Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.1998, Blaðsíða 2
2
FÖSTUDAGUR 4. SEPTEMBER 1998
Fréttir
Um jörðina á
Mercedes Benz
Forríkur Qármálamaöur í ævmtýrum:
- byrjar ferðina á íslandi
Mynd af Mercedes Benz-bifrelö Jims sem veriö er aö smföa f Kaliforníu.
Á íslandi er nú staddur Jim
Rogers, fjármálasnillingur og ævin-
týramaður frá Bandaríkjunum.
Hann mun halda fyrirlestur í dag á
vegum Útflutningsráðs. Auk þessa
er hann aö kynna þá fyrirætlun sína
að keyra á sérsmíöuðum Mercedes
Benz-sportbíl hringinn í kringum
hnöttinn. Hann ætlar að leggja af
stað frá íslandi á nýársdag árið 1999.
Frábær ferill
Jim Rogers fæddist árið 1942 í
Alabama ríki í Bandaríkjunum þar
sem hann ólst upp. Sex ára gamall
var hann byrjaður að selja hnetur
og gosdrykki á hornaboltaleikjum.
Hann nam síðar við Yale-háskóla í
Bandaríkjunum og Oxford í Bret-
landi.
Jim Rogers er heimsfrægur fyrir
tvennt. I fyrsta lagi náði hann af-
buröa árangri í fjármálaheiminum
með Quantum-fjárfestingjasjóð sem
hann stjómaði ásamt öðram fræg-
um fjárfesta, George Soros, á átt-
unda áratugnum. Sjóðurinn náöi
4000% ávöxtun á fyrstu tíu árunum
á sama tíma og vísitöluhækkun nam
50%. Rogers hefur sjáifur sagt að
hann hafi eignast meira fé en hann
vissi að til væri í heiminum.
í öðru lagi er hann frægur fyrir að
keyra, ásamt vinkonu sinni, á mót-
orhjóli hringinn í kringum hnöttinn
á árunum 1990-92. Hann gaf út bók
um ferðalagið árið 1994. Bókin heit-
ir Investment Biker og varð mets-
tölubók
Fyrri hringferöin
Jim Rogers settist í helgan stein
árið 1980, þá 37 ára gamall. Forríkur
og fullur af ævintýraþrá lét hann
æskudraum sinn rætast. Hann ók
ásamt vinkonu sinni gegnum sex
heimsálfur, alls um 120 þús. kíló-
metra leið, hringinn í kringum
hnöttinn. Leiðin lá um Evrópu, Sov-
étríkin, Kína, Asíu, Afríku, Ástralíu
og Ameríku bæði þvera og endi-
langa.
Aðspurður segir hann ferðina
hafa verið afar skemmtilega. „Ég
lagði af stað til þess að skemmta
mér og það tókst svo sannarlega .
Þegar ég kom aft-
ur höfðu viðhorf
mín um margt
breyst. T.d.
fannst mér ekki
jafnmikið til Wall
Street og fjár-
málamarkaöa
koma og áður. Nú
eyði ég kröftum
mínum lika í ann-
að. Ég skrifa
greinar, kenni við háskóla, flyt fyr-
irlestra og kem fram í sjónvarpi."
Seinni hringferðin
Nú hyggst Jim Rogers endurtaka
leikinn. Hann ætlar að keyra svip-
aða leið og síðast en bæta við við-
komustöðum. í þetta skipti byrjar
hann á íslandi. „Ætlunin er að
leggja af stað frá Reykjavík 1. janúar
1999. Ástæðan fyrir því að ég vel ís-
land er margþætt. ísland er það land
í Evrópu sem nær lengst til vesturs.
Þá era að verða 1000 ár liðin frá
ferðum Leifs Eiríkssonar en hann
var mikill ævintýramaður. Loks er
ísland jarðfræðilega staðsett milli
Evrópu og Ameríku."
Markmiðið með for Jims og félaga
er að skrásetja lífið á jörðinni um
aldamótin. Hugmyndin er að hafa
vikulegar útsendingar þar sem kom-
ið verður inn á sögu, stjómmál,
menningu og efnahagsmál á hverj-
um stað.
í þetta skipti fer Jim hringinn á
Mercedes Benz-sportbíl. „BUinn er
verið að sérsmíða í Kalifomíu. Yfir-
byggingin er Benz SLK sportbíll en
undirvagninn er Benz-jeppi. Ég
keyri sportbUinn ásamt vinkonu
minni. Þá verða með í för tvær að-
stoðarbifreiðar tU þess að hjálpa
okkur með viðgerðir og útsending-
ar.“ -JP
íslandsbanki með siðareglur frá árinu 1990:
Kostnaður við laxveiðar
bankans er sáralítill
- ef miðað er við Landsbankann
íslandsbanki hefur verið með
siðareglur í gUdi allt frá árinu 1990
þar sem starfs-
mönnum er
bannað að þiggja
verðmætar gjafír
eða fara í boðs-
feröir. Fram
kemur í frétta-
bréfi bankans að
reglumar hafi
verið settar tU að
foröast hags-
munaárekstra
eða hlutdrægni í starfl. Þá þarf sér-
staka heimild bankastjómar eða
bankaráðs til að sitja í stjómum
fyrirtækja og stofnana. Valur Vals-
son, bankastjóri íslandsbanka, seg-
ir það hafa verið mat stjómenda
bankans á sínum tíma að reglur
sem þessar hafi verið nauðsynlegar
tU að skapa bankanum rétta ímynd
og fyrirbyggja hagsmunaárekstra.
„Þetta era almennar reglur og
taka tU margra þátta. Þetta var
einn þátturinn í að byggja upp nýj-
an banka með nýja ímynd. Við vild-
um ma. tryggja með þessu að ekki
kæmi tU neinna hagsmunaárekstra
milli starfsmanna okkar og við-
skiptavina eða að við gerðum eitt-
hvað eða gerðum ekki sem valda
kynni tortryggni," segir Valur.
Hann segir reynsluna af reglun-
um vera mjög góða.
„Þaö er aUtaf gott að hafa reglur
sem era mjög skýrar og við höfum
ekki á undanfómum áram lent í
neinum erfiðleikum með þessi mál.
Starfsmenn hafa allir tekið þessi
mál mjög alvarlega og þaö hefur
aldrei komið upp að einhver hafi
brotiö þetta," segir Valur.
Þaö er eftirtektarvert að kostnað-
ur íslandsbanka vegna laxveiði-
ferða er mjög litill ef miðað er við
Landsbankann. Árið 1993 eyddi sá
bankinn og dótturfyrirtæki hans
10,3 milljónum í laxveiðar, tæpum
átta mUljónum árið 1994, 9,4 mUlj-
ónum króna árið 1995. Árin 1996 og
1997 eyddi bankinn um 7 mUljónum
króna hvort ár.
Kostnaður íslandsbanka og dótt-
urfélaga vegna laxveiðiferða er að
meðaltali 1,9 miUjónir króna á ári
síðustu 5 árin eða aðeins brot af
eyðslu Landsbankans. . Hæst fór
kostnaðurinn í 2,6 miUjónir króna
en lægstur var hann 1,5 miUjón
króna.
Regla hjá íslandsbanka er að ein-
ungis erlendum viðskiptavinum er
boðið í laxveiðiferðir.
Hvort þessi munur er beinlínis
tilkominn vegna siðareglna íslands-
banka er erfitt að segja tU um en
aUar líkur era á því að reglumar
hafi veitt aðhald. Þá má benda á að
starfsmönnum bankans er bannað
að þiggja gjafir og boðsferöir. í sum-
ar komst í hámæli þegar Sólon Sig-
urðsson, bankastjóri Búnaðarbank-
ans, þáði boð Ingva Hrafns Jónsson-
ar um að veiða í Langá. Siðareglur
hefðu væntanlega forðað Sóloni frá
því fjölmiðlafári sem hann gekk í
gegnum þá ferð og aðrar sem hann
þáði. -rt
Höfuðstöðvar fslandsbanka. Par á bæ búa menn við siöareglur sem þykja
hafa gefist vel.
Valur Valsson
bankastjóri.
Stuttar fréttir dv
Forseti tll Finnlands
Forseti íslands, Ólafúr Ragnar
Grímsson, held-
ur hátíðarfyrir-
lestur við setn-
ingu Háskóla
Lapplands í
Rovaniemi á
mánudag. Mun
hann fjalla um
ný viðhorf í
rannsóknum í Norður-Evrópu en
einnig taka þátt í ráöstefnu um
rannsóknir og menntim á noröur-
slóðum.
Rýrari milliuppgjör
Hagnaöur félaga á aðallista
Veröbréfaþings fyrstu sex mánuði
ársins varö 2.984 milljónir en var
2.667 milljónir í fyrra. Ef einungis
er litið til þeirra félaga sem sex
mánaöa uppgjör liggja fyrir hjá
bæði tímabilin er hagnaðurinn
nú 521,1 milljón minni en í fyrra.
Afkoman batnar hjá 21 félagi en
versnar hjá 12 félögum. Við-
skiptavefur Visis sagöi frá.
ÚA selur eigin bróf
Stjóm Útgerðarfélags Akureyr-
inga hf. hefur ákveðið að selja
hlutabréf að nafnverði 10 milljón-
ir króna á næstu sex mánuðum.
Tilgangurinn með sölu þessara
bréfa er að selja hluta þeirra
bréfa sem félagið keypti af Akur-
eyrarbæ fyrir tæpum tveimur ár-
um. Viðskiptavefur Vísis sagði
frá.
Snæfell tapaði
Samkvæmt sex mánaða upp-
gjöri er Snæfell hf. með 96 millj-
óna króna tap. Útgjöld vegna sam-
einingar og breytinga á reiknings-
skilum nema 64 milljónum króna
en tap á rekstrinum var 32 millj-
ónir. Viðskiptavefur Vísis sagði
frá.
í mál vegna engla
Heildverslun Karls K. Karlsson-
ar og eigandi
hennar, Ingvar
J. Karlsson, hef-
ur stefnt ÁTVR
og vill fá
ákvæði í samn-
ingi birgja við
ÁTVR um aö
bannað sé að
skraut sé fest við áfengisumbúðir
fellt burt. Heildversluninni var
nýlega gert að klippa litla plast-
engla af spönskum hvítvínsflösk-
\im.
Strætó til Færeyja
Nýr strætisvagn frá SVR hvarf
úr Sundahöfn nýverið. Hann
fannst eftir mikla leit um borð í
skipi sem var komið langleiöina
til Færeyja. Þegar til Færeyja var
komiö var vagninn settur í annað
skip sem kom til landsins á mið-
vikudag. Bylgjan sagði frá.
Kjarakjör kennara
Súðarvíkurhreppur vill gera sér-
kjarasamning við Kí fyrir starfsfólk
grunnskólans. Sveitarstjórinn í
Súðavík Ágúst Kr. Bjömsson sagði
í fréttum RÚV að gert væri ráð fyr-
ir auknu vinnuframlagi kennara í
skólanum á staðnum, en á móti
kæmu kjör sem jöfhuðust á við þaö
besta sem gerðust á landinu.
Vantar stofur
Skólastarf getur ekki hafist
eðlilega í nokkram grannskólum
Reykjavíkur vegna þess að færan-
legar skólastofur era ekki tilbún-
ar. Þá er hinn nýi Borgaskóli
ekki tilbúinn og dregst skólahald
þar fram í byrjun næstu viku, að
sögn Morgunblaðsins.
Ofsóknir
Helgi H. Jónsson, fréttastjóri
Sjónvarps, segir
við Morgun-
blaðið að Sig-
urði Þ. Ragn-
arssyni virðist
hafa verið falið
að tína allt til
sér til lasts.
Verið sé að lús-
leita að ein-
hverju til að koma á sig höggi.
-SÁ