhverjum ástæðum er alltaf til kvaddur að segja sitt álit án þess að það álit sé ýkja frétt- næmt: að minnsta kosti ekki að honum sé í nöp við Ólaf Ragnar Grímsson - óvild lögmannsins í garð forsetans er þjóðkunn og raunar svo megn að engu er líkara en að hann álíti gjörvalla tilvem Ólafs Ragnars eiha aUsherjar lög- leysu. En ég ætla ekki að skrifa um það. Og á meðan íslendingar velta því fyrir sér hvort forseti þeirra megi halda ræöur um eitthvað velta Norðmenn þvi fyrir sér hvort fyirum forseti okkar megi halda ræður um ekki neitt. Pirr- ingur tíðindamanns Aftenposten bendir reyndar til þess að Vigdís Guðmundur Andri Thorsson hafi einmitt haidið ræðu um eitt- hvað en Norðmanninum mislíkað að heyra það og því getum við enn og aftur verið stolt af þessum glæsilega sendiherra okkar sem ætti ef allt væri með felldu að hafa fjölmennt starfslið og að minnsta kosti milfjón krónur á ári til starf- semi sinnar - en ég ætla ekki að skrifa um það. Ég ætla að skrifa um það þegar Norð- menn hittu loksins naglann á höfuðið í gagnrýni sinni á ís- lendinga. Óvart. ’k'k’k'kirk Það þurfti sem sé til leiðarahöfund í Fiskaren, málgagni norskra sægreifa, að benda á um hvað Keikó-málið eigin- lega snýst. íslend- ingar virðast alls ekki hafaiáttað sig á því að í græðgi sinni og gullæði hafa þeir án þess að taka eftir því snúið baki við öll- um grundvallarsjónarmiðum sin- um í hvalveiðimálinu og verður hér eftir ókleift að svo mikið sem atyrða hval, hvað þá að veiða hann. Sem er að vísu allt í lagi, en þó hefði verið skemmtilegra ef þjóðin hefði komist að þeirri nið- urstöðu að hætta hvalveiðum með öðrum hætti en þeim að láta múta sér til þess án þess að taka eftir því, eins og bami. Keikó er ekki háhymingur nema kannski formlega séð. Hann er hugmynd, teiknimyndafígúra: hann er Depill sem kemur í heim- sókn til Ariels eins og margir for- eldrar þekkja. Keikó er bam sem var numið burt af vondum mönn- um frá fjölskyldu sinni, pabba og mömmu og þráir þaö eitt að kom- ast heim til að leika sér á ný við hina kátu háhymingana. Keikó er Disney-dýr. Hann er frægasta af- urð þeirrar iðju Bandarikjamanna að manngera dýr - og er i raun- inni síst skárri tegund ofbeldis en að veiða þau. Miklu verri raunar, því manngerving dýra er stunduð af fólki sem stendur svo mikið utan við náttúmna að það tengir aldrei hamborgarann við eitthvert dýr með stór og falleg augu. ’k’k'k'k'k'k Bandarikjamenn virðast hafa áttað sig fullkomlega á því hvað einkennir helst islenskan þjóðar- karakter: það er græðgi. Enda hef- ur stórveldið mikla reynslu af græðgi íslendinga allt frá stríðslokum, eins og lesa má um í bók Vals Ingimundarsonar, ísland í eldlínu kalda stríðsins. Það kænlegasta í málinu öllu er sú ákvörðun Bandaríkjamanna að hola þessum mikla Bamba undir- djúpanna niður í Vestmannaeyj- um. Því þar er stærsta verstöð landsins að Reykjavík frátalinni. í Vestmannaeyjum slær hjarta ís- lensks sjávarútvegs. Þar eru höf- uðstöðvar veiði- mannasamfélags- ins, þar er höfuð- vígi þess hugsunar- háttar sem liggur að baki kergju ís- lendinga í hval- veiðimálinu. Vest- mannaeyingar hafa vanist því að líta á háhyrninga eins og nokkurs konar varg, sem eyðilegg- ur net og tekur fisk frá veiðimönnum. Slíkur hugsunar- háttur er kannski rangur, en þetta er samt hugsunarhátt- ur þeirra sem lifa af náttúrunni, og lifa því af, hafa lifað af í þúsund ár. Bandarísku skólabömin sem standa straum af Keikó-iðnaðinum hafa fyrir satt að Keikó sé aö fara heim til fjölskyldu sinnar. Þau upplifa Keikó-fjölskylduna - the Keikos - sem væri það úthverfa- fjölskylda í amerískum smábæ og bíða þess nú spennt að honum verði tekið opnum uggum af hrærðum ættingjum. Vestmanna- eyingar telja ekki að svo verði. Þeir líta á Keikó sem háhyming - þetta er kvikindi fyrir þeim. En í græðgi sinni hafa þeir gert samn- ing við skrattann um monnípen- ingaglás. í samfélag þeirra eru nú komin viss óheilindi - öðra nafni tvöfalt siðgæði, að tala tungum tveim. Og slíkt sýkir samfélag, eins og dæmin úr Vesturheimi sanna. Hættan er sú að Vest- mannaeyingar hafi með samningi sínum fyrirgert sálu sinni - veiði- mannssálu sinni. **■ ★ * * dagur í lífi *-------- Undirbúningsdagur fyrir menningarnótt í lífi Lindu Vilhjálmsdóttur Ijóðskálds: Nótt hinna löngu Ijóða „Það er þriðjudagurinn 18. ágúst. Ég er ekki hress á morgn- ana. Ég er meira að segja svo óhress að af og til hef ég frekar kosið að vinna á næturvöktum en að fara á fætur á þeim óguð- lega tíma sem vekjaraklukkan kallar morgunvakt. En nú á að heita að ég sé í sumarfríi - með flensu auðvitað og nótt hinna löngu ljóða hangandi yfir mér eins og óveðursský. Ég drattað- ist samt fram úr um níuleytið, lagaði mér kaffi og hlustaði á laufskálann, morgunsögu barn- anna og morgunleikfimina með- an ég hristi af mér slenið. Fór síðan að sjæna til forláta verð- launagrip sem það skáld hlýtur sem mest verður klappað fyrir í ljóðadagskrá sem ég og Sigurjón Birgir Sigurðsson, stundum kallaður Sjón, og Andri Snær Magnason stöndum fyrir í Iðnó á Menningarnótt i Reykjavík. Ljóðið flutt í land Dagskráin kallast Nótt hinna löngu ljóða og hefst með ljóða- lestri í Tjarnarhólmanum klukkan hálfátta um kvöldið og síðan verður ljóðið flutt í land og inn í Iðnó þar sem ljóð verða lesin og sungin frá klukkan átta um kvöldið til klukkan tvö um nóttina. Sigurjón á hugmyndina að nafninu og þó að viö vissum að til var Nótt hinna löngu hnífa mundum við engan veginn um hvað hún snerist og héldum einna helst að þetta væri titill á Morgan Kane-sögú. Þegar það svo rann upp fyrir okkur nýlega að þetta væri nóttin sem Hitler réðst gegn eigin mönnum var nafnið orðið pikkfast í hausnum á okkm- og auk þess fannst okk- ur það alltof smart til að fórna því. Eftir að hafa farið yfir tossa- listann hringdi ég í nokkra menningarmenn á fjölmiðlum til að reyna að fá þá til að fjalla um dagskrána og gerði þau mis- tök að segja menningarritstjóra Morgunblaðsins frá því að ég læsi aldrei blöðin, ég held ég hafi meira að segja sagt að ég læsi aldrei Morgunblaðið, en meinti auðvitað að ég keypti ekki blöðin. Rispa í símanum Ég hafði setið á Gráa kettin- um upp undir klukkutíma i há- deginu og bölvað óstundvísi Andra Snæs þegar ég mundi eft- ir því að hann var að flytja fyr- irlestur í Amsterdam. Ég drakk í staðinn kaffibolla með Ástu systur minni og Sunnu Magnús- dóttur sem líka voru að skipu- leggja fyrir Menningamóttina því þá ætla þær að opna sauma- verkstæði i Þverholtinu sem heitir Nælon og jarðarber með pompi og prakt og hafa opið fyr- ir gesti fram á nótt. Á leiðinni heim keypti ég í matinn og borg- aði reikninga og skellti siðan í eina vél áður en ég tók nokk- urra klukkutíma rispu í síman- um til að staðfesta tímasetning- ar í dagskránni við skáldin. Ánægð með starfslaun Upp úr fjögur lá leiðin út úr bænum og upp á Lyng- háls í viðtal hjá þeim sí- hressu ljóðaunnendum Hrafni Jökulssyni og Jak- obi Bjarnar á Þjóðbraut- inni. Síðan fór ég aftur í gegnum Hvalfjarðargöng- in í bæinn og beint á Kjarvalsstaði en þar voru borgarstjórinn í Reykjavík og formaður menningar- málanefndar að afhenda listamönnum starfslaun á afmælisdegi borgarinnar. Ég I mörgu hefur veriö aö snúast hjá Lindu Vilhjálmsdóttur í undir- búningi Ijóðadagskrár í Iðnó á menningarnóttinni í nótt. DV-mynd S var mjög ánægð Birgir Andrésson maður skyldi fá árslaunin að þessu sinni. Sjálf var ég á starfs launum í þrjá mán- uði hjá Reykja- víkur- borg í fyrra og það var eiginlega kveikjan að þessu ljóða- brölti að heyra að myndlistar- mínu í kringmn Menningamótt- ina núna. Eftir að hafa skálað fyrir Birgi og hinum listamönnunum fór ég heim á Laugaveginn að elda kvöldmatinn og var rétt að byrja að borða þegar Harpa Björnsdóttir, fram- kvæmdastjóri Menningar- nætur, hringdi og sagðist vera komin með auglýsing- una fyrir Nóttina. Við ákváð- um að hittast í hennar matar- tíma á Næstu grösum. Þegar ég kom aftur heim tók ég aðra skáldarispu í símanum L og lá síðan hálfsofandi yfir sjónvarpinu í sófanum þangað til ég nennti að standa upp til að fara í rúmið. Góða Menning- amótt.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.