Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.1998, Blaðsíða 14
14
FÖSTUDAGUR 4. SEPTEMBER 1998
Fijálst, óháð dagblað
Útgáfufélag: FRIÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON
Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON
Auglýsingastjóri: PÁLL ÞORSTEINSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaöaafgreiösla, áskrift: ÞVERHOLTI11,105 RVlK,
SlMI: 550 5000
FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aörar deiidir: 550 5999
GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777
Stafræn útgáfa: Heimaslða: http://www.skyrr.is/dv/
Vísir, netútgáfa Frjálsrar flölmiölunar: http://www.visir.is
Ritstjórn: dvritst@centrum.is - Auglýsingar: dvaugl@centrum.is. - Dreifing: dvdreif@centrum.is
AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 4611605
Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Filmu- og plötugerð: ISAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF.
Áskriftarverð á mánuöi 1800 kr. m. vsk. Lausasöiuverð 160 kr. m. vsk., Helgarblað 220 kr. m. vsk.
DV áskilur sér rétt til aö birta aðsent efrii blaösins í stafrænu formi og I gagnabönkum án endurgjalds.
Hagsbót neytenda
Nokkur tímamót urðu í gær þegar Kaupfélag Eyfirð-
inga á Akureyri færði út kvíamar og hóf verslunarrekst-
ur í Reykjavík. KEA hefúr í áratugi verið stórveldi á
Norðurlandi eystra og ráðandi í verslun á Akureyri. Nú
reynir félagið í fyrsta skipti fyrir sér í verslunarrekstri
utan Eyjafjarðar.
Félagið kemur inn á markaðinn þar sem hann er
stærstur og þar sem fjölgun íbúa hefur verið og verður
fyrirsjáanlega í framtíðinni. Höfuðborgarsvæðið ber höf-
uð og herðar yfir önnur svæði á landinu. Því gera KEA-
menn sér mætavel grein fyrir. íbúum á sölusvæði félags-
ins, Eyjafirði, hefur farið fækkandi. Því er það eðlilegt að
það leiti fyrir sér þar sem möguleikar eru á framþróun.
KEA ætlar sér í samkeppni stórmarkaða á höfúðborgar-
svæðinu og um leið að reyna að ná fótfestu þar fyrir
framleiðsluvörur félagsins.
KEA kemur inn á markað þar sem baráttan er hörð.
Miklar sviptingar hafa verið í rekstri matvöruverslana á
höfuðborgarsvæðinu. Bónus hefur haft nokkra sérstöðu
sem lágvöruverðsverslun með færri vörutegundir og
minni þjónustu en aðrir stórmarkaðir. Viðbrögð við-
skiptavina hafa frá upphafi sýnt að slík verslanakeðja
átti fullt erindi á markaðinn. Þá var stórveldinu Hag-
kaupi skipt upp í tvö félög, Hagkaup og Nýkaup. Vöru-
verð er heldur lægra í Hagkaupi en meiri þjónusta er
veitt í Nýkaupi. Aðrar sterkar verslanakeðjur taka þátt í
samkeppninni af fullum þunga, þ.e. verslanir Nóatúns og
10-11. Þá hefúr Fjarðarkaup í Hafnarfirði haldið stöðu
sinni sem og verslanakeðjan 11-11.
KEA hefúr um nokkurra ára skeið rekið Nettó-verslun
á Akureyri, lágvöruverðsverslun, sem á sínum tíma
keppti við Bónus-verslun sem þar var rekin. Stjómendur
Bónuss hættu rekstri þeirrar verslunar en héldu fúllum
dampi syðra. KEA, sem nú hefur opnað Nettó-verslun í
Reykjavík og tilkynnt að í verði muni sú verslun standa
næst Bónusi í verðlagningu, veit því að hveiju það geng-
ur. Það mun mæta harðri samkeppni þar sem ekkert
verður gefið eftir.
Neytendur hafa notið samkeppninnar sem ríkt hefur í
rekstri matvömverslana á höfuðborgarsvæðinu.
Þeir búa við Qölbreytt vöruúrval og gæði, hagstætt
verð og stöðugt sem leiðir til þess að neytendur hafa gott
verðskyn. Auk þess bjóða hinar ýmsu verslanir margar
vömtegundir á sérstöku tilboðsverði. DV leggur sig
fram, sem neytendablað, að kynna neytendum úrval
þessara tilboða á neytendasíðu blaðsins á hverjum
fimmtudegi.
Samkeppnin sem ríkir í sölu þessara helstu neyslu-
vara hverrar fjölskyldu hefur leitt til búbótar sem mun-
ar um. Það hefur komið fram að verðhjöðnun varð í júlí
og var hún einkum rakin til samkeppni stórmarkaðanna
á höfúðborgarsvæðinu. Um leið hefur þessi samkeppni
knúið fyrirtækin, sem að koma, til hagræðingar í rekstri
og kallað á ferskar hugmyndir sem duga til þess að lifa
af í harðri baráttu. Fyrirtækin verða að bjóða vel, hvort
sem er í vömgæðum, verði eða þjónustu, en um leið að
skila eigendum sínum bærilegum arði. Neytendur njóta
samkeppni sem er hörð en heilbrigð.
Inn í þetta umhverfí á höfuðborgarsvæðinu kemur nú
nýr aðili en um leið með mikla reynslu af sínu heima-
svæði. KEA verður að standa sig á sömu forsendum og
aðrir sem keppa um hylli neytenda á þéttbýlasta hluta
landsins.
Fjölgunin ætti aðeins að verða neytendum til góðs.
Jónas Haraldsson
Nýjum kafla í gaman-
leik ríkisstjómarinnar í
bankamálunum lauk
meö ríkisstjórnarfundi í
dag, föstudaginn 28.
ágúst. Stutt og laggott
var niðurstaða fundarins
sú þegar síaður er frá
orðavaðall ráðherranna
að öflmn áformum vors-
ins og sumarsins, öllu
bröltinu og viðræðunum
um sölu rikisbankanna
er hætt. Á máli við-
skiptaráðherra sem fjöl-
miðlamir átu flestir eftir
gagnrýnislaust heitir það
að vísu að sölunni sé
frestað fram yfir kosn-
ingar eða að ekki verði af
sölunni á þessu kjörtíma-
bili. Rétt eins og Finnrn-
Ingólfsson þiggi vald sitt
frá Guði eins og þjóð-
höfðingjar miðaldanna
og hafi fyrir því trygg-
ingu að sitja sem við-
skiptaráðherra um aldur
og ævi. En niðurstaðan
er sem sagt þessi; þetta
Halldór Ásgrímsson og Finnur Ingólfsson. - Hafa báðir hlaupiö rækilega apríl í
bankamálunum og málið í heild eitt allsherjar aprílgabb, segir Steingrímur m.a. í
grein sinni.
Aprílgabb í
bankamálum
hafa báðir Hafldór Ás-
grímsson og Finnur
Ingólfsson hlaupið
rækilega apríl í banka-
málunum og málið í
heild eitt allsherjar apr-
ílgabb.
Midsommarfest
Aumingja Gustavsson,
fulltrúi Skandinaviska
Enskilda bankans, hlýt-
ur við svo búið að taka
saman föggur sínar og
hverfa af landi brott og
er alveg óvíst að hann
hugsi hlýlega til þeirra
Ásgrímsson og Ingólfs-
son né gefi þeim háa
einkunn ef hann skyldi
eiga eftir að skrifa end-
„Það sem eftir stendur er að það
komst á dagskrá ríkisstjórnar-
innar í fullri alvöru, a.m.k. hjá
viðskiptaráðherra og utanríkis-
ráðherra, að hafa rúmlega árs-
gamlar yfirlýsingar um að ríkis-
bankarnir yrðu ekki seldir fyrstu
fjögur árin að engu.u
Kjallarinn
Steingrímur J.
Sigfússon
alþingismaður
var allt í plati, sölu-
hugmyndimar, við-
ræðurnar við Sví-
ana og bréfaskrift-
imar við íslands-
banka var létt sum-
aræfing hjá ríkis-
stjóminni, í raun
og veru eitt lengsta
aprílgabb sögunn-
ar.
Það sem eftir
stendur er að það
komst á dagskrá
ríkisstjómarinnar í
fúflri alvöru, a.m.k.
hjá viðskiptaráð-
herra og utanríkis-
ráðherra, að hafa
rúmlega ársgamlar
yfirlýsingar um að
ríkisbankarnir
yrðu ekki seldir
fyrstu fjögur árin
að engu. Margt
bendir til að ráð-
herrarnir hafi átt
frumkvæði að því
að taka upp sam-
hand við Svía um
sölu á stóram hlut
Landsbankans.
Þegar svo til átti
að taka reyndist
engin samstaða um
eitt né neitt í ríkis-
stjóminni og samstarfsflokkurinn,
Sjáifstæðisflokkurinn, með Davíð
Oddsson forsætisráðherra í broddi
fylkingar var lítt hrifinn af sumar-
leikfimi framsóknarmanna í
bankamálum. Ljóst var allt frá
fyrstu innkomu Davíðs í málið að
hann var með höndina á brems-
unni. Niðurstaðan er sú að þeir
urminningar sínar. Ekki veit ég
hvort sá siður er þekktur í Svíþjóð
að láta menn hlaupa apríl en þeir
Hafldór og Finnur gætu í staðinn
reynt að skjóta sér bak við þá
sænsku hefð að halda hásumarið
hátíðlegt með miklum tilþrifum,
brennum, firverkerii og gleðilát-
um sem einu nafni nefnast
Midsommcirfest. Gæti þá afsökun-
arbeiðni þeirra útlagst þannig á
góðri sænsku: „Ursákta mig men
vi skulle bara fyra Midsommar.“
Þegar afsökunarbeiðnin verður
skrifuð til íslandsbanka er óþarfi
að gripa til sænskunnar. Þar dug-
ar gamla góða islenskan: allt í
plati. Hvort bankamálaráðherrann
og utanríkismálaráðherrann hafa
svo beinlínis lagt inn á þeim bæ
skal ósagt látið.
Gamansamir menn
Að lokum og að öllu gamni
slepptu er þessi bankamálafarsi
eða tragikomedía ríkisstjómarinn-
ar auðvitað sorglegt dæmi um
stjómsýsluhætti eins og þeir eiga
ekki að vera. Eftir stendur að í
mikilvægum og viðkvæmum
málaflokki rikti lausung og skort-
ur á stefnufestu sem þarf að vera
fyrir hendi. Afleiðingin var óró-
leiki og ókyrrð í þessum efnum
sem eðlilega kemur illa við starfs-
fólk og samtök þess. Lengi vel þá
láðist viðskiptaráðherra að svo
mikið sem muna eftir því að við
bankastarfsemi vinna um 3.000
manns í landinu og atvinnuör-
yggi þeirra og framtíð er ekki
efniviður til að nota í gamanmál.
Það er að sjálfsögðu af hinu
góða að menn létti sér upp, geri
að gamni sínu og glettist og síst
skal úr því dregið að þeir gætu
verið í þörf fyrir það að hlæja ein-
stöku sinnum, Finnur Ingólfsson
og Halldór Ásgrímsson. Heppilegt
er að þeir finni sér eftirleiðis önn-
ur tilefhi og annan vettvang tfl að
fá útrás fyrir gamansemi sína
heldur en bankamálin.
Steingrímur Sigfússon
Skoðanir annarra
Sjúkraskrár til umræðu
„Nokkur mál hafa risið vegna meintrar dreifingar
upplýsinga úr sjúkraskrám. Nær undantekningar-
laust hefur slíkur leki verið rakinn til aðstandenda.
Öllum sem legið hafa á sjúkrahúsum er vel kunnugt
um að sjúklingar ræða gjarnan sín á milli um sjúk-
dóma er þá hijá. Sjúklingur er liggur í næsta rúmi
er ekki bundinn þagnarskyldu og því síður aðstand-
andi hans. Trúi ég að þannig megi rekja flestar „sög-
ur“ frá sjúkrahúsum. Vissulega getur þú treyst ná-
unga þínum eða vini en ekki þar með sagt að þú
treystir viðmælanda hans.“
Ólafur Ólafsson landlæknir í Mbl. 3. sept.
Lýðræði á fréttastofu Sjónvarps
„Ég hef greint fréttastjóra frá því að ég geti vart
treyst mér til að ganga hér vaktir ef Sigurður verður
ráðinn, eftir að hann hefur komið svona fram. Mér
finnst að Sigurður hafi allt að því svikið starfsfélaga
sína með því að hlaupa beint til æðstu yfirmanna
með þessa kæra. Fyrir utan það sem hann heldur
fram um Helga þá er hann að bera brigður á vinnu-
brögð okkar hinna í leiðinni. Ég get ekki séð hvem-
ig ég á að treysta Sigurði eftir þessa uppákomu."
Þrötur Emílsson fréttamaður í viötali í Degi 3. sept.
Veggjald og virðisaukaskattur
„Það era mikilvægir byggðahagsmunir sem tengj-
ast tilkomu Hvalfiarðarganga og því er það mikið
hagsmunamál að veggjaldið sé sem lægst. Það hefur
bein og óbein áhrif á kostnaðarútgjöld fólksins sem
býr i landinu, jafnt á landsbyggðinni sem á höfuð-
borgarsvæðinu. Það er því fullkomlega eðlilegt að
líta jákvæðum augum á erindi sveitarfélaga á Vest-
urlandi og fleiri aðila sem hafa farið fram á að rík-
issjóður felli niður innheimtu VSK af veggjöldum af
umferðinni sem fer um göngin. Fjölmörg rök hníga
að því að þær kröfur séu rökréttar og eölilegar."
Magnús Stefánsson alþm. í Mbl. 3. sept.