Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1998, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1998, Blaðsíða 17
LAUGARDAGUR 22. ÁGÚST 1998 &star 17 Verðmætin og þekkingin verða eftir í landinu - segir Hafliði Halldórsson, skólastjóri Hestaskólans að Ingólfshvoli Þeir sem aka um Suðurlandsveg í Ölfusinu hafa eflaust séð miklar framkvæmdir í landi Ingólfshvols. Þar er Örn Karlsson að byggja stóra reiðhöll og fleiri byggingar tengdar hestamennsku. Hafliði Halldórsson, tamninga- maður og reiðkennari, hefur í sam- starti við Öm Karlsson stofnað reið- skóla sem á að starffækja á Ingólfs- hvoli allan ársins hring. „Það hefur mikið verið hringt í mig á undanfornum árum og ég beð- inn um kennslu á ýmsum þáttum hestamennskunnar í skemmri eða lengri tíma,“ segir Hafliði. „Það hefur ekki alltaf hentað því sem ég hef verið að gera en ég fékk þá hugmynd að stofna reiðskóla sem sæi um þessa þjálfun og hugs- anlega meira til. í samstarfl við Öm hef ég því stofnað reiðskóla sem byggir til að byrja með á fjórum námskeiðum á ári sem hvert um sig er tveir og hálfur mánuður. Fyrsta námskeiðið hefst 1. október og verð- ur byggt á sextán kennsluþáttum," segir Hafliði. Fastráðnir kennarar eru Atli Guð- mundsson, Einar Ö. Magnússon, Olil Amble, Freyja Hilmarsdóttir, Þórður Þorgeirsson, Jón Vilmundar- son ráðunautur og Páll Stefánsson dýralæknir en auk þeirra koma fleiri aðilar að með ýmiss konar námskeið. „Við ætlum að kenna fmmtamn- ingu, þjálfun og uppbyggingu keppn- ishesta og kynbótahrossa, kynbóta- dóma, hrossasjúkdóma, atferlisfræði hrossa, fóðurfræði, járningar, íþróttadóma, gæðingadóma, skipu- lagningu hestasýninga, markaðs- fræði og íslensku. Aflt efni verður kennt á islensku en við verðum með túlk. Nemendurnir verða tólf á hverju námskeiði og mun skólinn útvega þeim einn keppnishest og tvo tamn- ingahesta hverjum. Nemendurnir búa á staðnum í vist og verður kennt fimm daga vikunnar. Hestaskólinn mun kaupa keppnis- hestana og verða þeir svo til sölu en tamningahestana fáum við hjá fólki sem þarf tamningu á hrossin sín. Hafliði Halldórsson, skólastjóri Hestaskólans, með gullverðlaun fyrir sigur í tölti á Nælu á íslandsmóti árið 1994. DV-mynd E.J. Þó markaðsstarf hafi ekki hafist að alvöru er þegar uppselt á eitt námskeiðanna og margir nemendur skráðir á önnur námskeið. Útlend- ingar eru í meirihluta nú, ekki endi- lega fólk sem ætlar að leggja fyrir sig tamningar heldur fólk sem vill bæta sig sem reiðmenn. Við erum í sambandi við Félag tamningamanna um að þeir sem nái ákveðinni lágmarkseinkunn fái að sækja um að þreyta próf Félags tamningamanna en nú eru einungis tvær leiðir til þess, að klára nám á Hólaskóla eða vera orðinn 24 ára og hafa að baki tveggja ára starf við tamningar. Við viljum opna þriðju leiðina. Þekkingin og verðmætin verða eftir í landinu en eru ekki flutt út. Hestaskólinn mun ekki eingöngu skapa kennurum skólans vinnu heldur öllum þeim sem koma að með öðrum hætti svo sem heysölu, sölu hrossanna, sölu á reiðtygjum, tryggingum og fleiru," segir Hafliði Halldórsson. -E.J. SUZUKI SWIFT GERIR INNANBÆJARAKSTURINN SKEMMTILEGRI Rúmgóður, sparneytinn, nettur og lipur að keyra. Sestu inn og láttu fara vel um þig. SWIFT 1.3 GLS; 3d 980.0001 SWIFT 1.3 GLX, 5d 1.020.000 ] 1 ÓVENJU MIKILL STAÐALBÚNAÐUR FYRIR BÍL í ÞESSUM VERÐFLOKKI Vökvastýri • 2 loftpúðar • Þjófavörn • Samlæsingar Krumpusvæði að framan og aftan • Upphituð framsæti Rafmagn í rúðum og speglum • Samlitaðir stuðarar Hæðarstillanleg öryggisbelti • Hemlaljós í afturglugga Skolsprautur fyrir framljós • Styrktarbitar í hurðum $ SUZUKI —!------- SUZUKI SÖLUUMB0Ð: Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, siml 431 28 00. Akureyri: BSA hf., Laufásgötu 9, sími 462 63 00. Egilsstaðir: Bila- og búvélasalan hf„ Miðási 19, sími 471 20 11. Hafnarfjörður: Guðvarður Elíasson, Grænukinn 20, sími 555 15 50. Isafjörður: Bilagarður ehf.,Grænagarði, simi 456 30 95. Keflavík: BG bilakringlan, Grófinni 8, simi 421 12 00. Selfoss: Bílasala Suðurlands, Hrismýri 5, simi 482 37 00. Hvammstanga: Bíla- og búvélasalan, Melavegi 17, simi 451 26 17. SUZUKI BÍLAR HF Skeifunni 17. Sími 568 51 00. Heimasíða: www.suzukibilar.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.