Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.1998, Qupperneq 28
FÖSTUDAGUR 4. SEPTEMBER 1998 T>V
Y—i • 1 •
Fjandinn
þakki þeim
„Nú auglýsa menn upp að Sam-
herji ætli að fara að borga skatta.
, Það er eins og það sé
i einhver sérstakur
, greiði við þjóðfélag-
, ið. Svo segja þeir að
næst muni miklu
i fleiri borga. Það er
i einmitt það, segi
ég bara. Fjandinn _
þakki það aö
borga skatta.“
Sverrir Hermannsson, í DV.
Flott fólk
„Við leituðum á öllu Síberíu-
svæðinu og þarna er mjög flott
fólk og alla langar að fara í burtu.
Flestir sjá vestrið í hillingum.
Þetta er vel byggt og laglegt fólk i
og ekki ólíkt okkur ísiendingum.
Við munum byrja að leita í skól-
unum að fólki frá 15-16 ára.“
Ásta Sigríður Kristjánsdóttir,
annar eigandi Eskimo Models,
í Mbl.
Spjall sjúklinganna
„Nokkur mál hafa risið vegna
meintrar dreifingar upplýsinga
úr sjúkraskrám.
Nær undantekning-
arlaust hefur slíkur
leki verið rakinn
til aðstandenda.
Öllum sem legið
hafa á sjúkrahús-
um er vel kunn-
ugt um að sjúklingar
ræða gjarnan sín á milli um sjúk-
dóma er þá hrjá. Sjúklingur er
liggur í næsta rúmi er ekki bund-
inn þagnarskyldu og því síður að- ,
standandi hans.“
Ólafur Ólafsson landlæknir,
i Mbl.
Úr sér genginn trúður
„Háhymingur sem ekki ber:
nafn með rentu, því hornið á hon-
um er slappara og aumingjalegra \
en á nokkrum öörum háhymingi
sem syndir um höfin með reist
hom og og grimmilega veiði-
tækni. Aumingi sá sem Vest-
mannaeyingar ætla aö taka i fóst-
ur hefur verið búraður inni í ára-
tugi og er nú orðinn gamall og úr
sér genginn trúður, sem búinn er
að skila eigendum sínum ofsa-
gróða í nafni frelsis sem hann
hefur aldrei fengiö að njóta.“
Oddur Ólafsson, í Degi.
Það er búið á íslandi
„Ég vissi ekki einu sinni að það
byggi fólk á íslandi, hvað þá að
þar væri starfandi dansflokkur."
Chad Adam Bantner dansari, í
Degi.
Hvem langar
þig mest til
að hitta?
„Amold
Schwarzenegger."
Sævar Guðmunds
son, 9 ára, i DV.
!
Einar Njálsson, nýráðinn bæjarstjóri í Grindavík:
Ætlar að leggjast á árarnar
Einar Njálsson er Húsvíkingur og
með próf frá Samvinnuskólanum.
Hann var útibússtjóri Samvinnu-
bankans á Húsavík í rúm 20 ár eöa
þar til bankinn hætti starfsemi árið
1990. Þá settist Einar í bæjarstjóra-
stólinn og það sæti vermdi hann
næstu átta árin. „Um það leyti sem
Samvinnubankinn hætti starfsemi
bauðst mér að gerast bæj-
arstjóri. Ég var á lausu og
sló þess vegna til.“ Einar
hafði þá ekkert vasast í
bæjarpólitík. „1 gegnum starf mitt
vegna breytinga sem höfðu orðið í
meirihluta bæjarstjómarinnar á
Húsavík. Hann átti þess vegna ekki
kost á að fá endurráðningu. „Við
hjónin gerðum okkur vel grein fyr-
ir því hver staða mín var á Húsavík
en staða bæjarstjóra almennt er háð
því hvernig úrslit kosninga fara.
Þegar undirbúningur kosning-
Maður dagsins
sem útibússtjóri hafði ég hins vegar
töluverða þekkingu á málefnum
sveitarfélagsins, s.s. atvinnumál-
um.“
Staða bæjarstjóra Grindavíkur var
auglýst á þessu ári og var Einar einn
átján umsækjenda. Hann hreppti
stöðuna og er fluttur til kaupstaðar-
ins við sjóinn ásamt eiginkonu sinni,
Sigurbjörgu Bjarnadóttur. Hjónin
eiga þrjár dætur. Guðný Dóra er 29
ára og stundar nám í sálarfræði við
Háskóla íslands. Árnína Björg er 27
ára viðskiptafræðingur frá Háskólan-
um og er deildarstjóri hjá Eimskip.
Hún er gift Sigtryggi Heiðari Dag-
bjartssyni sölumanni. Kristjana er 21
árs og stundar nám í líffræði við Há-
skólann.
Þegar Einar situr ekki í bæjar-
stjórastólnum sinnir hann áhuga-
málum sínum. „Ég hef gaman af
gönguferðum, ferðalögum, skiðaiðk-
un og veiðiskap og þá aðallega skot-
veiði.“ Hann segist hættur að
stunda laxveiði.
Einar sótti um bæjar-
stjórastarfið í Grindavík Einar Njálsson.
anna stóð yfir tókum við þá
ákvörðun að við myndum
flytja frá Húsavik ef ég ætti
ekki kost á endurráðningu. Við
höfum bæði áhuga fyrir því að
prófa eitthvaö nýtt þannig að við
litum fyrst og fremst á þetta
sem tæídfæri."
íbúar Grindavíkur
eru um 2200, Einar
ætlar að leggjast á
áramar með þeim
og vinna með þeim
að þeim stefnu-
málum sem meiri-
hluti bæjar-
stjórnar og bæj-
arstjómin
sem heild
hefur
mótað.
„Ég mun
auðvitað
nýta
mína
reynslu
og mínar
hugmyndir til framfara hér.“ Einar
er spurður hver verði hans aðalá-
herslumál. „Ég ætla að byrja á því
að kynnast bænum, bæjarbúum og
málefnum þeirra áður en ég til-
greini eitthvað sérstakt."
Einar segir hins vegar að það sé
augljóst að hafnarmál og uppbygg-
ing hafnarinnar sé
stærsta málið sem sé
á döfinni. „Ég geri
ráð fyrir því að ég
muni fyrst og
fremst beita mér i
því máli.“ Einar
ætlar þá að leggj-
ast á áramar af
krafti.
-SJ
Djass-
tónar
hljóma á
Café
Karolínu
á morg-
un.
Djasstónar á
Café Karolínu
Á morgun kl. 22 hefjast
tónleikar á Café Karolínu í
Deiglunni á Akureyri með
djasstríóinu Robin Nolan
Swing Trio. Tríóið er þekkt
víða um lönd og er mikill
fengur fyrir djassáhugafólk
fyrir norðan að fá það í
heimsókn. Þrátt fyrir ung-
an aldur hefur tríóið leikið
inn á 5 geisladiska og verið
hyllt á mörgum viður-
kenndum djasshátíðum.
Tónleikar
Robin Nolan er sóló-gítar-
leikarinn og hefur fengið þá
umsögn að vera einn besti
djassgítarleikari í heimi og
í ætt við djass hins dáða gít-
arleikara Django Reinhardt.
John Friedrick leikur á
hljómagítar og Paul Meader
á kontrabassa. Tónlistar-
mennimir búa í Hollandi.
Lögin sem tríóið leikur
eru flest af vinsældalista
þriðja og fjórða áratugarins
og útfærð í anda Django
Reinhardt.
Skjólbretti.
Myndgátan hér aö ofan lýsir hvorugkynsoröi.
Rommí mun vera eitt vinsælasta
leikrit sem sett hefur veriö upp á
íslandi.
Rommí
frumsýnt
íIðnó í
kvöld
í kvöld verður frumsýnt í Iðnó
hið átakanlega gamanleikrit
Rommí sem sýnt var hér á landi
fyrir 20 árum. Það mun vera eitt
vinsælasta leikrit sem sett hefur
verið upp á íslandi.
Margir muna eftir þeim Gísla
Halldórssyni og Sigríði Hagalín i
hlutverkum Wellers og Fonsíu
en í uppfærslu Iðnó em það Er-
lingur Gíslason og Guðrún Ás-
mundsdóttir sem fara með hlut-
verk þeirra. Aldrei hefur verið
sýnt fram á hvort heppni í spil-
um hafi haft áhrif á ástarmálin
en samband Wellers og Fonsíu er
átakanlegt en í senn hugljúft.
Leikhús
Leikstjóri er Magnús Geir
Þórðarson. Hann hefur leikstýrt
fjölda leikrita við góðan orðstír
s.s. Stone Free og Veðmálinu.
Leikmynda- og búningahönnuð-
ur er Snorri Freyr Hilmarsson
og ljósahönnun er í höndum
Lárasar Bjömssonar. Hljóm-
sveitin Skárr’en ekkert sér um
tónlistina í sýningunni en tón-
listin er öll frumsamin.
Bridge
Hvað myndi lesandinn gera með
spil norðurs eftir þessar sagnir? Þú
ert með þessa miklu skiptingarhönd
í útsláttarleik á HM í sveitakeppni í
Lille í Frakklandi sem er að ljúka
þessa dagana. Þeir sem vilja spreyta
sig á dæminu skoði aðeins sagnim-
ar og hönd norðurs:
4 Á8742
*4 7
•f KG108752
* -
4 K109
44 832
4 4
* G109752
4 DG5
* K1064
* D
* ÁKD83
Austur Suður Vestur Norður
1 <4 2 * * pass 2 fpass
3 grönd pass ?
Spilið kom fyrir í leik franskrar
(Veronique Bessis) og bandarískrar
sveitar (Nadine Wood) í fjórð-
ungsúrslitum í kvennaflokki og
sagnir höfðu
gengið eins á
báðum borðum
fram að þessu.
Þar sem frönsku
konumar vora
með hendur n-s,
ákvað norður að
passa þriggja
granda sögn fé-
laga síns. Sagn-
hafa tókst ekki að vinna spilið í
þessari legu og fékk 8 slagi. Á hinu
borðinu sat fyrirliðinn Nadine
Wood í norður og hún ákvað að
segja 4 spaða. Sú sögn var pössuð út
og sagnhafi gaf aðeins 3 slagi, rauðu
ásana og einn á tromp. Sveit Nadine
græddi 10 impa á spilinu og vann
síðar leikinn með 12 impa mun.
ísak Öm Sigurðsson