Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.1998, Qupperneq 12
12
FÖSTUDAGUR 4. SEPTEMBER 1998
Spuriúngin
Hver er uppáhalds-
leikarinn/leikkonan?
Lydía Grétarsdóttir nemi: Þeir
eru tveir, Steve Bushemi og A1
Pacino.
Kristín Hafþórsdóttir nemi: John
Travolta er bestur.
Arnþór Indriöason nemi: John
Travolta tvímælalaust.
Skúli Bjöm Gunnarsson fs-
lenskufræðingur: Þau Dustin Hoff-
mann og Meryl Streep eru í mestu
uppáhaldi.
Björk Pálsdóttir nemi: Leonardo
Di Caprio, þvi hann er svo sætur.
Síðan held ég líka mikið upp á
Söndru Bullock.
Katrín María Birgisdóttir nemi:
Mér finnst Brad Pitt vera besti leik-
arinn.
Lesendur
Hvalurinn Keikó
skapar vandræði
Keikó til sýnis í heimkynnum sínum í Ameríku. - Nú er glansinn að fara af
þessari iðju og hvað er þá betra en fljúga með Keikó til íslands?
Helgi skrifar:
Hvemig urðu íslendingar þátt-
takendur í skrípaleiknum með hval-
inn Keikó? Hvað kostar þetta íslend-
inga? Er þetta siðferðilega rétt og er
þetta efnahagslega hagkvæmt til
lengri tíma séð? Er aðeins verið að
redda Bandaríkjamönnum sem eru
komnir í vandræði með hvað þeir
eigi að gera við skepnuna? Er þaö
ekki skýringin á því að flogið er
með hann til íslands við mikinn
kostnað að þá eru Bandaríkjamenn
lausir við hann og hann þar með
orðinn hausverkur íslendinga.
íslendingar hafa nýtt hval frá
aldaöðli og hann því verið í fæðu-
keðju okkar islendinga. Hvalveiðar
hafa einnig orðið veruleg fjáröflun
fyrir íslenska þjóðarbúið. Skyldi
veita af, jafnvel í góðæri?.
Þótt hvalveiðar séu jafnáríðandi
fyrir íslendinga og raun ber vitni,
þá hefur vinum vorum, bandarísk-
um stjómvöldum þótt nauðsynlegt
og við hæfi að kúga íslendinga til að
hætta hvalveiðum.
Á sama tíma hefur Bandaríkja-
mönnum sjálfum þótt sjálfsagt að
veiða hvali, fangelsa þá í tiltölulega
litlum kvíum og neyða þá til að
læra ýmsar kúnstir til að skemmta
hégómafullu fólki. Sumar þessar
skepnur hafa verið notaöar viö
kvikmyndagerð. Að sjálfsögðu allt í
auögunarskyni. Þetta hefur verið
hlutskipti Keikós í prísund sinni í
Bandaríkjunum. En nú er glansinn
farinn af þessari iðju og fólk er far-
ið að mótmæla meðferðinni á
skepnunum. - Og hvað er þá betra
en fljúga með Keikó til íslands?
Mönnum er sagt að sleppa eigi
Keikó eftir stutta dvöl í kví við ís-
land, og að hann muni síöan lifa
frjáls og hamingjusamur i Noröur-
Atlantshafinu það sem eftir er. Sam-
tímis hefur verið hvíslað aö fólki aö
hvalurinn sem hefur svo lengi verið
„húsdýr" manna geti ekki lifað sem
villt dýr í hafinu, væri honum
sleppt. Enda mótmæltu Norðmenn
því að Keikó yrði sleppt á þeirri for-
sendu, að þeir myndu líklega veiða
hann og slátra honum við slæmar
imdirtektir. Norðmenn eru þvi þræl-
fúlir yfir því að íslendingar skuli
vera gabbaðir til að taka þátt í þess-
um sjónhverfingaþætti í því skyni að
aðstoða Bandaríkjamenn sem eru
komnir í vandræði með hvalinn.
Þá eru aðrir sem eru ekkert á
móti því að láta hvalinn gera kúnst-
ir sínar í Vestmannaeyjum þótt
„aldraður" sé og græða á honum á
meðcm hann tórir. - Bandaríkja-
menn væru alla vega sloppnir frá
skömminni og gætu jafnvel gagn-
rýnt íslendinga fyrir meðferðina á
Keikó sínum!
Áfram með verðstríð
matvörumarkaðarins
Magnús Sigurðsson skrifar:
Nú er Kaupfélag Eyfirðinga kom-
ið til Reykjavíkur til að vera. Eða
svo skilst manni á talsmanni KEA í
sjðnvarpsviðtölum sl. miðvikudags-
kvöld. Það er ekki bara matvaran
sem KEA býður nú á markaðnum
hér, það ætlar að fara í aðra vöru-
flokka, eins og talsmaðurinn orðaði
það. Ég segi fyrir mig; ég fagna þess-
ari innkomu KEA hingað á þéttbýl-
issvæðið.
Sannleikurinn er nefnilega sá að
einmitt núna, þessa dagana, var
eins og ró væri að komast á þennan
markað og það verðstríð og sam-
keppni, sem var svo áberandi allt
frá því sl. vor, væri í öldudal. Nú
upphefst þetta allt aftur og ég segi
bara: Guði sé lof.
í fréttum daginn eftir ofannefnt
viðtal við KEA-talsmanninn var
viðtal við forstjóra Baugs (þ.e. Hag-
kaupssamstæðunnar fyrrverandi).
Hann boðar umsvifalaust verðstríð
viö KEA eða svo gott sem og segir
að nú verði samkeppnin sett á fullt.
Það boðar gott fyrir okkur neytend-
ur. Tilboð hér og tilboð þar, oftar á
mun lægra verði en hin fyrri hjá
hinum aðilanum.
Það er því mikill happdrættis-
vinningur, a.m.k. fyrir íbúana hér á
Reykjavíkursvæðinu, að fá KEA
suður með sína stórverslun. Auðvit-
að mátti búast við þessu, rétt eins
og Hagkaup og fleiri gerðu innrás á
Akureyrarmarkaðinn. En mest er
um vert að samkeppnin haldist á
fullu og eina stríðið sem ég styö er
verðstríð, og það sem mest og
lengst.
Landsbankasölu slegið á frest
- ómarktækar bollaleggingar
Landsbanki íslands. Settu upp skilti, „Til sölu“, tóku
það niður aftur og settu upp annað: „Ekkert að
marka“!
Gunnar Jóhannsson skrifar:
Eins og allir vita hefur sölunni á
Landsbankanum verið slegið á
frest. Sænsk sendinefnd frá ES-
bankanum sem kom hingað til að
vega og meta það sem í boði var er
farin af landi brott og ber áreiöan-
lega ekki vel söguna ráðamönnum í
íslenskum fjármálaheimi. - Þeir
settu upp skilti: „Til sölu“, tóku þaö
svo niður aftur og settu upp annaö:
„Ekkert að marka“!
Hvernig svo verður staðið að sölu
ríkisbankanna einhvern tíma síðar
er óvitað. Eitt er þó nokkuð víst;
það verður ekki leitað út fyrir land-
steinana á ný þegar ríkisbönkunum
verður skipt upp. Þetta er skaði fyr-
ir íslenskt fjármálalíf því sárlega
vantar erlent fé inn í bankastarf-
semi hér, einnig þekkingu og við-
tekið siðferði í
bankamálum. Senn
munum við samt
heyra rnn nýjar
áætlanir í banka-
sölumálum og
bankasameiningum
en heldur ekkert
meira. Aðeins vun
áætlanir á áætlanir
ofan. Það er ekki
hægt að reikna með
neinum alvörufrétt-
um af bankamálum
fyrr en eftir kosn-
ingar. Ekki fremur
en af öðrum málum
sem valda titringi í
þjóðfélaginu. Bolla-
leggingar, hverju
nafni sem þær nefn-
ast, verða einnig
marklausar þar til
eftir kosningar. Það
er líka bara einn
vetur í milli. Vonandi verður hann
jafn mildur og hann verður ómark-
tækur hvað snertir orð og efndir
ráðamanna, núverandi sem verð-
andi..
Hringbrautin
áriö 2002
Hjalti skrifar:
Ekki kom mér á óvart fréttin
um að Hringbrautin yrði ekki flutt
niður í Vatnsmýrina fyrr en á ár-
inu 2002. Það eru fjögur ár í það
enn. Ég er þess fullviss að Hring-
brautin verður aldrei flutt og þvi
ekki byrjað á Barnaspitalanum
um ókomna framtíð. Málið er ein-
falt. Það þorir enginn að hreyfa
byggingaráformum í Vatnsmýr-
inni vegna flugvallarómyndarinn-
ar sem enginn leggur í að farga
vegna ímyndaðs atkvæðavægis
landsbyggðarinnar við nokkra
þingmenn. Auðvitaö verður sama
ástand árið 2002. Ég segi hins veg-
ar: Burt með Hringbrautina ofan
Vatnsmýrar og burt með flugvöll-
inn fyrir fullt og allt.
Tölvur hættuleg-
ar um aldamót
K.A. hringdi:
Ég er ekki að spá heimsendi en
ég er verulega óttasleginn um að
eitthvað alvarlegt geti gerst þegar
árið 2000 gengur í garð með öllum
sínum 0000 (núllum) skráðum í
forrit tölvanna um allan heim.
Ekki bara í banka- og viðskipta-
kerfi um allan heim, heldur líka í
stjómstöðvum vamar- og hemaö-
arkerfa vítt og breitt um veröld-
ina. Hver getur sannað að allt
haldi vatni í þessum kerfum þar
sem t.d. vamarkerfi eru stillt eða
óstillt á einhverjmn ákveönum
dagsetningum? Árið 2000 er var-
hugavert að þessu leyti, og er
óhætt að segja að margir í vís-
inda- og tækniheiminum eru
kvíönir fyrir þessum kaflaskipt-
um í mannkynssögunni.
Bjóðið frítt vín
með matnum
Anna hringdi:
Ég las nýlega pistil Víkverja
Morgunblaðsins þar sem hann
undrast að Flugleiðir skuli ekki
bjóða frítt vín t.d.með máltíðun-
um. Telur hann Flugleiðir hljóti
að vera eitt örfrárra flugfélaga á
Vesturlöndum sem enn rukka fyr-
ir vín með máltiöum. Þetta valdi
bara töfum á þjónustu og ergi far-
þegana. En nú er það þannig að
Flugleiðir bjóða einmitt vín með
máltíðum sínum á Ameríkuleiðun-
um og gott ef ekki líka koníak meö
kaffinu eftir matinn! En ekki á
Evrópuleiðunum! Það sitja því
ekki allir við sama borö hjá Flug-
leiðum í þessum efhum. Ég skora
á Flugleiðir að breyta þessu og
bjóöa öllum fritt vín með matnum.
Snorri sjó-
maður, ekki
útgerðarmaður
Snorri Snorrason, útgerðar-
maður og skipstjóri á Dalvik,
hafði samband við DV og vildi
taka fram aö hann væri ekki sá
Snorri Snorrason sjómaður sem
skrifaði lesendabréf í blaðið þann
8. júlí sl. um „Ókurteisa eftirlits-
menn“ sem hann hafði komist í
kynni við hjá Siglingamálastofn-
un. Hann hefði verið erlendis er
bréfið birtist og ekki haft aðstöðu
til að gefa þessa yfirlýsingu fyrr.
Þetta er hér með leiðrétt að beiðni
Snorra á Dalvík.
Prófkjör fyrir öll
efstu sætin
Suðumesjamaður hringdi:
Vegna hugleiðinga væntan-
legra frambjóðenda stjórnmála-
flokkanna í næstu alþingiskosn-
ingum um prófkjör eða uppstill-
ingu á listana skulu þeir ekki láta
sér til hugar koma annað en próf-
kjör. Prófkjör í öll efstu sætin eru
skilyrði fyrir þátttöku kjósenda
nú á tímum hér á landi. Annaö
væri bein ögrun við kjósendur og
fylgismenn flokkanna líka. Þetta
tel ég eiga við alla íslensku stjóm-
málaflokkana.