Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.1998, Síða 6
6
FÖSTUDAGUR 4. SEPTEMBER 1998
Neytendur
Tilbúiö morgunkorn:
Sykursæt morgunstund
Haustið er komið og skólarnir
eru byrjaðir. Hjá mörgum íslensk-
um fjölskyldum þýðir það að álagið
verður meira á morgnana, allir
þurfa að fara á fætur á sama tíma,
e.t.v. á eftir að smyrja nesti fyrir
bömin og allir eiga eftir að borða
morgunmat. Þá getur verið freist-
andi að skella pakka af tilbúnu
morgunkorni á borðið fyrir mann-
skapinn sem skóflar kominu í sig á
mettíma. En ekki er allt gull sem
glóir. Þótt morgunkornið geti verið
þægilegur og fljótlegur morgunverð-
ur er kornið mishollt og sumt af því
er hreint og beint óhollt.
Neytendasíðan fór á stúfana og
kannaði næringargildi fjórtán al-
gengra tegunda af morgunkorni.
Ekki er um tæmandi umfjöllun að
ræða því að sjálfsögðu era mun
fleiri tegundir af morgunkomi á
markaði hér heldur en teknar eru
fyrir í greininni.
Æskileg samsetning
Allt morgunkom inniheldur tals-
vert af kolvetnum sem eru nauðsyn-
legur hluti af daglegri fæðu okkar.
En þrátt fyrir að kolvetnin séu hluti
af daglegri fæðu okkar era þau ekki
öll holl. Sykur er nefnilega ein gerð
kolvetnis. Sykurinn er slæmur í
óhófi m.a. vegna þess að hann inni-
heldur engin önnur næringarefni,
hann tekur pláss frá vítamínum og
steinefnum í líkamanum og að sjálf-
sögðu er hann fitandi og fer illa með
tennurnar.
Æskilegt er að matur sem maður
neytir, þ. á m. morgunkorn, inni-
haldi ekki meira en 10 g af sykri í
hverjum 100 g af vörunni.
Trefjar eru einnig mikilvægur
hluti i fæðu okkar. Þær bæta melt-
inguna og hafa góð áhrif á hjartað.
Æskilegt er að neyta a.m.k. 25-30
gramma af trefjum á dag. Upplagt er
að fá hluta trefjanna úr trefjaríkum
morgunverði.
Flest morgunkorn inniheldur
einnig einhverja fitu. Æskilegt er að
halda fltuneyslunni í hófi. Á inni-
haldslýsingum sumra pakkanna
kemur fram hversu stór hluti fit-
unnar er ómettuð fita. Því stærri
hluti sem er ómettaður því „hollari"
er fitan.
Mikill sykur
Eins og áður sagði er það mat
margra næringarfræðinga að ekki
sé æskilegt að meira en 10 g af sykri
séu í hverjum 100 g af vörunni. Af
þeim fjórtán vörutegundum sem
skoðaðcir voru innihalda tíu þeirra
meira magn af sykri.
í fyrsta sæti trónir Cocoa Puffs
með hvorki meira né minna en 46,7
g af sykri í hverjum 100 g af kúlun-
um. Fast á eftir koma íslenskar
Kókókúlur með 46 g. Þar á eftir
kemur Frosted Cheerios með 43 g,
þá Kellogg’s Chocos með 36 g af
sykri og Honey Nut Cheerios með 35
g af sykri. Kellogg’s All Bran og
Kellogg’s Special K sem gjarnan eru
auglýstar sem heilsuvörur koma
þar á eftir. All Bran inniheldur 24 g
af sykri og Special K 15 g.
Þá er komið að vörutegundunum
sem eru innan sykurmarkanna
ítalskt ólífubrauð
Margir íslendingar hafa heillast af
ítalskri matargerð. En í ítalskri mat-
argerð má finna fleira en pitsur og
pasta. Ólífubrauð er ættað frá Ítalíu
og það er hreinasta hnossgæti.
Uppskrift:
700 g hveiti
1 tsk. salt
eitt bréf þurrger
1 msk. ferskt oregano, niðursneitt
350 ml volgt vatn
105 ml ólífuolía
u.þ.b. 30 grænar ólífur.
Aðferð:
Blandiö saman hveitinu og saltinu
i stórri skál. Hrærið gerinu og orega-
nolaufunum saman við. Blandið
vatninu og um 90 ml af ólífuolíunni
saman við deigið. Hnoðið það á
hveitistráðu borði þar til deigið er
orðið að teygjanlegri kúlu. Setjið í
skál sem smurð er smjörlíki. Setjiið
plastfilmu yfir skálina og látið deig-
ið lyfta sér í u.þ.b. 1 klst. eða þar til
það hefur tvöfaldað stærð sína.
Fletjið deigið út á bökunarplötu og
skiptið því í tvennt. Fletjið hvorn
helming út í um 1 sm eggiaga deig.
Gerið um 15 litlar holur í hvorn deig-
helming og stingið ólífunum ofan í
holurnar. Penslið yfir ólífurnar með
Morgunkornið er mishollt og sumar gerðir innihalda allt of mikið af sykri.
(mest 10 g af sykri i 100 g af vör-
unni.) Kellogg’s Rice Krispies rétt
sleppur inn í þann hóp því það inni-
heldur 10 g af sykri í 100 g af korn-
inu. Þar á eftir koma Weetabix og
Cheerios sem innihalda aðeins 5 g
af sykri og lestina reka íslenskir
hafrahringir með aðeins 3 g af sykri
í 100 grömmum.
Mismiklar trefjar
TreQar eru mikilvægur hluti af
fæðu okkar og hluta þeirra má fá úr
morgunkorni. Tegundirnar fjórtán
innihalda mjög mismikið af trefjum.
Kellogg’s All Bran er í efsta sæti með
16 g af trefjum í hverjum 100 g af vör-
unni. Þar á eftir koma Weetabix með
10 g af trefjum, Islenskir hafrahring-
ir með 9,8 g og Cheerios með 9 g af
trefjum í hverjum 100 grömmum.
Eins og áður sagði er æskilegt aö
neyta a.m.k. 25-30 gramma af trefj-
um daglega. Best er að fá trefjarnar
úr sem fjölbreyttustum tegundum
fæðu, t.d. úr brauði, grænmeti og
kommat.
Þær morgunkornstegundir sem á
eftir koma innihalda fá grömm af
trefjum og geta því aðeins uppfyllt
lítinn hluta af trefjaþörf okkar.
Honey Nut Cheerios inniheldur 6
g af trefjum í hverjum 100 g af
hringjunum og Frosted Cheerios
inniheldur 4,5. Kellogg’s Special K
og Kellogg’s Frosties innihalda 3 g
af treflum, íslenskar Kókókúlur 2,2
g og Kellogg’s Rice Krispies og
Kellogg’s Cornflakes innihalda 2 g
af trefjum í hverjum 100 grömmum.
afganginum af ólífuolíunni. Setjið
glæra filmu yflr deigið og látið það
lyfta sér í um hálftíma. Hitið ofninn
í 220" C á meðan. Fjarlægið plast-
filmuna og bakið brauðið í um 20-25
mínútur. -GLM
Súkkulaðihúðuðu Cocoa Puffs-kúl-
urnar reka svo trefjalestina því þær
innihalda engar trefjar.
Svipað fitumagn
Fitumagn í þeim morgun-
kornstegundum sem skoðaðar voru
var svipað. Neytendur ættu þó að
gæta að því þegar fituinnihald er
skoðað hversu mikill hluti fitunnar
er ómettaður. Ómettuð flta er nefni-
lega, eins og áður sagði, talin hollari
en mettuð fita. Rétt er þó að taka
fram að ekki gefa allir framleiðend-
ur upp hlutfall ómettaðrar fltu í vör-
um sínum. Þvi er ekki hægt að bera
saman hvaða tegundir innihalda
minnst eða mest af ómettaðri fitu,
Þegar heildarfita í hverjum 100
grömmum er skoðuð reynist Cheer-
ios vera í efsta sæti með 6 grömm af
fltu. Þar á eftir koma íslenskir
hafrahringir með 5 grömm, síðan
Honey Nut Cheerios með 4 grömm,
Frosted Cheerios með 3,6 grömm og
Weetabix með 3 grömm. Hundrað
grömm af Kókókúlum innihalda 2,6
grömm af fitu og sama magn af
Kellogg’s Rice Krispies, Kellogg’s
All Bran og Kellogg’s Chocos inni-
heldur 2 grömm af fitu. Kellogg’s
Special K og Kellogg’s Cornflakes
innihalda 2 grömm af fltu og í
hundrað grömmum af Cocoa Puffs-
kúlum er engin fita.
Það er því ljóst að foreldrar verða
að vanda valið ef börnin eiga að fá
staðgóðan en jafnframt fljótlegan
morgunverð áður en haldið er út í
amstur hversdagsins. -GLM
Laugavefur-
inn opnaður
Á morgun verður opnuð vef-
síða sem hlotið hefur nafnið
Laugavefurinn á slóðinni
www.laugavegur.is. Laugavef-
urinn hefur að geyma upplýs-
ingar um verslanir á Laugaveg-
inum, skemmtilegt kort af
Laugaveginum, aðstoð við not-
endur og margt fleira. Þar er
einnig að finna heimasíður
þeirra verslana sem hafa komiö
sér upp slíkri þjónustu. Hægt
verður að senda tölvupóst til
allra verslana sem eru á Lauga-
vefnum. -GLM
Auglýs-
ingar
Auglýsingar eru stór hluti af
okkar daglega lífl. Þær eru mis-
jafnlega áhrifaríkar en allar
eiga þær þó að lúta eftirfarandi
reglum:
Auglýsingar skulu ekki inni-
halda boðskap, í orðum eða
myndum, sem brýtur gegn al-
mennri velsæmiskennd.
Auglýsingar skal semja
þannig að traust neytandans,
takmörkuð reynsla hans eða
þekking sé ekki misnotuð.
Auglýsingar skulu ekki inni-
halda staðhæfingar eða myndir
sem líklegar era til að villa um
fyrir neytandanum.
Ef samanburður er notaður í
auglýsingmn skal þess gætt að
samanburðurinn sjáifur sé ekki
villandi og að hann brjóti ekki
gegn grundvallarreglum um
sanngirni í samkeppni.
I auglýsingum skal ekki hall-
mæla neinu fyrirtæki eða sam-
keppnisvöru, hvorki beint né
með því að gefa ókosti hennar í
skyn.
I auglýsingum skal ekki mis-
nota hina eðlilegu trúgimi
barna eða reynsluskort yngri
kynslóðarinnar og skai þess
gætt að auglýsingar raski ekki
samlyndi innan fjölskyldunnar.
Vörulýsingar og staðhæfing-
ar um eðli eða myndameðferð
skulu ávallt vera sannleikanum
samkvæmar. Auglýsendur
skulu fúsir til að leggja fram
sönnunargögn án tafar sé þess
óskað af aðilum sem sjá um að
reglunum sé framfylgt.
Hörog
baðmull
Hör er vefjarefni sem unnið
er úr basttrefjum stönguls hör-
plöntunnar. Kostir hörs era að
hann er slitsterkur, þéttur og
svalur viðkomu. Hann dregur
vel í sig raka og teygist ekki.
Ókostir hans eru að hann getur
upplitast, hlaupið í þvotti og
krumpast fljótt. Vel þarf að at-
huga meðferðarmerkingar.
Baðmull er fræhár baðmull-
arplöntunnar. Kostir baðmull-
arinnar eru að hún er fíngerð
og ódýr. Hún hefur einnig góða
spunaeiginleika, er slitsterk og
þolir vel þvott. Hún hefur ekki
ertandi áhrif á húðina og litast
vel. Ókostir baðmullarinnar
eru að hún er ekki fjaðurmögn-
uð og getur því krumpast í
þvotti. Einnig getur hún hlaup-
ið í þvotti. -GLM