Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.1998, Page 7
FÖSTUDAGUR 4. SEPTEMBER 1998
7
sandkorn
Fréttir
Sendiboði Þorsteins
Fjaðrafokið á fréttastofu Sjónvarps
vegna meintra klöginnála sumar-
mannsins Sigurðar Þ. Ragnarsson-
ar á hendur Helga H. Jónssyni, sett-
um fréttastjóra, hefur vakið mikla at-
hygli. Ýmislegt er loð-
ið við málið, svo sem
það hvort Sigurður
hafi talið sig eiga að
skipa eins konar
pólitískt jafnvægi
gegn lituðum ffétta-
stjóra. Sigurður bjó
á Selfossi í nokkur
ár og skipaði þar
fremstu víglínu sjálf-
stæðismanna og var einn harðasti
stuðningsmaður Þorsteins Pálsson-
ar. í sveitarstjómarkosningunum sl
vor þótti það lýsa miklum dóm-
greindarskorti fréttastofu Sjónvarps
þegar Sigurður var sendur heim á
Selfoss til að fjalla um sveitarstjóm-
armál þar. Andstæðingar sjálfstæðis-
manna sögðu vafasamt að láta sendi-
boða Þorsteins fjalla um málefni
hinna ýmsu framboða af hlutleysi...
Meðfærilegri
Ástandiö á fréttastofum RÚV er
mjög mismunandi. Á sama tíma og
fréttamenn Sjónvarps eru á hröðum
flótta ýmist alfamir eða tímabundiö
ríkir ákveðinn stöðugleiki á fréttastofu
Útvarpsins. Þar er eng-
in hreyfing á frétta-
mönnum og menn þar
brosa í kampinn
vegna uppnámsins á
Sjónvarpinu. Eitt
vekur þó athygli
manna á báöum
fréttastofum og það
era meint ham-
skipti Markúsar Arn-
ar Antonssonar útvarpsstjóra. í fyrri
tíð sinni sem útvarpsstjóri þótti mönn-
um hann sjálfstæður og röggsamur en
nú þykjast menn merkja að hann beri
merki þess að hafa glatað sjálfstæði
sínu og taki víð skipunum utan frá.
Þaö þótti skondið að hann skyldi ásamt
Bjarna Guðmundssyni framkvæmda-
stjóra sjálfur annast ráðningar sumar-
manna á Sjónvarpið. Kremlólógía ræö-
ur ríkjum segja sumir ...
Sverrismenn
Úttekt DV á óskakandídötum til
framboðs fyrir Frjálslynda lýðræðis-
flokkinn vakti mikla athygli. Þannig
vora sumir þeirra sem útneftidir vora
lítt hrifhir en aðrir að sama skapi
óhressir með að vera
ekki taldir upp. Málið
er allt ofur viðkvæmt
en meðal þeirra sem
ekki era ginnkeyptir
fyrir framboði era
Kristján Kristjáns-
son, prófessor á Ak-
ureyri, og Sigbjörn
Gunnarsson, eðal-
krati í Mývatnssveit.
Sumir Sverrismanna hafa horft til
þeirra sem vænlegra kandídata en þeir
hafa báðir kveðið upp úr um að svo
verði ekki. Því er ekki að neita að til
era þeir i flokki bankastjórans sem
varpa öndinni léttar við þau tíðindi...
Svarthvítur sigur
Prins íslensku íþróttafréttamanna-
stéttarinnar er án efa Samúel örn
Erlingsson. Hann hefur um nokkurt
skeiö heiilað landsmenn með háum
talanda og hressum og skemmtilegri
notkun málsins, eins
og þegar hann talaði
um frjálsíþrótta-
manninn fjölkunn-
uga. Húmor Samú-
els Amar er vel
virkur og í lýsingu
sinni á leik KR og
Þróttar nú um
daginn naut hann
sín til fullnustu. Seinni hálfleikur
var nefnilega svarthvítur vegna bil-
unar í tæknibúnaði. KR vann leikinn
8-1 og sagði Sammi að svarthvítan
væri kannski happamerki fyrir KR
því að þegar þeir urðu íslandsmeist-
arar síðast þá hafi jú allt verið í
svarthvítu...
Umsjón Reynir Traustason
Netfang: sandkorn @Ef. is
Áætlanir ríkisstjórnarinnar í bankamálum:
Fjárfestingarbankinn
á erlendan markað
- lögö áhersla á erlenda kj ölfestuQ árfesta
Það er yfirlýst stefna ríkis-
stjómar íslands að huga að skrán-
ingu Fjárfestingarbanka atvinnu-
lífsins á erlendan markað. Þetta
kemur fram í greinargerð við-
skiptaráðherra til ríkisstjórnar
sem send var fjölmiðlum. í grein-
argerðinni er stefna ríkisstjórnar-
innar í bankamálum kynnt. Þá er
lagt til að leitað verði að erlendum
kjölfestufjárfestum í FBA.
Vinsæll banki
Eins og fram hefur komið er ætl-
unin að fresta sölu Landsbanka og
Búnaðarbanka fram yfir kosning-
ar. Hins vegar er ætlunin að flýta
sölu FBA. Þegar liggur fyrir heim-
ild til handa ríkisstjórn að selja
49% í bankanum. Stefnt er að að
Alþingi samþykki í haust heimild
til sölu á afganginum af bankan-
um.
Nýlega lýsti Samband íslenskra
sparisjóða áhuga sínum á að
kaupa bankann. Þá sendu for-
svarsmenn Búnaðarbanka íslands
ríkisstjórninni bréf þar sem þeir
lýstu yfir áhuga á viðræðum um
kaup á FBA eða sameiningu bank-
anna.
Hagkvæm leið?
Nú er hins vegar ljóst að ríkis-
stjórnin hefur tekið þá pólitísku
ákvörðun að selja FBA hvorki til
Sparisjóðanna né Búnaðarbank-
ans. Samkvæmt heimildum DV er
mjög ólíklegt að hinir íslensku að-
ilar vilji fjárfesta mikið í FBA
verði þeir ekki ráðandi aðilar.
Sérfræðingar í bankaheiminum
benda á að eitt aðalmarkmið ríkis-
stjórnarinnar við sölu á bönkun-
um sé að auka hagkvæmni ís-
lenskra banka. Bent hefur verið á
að með því að hafna viðræðum við
íslenska aðila sem vilja kaupa
bankann fer ríkisstjómin á mis
við tvennt. Annars vegar verður
ekki hægt í leiðinni að hagræða í
íslenska bankakerfinu með sparn-
að og samvinnu íslenskra fjár-
málastofnana í huga. Hins vegar
er líklegt að lægra verð fáist fyrir
bankhann seldur til ýmissa er-
lendra og innlendra aðila. Einn
kaupandi sé líklegri að borga
meira fyrir bankann því yfirráð
hans yfir bankanum séu tryggð.
Hafa útlendingar áhuga?
Efasemdaraddir hafa heyrst um
væntanlegan áhuga erlendra fjár-
festa á FBA.
Aðrir telja að nú sé einmitt
rétti tíminn til þess að fjárfesta í
íslenskum bönkum. Allt frá því að
frelsi í fjármálum var aukið hefur
áhugi erlendra aðila aukist. Hinn
íslenski fjármagnsmarkaður hafi
þroskast hratt og stöðugleiki í
efnahagsmálum þykir nokkuð
tryggður. Þá stefnir í að bein af-
skipti stjórnmálamanna muni
minnka með sölu ríkisbankanna.
Þótt arðsemi íslenskra banka
hafi verið lítil undanfarin ár, mið-
að við það sem gengur erlendis, er
búist við betri tíð. Ný kynslóð
stjórnenda með nýja þekkingu sé
að koma upp í bönkunum. Nýjar
forsendur séu því að myndast í
rekstri banka í landinum. Samfara
því muni kröfur og möguleikar
banka til aukinnar arðsemi
aukast. Erlendir fjárfestar geti
þannig vel hugsað sér að hagnast á
þeirri hagræðingu sem fylgir
skynsamlegri endurskipulagningu
íslenska bankakerfisins.
Ráðuneytið svarar ekki:
-jp
fullorðinsfræðslan
matshæft eininganám: skólanám & fjarnáin
Gerðubergi 1, 111 R, síini/fax 557 1155
Netfang:l-f(aipeace.is Heimasíöu: littp//\v\v\v/peace.is/f-f
Námskeið, íslenska f. útlendinga, fornám &
fyrstu prófáfangar framhaldsskóla allt árið:
DAN, NOR, SÆN, ENS, ÞÝS, SPÆ, ÍSL, ICELANDIC
STÆ, TÓL, EÐL, EFN, TÖLVUGRUNNUR, NÁMSAÐSTOÐ
, ______FLUGBRflUT____________
>7- >-7- >7-| Undirbúningsnám f, atvinnuflugnám! |>-)- >7- >7-
Öll námskeið hefjast 19.-22. sept.
SCHOOL OF ICELANDIC
4 week Intensive Courses Non-Stop All Year
by The Inter-Lingual Learning Tecnique
Sveitarstjórn
Raufarhafnar
í lausu lofti
DV, Akureyri:
Félagsmálaráðuneytið hefur til-
kynnt sveitarstjóminni á Raufar-
höfn að úrskurðar ráðuneytisins
vegna kærumáls sem kom upp i
kjölfar sveitarstjómarkosninganna
í vor sé ekki að vænta fyrr en síðla
í september, og er borið við önnum
í ráðuneytinu vegna sumarleyfa.
Gunnlaugur A. Júlíusson, sveitar-
stjóri á Raufarhöfn, segist afar
ósáttur við þann drátt sem orðið
hefur á afgreiðslu málsins hjá ráðu-
neytinu, en þar hefur málið verið til
meðferðar síðan 16. júní.
Tveir framboðslistar komu fram
fyrir kosningamar á Raufarhöfn og
urðu úrslit kosninganna þau að listi
Alþýðubandalagsins hlaut 118 at-
kvæði og meirihluta í sveitarstjórn,
en hinn listinn hlaut aðeins einu at-
kvæði minna eða 117. Strax í kjölfar
kosninganna kom fram kæra sem
byggðist á því að ung kona sem
greiddi atkvæði hefði ekki verið lög-
leg á kjörskrá, heldur verið með lög-
heimili annars staðar. Kæran fór
fyrir úrskurðarnefnd sem komst að
þeirri afdráttarlausu niðurstöðu að
ekkert væri athugavert við fram-
kvæmd kosningarinnar. Þeim úr-
skurði var strax áfrýjað til félags-
málaráðuneytisins sem hefur haft
málið til afgreiðslu í tvo og hálfan
mánuð og mun ekki afgreiða það
fyrr en eftir nokkrar vikur.
„Við emm mjög ósáttir við þenn-
an hægagang ráðuneytisins. Þetta
þýðir m.a. að sveitarstjórnin getur
ekki tekið neinar nýjar stefnumark-
andi ákvarðanir en aðeins látið þau
mál sem eru í gangi „lulla áfram"
segir Gunnlaugur A. Júlíusson
sveitarstjóri. Hann segir það og hafa
vakið athygli að ráðuneytið hafi far-
ið fram á lögreglurannsókn i mál-
inu en slíkt ætti varla að gerast þar
sem ekki hefði verið litið svo á að
um sakamál væri að ræða.
„Þessi dráttur á niðurstöðu ráðu-
neytisins er mjög slæmur. Svo
kynni einnig að fara að loksins þeg-
ar ráðuneytið skilaði af sér kæmi til
dómsmáls, e.t.v. bæði fyrir héraðs-
dómi og Hæstarétti og því yrði kom-
ið fram á vetur þegar niðurstaða
fengist. Þetta er mjög slæmt,“ segir
Gunnlaugur.
-gk
Phone/l'ax: 557 1155 E-mail: Icelandiclanguage@usa.net
I lome Page: http://\vwvv.angell'ire.com/bi//icdandiclanguage
eða rúnnaðir
• Sturtuhorn
• Sturtul
• Baðkars, stui
Við Fellsmúla
Simi 588 7332
OPIÐ:
lánud. - föstud. kl. 9-18, laugard,
Vönduð vara
ð®stæðustu verðut"
RAOGREIÐSLUR
raðgreiðslur