Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.1998, Blaðsíða 18
26
FÖSTUDAGUR 4. SEPTEMBER 1998
Sviðsljós
Danaprinsar voru ekki beint í náð-
inni hjá karli foður sínum um daginn.
Og er þá vægt til orða tekið.
Þannig er að Henrik drottningar-
maður lánaði sonum sínum tveimur,
þeim Friðriki rikisarfa og Jóakim,
sumarhöll íjölskyldunnar, Ca'ix-kast-
ala, í suðvesturhluta Frakklands áður
en hann hélt þangað sjálfur í árlegt
leyfi með frúnni, Margréti Þórhildi
Danadrottningu. Fyrst var Friðrik
með kastalann í viku og síðan Jóakim
í jafnlangan tima. Skemmst er frá að
segja að aðkoman var hræðileg. AUt
var á tjá og tundri og var Henrik ekki
skemmt, að sögn þeirra sem til þekkja.
Drottningarmaður hafði að sjálf-
sögðu reiknað með að synimir og vin-
ir þeirra myndu taka til eftir sig og
skilja við kastalann eins og þeir komu
að honum. Annað kom þó á daginn, að
því er danska vikuritið Billed Bladet
greinir frá.
Þegar drottningarmaður komst loks
Henrik drottningarmaður búinn að taka til og þau hjónin eru afskaplega glöð
í sinni í sumarieyfishöllinni Cai'x í Frakklandi.
inn í kastala sinn fór ekki á miili mála
að þar hafði verið mikili glaumur.
Það sem skapraunaði Henrik mest
var að mikiil fjöldi húsgagna var ann-
að hvort eyðilagður eða stórskemmd-
ur og allt flaut í drasli. Engu að síður
höfðu prinsamir þó haft fyrir þvi að
bera út stóra ruslasekki með tómum
flöskum.
Og talandi um flöskur. Prinsamir
og vinir þeirra höfðu gert sig heima-
komna í vinbirgðum kastalans og
drakkið mestallt sem þar var að finna.
Það eina sem þeir skildu eftir var
vesæl viskíflaska svo pabbi gamli
hefði eitthvað til að staupa sig á rétt á
meðan hann væri að jafna sig eftir
reiðikastið.
Henrik þurfti að láta hendur standa
fram úr ermum því koma varð húsinu
í lag áður en Margrét Þórhildur kæmi
til Frans. Það hafðist og allt fór vel að
lokum.
Geri og George
vinna saman að
sætri tónlist
Þau eru nú bæði óttalegt sæta-
brauðsfólk, þau Geri Halliwell, fyrr-
um kryddpía, og George Michael
pípupoppari. Það er því ekkert und-
arlegt þótt þau stingi aðeins saman
nefjum í hljóðverinu. Mörgum þyk-
ir það að vísu nokkuð undarleg
samsuða, en hvað með það.
„George var að reka smiðshöggið
á eitthvað af nýju efni og bað Geri
um að syngja með sér á ballöðu,"
segir vinur kryddpíunnar fyrrver-
andi. „Geri var nú hálfnervös yfir
þessu öllu saman en George stapp-
aði virkilega í hana stálinu og
hvatti hana til dáða. Hún sagði að
þetta hefði verið eins og gamall
draumur sem rættist."
Við bíðum spennt.
Harry litli prins virðist hafa tekið forustuhlutverkið strax á fyrsta degi sínum í hinum virta einkaskóla, Eton. Hér má
sjá hvar prinsinn fer fyrir skólafélögum sínum á leið frá heimavistinni í fyrstu kennslustund vetrarins.
BUBBl
Bíóhöllin Akranesi
föstudaginn 4. september
kl. 21:00
Ofurfyrirsætan Cindy Crawford
sló ljósmyndara til jarðar
Ofurfyrirsætan Cindy Crawford
er í Sviss þessa dagana í vinnu- og
skemmtiferð. Hún situr fyrir á
myndum og þegar hlé verður á
myndatökum fer hún út á golfvöll
til þess að sveifla kylfum. í viðtali
við þýska sjónvarpsstöð kvaðst
fyrirsætan hafa gengið í golfskóla
í New York.
En skólagangan hefur greinilega
ekki verið nógu löng því í einni
sveiflunni sló hún ljósmyndarann
Norbert Schmidt til jarðar.
Schmidt er sagður vera kominn
á fætur á ný. Hann hefur hins veg-
ar lýst því yflr að í framtíðinni
ætli hann að halda sig langt frá
þeim stöðum þar sem Cindy sýnir
hvað hún lærði í golfskólanum
fína í New York.
Clint á leið upp
í himingeiminn
Clint Eastwood er sjálfsagt
vanari að ferðast um á þarfasta
þjóninum ferfætta en flestum
öðrum fararskjótum. Nú finnst
kappanum hins vegar kominn
tími til að gerast pínulítið nú-
tímalegur og koma sér um borð í
geimflaug. En kúrekalífið verður
ekki langt undan því myndin
sem Clint ætlar að leikstýra og
leika í heitir einmitt Geimkúrek-
ar. Það verður skemmtilegt hott.
Rándýrt eftirlit
með barni Jodie
Jodie Foster vildi eiga bamið
sitt ein og taldi sig vel geta
komist af án þess að hafa
einhvern karl í húsinu. Hún
telur sig þó ekki getað passað
nógu vel upp á son sinn sjálf því
hún hefur keypt sérstakt
eftirlitskerfi upp á tugi milljóna
króna til að tryggja að ekkert
komi fyrir þann stutta. Jodie
getur því sofið rólega.
Henrik drottningarmaður alveg rasandi:
Prinsarnir skildu við
allt í óreiðu í höllinni