Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.1998, Síða 29
I>V FÖSTUDAGUR 4. SEPTEMBER 1998
37
Verk eftir Ólaf Elíasson.
Ólafur Elías-
son í Gallerí
Kambi
Á morgun kl. 15.00 verður opn-
uð sýning í Gallerí Kambi á verk-
um Ólafs Elíassonar. Listamaður-
inn fæddist í Kaupmannahöfn
1967 og hlaut myndlistarmenntun
sína í Konunglegu Listaakademí-
unni þar í borg á árunum
1989-1995. Þrátt fyrir ungan aldur
telja margir Ólaf vera einn
þekktasta islenska myndlistar-
manninn á alþjóðavettvangi í dag.
Á þessu ári eru haldnar tíu einka-
sýningar á verkum hans víða um
heim fyrir utan þátttöku í tugum
samsýninga.
Sýningar
Bjarni Jónsson
á Eskifirði
Bjarni Jónsson listmálari opnar
sýningu á verkum sínum í kvöld.
kl 20.00 i Verkalýðsfélagshúsinu á
Eskifirði. Myndir hans eru málað-
ar í hlutbundnum stíl og er margt
myndefnið sótt í þjóðlíf fyrri tíma.
Sýningunni lýkur á sunnudags-
kvöld.
Tónlistarmennirnir sem ætla að
töfra fram dapra en ástríöufulla
tóna.
Daprir en
ástríðufullir
tónar
Annað kvöld kl. 21.00 hefjast tón-
leikar í Kafiileikhúsinu í Hlaðvarp-
anum sem nefnast Kvöld hinna
döpru en ástríðufullu tóna. Þar mun
bandaneonleikarinn Oliver Manoury
leika af sinni alkunnu snilld ásamt
góðum gestum. Þeir eru Edda
Heiðrún Backman söngkona og leik-
kona, Tómas R. Einarsson kontra-
bassaleikari og Árni Heiðar Karls-
son píanóleikari.
Tónleikar
Oliver hefur komið reglulega fram
á tónleikum á íslandi í 15 ár. Hljóð-
færi hans, bandaneon, er þýskt að
uppruna en barst til Argentínu í
byrjun aldarinnar þar sem segja má
að hljóðfærið hafi fyrst fengið „tón-
list við sitt hæff'. Fyrir mörgum er
bandoneon tákn tangótónlistarinnar.
Hópurinn mun flytja argentínska
tangóa, brasilísk lög frá sjöunda ára-
tugnum, djassballöður auk íslenskra
laga m.a. við ljóð eftir Halldór Lax-
ness og Ingibjörgu Haraldsdóttur og
lög úr sýningu Leikfélags Reykjavík-
ur, Evu Lunu.
Hópurinn lofar dapri en ástríðu-
fullri stemningu á tónleikunum og
fer vel á slíku nú í haustbyrjun.
Sveitaball Stuðmanna
á Seltjarnarnesi
Stuðmenn verða með tónleika á Seltjarnarnesi á laugardaginn.
í sumar hafa Stuðmenn
verið á ferð og flugi um
landið og hefur hljómsveitin
víðast hvar slegið eigin að-
sóknarmet frá fyrri tíð. Upp-
haflega átti ferð hljómsveit-
arinnar um landið að ljúka
á þjóðhátíð í Eyjum en mik-
il eftirspurn olli því að það
teygðist úr ferðinni.
Skemmtanir
Nú um helgina hyggjast
Stuðmenn taka lokahnykk-
inn annars vegar i Sjallan-
um á Akureyri og hins veg-
ar með því að halda ærlegt
sveitaball á Seltjarnamesi á
laugardagskvöld. Félags-
heimili Seltiminga við Suð-
urströnd varð fyrir valinu
en þar munu ekki hafa ver-
ið haldnar opinberar sam-
komur af þessu tagi um árabil.
Félagsheimilið er þeim kostum
búið að við það tengjast stórir salir
svo ekki sé talað um sundlaugina á
Seltjarnamesi. Því ætti að rúmast
bærilega sá fjöldi sem væntanlega
mun þyrpast að til að berja Stuð-
menn augum af þessu tilefni. Diskó-
tekarar og gó-gó dansarar munu
koma fram með hljómsveitinni.
Auk þess má reikna með óvæntum
gestasöngvurum í Félagsheimilinu
á Seltjamamesi.
Forsala aðgöngumiða er milli kl.
13 og 18.
Fremur hæg suðlæg átt
Næsta sólarhring verður fremur
hæg suðlæg átt um mestallt land.
Smáskúrir eða dálítil súld verður
Veðrið í dag
öðru hverju sunnanlands en annars
að mestu þurrt og víða bjart inn til
landsins. Hiti verður víða 11 til 16
stig að deginum en 5 til 10 stig í
nótt.
Á höfuðborgarsvæðinu verður
sunnan- og suðaustangola. í dag
verður lítils háttar rigning öðru
hverju. Hiti verður 10 til 15 stig.
Sólarlag í Reykjavík: 20.34
Sólarupprás á morgun: 06.21
Síðdegisflóð í Reykjavík: 17.09
Árdegisflóð á morgim: 05.27
Veðrið kl. 6
í morgun:
Akureyri skýjaó 8
Akurnes léttskýjaö 7
Bergsstaðir skýjað 8
Bolungarvík alskýjað 9
Egilsstaóir 3
Kirkjubœjarkl. skúr á síó. kls. 8
Keflavíkurflugvöllur rigning á síð. kls 9
Raufarhöfn rigning 9
Reykjavík rign. á sió. kls. 10
Stórhöfói úrkoma í grennd 10
Bergen alskýjað 12
Helsinki skýjaö 12
Kaupmannahöfn léttskýjaó 12
Osló Stokkhólmur léttskýjaö 10
Algarve léttskýjað 19
Amsterdam skýjað 14
Barcelona þokumóóa 22
Dublin rigning 13
Halifax alskýjaö 17
Frankfurt rign. á síð. kls. 15
Hamborg súld 13
Jan Mayen rigning og súld 7
London þokuruðningur 13
Lúxemborg þokumóóa 13
Mallorca þoka í grennd 21
Montreal alskýjað 15
New York hálfskýjaó 22
Nuuk skýjaö 4
Orlando hálfskýjaó 24
París þokumóöa 12
Róm þokumóöa 21
Vín þokumóóa 13
Washington alskýjaó 21
Winnipeg heiðskírt 16
Færð á
hálendinu
Hálendisvegir era allir færir fjallabílum, ein-
staka leiðir eru þó færar öflum vel búnum bílum,
má þar nefna Kjalveg, Landmannalaugar, Kaldadal,
Tröllatunguleið, Uxahryggi og Djúpavatnsleið. Á
Færð á vegum
nokkrum stöðum eru vegavinnuflokkar að lagfæra
vegi, meðal annars á Suðurlandsundirlendi og
Austfjörðum, og ber bílstjórum að virða merkingar
áður en komið er að þeim köflum.
Afmælisgjöf
pabba
Brynjar Steinn brosir
fallega framan í ljós-
myndarann. Hann fædd-
ist 14. apríl á fæðingar-
deild Landspítalans og
þegar hann kom í heim-
Barn dagsins
inn var hann 3.565 g og 52
sm. Foreldrar snáðans
eru Þómnn Jónsdóttir og
Haraldur Helgason og er
hann þeirra fyrsta bam.
Það vildi svo skemmti-
lega til að pabbinn fékk
Brynjar Stein í afmælis-
gjöf.
Jean Reno leikur leyndardóms-
fullan tryggingamann sem er í
raun að vinna fyrir leyniþjónustu
Frakklands.
Godzilla
Árið 1954 gerðu Japanir kvik-
mynd um stökkbreytt risaskrímsli
sem lagði Tokyo í rúst. Ástæðan
fyrir gereyðingunni var að
Godzilla var aö hefna sín á mann-
kyninu því á þeim tima stóð víg-
búnaðarkapphlaupið sem hæst og
kjarnorkuváin var afls staðar. Síð-
an hafa Japanir gert rúmlega 20
kvikmyndir um Godzilla. Árið 1956
kom bandarísk útgófa af Godzilla
og nú er farið að sýna nýjustu
myndina á Islandi.
ý7//////z
Kvikmyndir
Hún hefst á kjarn
orkutilraunum Frakka
í Kyrrahafi og af henn-
ar völdum verður stökkbreyting á
eggi eðlu einnar. Risavaxin skepna
kemur svo í heiminn. Hún veldur
eyðileggingu víðs vegar um Kyrra-
hafið og stefnir á austurströnd
Bandaríkjanna. Skepnan er á stærð
við 20 hæða blokk og hleypur á 300
km hraða á klst.
Leikstjóri myndarinnar er Rol-
and Emmerich og í aðalhlutverk-
um era Matthew Broderick, Jean
Reno og Maria Pitillo.
Nýjar myndir:
Bíóborgin: Lethal Weapon 4
Regnboginn: The X-Files
Háskólabíó: Sporlaust
Kringlubíó: Mafia
Krossgátan
7 r~ T~ TJj f
IÖ TiT fjP® 1 mm
, | r ir
1 u
iH j " To
h l
Lárétt: 1 örlaganorn, 6 skoða, 8
virki, 9 hlaup, 10 krap, 11 félaga, 12
stiflast, 14 þegar, 15 hressu, 16 gang-
hljóð, 18 haf, 19 fresta, 21 spjald.
Lóðrétt: 1 digur, 2 síki, 3 hræddur,
4 sjóngler, 5 hirð, 6 varúð, 7 spil, 13
skýlaus, 14 ekki, 15 hestur, 17 bakki,
20 átök.
Lausn á síðustu krossgátu:
Lárétt: 1 spurn, 6 ha, 8 lúr, 9 eyra,
10 ólmi, 11 tað, 12 truflun, 15 tól, 16
líka, 17 ussa, 18 kul, 20 galsa, 21 ró.
Lóðrétt: 1 slóttug, 2 púl, 3 urmuls, 4
reif, 5 nyt, 6 hraukur, 7 auðna, 13
rósa, 14 líka, 16 las, 19 ló.
Gengið
Almennt gengi LÍ 04. 09. 1998 kl. 9.15
Eining Kaup Sala Tollqenqi
Dollar 70,880 71,240 72,300
Pund 118,240 118,840 119,510
Kan. dollar 46,110 46,390 46,030
Dönsk kr. 10,6850 10,7410 10,6170
Norsk kr 9,1350 9,1850 8,9260
Sænsk kr. 8,9430 8,9930 8,8250
Fi. mark 13,3720 13,4510 13,2590
Fra. franki 12,1290 12,1990 12,0380
Belg. franki 1,9707 1,9825 1,9570
Sviss. franki 49,4600 49,7400 48,8700
Holl. gyllini 36,0200 36,2400 35,7800
Þýskt mark 40,6700 40,8700 40,3500
(t. líra 0,041340 0,04160 0,040870
Aust. sch. 5,7810 5,8170 5,7370
Port. escudo 0,3967 0,3991 0,3939
Spá. peseti 0,4787 0,4817 0,4755
Jap. yen 0,521800 0,52500 0,506000
írskt pund 102,070 102,710 101,490
SDR 95,830000 96,40000 96,190000
ECU 80,1100 80,5900 79,7400
Simsvari vegna gengisskréningar 5623270