Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1998, Blaðsíða 16
Margt að gerast á Þingvöllum:
Bretar leggja nýjan göngustíg
- fjölbreytt dagskrá um helgina
Undanfarið hafa nokkrir sjálf-
boðaliðar frá Bretlandi unnið að því
að breikka göngustíg á Þingvöllum.
Stígurinn, sem nefndur hefur verið
Þinggata, liggur eftir endilangri
Fögrubrekku, milli tjaldstæðisins
syðst á Leirunum og Furulundarins.
Þinggatan er gömul kindagata sem
fáir vissu um eða nýttu sér þar til
hún var lagfærð að nokkru marki
undanfarin sumur. Síðan þá hefur
hún verið mikið nýtt og er breikkun-
in liður í að bæta göngustíginn enn
frekar.
Bretarnir eru félagar i samtökun-
um British Trust for Conservation
Volunteers sem láta til sín taka með
sjálfboðavinnu af ýmsu tagi víða um
heim. Að sögn Sigurðar Oddssonar,
framkvæmdastjóra Þingvallanefnd-
ar, vinna sjálfboðaliðamir mjög gott
starf og greinilegt að þama em van-
ir menn að verki.
Eins og sjá má á meðfylgjandi
korti opnar bættur göngustígur á
þessu svæði þann möguleika fyrir
fólk að leggja bílum sínum við þjón-
ustumiðstöðina og ganga síðan eftir
Fögrubrekku, með fram barmi
Stekkjargjár, suður að lýðveldis-
reitnum. Enginn ætti að verða svik-
inn af slíkri byrjun á Þingvallaheim-
sókn.
Nýjasti hluti þjóðgarðsins
skoðaður
Umsjónarmenn Þingvalla hafa í
sumar staðið fyrir ýmsum uppákom-
um í þjóðgarðinum. Nú um helgina
lýkm- sumardagskránni þar á bæ og
því ekki seinna vænna fyrir áhuga-
sama að drífa sig á staöinn og skoða
hann í fylgd fróðra manna.
Margt er um að velja í dag og á
morgun. Lögbergsganga verður kl.
14 í dag, í fylgd sr. Heimis Steinsson-
ar, þar sem gengið er um Almanna-
gjá og endað í Þingvallakirkju.
Klukkan 14.30 hefst síðan önnur at-
hyglisverð ferð en þá verður gengið
um Arnarfell við Þingvallavatn,
undir leiðsögn Sigurðar K. Oddsson-
ar, framkvæmdastjóra Þingvalla-
nefndar. Meðal annars verður litast
um á gamla bæjarstæðinu og gengið
á sjálft fellið. Gönguferð á Amarfell
er ekki hvað síst athyglisverð um
þessar mundir fyrir þær sakir að
fellið er nýorðið hluti af þjóðgarðin-
um á Þingvöllum. Landbúnaðar-
ráðuneytið afhenti Þingvallanefnd
jörðina síðastliðið vor og taka þvi án
efa margir því fegins hendi að fá
leiðsögn um þennan nýjasta hluta
þjóðgarðsins.
Á morgun verður svo guðsþjón-
usta í Þingvallakirkju kl. 14 en
klukkustund síðar verður gengið
inn í Skógarkot og fariö með Ijóð og
sögur frá Þingvöllum, auk þess sem
spjallað verður um það sem fyrir
augu og eyru ber. Jafnframt tekur
sr. Heimir Steinsson á móti gestum
þjóðgarðsins kl. 15.30, á grafreit bak
við kirkjuna og fjallar um náttúra
og sögu Þingvalla.
Þeir sem vilja fá nánari upplýs-
ingar um dagskrána geta haft sam-
band við landverði í þjónustumið-
stöð þjóðgarðsins.
-KJA
Bretarnir við vinnu sína. Hlutverk þeirra er afi breikka göngústíginn þannig
afi vegfarendur þurfi ekki afi stíga út af honum þegar þeir mætast.
Á þessu korti, sem teiknaö er af Gylfa Gísiasyni, má sjá hvar Þinggatan liggur.
Verslun með raftæki í New York:
Varist vörusvik
Margt athyglisvert í Papey:
Náttúra, dýralíf og mannvirki
Það eru ekki bara íslendingar sem
verða áhugasamir þegar tilboð á raf-
tækjum eru annars vegar. Reyndar er
það líklega nokkuð stór hluti Vestur-
landabúa sem a.m.k. sperrir eyrun
þegar minnst er á ódýrar græjur.
Þeir sem leið eiga um New York
um þessar mundir geta gert geysilega
góð kaup á raftækjum um þessar
mundir en verða samt að hafa varann
á þegar verslað er. Svik af ýmsu tagi
tíðkast nefnUega í miklum mæli með-
al raftækjasölumanna þar í borg. Svo
algeng eru vörusvikin að viðskipta-
eftirlit New York borgar hefur fjölda
fólks á sínum snærum sem ferðast
mUli raftækjaverslana og kannar
ástandið. Fólkið er dulbúið sem ferða-
menn og gengur með hljóðnema á sér
tU að geta hankað hina óprúttnu.
Jafnframt slíkum aðgerðum hefur
eftirlitið gefið út viðvaranir sem
beint er sérstaklega tU ferðamanna
sem hyggjast kaupa sér raf-
tæki í verslunum í New
York. Þar eru m.a. tUtekin
ýmis atriði sem geta gefið
vísbendingar um að brögð
séu í tafli.
Eitt algengasta svindlið er
að auglýsa vöru á mjög lágu
verði en segja hana síðan
uppselda þegar viðskiptavin-
urinn spyr um hana. í stað-
inn eru honum boðnar ýmsar
aðrar vörur sem eru langt frá
því að vera á sömu kjörum og hin
auglýsta vara.
Einnig verður að vara sig á því að
oft er reynt að selja notaða vöru sem
nýja. Leita þarf vandlega eftir vís-
bendingum um hvort raftæki hafi
verið notuð áður.
EðlUegt er að tortryggja sölufólk
sem spyr hvaðan menn komi og
hversu lengi þeh- verði í bænum.
Fólk sem spyr slíkra spuminga er oft
að fiska eftir því hvort viðskiptavin-
urinn sé ekki á leiðinni úr landi og
muni' því síður koma aftur tU að
kvarta eða skUa vöru.
Svo er nauðsynlegt að fylgjast með
því að ekki sé hægt að breyta vöru-
verði á greiðslukortakvittunum.
Skoða þarf vandlega vöruverð áður
en skrifað er undir kvittunina auk
þess að geyma hana á góðum stað tU
að bera hana saman við rukkunina.
-KJA
Ferðafólk í Suður-Múlasýslu á
Austfjörðum hefur átt athyglisverð-
an ferðamöguleika undanfarin fjög-
ur sumur. Frá Djúpavogi er nefiii-
lega boðið upp á ferðir með bátnum
Gísla í Papey tU hinnar sögufrægu
Papeyjar. Hver ferð tekur um 4
klukkutíma og þar sem siglingin
tekur um 40 mínútur hvora leið
hafa gestir rúmlega 2 og hálfan tíma
tU að skoða sig um í eynni með leið-
sögumanni.
Eins og nafnið gefur tU kynna
segir sagan að hinir írsku papar
hafi haldið tU i eynni áður fyrr. Er
talið að þeir hafi dvalið fyrstir hér á
landi, áður en víkingamir frá Nor'-
egi mættu á svæðið á níundu öld. Þá
héldu papamir af landi brott því
ekkí gátu þeir hugsað sér að búa
innan um heiðið fólk.
Margt er að skoða í Papey, bæði
náttúru, dýralíf og mannvirki.
Fuglabjörgin í Papey rísa mikilfeng-
leg í nær 50 metra hæð en heimaey-
in og aUar úteyjamar eru iðandi af
fjölbreyttu fuglalífi og er selur á
skerjum þar aUt í kring. Fuglalíf
hefur aukist síðustu ár, því ekki er
gengið á fugl eða egg. Sérstaklega
hafa lundi og svartfugl aukið við-
vem sína í eynni en að auki eru rita
og fýU fyrirferðarmikU í björgunum.
Lundinn hefur löngum haldiö sig út-
eyjunum en hefur verið að færa sig
yfir á heimaeyjuna síðustu ár.
Mannvirkin í eynni eru ekki síð-
ur athyglisverð en dýralífið. Þar er
til dæmis að finna minnstu og elstu
timburkirkju landsins, en hún er
talin vera frá árinu 1807. Einnig er
þar íbúðarhús sem Gísli í Papey
byggði upp úr síðustu aldamótum.
Uppi á HeUisbjargi, hæsta punkti
Papeyjar, stendur svo siglingarvit-
inn. Þaðan er gott útsýni yfír eyjuna
og tU allra átta.
En ekki em það bara aðsetur
manna sem hægt er að heimsækja í
Papeyjarferð. í svipmiklum kletti
sem nefndur er Kastali er sagt að
huldufólkið í Papey búi og rétt fyrir
norðan bæinn Bjarg gnæfir hóU sem
nefnist Einbúi. Talið er að hann sé
kirkja huldufólksins.
Ánægðir ferðamenn
Að sögn Más Karlssonar, sem er
einn þeirra sem reka Papeyjarferðir
ehf., em ferðimar í Papey talsvert
vinsælar bæði meðal innlendra og
erlendra ferðamanna. „Fólkið sem
hefur farið með okkur í þau fjögur
sumur sem við höfum siglt út í
Papey hefur látið mjög vel af ferðun-
um. Það hefur sérstaklega orð á því
að ferðimar séu bæði skemmtilegar
og áhugaverðar," sagði Már í sam-
tali viö DV.
„Sérstaklega er gaman að heim-
sækja eyjuna í góðu veðri, en eins
íslendingar f bifiröfi vifi raftækjaverslun. Þafi
er einnig hægt afi gera gófi kaup í New York
en varast ber þó svindlara sem leynast vifia.
A Hellisbjargi í Papey stendur sigl-
ingavitinn sem byggfiur var árifi
1922. Þafian er gott útsýni yfir allt
þaö sem eyjan hefur upp á að bjófia.
DV-mynd Hafdís
og gefur að skUja hefur veðrið tals-
vert mikið að segja um það hvemig
ferðimar ganga,“ segir hann jafn-
framt. í sumar hefur veðrið ekki
verið nógu hagstætt að hans mati:
„Júní var ágætur, en júlí mun verri
vegna veðursins. Ágúst hefur hins
vegar verið mun skárri."
Ferðimar út í Papey munu halda
áfram tU 15. september, en þá verð-
ur tekið vetrarhlé. Aftur hefjast svo
siglingar þangað í lok mai á næsta
ári. -KJA