Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1998, Blaðsíða 48

Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1998, Blaðsíða 48
FRÉTTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR un C/5 O Ew un Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 FRJÁLST, ÓHÁÐ DAGBLAÐ LAUGARDAGUR 22. ÁGÚST 1998 Einar Kristberg Sigurðsson, faðir Kristnýjar Huldar, heldur á henni á svölunum. Á innfelldu myndinni er Kristný Huld við opið sem hún smaug í gegnum áður en hún hrapaði þrjár hæðir niður á jafnsléttu. DV-mynd Teitur Öryggismál Qölbýlishúsa víöa í ólestri: Horfði á barn hrapa fram hjá glugganum - mikil mildi aö ekki fór verr, segir sjónarvottur „Ég sá eitthvað falla fram hjá glugganum mínum og var ekki viss um hvort það væri barn. Ég hljóp út á svalirnar og sá að þar lá lítil stúlka fyrir neðan. Ég stirðn- aði allur upp,“ segir Halldór Guð- mundsson, íbúi I Þórufelli 6 í Breiðholti, sem varð vitni að því þegar tveggja ára gömul stúlka féll af þriðju hæð fjölbýlishússins í vikunni. Stúlkan býr á Skagaströnd og var hún gestkomandi í íbúðinni þegar atvikið átti sér stað. Hún var að leik ásamt öðrum börnum við svalir íbúðar á þriðju hæð fjölbýlishússins þegar hún stakk höfðinu út um steypt svala- handrið og fór síðan í gegn með þeim afleiðingum að hún féll niður rúmlega 7 metra hæð og skall á jörðinni. Að sögn sjónarvotta missti telpan andann um hríð þar til ungur bróðir hennar kom loks- ins að og hnippti í hana. Það varð stúlkunni til bjargar að hún lenti ekki á þeim tvennum svölum sem hún hrapaði fram hjá og kom niður á grasflöt en skammt frá stendur steyptur brunnur með járnloki og er ljóst að mikil mildi var að ekki fór verr. Að sögn Halldórs var hann sjálf- ur með bam í íbúð sinni og gat því ekki hlaupið út. „Ég sat með skjálfta í nokkra klukkutíma eftir á. Þetta hefði alveg eins getað ver- ið barnið mitt,“ segir Halldór. Samkvæmt nýrri byggingar- reglugerð sem gekk í gildi fyrr í sumar mega op á svalahandriðum aldrei vera breiðari en tíu sentí- metrar en í umræddu tilviki er breidd opsins hátt á sautjánda sentímetra. Byggingar sem reistar eru fyrir gildistöku byggingar- reglugerða eru ekki háðar skilmál- um þeirra. Að sögn Herdisar Storgaard, slysavamafulltrúa barna, er tals- vert algengt að ung börn lendi í hremmingum vegna of breiðra opa í svalahandriðum. „Það er fullt af varasömum húsum sem byggð voru áður en reglugerðir fóm að taka á þessu nógu vel. Svo hafa líka átt sér stað atvik innandyra, þar sem börn hafa náð að pota lík- amanum í gegn en hangið á höfð- inu og nánast hengt sig,“ segir Herdís. „Að mínu mati ætti svona lagað að vera afturvirkt, þetta er það mikilvægt," segir hún enn fremur. Að sögn Geirharðs Þorsteinsson- ar, arkitekts hjá Skipulagi ríkisins, er fátítt að ákvæði reglugerða séu gerð afturvirk nema þegar um ai- varleg öryggisatriði er að ræða. Geirharður segist ekki vilja tjá sig um það í bili hvort gera ætti um- rædda reglugerð afturvirka. -jtr Áttundu og siöustu Hálandaleikarnir veröa haldnir á Víöistaöatúninu um helgina. Þar munu fílefidir kraftajötn- ar bítast um íslandspilsið og er fuil- víst aö ekki veröur gefinn þumlung- ”'vur eftir. Leikarnir hefjast klukkan 3 í dag, laugardag. DV-mynd Pjetur Tívolíhúsiö í Hverageröi selt: Verður flutt á Gadd- ~ staðaflatir Húsið sem áður hýsti tívolíið í Hveragerði hefur verið selt og verð- ur flutt af staðnum á næstunni. Kaupend- urnir em nokkrir hreppar í Rangár- valla- sýslu sem ætla að færa húsið á Gadd- staðaflatir þar sem það verður not- t ^ að m.a. sem sýningarhöll fyrir ' hestaíþróttir. Heimir Hannesson, oddviti Djúpárhrepps, sem fjár- magnar kaupin, segir að væntanlegt sé hlutafélag nokkurra hreppa og fyrirtækja sem kemur til með að annast rekstur hússins. „Ætlunin er að nýta þetta sem sýningarhús fyrir hestaíþróttir en ef möguleiki er að nýta þetta undir fleiri hluti, svo sem tískusýningar og torfæmsýningar, þá kemur það einnig til greina,“ i segir Heimir. Kaupverðið er 5,8 milljónir og er gert fyrir nokkmm *'jm milljónum við að rífa húsið niður og færa það á áfangastað. „Þetta eru nokkrir hreppar sem hafa oft verið í samstarfi sem munu stofna hluta- félagið og munu þeir fmpússa hug- myndina á næstunni og koma hús- inu upp,“ sagði Heimir. -hb Hæglætisveður um allt landið Samkvæmt spá Veðurstofu íslands fyrir morgundaginn og mánudag eru horfur á hægri norðlægri átt og björtu veðri um land allt, einkum sunnan til. Hiti verður á bilinu 10-18 stig. Veðrið í dag er á bls. 49. / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / A

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.