Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1998, Page 23
LAUGARDAGUR 22. ÁGÚST 1998
lönd
23
Kastljósið beinist að Hillary Rodham Clinton eftir játningar forsetans:
Ekki meðal
daga lífs hennar
Oss er ekki skemmt, sagði Viktor-
ía Englandsdrottning forðum daga.
Heimfæra mætti þau orð upp á Hill-
ary Rodham Clinton, forsetafrú í
Bandaríkjunum. Henni er áreiðan-
lega ekki skemmt þessa dagana, nú
þegar eiginmaður hennar, Biil Clint-
on, hefur viðurkennt fyrir alþjóð að
hafa haft í frammi blekkingar við
sína heittelskuðu um samband sitt
við Monicu Lewinsky, fyrrum lær-
ling í Hvíta húsinu.
Clinton viðurkenndi í sjónvarps-
ávarpi til þjóðarinnar á mánudag,
eftir margra klukkustunda yfir-
heyrslur hjá Kenneth Starr, sérleg-
um saksóknara, og ákærukviðdómi
hans, að hann hefði átt í óviður-
kvæmilegu sambandi við stúlkuna.
Ekki fer sögum um hvað nákvæm-
lega gerðist þegar þau Clinton og
Monica voru ein en heimildir herma
að þar hafi munni og höndum verið
óspart beitt í leitinni að hinni fuli-
komnu sælu.
r
Ohagganleg ást
Umheimurinn var varla byrjaður
að melta sjónvarpsjátningar Clint-
ons þegar Hillary sendi frá sér yfir-
lýsingu þar sem hún lýsti yflr full-
um stuðningi við bónda sinn til 22
ára og játaði honum ást sína.
„Hún trúir á forsetann og ást
hennar á honum er óhagganleg og
full samúðar," sagði Marsha Berry,
talskona Hillary, þegar á þriðjudags-
morgun.
Mörgum þótti yfirlýsing Hillary
Monica Lewinsky hefur valdið meiri
titringi í Hvíta húsinu en hana gat
nokkru sinni óraö fyrir
ákaflega merkileg, ekki síst fyrir
þær sakir að forsetafrúin er ekki
vön að bera tilfinningar sínar á torg.
Hún er þvert á móti þekkt fyrir að
halda einkalifi þeirra hjóna fjarri al-
sjáandi augum fjölmiðlanna. Yfir-
lýsingin þykir sýna óvenjulegan
styrk forsetafrúarinnar, bæði
persónulegan og pólitískan.
„Þetta er mjög göfugmann-
legt af henni,“ segir Don-
David Luster-man, fjöl-
skylduráðgjafi frá New
York, sem hefur skrifað
þekkta bók um hvem-
ig hjón og fjölskyld-
ur geta jafnað sig
eftir framhjáhald
og þvíumlíkt.
„Ef hún segði
við bandarísku
þjóðina, að hún
sé nú ekkert fifl
og hafi vitað
þetta allan tím-
ann held ég að
henni yrði ekki
trúað. En banda-
rísku þjóðinni
mun aftur á móti
líka það vel ef hún
segir: „Ég fyrirgef
honum, ég dái
hann og ég vil að
þetta gangi hjá okk-
ur“.“
Fyrirgefning
syndanna
Þeir sem telja sig gerst
þekkja hvernig almennings-
álitið í Bandaríkjunum virkar
eru margir á því að Hillary hafi
það í hendi sér hvort eiginmaður
hennar eigi sér pólitiska viðreisnar-
von á þessum örlagatímum á for-
setaferli hans. Skoðanakönnuðir
hafa fengið að heyra það marga
undanfama mánuði að
bandarískur almenn-
ingur sé tilbúinn að
fyrirgefa forseta sín-
um kvennafarið geri
Hillary það. Almenn-
ingur er nefnilega
frekar á því að at-
hafnir þeirra Clintons
og Monicu í lokuðum
herbergjum séu
einkamál þeirra. Og
þá hugsanlega þeirra
nánustu.
Hvað og hvenær?
Ein spurning brennur á vörum
margra. Hún er þessi: Hvað vissi
Hillary um framhjáhald eigin-
mannsins og hvenær komst hún að
því?
Talskona Hillary segir að henni
hafi ekki verið greint frá hinu sanna
eðli sambandsins milli Clintons og
Monicu fyrr. en um síðustu helgi.
Hún hafði þá um margra mánaða
skeið haldið því fram að allar sögur
um kynferðissamband forsetans og
lærlingsins fyrrverandi væru ósann-
ar.
„Ég segi það fullum fetum að, eins
og eiginmaður minn hefur sagt,
þessar staðhæfmgar eru ósannar,"
sagði Hillary í þættinum Good
Morning America á ABC sjónvarps-
stöðinni í janúar.
Og á NBC sjónvarpsstöðinni sagði
hún að þau hjónin hefðu mikið rætt
um Monicu og að hún hefði ekki
neinar áhyggjur. Þá bætti hún við
að það væri mjög alvarlegt mál ef
forsetinn hefði haldið fram hjá
henni i Hvíta húsinu. Það myndi
hins vegar aldrei sannast.
„Ég geri þvi skóna að hennar eig-
in trúverðugleiki skipti hana miklu
máli og að hún vilji ekki að menn
haldi að hún hafi vísvitandi villt um
fyrir bandarískuþjóðinni, jafnvel þó
að hann hafl gert það,“ segir einn af
ráðgjöfunum í Hvíta húsinu. Og þeg-
ar sá sami ráðgjafi er spurður
hvemig á því standi að lögfræðing-
ur, menntaður í Yale, einum
virtasta háskóla Bandaríkjanna,
hafi ekki vitað af þessu fyrr, sérstak-
lega þegar þess er gætt að sögur um
kvennamál forsetans hafa verið
lengi á kreiki, svaraði hann: „Hún
trúði honum greinilega þar til hún
gat það ekki lengur."
Ed Goeas, sem hefur þann starfa
að gera skoöanakannanir fyrir
repúblikanaflokkinn, segir að hafi
Hillary vitað hvers kyns var sé hún
ekki lengur fómarlamb ótryggs eig-
inmanns heldur meðsek í samsæri
um að leyna sambandi forsetans við
Monicu.
Ekki eru allir sammála um að
maður fari beint í hlutverk fórnar-
lambsins þótt makinn sé ótrúr.
Elizabeth Toledo, varaforseti banda-
rísku kvennasamtakanna NOW, seg-
ir svo ekki vera.
„Eðli femínistans kemur í ljós
þegar við tökumst á við slíkan
vanda. Það er kannski stundum
rétt að binda enda á hjóna-
bandið, stundum ekki. Fyrir-
gefningin sýnir gífurleg-
an persónustyrk, svo og
sjálfsöryggi,“ segir
Elizabeth Toledo.
Treystum guði
En meira mn Hill-
ary og þá kröfu
hennar að forseta-
fjölskyldan fái að
eiga einkalíf sitt í
friði.
Marsha Berry,
talskona Hillary,
sagði einmitt á
þriðjudag að for-
setafrúnni væri
meinilla við að
einkalíf hennar
væri opinberað eins
og gerst hefur. Þá
hefði framkoma for-
setans valdið henni
sársauka. í sjálfu sér
merk játning konu sem
eitt sinn var sagt um:
„Þeim tekst aldrei að fá hana
til aö gráta á almannafæri."
Og það var vinkona Hillary sem
sagði þetta um hana, ekki ein-
hver óvinur hennar
eða pólitískur
andstæðingur.
„Þetta er ekki
einn af bestu dög-
um lífs hennar en
hún treystir á
mikinn trúar-
styrk sinn,“ sagði
Berry á þriðju-
dag. „Þetta er
ekki hamingju-
dagur en hún
hlakkar til að fara
í frí með fjölskyld-
unni og vera með
henni í næði.“
Byggt á Los Angeles Times, Was-
hington Post, Baltimore Sun o.fl.
Hillary Rodham Clinton, forsetafrú í Bandaríkjunum, og fjölskylda hennar á
leið í guðsþjónustu fyrr í þessum mánuði, áöur en forsetinn viðurkenndi að
hafa átt í óviöurkvæmilegu sambandi við Monicu Lewinsky.